Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 26
26___________________ Guðríður Auðunsdóttir Teygingakek —Mnning Það er bæði skylt og ljúft að minnast með fáum kveðju- og þakkarorðum góðrar konu, mikill- ar húsmóður, sem í dag er til rholdar borin að Prestsbakka- kirkju á Síðu. Það er Guðríður Auðunsdóttir fyrrum húsfreyja á Teygingalæk. Hún andaðist hér í borg 31. jan. s.l. í sumar lá hún hér á sjúkra- húsi og gekk undir uppskurð og fékk nokkurn bata á meini sínu þrátt fyrir sinn háa aldur. Seint í haust fór hún heim til Ólafar dótt- ur sinnar, þar sem hún naut framúrskarandi umönnunar og aðhlynningar allt til hinstu stund- ar. Um Guðriði Auðunsdóttur hæf- ir ekki að skrifa löng eftirmæli. 1 lifi hennar og lífsstarfi töluðu verkin, ekki orðin. Strax á æsku- skeiði tók hún til starfa ötul og verkadrjúg, ung fór hún í vist, fyrst til aó létta undir með afkom- una á barnmörgu, þungu heimili föður síns. Og dugmikil og vakandi i verki vann hún allt sitt ævistarf. Guðríður Auðunsdóttir var fædd í Eystri-Dalbæ í Landbroti 31. ágúst 1887. Var þvi komin hátt á níræðisaldur er hún lést. Foreldrar hennar voru Sigríður Sigurðardóttir, Sigurðssonar og maður hennar Auðunn Þórarins- son Magnússonar Jónssonar hreppstjóra á Kirkjubæjar- klaustri, (f. 1758), Magnússonar. Auðunn faðir Guðríðar bjó allan sinn búskap í Eystri-Dalbæ, mjög notalegu býli austur undir Skaftá. Þar andaðist hann, varð bráðkvaddur á heiðríkum sunnu- degi, nýkominn frá ,,messu“ i Þykkvabæjarskóla á útmánuðum 1938. Sá, sem þetta ritar, kynntist honum í hárri elli sem glaðsinna og góðviljuðum gömlum manni þar sem hann var í húsmennsku með sambýliskonu sinni, Agnesi Þorláksdóttur (eldri) í litlu bað- stofunni í Eystri-Dalbæ. Sigríður, móðir Guðríðar, dó 1901. Þau Auðunn eignuðust 9 börn. Eru þau nú öll látin nema það elsta, Magnús (eldri) f. 1882, húsmaður i Fagurhlíð í Landbroti. Hálf- systkini Guðriðar, börn Auðuns og Agnesar fyrrnefndrar, eru 4. öll enn á lifi. Guðríður fór fyrst úr föðurhús- um 18 ára að aldri í vist til Páls föðurbróður síns i Þykkvabæ í Landbroti, og var þar í 5 ár. Á þessum árum mun hún hafa verið vetrartima við saumaskap í Reykjavik. Síðan var hún i vistum eystra, lengst af í Múlakoti hjá þeim merkishjónum Helgu Bjarnadóttur frá Hörgsdal og Þor- láki kennara Vigfússyni. Eitt ár var hún bústýra hjá Eyþóri Þor- kelssyni mági sínum í Ásgarði i Landbroti eftir að hann missti Valgerði konu sína sumarið 1921,— Svo var það haustið 1926, að hún giftist og gekk að eiga Jón Jónsson (f. 1884) á Teygingalæk, sem þar hafði þá þegar búið 8 ár á föðurleifð sinni. Jón á Læk var Jónsson Jónssonar Sveinssonar og Ólafar Bergsdóttur systur Helga á Fossi, föður Lárusar alþm. á Kirkjubæjarklaustri. Þau Jón og Guðríður bjuggu á Teygingalæk í rúman aldarfjórð- ung við mikla rausn og viðkunna gestrisni við alla sem aó garði bar, hvort sem það voru nágrannar eða ferðamenn langt að komnir. Heimili þeirra var í þjóðbraut eft- ir að vegurinn var lagður beint austur yfir eystri álmu Eld- hraunsins. Jón var oft fylgdar- maður ferðamanna enda mikill fyrirgreiðslumaður allra nauð- leitarmanna og átti