Morgunblaðið - 08.02.1975, Side 36

Morgunblaðið - 08.02.1975, Side 36
4HQgnttI»(ftfrifr LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1975 Banaslys á miðunum BANASLYS varð í gær um borð f vb. Friðrik Sigurðssyni AR-17 frá Þorlákshöfn. Einn af skipverjum lenti f spili bátsins og slasaðist svo mikið að hann lézt nokkru síðar. Ekki fengust upplýsingar í gær um nánari tildrög slyssins en bát- urinn var að veiðum við Alviðru er slysið var. Báturinn hélt þegar með hinn slasaða mann áleiðis til Vestmannaeyja en þaðan fór Lóðsinn til móts við bátinn með lækni innanborðs. Skipverjinn reyndist hins vegar látinn þegar bátarnir komu til Vestmannaeyja. Að svo stöddu er ekki hægt að skýra frá nafni hins látna, þar sem ekki hafði í gærkvöldi náðst til allra aðstandenda. LOÐNUBRÆÐSLA Á VESTFJÖRÐUM? EINN Vestfjarðabátur var f gær á leið til loðnuveiða á miðum þeim út af Vestfjörðum, þar sem togar- ar og bátar hafa að undanförnu orðið varir við töluvert magn loðnu. Að sögn Guðfinns Einars- sonar, forstjóra f Bolungarvfk, hafa forráðamenn fiskimjöls- verksmiðjunnar þar fullan hug á að fá loðnu þessa til bræðslu og er þess vegna hugsanlegt að fleiri bátar frá Vestfjörðum haldi til loðnuveiða. Töluvert þróarrými er hjá verksmiðjunni f Bolungar- vfk en afköstin hins vegar ekki veruleg. Annars kvað Guðfinnur Vestfirði ekki hafa margar fisk- mjölsverksmiðjur og fyrir utan verksmiðjuna í Bolungarvík mun aðeins vera ein önnur verksmiðja — á Patreksfirði. Rannsóknaskipið Bjarni Sæm- undsson var í gær á leið vest- ur með Norðurlandi áleiðis á loðnumið þessi. Að sögn Jakobs Jakobssonar, fiskifræð- ings, eru fiskifræðingar töluvert spenntir fyrir því að fylgjast með ferðum þessarar Vestfjarðaloðnu — hvort hún stökkvi suður á bóg- inn og staðnæmist úti af Jökli eða hvort hún haldi á eftir aðalgöng- unni — austur með Norðurlandi og suður með Austfjörðum. Mun Bjarni Sæmundsson því verða settur til höfuðs Vestfjarðaloðn- unni næstu daga. Að sögn Jakobs hefur þessi loðna fundizt alveg í Isafjarðar- djúpi og allt vestur undir Víkurái. Þetta er kynþroska loðna og eftír upplýsingum að dæma virðist vera töluvert af henni á þessum slóðum. Einnig kvað Jakob tölu- vert hafa orðið vart við loðnu úti af Norðurlandi en þar er á ferð ókynþroska loðna. Ljósm. Sigurgeir. Fyrsta loðnan barst til Vestmannaeyja f gær. Er það tíu dögum seinna en á vertíðinni í fyrra. í gær tilkynntu 26 bátar um samtals 7.500 tonn af loðnu og er heildaraflinn nú kominn yfir 100 þúsund tonn. Málm- og skipasmUÍjur: Eiga 1100 milljónir kr. hjá útgerð og fiskiðnaði „Algert neyðarástand,” seg- ir Guðjón Tómasson frkvstj. „NIÐURSTÖÐUR könnunar, sem við erum að Ijúka við sýna að málm- og skipasmiðjur eiga úti- standandi hjá útgerðinni um 1100 hundruð milljónir króna og þar af er helmingur þessarar skuldar 30 daga eða eldri, við teljum ekki þær sem eru yngri,“ sagði Guðjón Tómasson framkvæmdastjóri Sambands Málm- og skipasmiðja f samtali við Mbl. f gær, er við spurðum hann um ástandið. „Við höfum nú fengið svör frá 60% þeirra fyrirtækja, sem könn- unin nær til með alls- um 1763 mannár. Þau sýna, að útistand- andi skuldir þessara fyrirtækja hjá útgerð og fiskiðnaði, en það eru um 90% af viðskiptunum, 10% eru við aðra aðilja, voru 655 milljónir kr. eða um 400 þús. kr. á hvern starfsmanna. Þessar skuld- ir voru 30 daga og eldri, þær yngri tökum við ekki með eins og fyrr segir, og um helmingur þessarar fjárhæðar er 90 daga og eldri. Ef við hlutfallsreiknum þessar tölur miðað við þann mannafla, sem vinnur að þessu, sem er um 2700 manns yfir landið í vélsmiðjum og dráttarbrautum og eru þá ekki teknar með blikksmiðjur og önn- ur framleiðslufyrirtæki, þá er hér um að ræða um 1100 milljónir af 30 daga skuldum og eldri og eitt- hvað yfir 550 milljónir, sem er 90 daga og eldra. Þannig er augljóst, að um neyðarástand er að ræða og sum fyrirtæki eru komin í algert greiðsluþrot, hafa ekki getað staðið í skilum með opinber gjöld, lífeyrissjóði o.fl.