Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 20
20 MORG UNBLAÐI£»’ LA ÚGÁRD AG UR 8. FÉBRÚAR 1975 Styrktarfélag holdsveikra gefur í Norðfjarðarsöfnun FÉLAGSSKAPUR í Frakklandi, sem hefur á stefnuskrá sinni bar- áttu gegn holdsveiki, hefur sent 10 þúsund franka (um 270 þús. ísl. kr.) til franska sendiherrans á Islandi, M.J. de Latour Dejean, með beiðni um að hann komi því í Norðfjarðarsöfnunina hjá Rauða krossinum. En tslendingar gáfu rausnarlega til söfnunar þessa félagsskapar til styrktar holds- Tillaga Fords felld í nefnd Washington, 7. febrúar Reuter. FJARVEITINGANEFND full- trúadeildar Bandarfkjaþings hefur fellt skattalækkunar- frumvarp Fords forseta og samþykkt tillögu um meiri skattalækkanir. Ford forseti hafði lagt til, að skattar yrðu lækkaðir um 16 milljarða dollara en fjárveit- inganefndin samþykkti, að skattar yrðu lækkaðir um 20 milljarða dollara. Nefndin samþykkti tillög- una með 28 atkvæðum gegn 5 og talið er, að hún komi til umræðu f fulltrúadeildinni 18. febrúar. Áður hafði fulltrúadeildin fellt með 309 atkvæðum gegn 114 tillögu Fords um tolla á innflutta olfu. Talið er, að repúblikanar og ef til vill demókratar frá olíufram- leiðslufylkjum muni beita sér ákaft gegn þvf að frumvarp Fords verði fellt í öldunga- deildinni. Samkvæmt skattalækkunar- tillögu fjárveitinganefndar- innar á að lækka skatta um 90 milljón skattborgara um 16,4 milijarða dollara og skatta fyr- irtækja um 3,8 milljarða doll- ara. Samkvæmt frumvarpi Fords á að lækka skatta einstaklinga um 12 milljarða dollara og fyr- irtækja um 4 milljarða dollara. Amtmanns- stígur 5A í BLAÐINU í gær var sagt að Reykjavíkurborg hefði boðizt til kaups húsið að Amtmannsstíg 5, en það átti að vera Amtmanns- stfgur 5A. Það er steinhús á horni Amtmannsstígs og Þingholts- strætis. RÉTTUR DAGSINS: Buff Strogonoff og jarðarberjarönd. Verð aðeins kr. 335.— og nú kynnum við ekta italskt _—v IW Munið okkar ódýru / sérrétti. veikum i Kongo, á aiþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna vegna holdsveikra fyrir tveimur árum, og mátu þessi samtök það mikils. Tildrögin, eru þau, að þessi frönsku styrktarsamtök holds- veikra sem nefnast Association Francaise des Fondation Raoul Follereau, eru aftur á ferðinni með söfnun til holdsveikra og spurðust fyrir um það hjá franska sendiherranum á íslandi, hvort áhugi mundi vera nú á slíkri söfn- un hér. Hann svaraði því til að ekki áraði vel hjá íslendingum og nýlega hefðu þeir sjálfir orðið fyrir áfalli, er snjóflóð féll í Norð- firði sem olli skemmdum og deyddi fólk. Og viðbrögð franska félagsskaparins eru að senda fé í Norðfjarðarsöfnunina, jafnframt því sem hann ætlar að nota sína kynningarmöguleika erlendis til að segja frá Norðfjarðarslysinu og hvetja til að send verði fram- lög. Leiðrétting 1 VIÐTALINU, sem birtist sl. föstudag í Mbl. við E.B. Pilcher, aðstoðarforstjóra Evrópudeildar Union Carbide, um fyrirhugaða járnablendiverksmiðju hér á landi, var meinleg villa vegna þess að orðið „ekki“ féll niður i lokakafla viðtalsins, þar sem fjall- að er um markaðshorfur á ferrosilikoni. Pilcher var spurður um markaðshorfurnar og hann svaraði „Við teljum þær mjög góðar og að efnahagskreppan muni ekki hafa teljandi áhrif á markaðina." Grafíksýning á Akranesi GRAFIKSVNING Önnu Sigríðar Björnsdóttur verður opnuð f bókasafni Akraness í dag, laugar- dag kl. 2. Þetta er farandsýning, sem byrjaði I Keflavík hinn 1. þessa mánaðar og hlaut þar góða aðsókn. Sýning Önnu Sigríðar verður næst komið upp á menningarvik- unni á Isafirði, sem þar er haldin ár hvert í tilefni sólarhátíðahalda bæjarbúa, og er það listafélag Menntaskólans á Isafirði sem