Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 5 Italir heimsmeistarar í bridge eins og venju- lega. — Aldrei eins erfitt að verja titilinn og nú Italska bridgesveitin með Belladonna og Garozzo í farar- broddi sigraði enn einu sinni heimsmeistaramótið i bridge, sem haldið var að þessu sinni á Bermudaeyjum — en 25 ár eru liðin síðan fyrsta heimsmeistara- mótið fór fram en þá var það haldið á þessum sama stað. I undanúrslitunum höfðu Italir Bridge eftir ARNÓR RAGNARSSON malað sveit Indónesíu en banda- riska sveitin sem jafnan hefur verið höfuðandstæðingur Itala rétt náði að merja sigur yfir hin- um geysisterku Frökkum. Italska sveitin, Belladonna, Garozzo, Franco, Pittala, Facchini og Zucchelli, átti i miklum örðug- leikum i úrslitakeppninni — enda engin furða eftir allt það sem á undan hafði gengið — en i undan- úrslitunum urðu Italirnir Facchini og Zucchelli að þola það að vera brigzlað um að svindla — nota vissar fótahreyfingar meðan á sögnum stóð og áður en spilað var út. Ekki skal lagður dómur á mál þetta hér — en harla ósennilegt tel ég að jafnsterkt par sem þetta láti með réttu koma slíku orði á ;ig. — Þeir félagar hafa einu sinni unnið hina óform- legu tvimenningsheimsmeistara- keppni, Sunday-Times mótið, og segir það sina sögu um styrkleika parsins. Úrslitakeppnin er sú skemmti- legasta í sögunni og höfðu Banda- rikjamennirnir ávallt forystuna eða þangað til örfá spil voru eftir að bezta par heims Belladonna og Garozzo fóru í alslemmu all- varasama en þegar Belladonna „sigldi henni heim" var sigur Ital- anna staðreynd. Staðan eftir 32 spil 42—40 Staðan eftir 64 spil 99—53 Staðan eftir 96 spil 156—110 Lokastaðan 189 — 215 Sennilegt er að kæran á Facchini og Zucchelli muni hafa einhver eftirköst á komandi árum — en tíminn verður að segja til um það — en því verður aldrei neitað að árangur Itala í bridge- íþróttinni er aðdáunarverður og ískyggilega glæsilegur. — Þeir hafa aldrei tekið þátt i heims- meistaramóti öðru vísi en að fara heim sem sigurvegarar. UMBOÐ UTANBORÐSMOTORAR Við óskum eftir að komast í samband við umboðsfyrirtæki, sem qetur tekið að sér innflutning, sölu og þjónustu á Suzuki utanborðsmótorum. Framleiðslan er: Vörurnar eru í háum gæðaflokki og á mjög samkeppnishæfu verði. Álíka módel eru vatnskæld og hafa fullkomna gírskiptingu. Þeir, sem hafa áhuga, hafi samband við: E. SANDE A/S, Hausmannsgate 27, Oslo 1, Norge. r Mývetnskir kiwanismenn gefa vinnu- ljósatæki Björk, Mývatnssveit —6. feb. KIWANISKLUBBURINN Herðu- breið í Mývatnssveit var stofnað- ur árið 1972. Klúbburinn hefur síðan m.a. unnið að öflun fjár til styrktar líknar- og menningarmál- um. Hinn 25. janúar sl. afhenti stjórn klúbbsins Gisla Auðuns- syni héraðslækni vinnuljósatæki til nota i lækningastofunni í Alftagerði í Mývatnssveit, en þar hefur verið komið upp aðstöðu fyrir lækna til móttöku og skoð- unar. Þangað koma læknar frá Húsavík tvisvar i mánuði. Þetta vinnuljósatæki mun hafa kostað um 160 þúsund krónur. Ber að þakka Kiwanisklúbbnum Herðu- breið fyrir þetta myndarlega framtak. — Kristján. fEnripttiM&íót!* óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: Blaðburðarfólk: AUSTURBÆR Óðinsgata, Sóleyjargata, Lauga- vegur 101—171, Laufásvegur 2 — 57, Hverfisgötu 63 — 1 25. ÚTHVERFI Hluti af Blesugróf, Fossvogsblettir, Selás, Ármúli, Laugarásvegur 1 —37, Skipholt 35 — 55. VESTURBÆR Nýlendugata, Tjarnargata I og II. SELTJARNARNES Upplýsingar í síma 35408. SENDILL ÓSKAST Á afgreiðsluna Skeifunni 19 fyrir hádegi. Sími 101 00. Seyðisfjörður Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og innheimtu Mb. Uppl. hjá umboðsmanni og í síma 10100 Látid okkur skipuleggja verkefnid - njótid góds af tuttugu óra reynslu ó svidi A ’ISLANDI J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.