húsfreyjan þar sinn ríka hlut að máli eins og allir skilja og eðlilegt var. Guðríður Auðunsdóttir var mikil húsmóðir í þess orðs beztu og einlægustu merkingu. Hún var hjartagóð og umhyggjusöm móð- ir, hún var þrifin og hreinlát i öllum húsverkum og við alla matargerð, sparsöm og nýtin án þess að vera naum, og svo vel var hún verki farin, að aldrei stóð á t Tengdamóðir mín og amma okkar GUORÍÐUR ÍSAKSDÓTTIR, andaðist á St Jósepsspitala í Hafnarfirði, fimmtudaginn 6 febrúar Sigurveig Jóhannsdóttir, Þuríður Guðmundsdóttir, Guðriður Guðmundsdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA CANCORDIA KRUGER Ijósmóðir, Skólagerði 34, Kópavogi, sem lézt á Landakotsspitala 3. þ.m verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju 1 1 febrúar kl 3 e h. Jóhann Kruger, Niels Kruger, Kristjana Lemhkulh, Ragnar Krúger, barnabörn og barnabarnabörn. Hanssína JónsdóttÍT, Hólmfriður Hólmgeirsdóttir, Flemming Lemhkulh, Ingibjörg Gestsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES J. ALBERTZ fyrrverandi lögregluþjónn í Vestmannaeyjum, andaðist 4. febrúar, að heimili dóttur sinnar í St. Marys, Ástralíu. Bálförm fer fram n k laugardag í St. Marys Mmningarathöfn fer fram í Háteigskirkju kl. 1 5 miðvikudaginn 1 2. febrúar Marta Petursdottir Albert Jóhannesson Grettir Jóhannesson Gréta Jóhannesdóttir Elinborg J. Sielski Jóhanna M. Jóhannesdóttir Ragnar Jóhannesson Sævar Þ. Jóhannesson Lilly Jóhannesdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Brynja Óskarsdóttir Hennrik6en Fanney Egilsdóttir Haraldur Guðmundsson Henry M. Sielski Arnþór Ingólfsson Hólmfríður Sigurðardóttir Emma H. Jóhannesson Lúðvík Sigurðsson, Páll Geirmundsson Blönduósi—Minning henni að rækja hlutverk sitt sem best varð á kosið. Hún hélt heimili sínu i því horfi, að sómi var að, bæði inn á við og út á við, vegna þeirra mörgu gesta sem þarna áttu leið um og gerðu þar stanz á ferð sinni um stórbrotið landslag Skaftárþings og torleiði þess, áður en bílar og brýr gerðu það kleift að bruna áfram trafala- laust um landið þvert og endi- langt. Þau Guðríður og Jön á Teygingalæk eignuðust 3 börn, sem öll eru hið mesta myndarfólk, raungóð í viðkynningu og hollir þjóðfélagsþegnar. Elst þeirra er Olafur Jón, sem tók við búi af föður sínum á Teygingalæk. Hann er kvæntur Sveinbjörgu Gróu Ingimundardóttur frá Melhól í Meðallandi. Þau eiga tvö börn. Sigriður er húsfreyja á Prests- bakka, hinu gamla prestssetri þeirra Síðumanna. Maður hennar er Jón Pálsson frá Keldunúpi á Síðu, eiga 4 börn. Yngst þeirra Lækssystkina er Ölöf (fullu nafni Bergsdóttir) kona Guðmundar jarðeðlisfræðings Pálmasonar, hins kunna skákmanns. Þau eiga tvo syni. Hátt í fjórir áratugir eru nú liðnir síðan sá, sem þetta ritar, kom að Teygingalæk til þeirra Guðriðar og Jóns í fyrsta sinn. Tíðar urðu þær heimsóknir á mörgum samvistarárum þar eystra. Þessar línur eru ritaðar i þakklátri minningu um þau góðu og ljúfu kynni, nú þegar húsfreyj- an er lögð til hinstu hvildar við hlið bónda síns i Prestsbakka- kirkjugarði. Við hjónin sendum börnum Guðríðar Auðunsdóttur og öðrum aðstandendum innilegar ' sam- úðarkveðjur. — Blessuð