Morgunblaðið - 08.02.1975, Side 13

Morgunblaðið - 08.02.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1975 13 Frá skákþinginu í Banja Luka Skömmu fyrir áramót lauk í borginni Banja Luka í Júgóslavíu sterku alþjóð- legu skákmóti og urðu úr- slit sem hér segir: 1. Vukic (Júgósl.) 10,5 v., 2. Kuzmin (Sovétr.) 10 v., 3.—4. Hort (Tékkósl.) og Timman (Holland) 9,5 v., 5. Ivkov (Júgósl.) 8,5 v., 6. — 7. Tarjan (U.S.A.) og Mestrovic (Júgósl.) 8 v., 8. —10. Marovic og Bukic (Júgósl.) og Csom (Ungv.l.) 7,5 v., 11. Popov (Búlgaría) 7 v., 12. —13. Planinic og Lakic (Júgósl.) 6 v., 14. —15. Mihaljcisn (Júgósl.) og Hartoch (Hol- land) 5 v., og 16. Damjanovic (Júgósl.) 4,5 v. Skák eftir JÓN Þ. ÞÓR Eins og sjá má af þessari upptalningu var hér um all- sterkt mót að ræða þótt úr- slitin komi lítið á óvart, nema þá ef vera skyldi sigur Vukie. Hann er einn hinna fjölmörgú ungu og efnilegu skákmeistara Júgóslava, teflir mjög skemmtilega á köflum og vinnur þá sæta sigra, en er hins vegar mjög mistækur. Árangur Horts og Kuzmins kemur fáum á óvart og sama verður að segja um Timman, en hann er nú kominn í fremstu röð stórmeistara og vafalítið orð- inn sterkasti skákmaður Hol- lands. i Banja Luka tefldi Timman skemmtilega að vanda, vann margar skákir, en fékk slæma skelli inn á milli. Við skulum sjá viður- eign hans gegn tveimur Júgóslövum. Hvítt: Timman Svart: Ivkov Ungversk byrjun. 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bc4 — Be7, 4. d4 — d6. 5. dxe5 — dxe5, 6. Bd5 — Bd7, 7. Rbd2 — Rf6, 8. Rc4 — o-o, 9. o-o — Rxd5, 10. exd5 — Rb4, 11. Rcxe5 — Bf5, 12. Rd4 — Be4, 13. c4 — Bd6, 14. He1 — f5, 15. Re6 — De8, 16. Bf4 — g5, 17. h4! — gxf4, 18. Hxe4 — Hf6, 19. He1 — Hxe6, 20. dxe6 — Dxe6, 21. a3 — Ra6, 22. Dd4 — Hd8, 23. Rc6 — Dg6, 24. Rxd8 — gefið. í síðari skákinni er stríðs- gæfan ekki jafn hliðholl Hollendingnum. Hvítt: Timman Svart: Marovic Aljekinsvörn. 1. e4 — Rf6, 2. e5 — Rd5, 3. d4 — d6, 4. c4 — Rb6, 5. f4 — Bf5, 6. Rc3 — dxe5, 7. fxe5 — e6, 8. Rf3 — Rc6, 9. Be3 — Be7, 10. d5 — Rb4, 11. Hc1 — exd5, 12. a3 — c5, 13. axb4 — d4, 14. Bxd4 — cxd4, 15. Dxd4 — Bxd4, 16. c5 — Rd5, 17. Bb5+ — Bd7, 18. Dxd5 — Bxb5, 19. Dxb7 — Hb8, 20. De4 — a5, 21. Kf2 — Bxc5 + , 22. Kg3 — o-o, 23. Hhd1 — Db6, 24. Rg5 — Bf2 + , 25. Kf3 — f5, 26. exf6 frhj.hl. — Dxf6 +, 27. Kg4 — h5+ og hvítur gafst upp. HORGUmABlS fyrir 50 árum Fyrirlestur flytur H. Kiljan Laxness? í Nýja Bió á morgun kl. 4, um árásir þær, sem Þórbergur Þórðarson hefir gert í bók sinni „Brjef til Láru" á trúarbrögðin, og þá sjerstakiega um árásir hans á kaþólsku kirkjuna. í riti sínu hefir Þórbergur borið þyngri sakir á kaþólsku kirkjuna en flest annað, sem hann sakfellir, en Halldór Kiljan er manna kunnugastur kaþólskum efnum af innlendum mönnum . . . Kiljan er og vel máli farinn, frumlegur í hugsun, djarfur i skoðunum, og má því búast við skemtilegu erindi, og ekki síst þar sem um dálitla ádeilu mun verða að ræða þarna. Uppgripaafli hefir verið á Sandi síðastliðna viku. T.d. fengust á laugardag 60—70 kr. hlutir, en þá var og líka tvíróið. Nýlega hefur rikisstjórnin skipað dýrtíðarnefnd. Henni mun vera ætlað að rannsaka orsakirnar til þeirrar dýrtiðar, sem talin er að vera hjer i bæ, auk almennrar dýrtiðar sem er alstaðar i landinu. Bærinn hefir nýlega auglýst Breiðholt laust til ábúðar og hafa allmargir sótt um ábúð á