Morgunblaðið - 08.02.1975, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.02.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 27 var Páll mjög samvizkusamur og heiðarlegur í hvívetna. Hann vildi hafa hrein viðskipti, engu mátti skeika, allt varð að standa heima, ekkert oftalið né vantalið. Fari betur, að sem flestir hefðu sömu sögu að segja. Páll sóttist aldrei eftir metorðum, né að sökkva i stóru ausunni, sem kallað er, en sætti sig við hinn deilda verð. — Hann var svo vel viti borinn að hann vissi sem var, að gæfan er hvorki fólgin í metorðum né auð- æfum, heldur býr hún í eigin brjósti. Velferð heimilisins og uppeldi barnanna bar hann mest fyrir brjósti auk þess sem hann vildi verða hverju góðu máli að sem mestu liði. Han taldi ekki eftir sér sporin ef þvi var að skipta, og heimti ekki ávallt dag- laun að kvöldi. Eftir minum kynnum má segja um Pál að hann hafi unnið þann mikla sigur að bregðast aldrei vandamönnum né vinum á langri leið. Siðastliðið vor heimsótti ég Pál og Hjálmfríði á ellideild héraðs- hælisins á Blönduósi. Páli var þá auðsjáanlega mikið þjáður, en gleðiglampa brá fyrir i augunum þegar hann sá mig í dyrunum, og hlýtt handtak var hið sama og áður, þetta voru okkar síðustu samfundir. Að leiðarlokum þakka ég Páli góða samvinnu og vináttu við mig og mína. Lítil stúlka, mér skyld, þakkar honum stóran greiða og góða samfylgd, þegar hún 5 ára gömul hóf fyrstu skólagönguna og hann tók hana i bilinn sinn og flutti i skólann inn fyrir Blöndu, en hún átti heima á ytri bakkan- um. I tvo vetur naut hún þeirrar hjálpsemi, sem aldrei verður full- þökkuð. Með þessum fátæklegu línum sendi ég konu Páls, börnum, tengda- og barnabörnum hjartan- legar samúðarkveðjur. Góður maður er genginn, sem ljúft er að minnast. I guðs friði. Hulda Á. Stefánsdóttir. Halldór Guðmundsson Siglufirði — Minning Fæddur 23. maí 1889 Dáinn 28. janúar 1975 Halldór Guðmundsson verður jarðsettur i dag frá Siglufjarðar- kirkju. Halldór var þjóðkunnur aldur fram af slysförum; Gunnar framkvæmdastjóri sem dáinn er fyrir tæpum tveim árum kvæntur Guðnýju Óskarsdóttur Halldórs- sonar hins þekkta síldarútgerðar- manns, og Sævar ljósmyndari kvæntur Auði Jónsdóttur Hannessonar múrarameistara. Framhald á bls. 20 Messur á morgun Dómkirkjan Messa kl. 11 árd. Altarisganga. Þórir Stephensen. Messa kl. 2 síðd. Sr. Öskar J. Þorláksson dóm- frófastur. Barnasamkoma i Vest- urbæjarskólanum við Öldugötu kl. 10.30 árd. Hrefna Tynes talar við börnin. Neskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Sr. Jóhann S. Hlíðar. Messa kl. 2 síðd. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarnes Barnasamkoma i Félagsheimilinu kl. 10.30 árd. Sr. Frank M. Halldórsson. Grensássókn Barnasamkoma kl. 10.30 árd. — Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Sr. Halldór S. Gröndal. Fríkirkjan í Reykjavík Barnasamkoma kl. 10.30. Guðni Gunnarsson. — Messa kl. 2 e.h. Sr. Þorsteinn Björnsson. Borgarspítalinn Guðsþjónusta kl. 10 árd. Sr. Halldór S. Gröndal. Fíladelfía Safnaðarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd. Einar Gislason. Laugarneskirkja Messa kl. 2 síðd. — altarisganga. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Sr. Garðar Svavarsson. Langholtsprestakall Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Sr. Árelíus Níelsson. Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Sr. Árelíus Níelsson. Óskastundin kl. 4. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Elliheimilið Grund Messa kl. 10 árd. Sr. Lárus Halldórsson. Kirkja Óháða Safnaðarins Messa kl. 2. Séra Emil Björnsson. Dómkirkja Krists konungs Landakoti Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síð- degis. Háteigskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Sr. Jón Þorvarðssnn Messa kl. 2 síðd. Sr. Gunnar Kristjánsson i Vallanesi prédikar. Sr Arngrímur Jónsson. Árbæjarprestakall Barnasamkoma kl. 10.30 árd i Ár- bæjarskóla. Guðsþjónusta i skól- anum kl. 2 siðd. Kvöldvaka Æsku- lýðsfél. á sama stað kl. 8.30 siðd. Sumarbúðabörnum frá Skálholti og foreldrum þeirra úr sókninni sérstaklega boðið. Helgileikur fluttur og litskuggamyndir frá sumarbúðastarfinu sýndar. