Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 Olíufélögin: Óska eftir 6 króna hækkun á bensíni vegna gengisfalls Ljósmynd Sv. Þorm. MÓTMÆLA — Miðstjórn Alþýðusambandsins kom saman til fundar í gær og fjallaði þar um síðustu efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Gengisbreytingunni var mótmælt harðlega og ákveðið að efna til ráðstefnu verkalýðsfélaganna síðast í mánuðinum. Miðstjórn Alþýðusambands Islands: Lífskjör almennings niður á óþolandi stig FORRAÐAMENN olfufélaganna hafa átt viöræður við verðlags- yfirvöld og óskað eftir hækkun á bensfni og olfu vegna gengis- breytingarinnar. Að þvf er Indriði Pálsson, forstjóri Skeljungs, tjáði blaðinu f gær teija olfufélögin sig þurfa um 6 kr. hækkun á bensfni, þannig að það hækki f 57 kr. lítrinn, hækk- un á gasolfu um rúmar 4 kr. og hækkun á svartolíu um 2500 kr. tonnið. Itrekaði Indriði að þessar hækkunarbeiðnir stöfuðu ein- göngu af gengislækkuninni ný- verið. Morgunblaðið sneri sér til tveggja bifreiðaumboða og spurðist fyrir um hversu bílar hækkuðu vegna gengislækkunar- innar. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Sveini Egils- syni og Co hækkar t.d. Ford Cort- inan úr 727 þúsund krónum í 893 þúsund krónur eða um 166 þúsund krónur en bandaríski fólksbíllinn Ford Comet hækkar um 260 þúsund krónur úr 1190 þúsundum í 1450 þúsund krónur. Bankastjóri Lúðvíks: Samþykkti gengislækkun HVENÆR talar æfður stjórn- málamaður f alvöru og hvenær eru orð hans leikbrögð til að strá sandi áróðurs f augu al- mennings? Þannig spurði Glafur Þórðarson f umræðu á Alþingi f gær, er frumvarp um ráðstafanir vegna gengislækk- unar var á dagskrá. Hann kvað nýliðum á Alþingi, sem þang- að kæmu stutta stund í forföll- um aðalmanna, torvelt að átta sig á þessu. Lúðvík Jósepsson, fyrr- verandi bankaráðherra, sem nú teldi gengislækkun bæði óþarfa og óhæfa, hefði á sinni tíð skipað samherja sinn sem bankastjóra Seðlabankans Þessi ákvörðun hefði lifað ráð- herradóm Lúðviks. Og þessi, bankastjóri hans hefði sam- þykkt gengislækkunina og þann veg undirstrikað nauð- syn hennar. Spurði þingmað- urinn, hvort hið raunverulega mat Lúðvíks kæmi ekki fram i afstöðu fulltrúa hans í banka- stjórninni, sem samþykkti gengislækkunina, en leik- brögðin og áróðurshneigðin í orðum Lúðvíks á þingi, er hann taldaði gegn afstöðu bankastjórans? Nemendur Vél- skólans álykta MBL. hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá útgerð m.b. NökkvaHU 15: 208 nemendur i Vélskóla Is- lands og Stýrimannaskólanum hafa undirritað eftirfarandi yfir- lýsingu og mótmæli: „Við undirritaðir nemendur í Vélskóla Islands / Stýrimanna- skólanum í Reykjavík lýsum yfir undrun okkar á afskiptum stjórn- valda af þvi, til hvaða vinnslu- stöðva rækjubátar á Húnaflóa- svæðinu mega selja afla sinn. Mótmælum við slíkum afskipt- um, þar sem við teljum, að sér- hver takmörkun á almennt viður- kenndri heimild skipstjórnar- manna og útgerðaraðila til að ráð- stafa afla sinum leiði til skertra kjara sjómanna og útgerðar og óþarfrar skerðingar á frjálsræði sjómannastéttarinnar." Undirskriftalístarnir verða af- hentir sjávarútvegsráðherra og forsætisráðherra. Hjá P. Stefánssyni fékk Mbl. þá vitneskju að Austin Mini hækkaði um 95 þúsund krónur vegna gengisfellingarinnar — úr 490 þúsundum í 585 þúsundir kr., Morris hækkar í 795 þúsund kr. úr 640 þúsundum. Land Rover (diesel) úr 1190 þús. kr í 1490 þúsund kr. og Range Rover úr 1750 þúsund kr. i 2170 þúsund kr. Hjá