“ — Er komið til stöðvunar hjá einhverjum fyrirtækjum? „Ekki enn, en það getur komið hvenær sem er. Þessu hefur verið fleytt áfram á skammtímalánum í bönkum, en rekstrargrundvöllur er enginn til. Það hefur verið reynt að halda þessu gangandi eins og útgerðinni frá degi til dags. Það, sem kannski er alvar- legast, er að þessar tölur eru algerlega fyrir utan þá 3,3 Framhald á bls. 20 Berkla vart innan MA BERKLA hefur orðið vart meðal nemenda í Menntaskól- anum á Akureyri. Varð uppvfst um þetta, er einn skólapilta leitaði til læknis vegna ein- hvers slappleika. Var hann sendur f myndatöku og komu þá fram berklaeinkenni f lung- um. Sú niðurstaða leiddi til þess, að allsherjarberklapróf fór fram á öllum nemendum og starfsmönnum skólans. Kom þá f Ijós, að 29 nemendur höfðu fengið berklabakterfuna frá þvf allsherjarskoðun fór fram við venjulega skólaskoðun f haust. Að sögn fréttaritara Morgun- blaðsins á Akureyri hefur enginn þessara 29 nemenda þó reynzt hafa berklasmit, og aðeins einn hefur veikzt til þessa. Er það pilturinn, sem fyrst reyndist hafa berklaein- kenni í lungum og hefur hann verið vistaður að Kristneshæli. Aðrir stunda hins vegar nám sitt sem áður en eru á lyfjagjöf til öryggis. Það er athyglisvert, að aðeins 6 fyrrgreindra nem- enda búa í heimavist mennta- skólans en allir aðrir úti í bæ og eru flestir þeirra raunar Akur- eyringar. Smituppsprettan er enn ófundin en unnið er að kappi við að komast fyrir rætur hennar. 62,5% verðlækkun á loðnu til frystingar miðað við allar aðstæður nú. Hann var að því spurður hvort SH Framhald á bls. 20 Verðmœti sjávar- afurðabirgða: 4,8 millj- arðar kr. UM sfðustu áramót voru til f landinu birgðir af sjávarafurðum samtals að upphæð um 4,8 milljarðir króna, að sögn Más Elfssonar, fiskimálastjóra en Fiskifélagið annast samantekt slíkra birgðaskýrslna. Sagði Már, að miðað við undanfarin ár væru þetta hlutfallslega mjög mikiar birgðir, en þess bæri að geta að hluti þessara birgða væri þá Framhald á bls. 20 NÝTT lágmarksverð var ákveðið í gær á ferskri loðnu til frystingar á yfirstandandi loðnuvertfð, og táknar sú verðákvörðun f raun 62,5% verðlækkun frá því f fyrra. Lágmarksverðið sem nú var ákveðið, er kr. 5.10 á hvert kíló en var á vertíðinni f fyrra kr. 13.60. Verðið er miðað við þá loðnu sem nýtist f frystingu samkvæmt þeim reglum sem gilt hafa. Þetta verð var ákveðið með atkvæðum tveggja fulltrúa I yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegs- ins — þeirra Jóns Sigurðssonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, sem var oddamaður nefndarinnar, og Árna Benediktssonar, fulltrúa kaupenda fyrir hönd Sambands- ins. Þrír nefndarmanna greiddu ekki atkvæði, þeir Eyjólfur tsfeld Eyjólfsson, fulltrúi kaupenda f.h. Sölumiðstöðvarinnar, og Ingimar Einarss, fulltrúi LfU, og Jón Sigurðsson, formaður Sjómanna- sambandsins, sem voru fulltrúar seljenda. Þá var ákveðið, að lágmarks- verð á ferskri og frystri loðnu til beitu og á ferskri loðnu til skepnufóðurs skuii vera kr. 4.10 hvert kíló. Þetta verð er miðað við loðnuna upp til hópa, segir í fréttatilkynningu frá verðlagsráð- inu, og var þetta verð ákveðið með fjórum samhljóða atkvæðum en Eyjólfur ísfeld greiddi ekki atkvæði. Morgunblaðið leitaði i gær álits forráðamanna helztu hagsmuna- samtaka á þessari verðákvörðun. Guðjón B. Ölafsson, fram- kvæmdastjóri sjávarafurða- deildar SfS, sagði, að hann teldi, að þetta verð á ferskri loðnu til frystingar væri í hámarki en engu að siður hefði sjávarafurðadeild Sambandsins tekið ákvörðun um að heimila frystingu á 2 þúsund tonnum. Sagði hann, að hafizt yrði handa um frystingu loðn- unnar um leið og hún uppfyllti sett skilyrði. Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, for- stjóri Sölumiðstöðvarinnar, kvaðst telja, að verðið væri of hátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.