jörðinni. MATSEÐILL VIKUNNAR Umsjón: Hanna Guttormsdóttir MÁNUDAGUR (bolludagur) Steiktar kjötbollur I sósu, hrærðar kartöflur, vatnsdeigsbollur (sjá uppskrift). ÞRIÐJUDAGUR (sprengikvöld) Saltkjöt og baunir, soðnar rófur, grænertusúpa. MIÐVIKUDAGUR (öskudagur) Smurt brauð (sjá uppskrift). FIMMTUDAGUR Fiskflök með tómatsósu (bakað i ofni), hvít sagósúpa. FÖSTUDAGUR Djúpsteiktur fiskur (sjá uppskrift), hrátt salat, saftsúpa. LAUGARDAGUR Soðin bjúgu, hrærðar kartöflur, skyr með púðursykri og rjómablandi. SUNNUDAGUR Rússasúpa (sjá uppskrift), steiktar kótelettur, hrátt salat, karamellubúðingur (sjá uppskrift). VATNSDEIGSBOLLUR 125 g smjörliki, 2'A dl vatn, 125 g hveiti, 4 egg. Sjóðið vatn og smjörlíki saman i potti. Bætið hveitinu út í. Sjóðið þar til þið hafið búið til jafning. Setjið jafninginn í hræri- vélarskál og hrærið eggjunum saman við einu i senn. Setjið deigið með teskeið á smurða plötu. Bakið við 225° C í 20—30 mín., í miðjum ofni. Varist að líta i ofninn fyrstu 10—15 mín., þvi þá geta bollurnar fallið. Þegar kökurnar eru bakaðar eru þær fylltar með þeyttum rjóma og gjarnan niðursoðnum ávöxtum. Þá'má líka bræða súkkulaði og húða bollurnar með þvi. SMURTBRAUÐ Hafið brauðið ekki aiveg nýtt. Varist að lála það þorna og breiðið því yfir það rakt stykki eða smjörpappir og setjið það i plastpoka, á meðan smurt er. Hafið smjörið vel lint. Hér koma nokkur sýnis- horn af smurðu brauði: Rúgbrauð: kartöflusalat, skreytt með síld og gúrkusneiðum. Rúgbrauð: Sild i tómat, skreytt með eggjum og graslauk. Maltbrauð: Steik, skreytt með rauðkáli, sveskju og gúrku. Hveitibrauð: Rækjur skreyttar með majunese, sitrónu og steinselju. Hveitibrauð: Tómatar og steinselja. Margt fleira kemur til greina en reynið nú sjálf. DJUPSTEIKTUR FISKUR 750 g. flök 1 tsk. salt, Vt tsk. pipar, lA dl brauðmylsna, 1 eggjahvíta, steikarfita. Verkið fiskflökin og þerrið. Skerið þau í hæfilega bita. Veltið honum í eggjahvítu, brauðmylsnu og salti. Leggið bitana í pott með heitri tólg og látið sjóða eins og kleinur. Færið fiskinn upp og raðið á fat. Skreytið með sitrónum. RÚSSASÚPA 300 g rauðrófur, vatn, salt, 80 g gulrætur, 150 g hvitkál, 1 msk. tómatkraftur, 7 dl kjötsoð, 3 dl hangikjötssoð, salt, 'A dl súr rjómi, 50 g hangikjöt. Rífið rauðrófurnar. Skerið gulrætur og kál í ræmur og sjóðið. Skerið kjötið í bita og leggið það siðast í. Þeytið rjómann og berið hann fram með súpunni. KARAMELLUBÚÐINGÚR: Karamella: 250 g sykur, 2 dl vatn, 2 dl rjómi. 4 egg, 20 g sykur, 4 dl mjólk eða rjómi, 1 Vt tsk. vaniljudropar. Þekið hringmót með karamellu. Brúnið sykurinn á þurri heitri pönnu og hellið honum i þurrt hringmót, sem hefur verið hitað (haldið á mótinu með pottaleppum). Smyrjið karamellunni i flýti með pönnukökuspaða upp um hliðar mótsins. Hellið afganginum á pönnuna aftur. Látið vatn saman við, og sjóðið karamellusósu, sem síðan er kæld. Þeytið egg og sykur litið eitt, og blandið mjólk og rjóma og vaniljudropum saman við. Hellið eggja- blöndunni i hringmót gegnum sáld. Látið lok eða álþynnu yfir. Setjið hringmótið i ofnskúffu með vatni og síóan inn i ofn. Ofnhiti um 150°C. Bökunartimi um '/2 klst. eða þar til búðingurinn er orðinn stifur. Hvolfið mótinu, og kælið karamelluhring- inn. Þeytið rjómann og blandið karantellu- sósuna, sem borin er fram með hringnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.