sé minning hennar. G. Br. F. 19 október 1895 D. 28. janúar 1975. Þeim fækkar nú óðum gömlu skólapiltunum frá Gagnfræða- skólanum á Akureyri, nú M.A:, og er slíkt ofur eðlilegt. Samt er það svo, að i hvert sinn er ég heyri að einn sé horfinn úr hópnum verð- ur mér undarlega innanbrjósts. Hugurinn ber mig þá heim i skóla, ég sé fyrir mér hóp glaðra ungmenna, heyri söng kveða við á skólaganginum eða á Sal, sé fót- hvata unglinga þreyta íþróttir á skólablettinum. Um helgar heyr- ist dillandi dans i leikfimishúsinu og dragspilið er þanið eftir kúnst- arinnar reglum. Hversdagslega situr hópurinn við nám og litur varla upp úr bókunum, margt þarf að læra og leita svara við. — Hvert sem litið er sé ég fyrir mér ungt fólk á ferð, sem hefur gaman af að lifa og flest af því er þakk- látt fyrir að eiga þess kost að vera í skólanjóta þarfræðsluog góðs félagsskapar, og þannig mætti lengi telja. Og nú hefur einn af þessum vinum minum að norðan helzt úr lestinni, Páll Geirmunds- son á Blönduósi. Hann kom í Gagnfræðaskólann á Akureyri haustið 1915 og var í heimavist — þá þóttu það mikil hlunnindi að fá heimavist i skólanum, ekki ein- ungis vegna þess, að i heimavist- inni var efnalitlu fólki frekar gert kleift að kljúfa kostnaðinn við skólagönguna, heldur þótti það skemmtilegra. Þar var oft glatt á hjalla, unga fólkið kynntist þar betur og margir stofnuðu þar til vináttu sem entist alla ævi. Páll Geirmundsson var fæddur að Hóli i Hjaltastaðaþinghá í N- Múlasýslu 19. okt. 1895. Foreldrar hans voru hjónin Guðný Arn- bjarnardóttir og Geirmundur Ei- riksson bóndi að Hóli. Páll var prúður piltur í skóla, hógvær og kurteis. Þóttu það miklir kostir á þeim tíma, en hann var fastur fyrir og fylginn sér, ef þvi var að skipta. Félags- lyndur var hann alla tíð og tók mikinn þátt í félagslífi nemenda, lagði ætið gott til málanna. Hann var mjög vinsæll meðal kennara og skólasystkina, enda afbragðs góður heimilismaður og skóla- þegn. Að afloknu gagnfræðaprófi 1919 kvöddust menn með trega á skólahlaðinu eins og vant var á vori, og hver hélt til sinnar heima- byggðar, Páll fór heim að Hóli. Árin liðu, en sumarið 1923 sá ég Pál aftur á Blönduósi, þá vorum við bæði komin á ókunnar slóðir, vestur fyrir fjöllin. Björn bróðir Páls hafði þá fyrir nokkru hafið búskap í Húnavatnssýslu og Páll vildi freista þess að leita gæfunn- ar í hinu víðfeðma og fagra hér- aði, þar sem bróðir hans hugðist festa rætur. Það var gaman að hitta þarna gamlan skólapilt, því margs var að minnast frá skóla- heimilinu á Akureyri, sem okkur þótti báðum vænt um. Seinna kom það svo betur í ljós, hve góðan hauk ég átti í horni þar sem Páll var. Á Blönduósi kynntist Páll eftir- lifandi konu sinni, Hjálmfriði Kristófersdóttur. Þau giftu sig á annan í hvítasunnu vorið 1926. Þá var sól og vor i hugum ungu brúð- hjónanna er entist þeim meðan bæði lifðu. Aldrei virtist bregða skugga á sambúð þeirra hjóna, enda var Páll frábær heimilisfað- ir. Hjálmfríður var kjördóttir hjónanna Hjálmars Egilssonar frá Reykjum á Reykjabraut og Önnu Þorsteinsdóttur, er um ára- bil var mikilsvirt ljósmóðir á Blönduósi. Hjálmfríður var einka- dóttir