sér um sýninguna. Fitumagn loðn- unnar innan við 10% KOMIÐ er í Ijós að fitumagn loðnunnar á þessari vertíð heldur sömu hlutföllum og á fyrri vertíðum, en I upphafi loðnuvertíðar taldi Jakob Jakobsson líkur á því að loðn- an mundi nú halda fitu lengur, vegna þess hve kaldur sjórinn er. Við sfðustu fitumælingar á loðnunni hjá Rannsóknastofn- un sjávarútvegsins, sem gerðar voru nú f vikunni, var fitumagnið komið niður fyrir 10 af hundraði, sem er svipað því sem verið hefur undan- farin ár. — Loðnuverð Framhald af bls. 36 myndi kaupa loðnu á þessu verði og svaraði hann því til, að Sölu- miðstöðin sem slík keypti enga loðnu, einstök frystihús innan vé- banda SH yrðu að vega og meta það hvert fyrir sig hvort þau hefðu áhuga á að vinna loðnu við þessar aðstæður. Benti hann á, að sum frystihúsanna hefðu nægi- legt hráefni annað til að vinna og hefðu þar af leiðandi engan eða lftinn áhuga á loðnufrystingu, en önnur hefðu lítil verkefni þar til netavertíð hæfist af alvöru, t.d. eins og á Suðurnesjum, og gæti því vel verið að forráðamenn þessara húsa mætu aðstæður þannig, að eins gott væri að frysta loðnuna og aðhafazt ekki neitt. Eyjólfur sagði ennfremur, að Sölumiðstöðin teldi sig geta fryst um 4—6 þús. tonn af loðnu fyrir Japansmarkað í ár. Jón Sigurðsson, formaður Sjó- mannasambandsins, sagði, að þetta hefði verið erfið verð- ákvörðun, þar sem annar fulltrúi kaupenda hefði setið hjá en hinn greitt atkvæði með. „Okkur full- trúum seljanda fannst verðið of lágt, en vildum samt ekki koma í veg fyrir að loðna yrði fryst og sátum við þvi hjá.“ Kristján Ragnarsson, formaður LlU, sagði, að þessi verðákvörðun bæri glöggt með sér hversu slæmt ástandið væri raunverulega í öll- um verðlags- og markaðsmálum sjávarútvegsins. Á sama tíma og loðnan reyndist stærri og betur fallin til frystingar en nokkru sinni áður, væri verðið í lágmarki og markaðsmöguleikar hverfandi. Kristján sagði, að augljóst mætti vera að þetta verðfall frystu loðn- unnar ofan á gffurlegt verðfall bræðsluloðnunnar ylli útgerðinni gífurlegum erfiðleikum á sama tíma og allur tilkostnaður I hækkaði stórkostlega. — Málm- og . . . Framhald af bls. 36 milljarði, sem áætlaða er að hallreksturinn á útgerðinni f ár verði." Sveinn Guðmundsson forstjóri Héðins sagði Morgunblaðinu, að ástandið þar væri mjög slæmt og að hann hefði í gærmorgun til- kynnt, að öll eftirvinna yrði felld niður eftir viku, en slíkt hefur ekki komið fyrir í mörg ár. Sveinn sagði, að verkefnin hefðu minnkað mjög undanfarið, enda reksturinn nátengdur sjávar- útveginum. Hefði nú verið tekið fyrir verkefni, sem trygging fyrir greiðslu lægi fyrir. Um úti- standandi skuldir sagði Sveinn, að hlutfallið hefði aukizt úr 35% á sl. ári í 50% nú. Algert neyðar- ástand ríkti og ekki Ijóst hvort hægt yrði að standa við iauna- greiðslur vikunnar. — 4,8 milljarðar Framhald af bls. 36 þegar seldur enda þótt ekki kæmi til afskipunar fyrr en á þessu ári. Morgunblaðinu tókst ekki að afla upplýsinga um skiptinguna milli einstakra greina afurðanna í verðmætum. Hins vegar fékk Morgunblaðið vitneskju um, að alls muni hafa verið til um 19 þúsund tonn af frystum fiski í landinu um áramótin, um 8 þús- und tonn af fiskmjöli og var hluti af því seldur, um 3500—4000 tonn af saltfiski sem einnig er nú að miklu leyti seldur, töluvert af óseldri skreið en sama og ekkert af niðurlagningarfiski. — NATO beitir Framhald af bls. 1 vitnaði til norskra blaða sem heimilda. Segir blaðið að þetta sé gróft brot á alþjóðalögum um frjálsar siglingar og muni að auki skaða viðskipti landa á þessu svæði. Einnig væri þetta í andstöðu við vióleitnina til að draga úr spennu í