Morgunblaðið - 08.02.1975, Síða 17
MORGUNBLAÐÍÐ, LÁUGÁRDÁGUR 8. PEBRUAR 1975
17
Norðmenn
auka sölu
fiskstauta
Ösló, 6. febrúar. NTB.
NORSKA fyrirtækið Frionor hef-
ur að undanförnu gert nokkra
samninga um mikla söiu á fisk-
stautum til Bandarfkjanna og
nokkurra Evrópulanda.
Þessir samningar tryggja at-
vinnu I 70 verksmiðjum Frionors
f að minnsta kosti hálft ár að sögn
forstjðra fyrirtækisins, Arne
Ascers aðmfráls.
Hann vildi ekki segja frá þvi
hvað magnið væri mikið er samið
hefði verið um en sagði að ekki
væri aðeins um þorsk að ræða
heldur einnig kola og lúðu.
Hann sagði að á sama tíma og
verð á matvælum á
útflutningsmarkaði hefði lækkað
verulega að undanförnu hefði
framleiðslukostnaður aukizt
mikið í Noregi.
Jafnframt kvað hann
erfiðleikana hafa aukizt vegna
ástandsins í gjaldeyris- og
olíumálum. Frionor hefði gert
stóra samninga sem væru
greiddir i dollurum eða pundum
og þegar doilarinn eða aðrir
gjaldmiðlar féllu i verði yrði
Frionor fyrir verulegu tjóni.
Um 25% af framleiðslu Frionor
fer á Bandaríkjamarkað.
Myndin sýnir Ringo og Maureen á meðan þau voru enn saman.
Bítlahjóna-
band fyrir bí
London 7. febrúar — Reuter
RINGO Starr, trommuleikari
Bftlanna sáfugu, tilkynnti í dag
að hjónabandi hans með æsku-
ást hans, Maureen, væri lokið.
Þar með er síðasta „Bítla-
hjónabandinu" lokið, en hjóna-
bönd John Lennons og George
Harrison fóru bæði út um þúf-
ur. Ringo tjáði fréttamönnum
þetta á Heathrow-flugvelli í dag
er hann fór til Bandarfkjanna
ásamt vinkonu sinni, Nancy
Andrews, 24 ára bandarískri
fyrirsætu. Ringo, sem er 34 ára
að aldri, sagði að konan sín
væri á heimili þeirra í Ascot
ásamt þremur börnum þeirra.
Paul McCartney f jórði bitillinn,
kvæntist ekki fyrr en Bítlarnir
voru að leysast upp.
Jackson deilír
á dr. Kissinger
Washington 7. febrúar —
Reuter
HENRY Jackson, öldunga-
deildarþingmaður, réðst f dag
harkalega á utanrfkisstefnu
Henry Kissingers f fyrstu ræðu
sinni eftip að hann tilkynnti um
að hann gæfi kost á sér sem for-
setaefni demókrata f kosningun-
um 1976. Jackson sagði að það
væri hægur vandi að fylgja utan-
rfkisstefnunni á miklu opnari,
heiðarlegri og næmlegri hátt en
Kissinger gerði. Hann gagnrýndi
einkum afstöðu Kissingers til
deilunnar f Miðausturlöndum, og
sagði: „Varðandi Araba eigum
við ekki vera að velta fyrir okkur
einvers konar „fallbyssu-
diplómatfu“, heldur reyna að
finna varanlega lausn á orku-
vandanum. Það er beittasta svarið
við olfuvopninu.“ Þá gagnrýndi
hann einnig stefnuna f málefnum
Indókfna, og varaði við þvf að
senda „gúmmftékka" til Suður-
Vfetnam og Kambódfu. Henry
Jackson hefur löngum verið
Rabin reiðubúinn að
skila fjallaskörðum
é/
New York, 7. febrúar. AP
YITZHAK Rabin forsætisráðherra
Israels sagði f dag að tsraelsmenn
væru reiðubúnir að láta af hendi
skörðin Mitla og Gida og olfusvæð-
ið Abu Rudeis á Sinai-skaga ef
Egyptar skuldbyndu sig til að
binda enda á styrjaldarástand
þjóðanna.
Hann sagði f viðtali við ABC-
sjónvarpið að Israelsmenn
mundu krefjast þessarar skuld-
bindingar af Egyptum „án tillits
til þess sem gerast mundi f sam-
skiptum Israelsmanna, Jórdanfu-
manna og Sýrlendinga" og ann-
arra þjóða.
