Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975
2
Ráðið í stöður leikli&t-
ar- og tónlistarstjóra
2. 4. mgr. A-Iiðar 8. gr. falli
niður, en í þess stað komi ný mgr.
í B-lið 8. gr. svohljóðandi:
„Fjárhæð lána til kaupa á eldri
fbúðum skal nema að minnsta
kosti hálfri fjárhæð gildandi
hámarksláns til nýrra íbúða. Ráð-
herra setur með reglugerð nánari
ákvæði um veitingu lána, láns-
tíma og tryggingar slíkra lána, að
fengnum tillögum húsnæðismála-
stjórnar."
Jakob Hafstein sýn-
ir í vestursalnum
FUNDUR var haldinn í gær f
húsnefnd Kjarvalsstaða. Var þar
ákveðið, að sýningu Jakobs
Hafstein skyldi komið ' upp f
vestursai hússins. Mun þvf ekki
verða hreyft við mvndum
meistara Kjarvals f hinum saln-
um, eins og upphaflega var ætlun-
in. Sýning Jakobs hefst hinn 15.
þessa mánaðar.
Risabingó
SJALFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Austurbæjar-, Norðurmýrar-,
Hlíða- og Holtahverfi efna n.k.
sunnudagskvöld, 9. febrúar, til
veglegs bingós f Sigtúni við
Suðurlandsbraut. Bingóið hefst
kl. 20.30. f frétt frá félögunum
segir, að hér sé um að ræða
sannkallað risabingó.
Spilaðar verða 25 umferðir.
Fimmtán happdrættisvinningar
eru í boði. Þrjár utanlandsferðir
eru í verðlaun, ein til Mallorka og
tvær til Kanarieyja. Þá verða
einnig veitt i verðlaun þrjú
málverk, átta veiðileyfi i
laxveiðiám, veiðistangir og föt,
húsgögn, hjólbarðar, úrvalsbæk-
ur, rafmagnsheimilistæki og ótal
margt fleira.
I fundi húsnefndarinnar í gær
voru einnig samþykktar nokkrar
umsóknir um sýningaraðstöðu á
Kjarvalsstöðum á næstunni, að
sögn Alfreðs Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Kjarvalsstaða.
Umsækjendur voru myndlistar-
mennirnir Baltazar, Halla
Haraldsdóttir, Gunnar J. Guðjóns-
son og loks ljósmyndasýning John
McCurdy.
Sýning Jakobs Hafstein er
þannig næst á döfinni, þvi næst
verður sýning Jóns H. Baldvins-
sonar, þá minningarsýning
Guðmundar Einarssonar, leir-
munasýning Steinunnar
Marteinsdóttur en sfðan mun kín-
verska alþýðuveldið efna til sýn-
ingar I húsinu. Þá sýnir Sveinn
Björnsson og einnig verður
Germanía á ferðinni í húsinu með
Gutenbergsýningu.
Einar sýnir ekki
Morgunblaðinu barst í gær afrit
af bréfi Einars Hákonarsonar list-
málari til stjórnar Kjarvalsstaða
þar sem hann afþakkar frátekna
sýningaraðstöðu i húsinu í
september n.k. I bréfinu kveðst
Einar ekki geta sýnt að Kjarvals-
stöðum við núverandi aðstæður,
og beri að líta á þessa ákvörðun
sem mótmæli gegn athöfnum
meirihluta borgarráðs varðandi
starfrækslu hússins.
Tónlistarmennirnir, sem fram koma á tónleikunum á morgun.
Kammersveit Reykja-
víkur 1 MH á morgun
ÞRIDJU tónleikar Kammersvcit-
ar Reykjavíkur á þcssu fyrsta
starfsári svcitarinnar eru á morg-
un kl. 16 f sal Mcnntaskólans við
Hamrahlfð.
Á efnisskránni eru verk eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Mozart og Schubert. Fyrst verður
flutt tríó í E-moll eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, þá hornakvintett
í Es-dúr eftir Mozart og loks eitt
viðamesta kammerverk Schu-
berts, — oktett í F-dúr.
Fyrr í vetur hefur Kammer-
sveit Reykjavíkur haldið tvenna
tónleika, en fyrstu tónleika sfna
hélt sveitin á s.l. sumri.
Aðsókn að öllum tónleikunum
hefur verið með miklum ágætum,
svo og viðtökur áheyrenda.
Sfðustu tónleikar vetrarins
verða haldnir 20. april n.k.
I GÆR var ráðiö í stöður
leiklistar og tónlistarstjóra við
útvarpið til næstu fjögurra ára.
Klemenz Jónsson var ráðinn í
stöðu leiklistastjóra og Þorsteinn
Hannesson i stöðu tónlistarst jóra.
Klemenz Jónsson, hinn nýi
leiklistarstjóri, er fæddur 29.
febrúar 1920 í Klettstíu í
Norðurárdal. Hann lauk
kennaraprófi árið 1942 og
stundaði leiklistarnám hjá
Haraldi Björnssyni í tvo vetur.
Hann var við framhaldsnám í
leiklist í Royal Academy of
Dramatic Art í Lundúnum og
lauk prófi þaðan árið 1948. Hann
var ráðinn leikari við
Þjóðleikhúsið þegar starfsemi
Nýtt íslenzkt
vélgœzlutœki
Á næstunni verður tekið í
notkun nýtt véigæzlutæki í
Fiskimjölsverksmiðjunni h.f. f
Vestmannaeyjum, en það er
fyrsta tækið sinnar tegundar á
landinu.