þessara heiðurshjóna, á æskuheimili hennar byrjuðu þau búskapinn og þar áttu þau heima alla tíð, þar til fyrir stuttu að þau fluttu á ellideild héraðshælisins á Blönduósi, en þá var heilsa Páls á þrotum. Páll og Hjálmfríður áttu tvö mannvænleg og góð börn, Guð- nýju, maður hennar er Kristinn Pálsson kennari á Blönduósi, og Hjálmar, sem er giftur Sigríði Þ. Sigurðardóttur, einnig búsettur á Blönduósi. Það var mikil gæfa fyrir Pál að hafa börn sín svona á næstu grösum, geta fylgzt með þeim og hlúð að þeim og svo barnabörnunum, sem hann unni mjög og vildi allt leggja i sölurnar fyrir. Páll og Hjálmfriður voru mjög samhent um að gera heimilið sitt aðlaðandi, svo þar þótti öllum gott að koma. Minnast nú margir með þakklæti glaðra stunda hjá þeim hjónum. 1 mörg ár höfðu þau Páll og Hjálmfriðir greiðasölu og var vinsælt að leita þar skjóls, því viðtökur voru þar hlýjar og gest- um veittur beini af mikilli rausn. Á Blönduósi voru Páli falin mörg trúnaðarstörf, hann sat í hreppsnefnd og var í mörg ár hreppsnefndaroddviti, og það á erfiðum tímum. Fórst honum það vel úr hendi, sem annað er hann tók sér fyrir hendur. 1 stjórn Kaupfélags Húnvetninga var hann lengi og sinnti margvísleg- um störfum fyrir félagið. Þá sat hann lengi í skólanefnd Kvenna- skólans á Blönduósi og var gjald- keri skólans, þegar ég tók við skólanum haustið 1953. Var það mér mikils virði að fá hann til samstarfs, því ég vissi að honum mátti treysta, enda brást það ekki. Oft var úr vöndu að ráða, því fjárráð voru af skornum skammti. En allt blessaðist vel. Páll var alla ævi mikill starfs- og eljumaður, búskapur og rækt- un voru hans áhugamál. Þó hann væri önnum kafinn við ýmis fé- lagsstörf, stundaði hann búskap öll árin á Blönduósi af mikilli álúð. Hann hafði yndi af að hirða skepnurnar sínar, var mikill dýra- vinur og ræktunin vakti honum mikla gleði. Páll var trúmaður, um langt árabil var hann i sóknarnefnd á Blönduósi, og fáir munu þeir hafa verið messudagarnir a staðnum að Páll og Hjálmfriður væru ekki á sinum stað i kirkjunni. Sem gjaldkeri Kvennaskólans t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, RAGNHILDAR JÓHANNESDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna Einarsdóttir, Þorbjörg Einarsdóttir, Sumarliði Kristjánsson, barnbörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega þeim fjölmörgu, er auðsýndu samúð og vináttu við andlát og útför HALLDÓRSÞORVALDSSONAR, Stigahlið 18. fyrrum bónda á Kroppstöðum i Önundarfirði Ingibjörg Pálsdóttir Páll Skúli Halldórsson Guðrún Guðmundsdóttir Kristín Lilja Halldórsdóttir Þórólfur Friðgeirsson Aðalheiður Halldórsdóttir Sverrir Kjartansson. og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra fjær og nær, er sýndu okkur vinsemd og vinarhug í orði og verki við andlát og jarðarför föður okkar, JÓNASAR KRISTJÁNSSONAR, fyrrv. mjólkursamlagsstjóra, Sérstakar þakkir færum við Kaupfélagi Eyfirðinga, fyrir þann mikla heiður er það hefur sýnt minningu föður okkar. Sólveig Jónasdóttir Carner Sveinn Jónasson. útfaraskreytingar blómauol Gróóurhúsið v/Sigtún sími 36770

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.