Anwar Sadat Egyptalandsfor-
seti hefur krafizt þess að tsraels-
menn afsali sér skörðunum og
olfusvæðunum f næsta áfanga
samningatilrauna Henry Kissing-
ers, utanrfkisráðherra Bandarfkj-
anna.
Yfirlýsing Rabins fylgir f kjöl-
far annarrar yfirlýsingar þess
efnis að Sadat geti lagt fram raun-
hæft friðartilboð ef hann lofi
tsraelsmönnum þvf að Egyptar og
Sýrlendingar muni ekki koma af
stað nýju strfði í Miðausturlönd-
um.
Hann sagði á heimsþingi Gyð-
inga að Sadat hefði þegar gefið f
skyn að Egyptar og Sýrlendingar
mundu ekki hefja nýja styrjöld.
„Ef hann meinar það lofar það
góðu,“ sagði Rabin.
Rabin lýsti yfir fullum stuðn-
ingi við þá stefnu Kissingers að
leysa deilumálin stig af stigi og
sagði að tsraelsmenn mundu ekki
taka þátt í friðarráðstefnu í Genf
fyrr en allar aðrar leiðir til þess
að finna lausn hefðu verið þraut-
kannaðar.
Hann kvaðst telja að ef friðar-
viðræður yrðu fljótlega teknar
upp að nýju kæmust þær fljótlega
í sjálfheldu og þá mundi aukast
hætta á nýjum stríðsaðgerðum.
Rabin telur að lykillinn að frið-
artilraununum sé samningur við
Egypta um Sinai, því ef Egyptar
stigi fyrsta skrefið muni önnur
Arabalöndin fljótlega feta í fót-
spor þeirra.
FRETTIR
Mikið tjón í
jarðskjálfta
Peking, 6. febrúar. Reuter
BJÖRGUNARSTARF er hafið
eftir mikla jarðskjálfta í fylkinu
Lianoning í norðaustur hluta
Kína. Mikið tjón varð í jarð-
skjálftanum sem mældist 7,3 stig
á Richters-mælikvarða.
Harðastur var jarðskjálftinn á
þéttbýlu iðnaðarsvæði. Á þvf
svæði eru bæirnir Yingko (íb.:
250.000) og Haicheng (íb.:
75.0001.
Deyja hundruð þúsunda úr
hungri vegna vanrækslu?
Washington, 7. febrúar. AP.
ROBERT McNamara, fram-
Skozkur þjóðérnis-
sinnaher í uppsiglingu?
Berwich-on-Tweed,
7. febrúar — Reuter
LÖGREGLAN hóf í dag rann-
sókn á starfsemi skozks þjóð-
ernissinnahers, sem nú f vik-
unni lýsti sig ábyrgan fyrir
tveimur sprengjutilræðum á
Norður-Englandi. Skozkir þjóð-
ernissinnar hafa ekki lagt of-
beldisaðgerðir fyrir sig að ráði,
en þessi þjóðernisher kom
fyrst fram á sfðasta ári og
kvaðst hafa gert sprengjuárásir
á olfuleiðslur f Skotlandi. Sfðan
hefur verið hljótt um hann, en
í dag skýrði lögreglan frá þvf
að hann hefði lýst yfir ábyrgð
sinni á árás á tvær rafstöðvar
skammt frá Berwick-on-Tweed.
Þessi aukna starfsemi hers-
ins kemur í kjölfar umræðna á
brezka þinginu um sérstök þing
fyrir Skota og Walesbúa, en
slík þing eru helzta baráttumál
þjóðernissinna á báðum stöð-
um. Er talið að skozku þjóð-
ernissinnarnir séu gramir yfir
seinaganginum í þessu máli, og
í dag sagði talsmaður þeirra að
augljóslega væri verið að tefja
málið. Hann kvað þjóðernisher-
inn, sem skipaður væri 100 liðs-
mönnum, engu að síður vera
mjög á móti því að mannslffum
væri stofnað í hættu' með að-
gerðum.
kvæmdastjóri Alþjóðabankans,
sagði f gærkvöldi að sennilega
mundu hundruð þúsunda manna
vfða f heiminum deyja á næstu
fimm til tfu árum vegna
vanrækslu rfkisstjórna landa
sinna og auðugri þjóða.
Hann fagnaði því að olfufram-
leiðsluríki hefðu aukið aðstoð
sfna við fátæku löndin en gagn-
rýndi harðlega að dregið hefði úr
aðstoð iðnvæddra rikja.