Evrópu. — Eritrea Framhald af bls. 1 Samkvæmt góðum heimildum sprengdu frelsishreyfingarmenn upp aðra brú á þjóðveginum úr suðri til Asmara, en fyrr í vikunni var brú sprengd í loft upp á sama vegi. Rólegt var í Asmara í dag, en fregnir bárust um götubardaga hermanna og borgara í Addis Abeba. — Jörgensen Framhald af bls. 1 sætisráðherraefni I dag. Jens Möller, leiðtogi Kristilga þjóðar- flokksins, sagði í blaðaviðtali i dag: „Svar okkar við þessu er, að við lokum ekki dyrum í þessari aðstöðu að óþörfu. En við vildum fyrst fá að vita hver yrði stefna slíkrar stjórnar. Takizt ekki að mynda fyrr- nefnda meirihlutastjórn, sem ekki er ólíklegt yrði líklegasta lausnin ríkisstjórn Jafnaðar- mannaflokksins og Radikale Venstre með stuðningi Sósfalíska þjóðarflokksins, og nauðungar- stuðningi kommúnista og vinstri- sósialista. En þar eð síðastnefndu flokkarnir tveir yrðu ótryggir stuðningsmenn er mikil þörf fyrir stjórnina að fá stuðning úr hægri áttinni á þjóðþinginu, og þar kæmu Kristilegi þjóðarflokkur- inn og íhaldsmenn inn í. — Uppspuni Framhald af bls. 35 lega forkastanleg. Undirritaður kannaði þessar fullyrðingar hans sérstaklega þegar hann var stadd- ur í Kaupmannahöfn í sambandi við mótið, og voru allir sammála um það, bæði íslenzkir og danskir aðilar, að um algeran uppspuna væri að ræða. —SS. — Minning Halldór Framhald af bls. 27 Þau hjón Halldór og Sigríður slitu samvistir 1933. Halldór var hógvær í framkomu allri, kurteis í viðmóti og hafði ávallt opin augu fyrir öllu sem að gagni mætti koma. Hann var maður stórhuga, iðinn og ástund- unarsamur við hina breytilegu en sífellt nokkuð erfiðu lífsbaráttu og gekk á ýmsu á hans langa vinnudegi eins og vænta má. Það má segja um Halldór eins og Jó- hannes úr Kötlum orðar það, að hann „hafi ýmist borið arfinn hátt eða varizt grandi“. Hann var alla tíð æðrulaus, rólegur, ræðinn, fyrirmannlegur og skemmtilegur og hélt þessum mannkostum til æviloka. Hann fékk hægt andlát, verð- skuldaða náðargjöf frá forsjón- inni, sofnaði að kvöldi dags og vaknaði ekki aftur. Löngum og erilsömum vinnudegi lokið án langvarandi sviptinga við mann- inn með ljáinn. Ég sendi þessum aldna heiðurs- manni hinztu kveðjur og votta börnum hans, tengdadætrum, barnabörnum og öðrum ættingj- um, vinum hans og venzlamönn- um samúð við andlát hans og út- för. Guðfinnur Þorbjörnsson. — Þingfréttir Framhald af bls. 21 hefur lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um Fram- leiðslueftirlit sjávarafurða. Gerir frumvarpið ráð fyrir þvi að Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins, í samráði við Framleiðslueftirlit sjávarafuróa, framkvæmi rann- sóknir, er nauðsynlegar teljast vegna þeirrar stofnunar. I greinargerð segir, að við af- greiðslu frv. í nefndinni i desem- ber sl. hafi fallið niður þessi breyting, sem teljist nauösynleg til þess að ugglaust sé verkaskipt- ing milli Framleiðslueftirlitsins og Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins. Fæöingarorlof kvenna Bjarnfríður Leósdóttir (K) flytur þingsályktunartillögu um fæðingarorlof kvenna. I ályktun- inni er ríkisstjórninni falið að gera þær breytingar á lögum (nr. 67/1971) um almannatryggingar, að konum verði tryggt 3ja mánaða fæðingarorlof á fullum launum, enn fremur að fæðingarstyrkur verði greiddur hverri konu, en dvöl á fæðingarstofnunum verði ókeypis. Sami þingmaður flytur þings- ályktunartillögu, þess efnis, að ríkisstjórnin láti semja lög fyrir árslok 1975 um sameiginlegan líf- eyrissjóð fyrir landsmenn alla. Verði lífeyrisgreiðsiur sjóðsins verðtryggðar. — Hafnarbúðir Framhald af bls. 16 að ný framkvæmdanefnd yrði skipuð til þess að koma húsi yfir