Morgunblaðið - 08.02.1975, Síða 22

Morgunblaðið - 08.02.1975, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1975 Veður eftir MARKIJS Á. EINARSSON Reglubundnar veðurathugan- ir með eða án mælitækja eru undirstaða veðurfræðinnar, og til þess að full not verði af þeim við veðurfarsútreikninga þurfa þær að standa yfir í mörg ár, eða helzt áratugi. Ekki er ýkja langt síðan veðurathuganir með mælitækj- um hófust hérlendis. Munu athuganir Nielsar Horrebow á Bessastöðum frá 1. ágúst 1947 til 30. júlí 1751 vera elztar, en niðurstöður þeirra birtust í riti hans, „Tilforladelige Efterretn- Stykkishólmur — elzta veðurstöð landsins. r Veðurathuganir á Islandi inger om Island", sem gefið var út í Kaupmannahöfn 1752. Síðar, eða árin 1779—1805 dvaldist Rasmus Lievog við stjörnumælingar og veður- athuganir hér á landi, fyrsta árið á Bessastöðum, en siðan á Lambhúsum í Bessastaðatúni. Enn seinna, eða í ársbyrjun 1823 hóf Jón Þorsteinsson land- læknir veðurathuganir fyrir danska Vísindafélagið, fyrst að Nesi við Seltjörn, en síðar í Reykjavík, og hélt hann þeim áfram fram á efstu ár, en hann lézt árið 1855. Lét Vísinda- félagið árið 1839 prenta í einni bók veðurathuganir hans fyrir árin 1823—1837, og hefur Jón Eyþórsson gert þeim athugun- um nokkur skil. Allir unnu ofangreindir menn, svo og ýmsir aðrir áhuga- menn, sem skráðu veðurlýs- ingar, án þess að hafa mæli- tæki, merkilegt brautryðjenda- starf. Hins vegar er næsta víst, að uppsetning og nákvæmni þeirra mælitækja, sem notuö voru, hafi á engan hátt staðizt þær kröfur, sem síðar hafa verið gerðar til slíkra mælinga. Þáttaskil urðu í íslenzkri veðurfarssögu 1 nóvember 1845, en þá hófust fyrstu reglu- bundnu veðurathuganir hér- lendis, sem staðið hafa nær óslitið síðan. Voru það veður- athuganir í Stykkishólmi, sem Arni Thorlacíus annaðist frá upphafi til 1889, er sonur hans tók við. Er Stykkishólmur af þessum ástæðum talinn vera elzta veðurstöð landsins. Athuganir hafa reyndar verið gerðar á ýmsum stöðum innan þorpsins og staðsetning tækja ekki ætíð verið með bezta móti. Engu að síður eru mælingarnar ómetanlegar heimildir, sem gera kleift að rekja hitabreyt- ingar á staönum frá ári til árs óslitið í yfir 125 ár. Danska veðurstofan (Det Danske Meteorologiske Institut) var stofnuð árið 1872. Á miðju ári 1873 tók hún við umsjón veðurathugana í Stykkishólmi. Sama ár hófust veðurathuganir við Berufjörð, nánar tiltekið á Djúpavogi. Voru athuganir gerðar þar til 1882, en þá fluttust þær að Teigarhorni, sem er býli um 5 km innan við fjörðinn. Veður- stöðin var þó nefnd Berufjörð- ur til 1922, en hefur síðan heit- ið Teigarhorn. Báðar ofangreindar stöðvar, Stykkishólmur og Berufjörður, eru teknar með í hinni fyrstu dönsku „Meteorologisk Aar- bog“, fyrir árið 1873, sem danska veðurstofan gaf út. Ar- bókin kom siðan út árlega, og birtust í 2. hluta hennar niður- stöður veðurathugana á Islandi allt til ársins 1919. Af öðrum veðurstöðvum, sem stofnaðar voru snemma og sem starfað hafa nær óslitið síðan má nefna Grímsey, Vestmanna- eyjar, Reykjavik og Akureyri. 