Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 34
 34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 iÞRöm iFRÍTTIR Ml IRCUKBLABSIIIIS Blak: Úrslítakeppnin hefst á morgun ÚRSLITALEIKIR íslandsmótsins í blaki eru nú að hefjast og verður fyrsti leikurinn á morgun milli IMA og Þróttar og fer hann fram á Akureyri og hefst kl. 14.00. Eins og kunnugt er voru það sex lið sem unnu sér rétt til þátttöku í úrslitakeppninni, auk þeirra fyrr- nefndu eru það ÍS, Víkingur, UMFL og UMFB. ÍS sigraði í suðurlandsriðli með miklum glæsibrag og tapaði ekki leik en IMA sigraði i norðurlandsriðli en þar voru reyndar bara tvö lið, hitt var UMSE. Eftir frammistöðu lið- anna í vetur verður IS að teljast sigurstranglegast í mótinu en annars getur allt gerst í blaki og ætla sumir að úrslitakeppnin nú verði mjög jöfn og spennandi og ógerlegt sé að segja fyrir um hvaða lið standi að lokum með pálmann í höndunum. Leikirnir fara fram ýmist hér í Reykjavík eða i Iþróttaskemmunni á Akur- eyri. IMA fær þrjá leiki fyrir norðan og eru það Þróttur, Vík- ingur og UMFL sem sækja þá heim, en norðanmenn eru erfiðir heim að sækja og eiga eflaust eftir að gera sunnanmönnum grikk. Hér fyrir sunnan verður leikið í íþróttahúsi Kennara- háskólans og í Vogaskólanum, en síðustu leikir úrslitakeppninnar fara fram í Laugardalshöllinni 25. mars. Við fengum forsvarsmenn og leikmenn liöanna til að spá um endanleg úrslit í mótinu. Halldór Jónsson fyrirliði IS: 1. IS, 2. Víkingur, 3. Þróttur, 4. UMFL, 5. IMA, 6. UMFB. Guðmundur Pálsson Þrótti: 1. Þróttur, 2. ÍS, 3. Víkingur, 4. UMFL, 5. ÍMA, 6. UMFB. Páll Olafsson UMFL: 1. IS, 2. Þróttur, 3. UMFL, 4. Víkingur, 5. UMFB, ö. IMA. Torfi Rúnar Kristjánsson þjálf- ari UMFB: 1. IS, 2. Vikingur, 3. UMFB, 4. UMFL, 5. Þróttur, 6. IMA. Tómas Tómasson Víkingi: 1. Víkingur 2. ÍS, 3. Þróttur, 4. IMA, 5. UMFL, 6. UMFB. Fyrsta punktamótið verður 1 Skálafelli UM HELGINA 8.-9. febrúar fer fram punktamót í svigi og stór- svigi (Skálafelli. Þetta verður fyrsta punktamót vetrarins, þar sem fresta varð mótinu á Húsavfk fyrir hálfum mánuði. Nokkur punktamót eru haldin á hverjum vetri á hinum ýmsu stöðum á landinu, og ræður árangur keppenda á þeim rásröð á Skíðamóti lslands. Einnig er á mótum þessum keppt um bikar Skíðasambands Islands, og hlýtur hann sá kepp- andi, sem nær beztum samanlögð- um árangri úr mótum þessum. Allir beztu skíðamenn og konur landsins taka þátt I mótum þessum. Má þar nefna þá félaga Arna Óðinsson, Hafstein Sigurðs- son, Hauk Jóhannesson og Tómas Leifsson, sem undanfarnar vikur hafa dvalið erlendis við æfingar og keppni með ágætum árangri. Má því búast við harðri og skemmtilegri keppni. Fjöldi þátttakenda nú um helg- ina verður 66, 54 í karla flokki og 12 í kvennaflokki. Á þessum vetri hefur nokkrum efnilegum ungl- ingum verið gefinn kostur á þátt- töku I punktamótunum, og er það gert með val á hugsanlegum þátt- takendum í Ólympíuleikunum i Innsbruch 1976 í huga. Skíðadeild KR hefur veg og vanda af mótahaldi þessu. Móts- stjóri verður Einar Þorkelsson. Viggó Benediktsson mun annast brautarlagnir ásamt þjálfara KR- inga, Norðmanninum, Björn Juvet. Á laugardag verður keppt í stórsvigi og hefst keppni kl. 13.00. Nafnakall verður kl. 11 um morg- uninn. Á sunnudag hefst svig- keppni kl. 12.00. Nafnakall verður klukkustundu áður, kl. 11. Ferðir í Skálafell verða báóa dagana kl. 10 og kl. 14. Allar lyftur