langlegu- sjúklinga. Mjög þyrfti að hraða öllum aðgerðum til þess að aðstoða aldraða og sjúka í borginni. Úlfar Þórðarson gerði fyrst að um- talsefni fyrirhugaða heilsugæslustöð i Domus Medica. Hann sagði, að nokkrir læknar i Reykjavik ætluðu að færa út starfsemi sina i einhvers konar heilsugæslustöð Nauðsynlegt væri að gera allt sem unnt væri til að bæta heilsugæslu i Reykjavik og i þvi skyni væri þetta gert. Þetta væri þýðingarmikið skref til þess að auðvelda læknum að gerast heimilis- læknar i Reykjavik og vonandi yrði þetta fyrirmynd að fleiri slíkum stofnunum. Borgarfulltrúinn sagði, að i Hafnarbúðum yrði rúm fyrir a.m.k. 30 langlegusjúklinga, er einkum myndu koma af endurhæfingardeild Borgarspitalans. Nú væru í 30% af rúmum Borgarspítalans sjúklingar, er gætu verið á slikri stofnun sem þessari. Kostnaður við breytingar væri áætlaður um 10 til 15 millj. króna, sem væri um 500 þús. kr. á hvert rúm og væri ekki unnt að koma upp slikri aðstöðu með jafn litlum tilkostnaði. Birgir ísleifur Gunnarsson borgar- stjóri sagði, að það væri fagnaðar- efni að heilbrigðismálaráð skyldi hafa unnið að þvi að Hafnarbúðir yrðu teknar sem hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Þessi ákvörðun hefði verið tekin að undangenginni allitar- legri athugun, bæði lækna og tækni- manna. Nú yrði að vinna að þvi að heilbrigðisráðuneytið samþykkti þessa ráðstöfun. Um athugun á til- boðum um kanadisku bráðabirgða- húsin væri það að segja, að i tilboðin vantaði allmikið af upplýsingum, þau væru t.d. án raflagna og pipulagna, en niðurstöður myndu liggja fyrir innan skamms. Kristján Benediktsson sagðist vera sáttur við þessa lausn um notkun Hafnarbúða. Ekki hefði verið vansa- laust að láta þetta hús standa svo lengi ónótað. Hann sagðist alltaf hafa verið vantrúaður á þá hugmynd að flytja inn timburhús til þess að bæta úr þessum vanda. Umræður um slíkt væru einvörðungu til þess fallnar að drepa málinu á dreif. B- álma Borgarsjúkrahússins væri eina raunhæfa framkvæmdin á þessu sviði og að þvi ætti að stefna að koma henni upp. Björgvin Guðmundsson sagðist fagna þvi, að sérfræðingar teldu unnt að nota Hafnarbúðir fyrir aldraða. Hann sagðist búast við að þetta yrði skemmtilegt umhverfi fyrir þá öldruðu. Úlfar Þórðarson sagði, að það væri ósk borgarstjórnar að koma áfram B-álmunni við Borgarspitalann. Borgin hefði reynt að berjast fyrir þessu og sjálfur hefði hann aldrei hvikað frá þeirri skoðun að ráðast ætti í byggingu B-álmunnar. Hins vegar hefði legið bann við því frá heilbrigðisráðuneytinu að hafist yrði handa um þessa byggingu og ríkið hefði ekki getað staðið við lögbundin fjárframlög. Albert Guðmundsson sagðist vera sammála þvi, að æskilegt væri að byggja B-álmuna við Borgarspítal- ann. En það væri neyðarástand i þessum efnum hjá öldruðum og sjúk- um. Það ástand yrði borgin að leysa og tillaga hans hefði gengið út á að leysa þennan bráða vanda. Ekkert þýddi að vera að tala um dýrar fram- kvæmdir. Menn yrðu að einbeita sér að neyðarúrræðum, sem kæmust sem fyrst i notkun. Ekki væri unnt að biða eftir þvi að rikisstjórnin leyfði framkvæmdir við B-álmuna. Hvað um fólkið, sem biði eftir sjúkrarými? Hér væri um að ræða 250 til 400 manns. Þá spurði hann hvort enginn skilningur væri á þessu neyðarástandi. Timburhúsin væru góð og vistleg. Sér hefði hins vegar oft dottið í hug, að læknar og bygg- ingarnefnd Borgarspitalans ein- blindu á lúxusbyggingar eins og þær gerðust bestar i kvikmyndum. Kom- inn væri timi til að menn hættu kjaftæðinu og færu að gera eitthvað. Setja yrði á fót nýja framkvæmda- nefnd til að leysa málið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.