1 Grímsey hófust veður- athuganir árið 1874. Mælingar á loftþrýstingi fóru þó fram á Akureyri frá upphafi og þar til síðla árs 1918. I Vestmannaeyjum hófust veðurathuganir 1877. Voru þær gerðar í kaupstaðnum til 1921, en fluttust þá að Stórhöfða. Er verulegur munur á veðurlagi milli kaupstaðarins og Stór- höfða, og er þvi að ýmsu leyti réttmætt að telja, að ný veður- stöð hafi verið stofnuð þar efra. Áður var getið um athuganir Jóns Þorsteinssonar landlæknis í Reykjavík frá 1823 til um 1850. Síðar hófust veðurathug- anir við Latínuskólann á vegum danska Visindafélagsins 1871—1879, en í „Meteoro- logisk Aarbog“ er fyrst getið um veðurathuganir í Reykjavík í maí 1880. Eftir það voru athuganir gerðar á mismunandi stöðum í bænum. Þó voru þær á Vifilsstöóum árin 1911—1919. Árið 1920 tók nýstofnuð veður- fræðideild Löggildingarstof- unnar við athugunum og síðan Veðurstofa Islands. Á Akureyri hófust veður- athuganir árið 1881. Fyrstu töflur birtust i „Meteorologisk Aarbog“ fyrir árið 1882. Lengi vel voru nær eingöngu gerðar þar hitamælingar, og úrkomu- mælingar hófust ekki fyrr en 1927. Fjöldi veðurstöðva var nokkuð breytilegur meóan danska veðurstofan annaðist athuganir á Islandi. Sumar stöðvar, sem stofnaðar voru, störfuðu aðeins í skamman tíma, aðrar lengi, og þær stöðv- ar, sem að framan var getið hafa starfað nær óslitið frá upphafi. Árið 1874 voru þrjár veðurstöðvar á Islandi, árið 1881 voru þær 18, árið 1891 21, en flestar urðu þær 22 árin 1888—1890. Arin 1901 og 1911 voru stöðvarnar 17. Stofndagur Veðurstofu Is- lands er talinn vera 1. janúar 1920. Þá tóku Islendingar við umsjón veðurathugana f land- inu, og var það verkefni falið sérstakri deild í Löggildingar- stofunni, veðurfræðideild, en forstöðumaður hennar og síðar fyrsti veðurstofustjóri varð Dr. Þorkell Þorkelsson. Frá 1. janúar 1925 var Löggildingar- stofan lögð niður sem sérstök stofnun og veðurfræðideildin breyttist í Veðurstofu Islands, en lög um hana voru síðan sam- þykkt 15. júní 1926 og endur- skoðuð árið 1958. Frá stofnun Veðurstofunnar hefur veðurstöðvum fjölgað mikið, en ekki hefur sú þróun ætið verið jafn ör. Árið 1920 voru veðurstöðvar 19 talsins, en þegar árið 1925 hafði sú tala hækkað í 36 stöðvar. Verulegt stökk varð 1931, er stöðvum fjölgaði um 10 upp f 48, en það ár hófu nokkrir vitaverðir athuganir. Eftir það urðu breytingar hægfara um langt skeið, en þó voru stöðvar orðn- ar 66 árið 1955. Næstu 10 ár þar á eftir fjölgaði stöðvum í 118, einkum vegna fjölgunar úr- komustöðva, sem á þeim tfma fjölgaói úr 6 í 37. Frá 1966 hefur fjöldi stöðva verið á bil- inu 120—130. Veðurstöðvar Veðurstof- unnar skiptast í aðalatriðum f þrjá flokka, veðurskeytastöðv- ar, veðurfarsstöðvar og úr- komustöðvar. Á veðurskeyta- stöðvum eru gerðar veður- athuganir 4—8 sinnum á sólar- hring, og eru veðurskeyti send jafnóðum til