McNamara sagði að alvarlegast
væri ástandið hjá 800—1000 mill-
jónum manna með innan við 200
dollara meðaltekjur f löndum eins
og Bangladesh, Indlandi,
Pakistan og löndunum sunnan
BREZK ÞYRLA TOK TOGARA
North Shields, 6. febr. Reuter.
YFIRVÖLD hafa til athugunar
hvort höfða skuli mál gegn skip-
stjóranum á danska togaranum
Onyx, sem var staðinn að ólögleg-
um veiðum innan 12 mílna fisk-
veiðilandhelgi Breta áNorðursjó.
Henry Jackson — kosn-
ingabaráttan hafin?
þekktur sem harðlfnumaður varð-
andi Vfetnam-stríðið.
Sovézka fréttastofan Tass sagði
í dag, að Jackson væri andstæð-
ingur „detente“-stefnunnar um
slökun spennu í sambúð austurs
og vesturs. „Hann er handbendi
afturhaldssinna innan hersins,
stóriðjunnar, hinnar hægrisinn-
uðu forystu ANL-CIO verkalýðs-
sambandsins, og samtaka
zíónista."
Saharaeyðimerkurinnar i Afríku.
Hann sagði að efnahagsaðstoð
frá vestrænum löndum eins og
Vestur-Evrópulöndunum, Banda-
rfkjunum, Kanada og Japan hefði
ekki haldið i við verðbólguna.
McNamara gagnrýndi óréttláta
tekjuskiptingu f þróunarlönd-
unum en taldi réttláta tekjuskipt
ingu ekki einhlíta lausn á vandan-
um heldur aukna framleiðni og
endurskipulagningu á þjónustu-
kerfi landanna.
Hann kvaðst þess fullviss að
með bættu skipula ,i mætti auka
matvælaframleiðslu landanna og
koma í veg fyrir víðtæka hungurs-
neyð.
Þyrla brezku landhelgisgæzl-
unnar gaf skipstjóranum merki
um að stöðva og herskip fylgdi
togaranum til hafnar í North
Shields. Þyrla hefur þar með í
fyrsta skipti tekið erlent fiskiskip
i brezkrl iandhelgi.
Óttazt að
þjófarnir
eyðileggi
málverkin
Urbino, 7. febrúar. Reuter.
ÖTTAZT er, að þrjú ómetan-
leg málverk, sem hefur verið
stolið úr hertogahöllinni f
Urbino, verði eyðilögð ef
lausnargjald verður ekki
greitt, að sögn ftalskra blaða f
dag.
Málverkin eru Húðstrýking
Krists og Madonna frá Seni-
gallia eftir Pierro Della Franc-
esca og Málleysinginn eftir
Raphael. Þau eru svo kunn, að
sérfræðingar eru vissir um að
þjófarnir geti ekki selt þau.
Þessi málverkaþjófnaður er
einn hinn mesti sem um getur
á þessari öld og honum hefur
verið Ifkt við ránið á Monu
Lisu f Parfs 1911, en talið er að
enginn málverkaþjófnaður
komist f hálfkvisti við hann.
Lögreglan vill ekkert segja
um þá tilgátu blaðanna, að
þjófarnir hóti að eyðileggja
listaverkin ef þeir fá ekki
greitt fé fyrir að skila þeim, en
yfirmaður stjórnardeildar,
sem annast leit að stolnum list-
munum, dr. Rodolfo Siviero,
sagði: „Þjófarnir hljóta að
vera nautheimskir ef þeir
halda að þei geti selt málverk-
in.“
Eitt blaðið gizkar á, að póli-
tískir öfgamenn hafi stolið
málverkunum til að reyna að
neyða yfirvöldin til að sleppa
félögum sínum úr fangelsi.
Þjófnaðurinn hefur valdið
miklu uppnámi og stjórnin
hefur sætt harðri gagnrýni
fyrir að gæta ekki bétur
einstæðrar listaarfleifðar
Itala.
Tvær fyrirspurnir voru
bornar fram á þingi þess efnis
hvað stjórnin hygðist gera til
að koma í veg fyrir slíka glæpi.
Aðeins venjulegir lásar eru
í mörgum kirkjum og söfnum
þar sem ómetanleg listaverk
eru geymd og 50.000 listaverk
um hefur verið stolið siðan
1948. I höllinni i Urbino var
ekkert nýtízku neyðarbjöllu
kerfi.