verða í gangi. * Segja má, að sklðavertiðin hefjist fyrir alvöru nú um helgina, en þá verða punktamót bæði I göngu og Alpagreinunum. Göngumennirnir verða á ferðinni við Sklðaskálann I Hveradölum en keppt verður í Alpagreinunum ISkálfafelli. Knattspyrnuþjálfarar Knattspyrnuþjálfara vantar á Seyðisfjörð næsta ' sumar, maí — september. Upplýsingar veitir Þorvaldur Jóhannsson í síma 97-2293 og 97-2414. Iþróttafélagið Huginn. Rodnina og Zaitsev — enn einu sinni báru þau sigur úr býtum á stórmóti, og sýndu glæsileg tilþrif. Sovétfólkið bezt í listhlaupi á skautum Evrópumeistaramótið I list- hlaupi á skautum fór nýlega fram í Bröndby-hallen I Kaupmanna- höfn. Þátttakendur í móti þessu voru nú með færra móti, enda sýna skýrslur, að þeir sem leggja stund á þessa fögru fþrótt fer stöðugt fækkandi. Astæðan er tal- in vera fyrst og fremst sú, að til þess að geta náð árangri á heims- mælikvarða þarf að byrja að æfa íþrótt þessa þegar á unga aldri, og sögðu t.d. þeir sem fram úr sköruðu I Kaupmannahöfn, að þeir hefðu byrjað að æfa undir leiðsögn þjálfara, þegar 6—7 ára gömul. Eins og við var búizt var Aust- ur-Evrópufólkið atkvæðamest á Evrópumeistaramótinu, en hing- að til hafa Sovétmenn jafnan ver- ið sigursælir I þessari íþrótta- grein á stórmótum. I fyrstu keppnisgreininni, para- keppni, kom þó í ljós, að Austur- Þjóóverjar höfðu á að skipa frá- bæru keppnisfólki, en þeir virðast í stórsókn í skautahlaupi, sem og öðrum íþróttagreinum. Lengi var um harða baráttu milli sovézka parsins Irina Rodnina og Akeksander Zajtsev og Þjóð- verjanna Romy Kermer og Rolf Oesterreich að ræða, en keppnis- reynsla Sovétfólksins sagði til sín undir lokin og það vann öruggan sigur, hlaut 141,88 stig á móti 139,86 stigum Þjóðverjanna. 1 þriðja sæti varð svo a-þýzkt par, Manuela Gross og Uwe Kagel- mann og hlutu þau 136.41 stig. I listhlaupi karla bar hinn 21 árs gamli sovét-stúdent Vladimir Kolalev sigur úr býtum og hlaut hann 233,49 stig. Fyrirfram var búizt við að keppnin myndi standa milli hans og landa hans Sergeir Volkov, en öllum á óvart sýndi ungur brezkur piltur, John Curry, mikla hæfni í keppninni og hreppti annað sætið. Kolalev hlaut 233,49 stig, Curry hlaut 229,48 stig og í þriðja sæti var Yuri Ovchinnikov frá Sovétríkjun um með 227,38 stig. Volkov varð að sætta sig við fjórða sætið, hlaut 225,85 stig. Sigurvegarar í listdansi á skaut- um urðu Ludmilla Pakhomova og Alexander Gorschkov frá Sovét- ríkjunum sem hlutu 210,88 stig. 1 þessari grein komu Bretar einnig á óvart með því að ná silfurverð- laununum. Það voru Hillary Green og Glenn Watts sem hlutu 203,32 stig. I þriðja sæti urðu svo Natalia Linichuk og Gennadi Karponosov frá Sovétríkjunum með 201,42 stig. 1 listhlaupi kvenna sigraói hins vegar Christine Errath frá Aust- ur-Þýzkalandi, — ný stjarna i þessari keppnisgrein. Hún hlaut 229,00 stig. I öðru sæti varó Diane de Leeuw frá Hollandi sem hlaut 228,81 stig og i þriója sæti varð Anett Pötzsch frá A-Þýzkalandi með 223,68 stig. Verðlaun á Evrópumeistara- mótinu skiptust því þannig, að Sovétríkin hlutu 3 gull og2 brons, A-Þýzkaland hlaut 1 gull, 1 silfur og 2 brons, Bretland hlaut 2 silfur og Holland 1 silfur. Sundmót Ægis SUNDMÓT Ægis verður haldið I Sundlaug Laugardals 16. febrúar n.k. og I SAUNDHÖLL Reykja- víkur 19. febrúar. Sunnudaginn 16. febrúar hefst keppnin kl. 15.00 og verða þá keppnisgreinar 1500 metra skrið- sund karla og 1500 metra skrið- sund kvenna. Miðvikudaginn 19. febrúar hefst keppni kl. 20.15 og verða þá keppnisgreinar eftirtaldar: 400 metra fjórsund karla 100 metra flugsund kvenna 200 metra bringusund karla 50 metra skriðsund sveina, f. 1963 og seinna 50 metra bringusund telpna, f. 1963 og seinna 100 metra skriðsund telpna, f. 1961 og seinna 100 metra skriðsund karla 100 metra bringusund kvenna 200 metra baksund karla 200 metra fjórsund kvenna 4X100 metra fjórsund karla 4X100 metra fjórsund kvenna. 