Veðurstofunnar, auk þess sem athuganir eru færðar í veðurbók, sem send er skömmu eftir hver mánaðamót. Allmörg íslenzk skip senda einnig veðurskeyti. Á veður- farsstöðvum eru athuganir gerðar þrisvar á dag og skýrslur sendar mánaðarlega. Á úrkomustöðvum er úrkomu- magn mælt kl. 9 að morgni og skráð í skýrslu, sem send er mánaðarlega. Árið 1971 voru alls 127 veður- stöðvar á landinu á vegum Veðurstofunnar, þar af voru 40 veðurskeytastöðvar og 38 veðurfarsstöðvar, en úrkomu- stöðvar voru 42. Á 9 stöðum voru gerðar sólskinsmælingar og á 7 stöðum sérstakar bú- veðurfræðimælingar. Sólgeisl- unarmælingar voru í Reykjavík og á Hveravöllum. Á Kefla- víkurflugvelli er svo eina há- loftsathugunarstöð landsins. Um flokkun myntar Myntsafnarafélag Islands var stofnað I Reykjavík 19. janúar 1969. Eitt af fyrstu verkum stjórnarinnar var að gefa út prentaðan viðskiptalista. Á fyrstu síðu þess lista er að finna upp- lýsingar um erlend orð og tákn í sambandi við ásigkomulag myntar. Mun ég hér styðjast við þessar skýringar. þvi þær eru ágætar. Þó ber þess að geta, að ekki þurfa allir myntsafnarar endi- lega að vera sammála um hvernig á að flokka hvern pening. Víst er um það, að hverjum þykir sinn fugl fagur, þegar eigandinn er einn af þeim, sem er að flokka. En svona hljóðar sem sagt flokkunin á viðskiptalista nr. 1 frá 1969: PROOF: Spegilgljáandi mynt, þar sem bæði stansar og efni myntarinnar er slípað fyrir slátt. Mest notað fyrir sérslegna safnaramynt. Oft er hluti stans- anna sandblásinn og verður þá sá hluti af myntinni mattur og er það gert til fegurðarauka. Ágætt dæmi er sérunna sláttan frá Seðla- bankanum á siðastliðnu ári, þjóð- hátíðarmyntin, þar sem einmitt hluti stansanna var sandblásinn og komu myndirnar á peningunum þannig sérlega vel fram. 0 UNC. Uncirculated. Ógengið eintak — (F.D.C.) 01 EF. Extremely fine. Nær ónotað eintak. 1 + VF. Very fine. Mjög litið notað og gott eintak. 1 F. Fine Allmikið notað, en sæmi- legt eintak. 1 6 VG. Very good. Mikið notað og slitið eintak. 2 G. Good. Slæmt, flatslitið ein- tak. Það er hverjum reyndum mynt- safnara keppikefli, að eignast alla sína peninga í flokki 0---ógengin eintök. Ef hann fær þá ekki svo góða, lætur hann sér nægja lakari flokk, þangað til hann hefir komist yfir pening, sem er flokki ofar. Og þannig er streðið endalaust. til að fá sem fullkomnust eintök. Ekki veit ég til þess. að hér á landi sé til eitt einasta safn í flokki 0. Ekki á Seðlabankinn það, en þar er að finna ágætt safn. Ekki er það til á Þjóðminjasafninu, og engan safnara þekki ég, sem á svo gott safn, að allir peningarnir hans séu í flokki 0. Á hinn bóginn eru til nokkur mjög góð söfn. Söfn þar sem flestir peninganna eru annað hvort i flokki 01 eða 1+. Þessi flokkun er, að sjálfsögðu aðallega þegar um kórónumynt er að ræða. Lýðveldismyntin er hjá mörgum í 01 eða 0, sérstaklega þegar um mynt seinustu 10 ára er að ræða. Þar sem ég hér að framan hefi sagt, að ekki sé til eitt einasta