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Sunnudagaskóli Kristniboðsfé- laganna er i Álftamýrarskóla kl. 10.30 árd. Breiðholtssókn Sunnudagaskóli i Breiðholtsskóla kl. 10.30 árd. og messa í skólanum kl. 2 siðd. Sr. Lárus Halldórsson. Hallgrimskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10 árd. Messa kl. 11 árd. Sr. Karl Sigur- björnsson. Messa kl. 2 síðd. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Bústaðakirkja Barnasamkoma kl. 11 árd. Messa kl. 2 siðd. — altarisganga. Barna- gæzla meðan á messu stendur. Sr. Ólafur Skúlason. Kársnesprestakall Barnaguðsþjónusta i Kársnes- skóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11 árd. — Alt- arisganga Sr. Arni Pálsson. Digranesprestakall Barnaguðsþjónusta i Vighóla- skóla kl. 11. Guðsþjönusta i Kópa- vogskirkju kl. 2 síd. — altaris- ganga. Að lokinni messu almenn- ur safnaðarfundur. Rætt um stofnun safnaðarfélaga eða félaga innan prestakallsins. Safnaðar- fólk er hvatt til að mæta. Sóknar- nefndin. Hafnarfjarðarkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Sr. Bragi Benediktsson ávarpar börn- in. Sr. Garðar Þorsteinsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 síðd. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Kirkjuvogskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 4 síðd. Sr. Jón Árni Sigurðsson. Keflavíkurkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Messa kl. 2 síðd. Sr. Björn Jóns- son. Ytri-Njarðvíkursókn Messa í Stapa (stóra salnum) kl. 4 síðd. Tekið á móti framlögum til Bibliufélagsins. Sr. Björn Jóns- son. Útskálakirkja Messa kl. 2 siðd. Sr. Guðmundur Guðmundsson. Eyrarbakkakirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. árd Sóknarprestur. Stokksey rarkirkj a Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Beðið fyr ir sjómönnunum. Sóknarprestur. Heiðarhöfn Jörðin Heiðarhöfn á Langanesi er laus til leigu til 5 ára. Hlunnindi eru grásleppuveiðar og reki. Tilboð óskast send Sýslumanni Þingeyjarsýslu fyrir 20. febrúar n.k. athafnamaður, kenndur við hús sitt við Vetrarbrautina á Siglu- firði sem heitir Frón. Allir kann- ast við Halldór i Frón, nánari lýsing óþörf. Hann var sonur Guðmundar Björnssonar bónda í Böðvarshól- um í Vestur-Húnavatnssýslu og Þórunnar Hansdóttur frá Litla- Ósi. Hann ólst upp á Bergsstöðum og Böðvarshólum til 18 ára aldurs við venjuleg sveitastörf en fór þá í Flensborgarskóla i Hafnarfirði og stundaði þar nám 1908 — 1910. Flensborgarskóli var í þá daga mjög góður skóli (og er sennilega enn) og margir ungir menn þeirra tíma fengu þar sitt vega- nesti, sem hefur dugað þeim vel. Árið 1910 fór Halldór til Noregs og dvaldist þar í nokkur ár. Þar nam hann beykisiðn ásamt ýmsu fleiru, sem að gagni mætti koma, norska hagsýni og fleira. Eftir heimkomu frá Noregi byrjaði hann á sildarsöltun á Siglufirði, einn af hinum kunnu brautryðjendum á því sviði, og hefur alia tið síðan verið Siglfirð- ingur í húð og hár. Þar setti hann upp fyrstu tunnuverksmiðju á Is- landi, rak umfangsmikla útgerð og verzlun um áratuga skeið. Arið 1918 kvæntist Halldór Sig- riði Hallgrímsdóttur og áttu þau 3 börn, sem öll urðu góðir og þekkt- ir borgarar, öll búsett i Reykja- vík, en þau eru: Birna gift Vil- hjálmi Guðmundssyni verkfræð- ingi og framkvæmdastjóra Sildar- verksmiðja ríkisins, sem dó um Grísaveizla-Resta Espanol Hótel Sögu, sunnudaginn 9. febrúar ★ Húsið opnað kl. 19.00. Sangrfa og svaladrvkkir. Veizlan byrjar kl. 19.30. Verð aðeins kr. 890.00. Álisvfn, kjúklingar og fleira. Söngur, gleði, grfn og gaman. Borðum verður ekki haldið lengur en til kl. 19,30. Verið þvf stundvfs. if Skemmtiatriði. if Ferðabingó. Vinningar — Kanarfeyjaferð, Austurrfkisferð, og Maliorkaferð. ★ Dans. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Njótið skemmtunar og gleðistunda sem alltaf eru á þessum vinsælu Sunnukvöldum. Tryggið yður borð hjá yfirþjóni á föstudag frá kl. 15 f síma 20221. VERIÐ VELKOMIN í SÓLSKINSSKAPI MED SUNNU FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA Viö bjóöum gestum okkar úrval rétta, allt frá heitum samlokum upp í stórar steikur. Einnig eru á boöstólum súpur, forréttir, eftirréttir, kaffi og meö því, aö ógleymdum rétti dagsins hverju sinni. Allt þetta sem viö bjóöum upp á, hefur eitt sameiginlegt, og þaö er veröiö, þaö er eins lágt og hægt er aö hafa þaö. Opið frá kl. 08.00 til 22.00 alla daga. DHDTEL# Suöurlandsbraut 2 Reykjavík. Sími 82200 Hótel Esja, heimili þeirra er Reykjavik gista

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.