Tækið er smfðað hjá Iðn-
tækni h.f. og hófst hönnun þess
fyrir tveimur og hálfu ári með
smíði svipaðs tækis til notkunar
í vélarúmi skipa. Fyrsta tæki
þeirrar gerðar var sett i
flutningaskipió Vega (áður
m.s. Laxá). Slfk tæki eru fram-
leidd til vélgæzlu í verk-
smiðjum, virkjunum o.fl., en
tækin segja til um bilanir, auk
þess sem það gefur upplýsingar
um hvar orsök bilunar sé að
finna.
Nú er að hefjast fjöldafram-
leiðsla á tækjum þessum, sér-
staklega með þarfir innanlands
f huga, en jafnframt mun Iðn-
tækni h.f. hyggja á útflutning
þeirra til Norðurlanda.
Að sögn Gunnlaugs Jósefs-
sonar framkvæmdastjóra Iðn-
tækni h.f. kostar tæki eins og
það, sem fer til Eyja tæpar tvær
milljónir króna.
Áskorun borgarstjórnar:
Lán til kaupa á eldri íbúðum
hækki í 530 þúsund krónur
þess hófst, en hafði áður leikið
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hann
hefur gegnt starfi blaðafulltrúa
Þjóðleikhússins frá 1958, en
hefur jafnframt starfað sem
leikari og leikstjóri.
Kona hans er Guðrún
Guðmundsdóttir.
Þorsteinn Hannesson, tón-
listarstjóri, er fæddur á
Siglufirði 19. marz 1917. Að loknu
samvinnuskólaprófi stundaði
hann söngnám við The Royal
College of Music í Lundúnum og
var síðan aðaltenór við Covent
Garden um sjö ára skeið. Hann
kenndi söng við Tónlistarskólann
i Reykjavík á árunum 1955 til
1966 og var um skeið
innkaupafulltrúi hjá ÁTVR.
Þorsteinn átti sæti í stjórn
Bandalags íslenzkra listamanna i
mörg ár og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir það. Hann
átti sæti i útvarpsráði árin
1963—1971 en hefur verið
tónlistarfulltrúi hjá Ríkisútvarp-
inu frá 1969.
Eiginkona Þorsteins er Kristín
Pálsdóttir.
Fundur um fjárhags-
áætlun Akureyrar
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á
Akureyri halda almennan fund
mánudaginn 10. febrúar n.k. ki.
20.30 i Sjálfstæðishúsinu, neðri
sal. Rætt verður um fjárhagsáætl-
un Akureyrarbæjar fyrir árið
1975. Öllum er heimill aðgangur.
Klemenz Jónsson
Þorsteinn Hannesson
P ----------------------------□
Sjá einnig frétt á bls. 16.
□ ---------------------------□
BORGARSTJÖRN Reykjavfkur
samþykkti sl. fimmtudag áskorun
til Alþingis og rfkisstjórnar, þar
sem lagt er til, að húsnæðismála-
stjórnarlán til kaupa á eldri fbúð-
um verði hækkuð þannig að þau
nemi hálfri fjárhæð gildandi
hámarksláns til kaupa á nýjum
fbúðum. Með þcssu móti myndu
lán til kaupa á eldri fbúðum
hækka úr 200 þús. kr. eins og
meöallánin voru á sl. ári upp f 530
þús. kr.
Samþykkt þessi var gerð að til-
lögu borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins og samþykkt með 15
PANKASTM —
Hviiu? FTt?
samhljóða atkvæðum. Samþykkt-
in fer hér á eftir.
„Húsnæðismálastjórn er heim-
ilt í dag að veita lán úr Byggingar-
sjóði ríkisins, allt að 80 milljónum
króna, til kaupa á eldri fbúðum.
Af þeirri reynslu, sem þegar
hefur fengizt af lánum þessum,
má fullyrða, að þau eiga mikinn
rétt á sér. Því miður hafa þessi
lán ekki náð tilætluðum árangri
vegna þess hvað lítið fjármagn
hefur verið veitt út á hverja íbúð.
Á s.l. ári yoru meðallánin um
200 þús. kr. á íbúð.
Borgarstjórn Reykjavíkur telur
mjög brýnt, að lán til kaupa á
eldri íbúðum verði hækkuð veru-
lega frá þvi, sem verið hefur, og
samþykkir að skora á Alþingi og
ríkisstjórn að taka nú þegar til
endurskoðunar ákvæði laga nr.
30, 12. maí 1970 um Húsnæðis-
málastofnun ríkisins og reglugerð
nr. 202 frá 1970 um lánveitingar
húsnæðismálastjórnar úr Bygg-
ingarsjóði ríkisins.
Borgarstjórn leggur til að gerð-
ar verði eftirfarandi breytingar:
1. 1. mgr. A-liðar 8. gr. 30/1970
hljóði svo:
„Lánin veitast til byggingar
nýrra íbúða, meiriháttar viðbygg-
inga og meirihátta endurbóta á
eldra húsnæði eða til kaupa á
nýjum eða eldri íbúðum. Lánin
skulu greidd lántakendum í pen-
ingum og koma til útborgunar,
eftir því sem húsnæðismálastjórn
ákveður, og þá f hlutfalli við það,
hversu langt er komið byggingu
húsnæðisins, eftir því sem nánar
er ákveðið í reglugerð.
Plngum einstaklingi skal veitt ián
skv. þessari mgr. nema út á eina
íbúð.“