safn, sem ég veit um, að minnsta kosti, í flokki 0, á ég við safn. þar sem í eru allir peningar, sem út hafa komið á fslandi frá 1922 til 1974. Hluti safnsins, nýjustu peningarnir eru að sjálfsögðu í flokki 0, bara ekki hinir elztu. Það er nú líka svo að ekki þurfa allir peningar að vera eins útlítandi þótt þeir séu í sama flokki. Til dæmis má flokka ógengna mynt í úrvalsmynt (F.D.C.), þar sem myntbjarminn er skærari, en þessi mynt flokkast eftir sem áður i flokk 0, nema um enn nánari flokkun sé að ræða en hér að ofan greinir, en það er sjaldgæft. „íslenzkar myntir 1975" nota ei- litið aðra flokkun en hér er nefnd. Þar er flokkað i 3 flokka það, sem hér er flokkað i 4, þ.e. 0, 01, 1 + og 1. Getið er um 2 flokka til viðbótar, en þeir ekki verðskráðir, þar sem talið er, réttilega, vafa- samt að safna þeim peningum sem í þá flokka færu, nema til uppfyllingar, meðan aðrir og betri peningar fást ekki. Það, sem i „íslenzkar myntir 1975" er talin söfnunarhæf mynt, er sem sagt flokkað i fyrsta, annan og þriðja flokk, og á blaðsíðu 4 er getið um það hvernig þannig skuli flokkað. Hvort flokkun þessi er betri eða verri en sú, sem ég hefi sagt frá hér að ofan, og mest er notuð af myntsöfnurum, skal ég ekki dæma um. Það má sjálfsagt venj- ast hvorri sem er. Ágætt dæmi um mynt í flokki 0 eru árgangssett Seðlabankans, en þau hafa verið gefin út með mynt áranna 1970, 1971, 1973 og 1974, en eru nú því miður öll seld, nema settið frá 1974. Þeir, sem raða þessum eftir RAGNAR BORG peningum i hólfin i plasthylkinu, nota hanska til að setja ekki fingraför á peningana. Peningar, sem hafa slegist illa saman við aðra i myntpokunum og rispast, komast ekki i þessi p'asthylki þvi reynt er að velja fallegustu peningana eingöngu. Er þannig fullvist, að þarna eru peningar, sem i framtiðinni hækka verulega í verði og verða því verðmætari, sem þeir leggja fleiri ár að baki. Ég þarf ekki að fjölyrða mikið um það hve miklu verðmætari mynt i flokki 0 er en mynt i flokki 1 t.d. Sú sem er í 0 getur verið 10 til 20 sinnum verðmeiri en sú, sem lend- ir i flokki 1. Þarna getur því skipt verulegum upphæðum ef um sjaldgæfa og verðmæta peninga er að ræða. Má ég svo rétt enn einu sinni koma að þvi, að það hækkar ekki pening i gæðaflokki að fægja hann eða pússa og fegra með fægilegi eða öðrum hreinsi- efnum. Öðru nær. Það rýrir bara verðgildið, gerir hann tortryggileg- an og jafnvel verðlausan. Hand- sápa; eða vöðla peningum upp úr handsápu milli fingranna er það eina, sem kannski má — oq varla það. Önnur er sú flokkun til, sem flokkar sjaldgæfa eða einstaka peninga. Hinn þekkti danski mynt- fræðingur Johan Chr. Holm nefnir eftirfarandi flokkun um fágæti myntar i bók sinni „De gamle mönter": UNICUM (eða UNIK) = aðeins vitað um 1 eintak RRR = aðeins 2 eða 3 eintök þekkt RR = þekkt 4 til 6 eintök R = þekkt 7 til 10 eintök Þessi flokkun er afar þröng og er frá þeim tima, er myntsafnarar Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.