1 þremur sundgreinum: 1500 metra skriðsundi karla og kvenna og í 100 metra skriðsundi telpna er keppt um bikara. Þátttökutilkynningum skal skil- að á þar til gerðum skráningar- kortum í siðasta lagi þriðjudaginn 11. febrúar í Sundhöll Reykjavík- ur, eða til Sigurðar A. Ólafssonar, Brúnavegi 3, ásamt kr. 50,00 fyrir hverja skráningu. Undanrásir verða þriðjudaginn 18. febrúar kl. 20.00. Gummersbach sigraði V-ÞYZKA liðið VFL Gumm- ersbach sigraði ungverska lið- ið Spartacus frá Búdapest með 19 mörkum gegn 13 (hálfleik- ur 9—7) 1 seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópubik- arkeppninnar í handknattleik, og hefur þar með tryggt sér þátttökurétt í undanúrslita- keppninni, þar sem fyrri leik liðanna lyktaði með jafntefli 15—15. Eins og svo oft áður var það kappinn Hans-Giinther Schmidt sem var atkvæðamest- ur í Gummersbach-liðinu í leik þessum og skoraði hann 7 mörk, Westebbe var með 6, Feldhoff með 4 og Brand og Deckarm með sitt markið hvor. Fyrir Ungverjana skoruðu: Lovrek 4, Keszihelzy 3, Horka 2, Pfeifer 1, Szabo 1, Stiller 1 og Demjen 1. Spartak í úrslit SOVÉZKA liðið Kiev Spartak hefur tryggt sér rétt tii að leika til úrslita 1 Evrópubikar- keppni kvenna 1 handknatt- leik. 1 undanúrslitum iék liðið við Ruch Chorzow frá Póllandi og sigraði í útileiknum 15—12 og í heimaleiknum 14—10. Þær þýzku sigruðu AUSTUR-ÞVZKALAND sigr- aði Noreg 17—7 (10—0) 1 landsleik kvenna í handknatt- leik sem fram fór 1 Austur- Berlín s.l. sunnudag. Liðin léku einnig á laugardag og þá sigruðu þá þýzku stúlkurnar með 16 mörkum gegn 10. 0 Arhus úr leik DANSA handknattleiksliðið Arhus KFUM tapaði fyrir júgóslavneska liðinu Borac Banja Luka, er liðin mættust f átta liða úrslitum Evrópubik- arkeppninnar 1 handknattleik 1 Júgóslaviu s.l. laugardag, með 18 mörkum gegn 23, og eru Danir þar með úr leik 1 keppninni. Fyrir Árhus skor- uðu: Jörgen Vodsgaard 6, Boye Steenskjær 5, Karsten Sören- sen 3, Bjarne Larsen 3 og Hans Jörgen Tholstrup 1. Fyrir júgóslavneska liðið skoruðu: Selec 6, Karalic 6, Radjenovic 5, Popovic 3, Bjelic 2. FIF úr leik DANSKA kvennaliðið FIF tap- aði seinni leik sínum við Loko- motive Zagreb í Evrópubikar- keppninni í handknattleik 8—12, og er þar með úr leik í keppninni að þessu sinni, þrátt fyrir að liðið sigraði I fyrri leiknum sem fram fór í Kaupmannahöfn 12—10. Skíðamaður ferst 16 ÁRA finnskur skíðamaður, Markku Vuopala, beið bana í skíðakeppni sem fram fór ( Gerlosstein í Zell am Ziller um síðustu helgi. Keppni þessi var Evrópubikarkeppni unglinga ( bruni, og hafði Vuopala farið brautina af mikilli leikni og öryggi. Ilonum tókst hins veg- ar ekki að stöðva sig eftir að hann hafði farið í gegnum merkið og skall á tré, um 100 metra frá marklinunni og fékk við það svo mikið höfuðhögg að hann lézt skömmu síðar. Vuopala var í hópi efnilegustu skíðamanna Finna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.