innflutningsverzlun á heimilistækjum fékk Mbl. þær upplýsingar, að frystikistasem áð ur kostaði 58.100 hækkaði nú í 72.600, ísskápur af venjulegustu stærð hækkaði úr 55.100 í 68.900 kr., þvottavél hækkaði úr 73.200 í 91.500 og uppþvottavél hækkaði úr 83.200 í 104 þúsund. Einnig má geta þess, að 24ra tommu sjón- varp hækkaði úr 76.600 kr. i 96.000 vegna gengislækkunarinn- ar. Töluverð hækkun verður einn- ig á fargjöidum flugfélaganna vegna gengislækkunarinnar. Þannig hækkar venjulegt far- gjald til Kaupmannahafnar um rúmar 10 þúsund krónur í 49.219 kr., en vorfargjaldið verður 34.070. Fargjald til London kostaði kr. 34.426. kr., en kostar nú 43.380 kr., en vorgjaldið verð- ur 30.523. Fargjaldið til Glasgow kostar hins vegar núna 34.857, en vorfargjaldið verður 24.481 og eitt algengasta fargjaldið til New York kostar nú 60.738, en kostaði 48.194. varpið 1 gegn FRUMVARP til laga um ráðstaf- anir vegna lækkunar gengis fs- lenzku krónunnar var samþykkt sem lög frá Alþingi um kl. 7 f gær. Frumvarpið var til fyrstu umræðu f neðri deild fyrra kvöld. Framsaga forsætisráðherra, Geirs Hallgrfmssonar, með frumvarp- inu þá er birt bls. 12 og 13 f dag, en umræður eru að öðru leyti raktar á þingsfðu blaðsins. Frum- varpið var sfðan til annarrar og þriðju umræðu f neðri deild f dag og fór þaðan til efri deildar sem afgreiddi það sem lög við þrjár umræður. Efni frumvarpsins er rakið í frétt á bls. 11. TVÆR tillögur um jafnrétti kynjanna verða til umræðu á 23. þingi Norðurlandaráðs í Reykja- vfk. önnur tillagan miðar að þvf, að komið verði á fót norrænni nefnd tií að fjalla um málefni er snerta jafnrétti kynjanna. Flutn- ingsmenn eru Ilkka-Christian Björklund, Finnlandi, Ingemar Mundebo, Svfþjóð, Ragnhildur Helgadóttir, Islandi og Niels Helveg Petersen, Danmörku. Hin tillagan fjallar um könnun á samræmdu norrænu samstarfi til að tryggja með lögum jafnrétti MIÐSTJORN og samninganefnd Alþýðusambands Islands kom saman til fundar í gærdag og var fjallað um viðhorfin til kjara- mála í kjölfar gengisbreytingar- innar. A þessum fundi var gerð einróma samþykkt, þar sem geng- isbreytingunni er harðlega mót- mælt og hún f heild talin „harka- leg árás á verkafólk og samtök þess, sem hafa sýnt ótrúlegt lang- lundargeð f kjaramálum...“ eins og segir f samþykktinni. Akveðíð var að kalla saman ráðstefnu verkalýðsfélaga til að samræma stefnu og aðgerðir þeirra varð- andi næsta skref kjarabaráttunn- ar, og að þvf er Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands Islands, tjáði Morgunblaðinu í gær verður þessi ráðstefna haldin dagana 27.—28. febrúar næstkomandi. Fundur samninganefnda ASl og Vinnuveitendasambandsins verð- ur haldinn f dag, eins og ákveðið hafði verið áður en til þessara efnahagsráðstafana kom, en Björn Jónsson kvaðst ekki vænta karla og kvenna. Flutningsmenn eru Tönnes Madsson Andenæs, Ragnar Christiansen, Odvar Nordli og Liv Stubberud, Noregi, Mauno Forsman, Tellervo M. Koivisto, Bror Lillquist, Lars Lindeman og Erkki Tuomioja, Finnlandi, Gylfi Þ. Gislason, Is- landi, Invar Nörgaard, Dan- mörku, og Anna-Greta Skantz, Svíþjóð. Báðar tillögurnar verða til um- ræðu á fundi félagsmálanefndar Norðurlandaráðs í Reykjavík og álit nefndarinnar verður lagt fyrir ráðið. mikils árangurs af þeim fundi, þar sem aðilar væru enn að meta og skoða fyrrgreindar aðgerðir rfkisstjórnarinnar. Samþykktin sem miðstjórn og samninganefnd ASl gerðu á fundi sfnum í gær fer hér á eftir: A tímabilinu, sem liðið er frá gerð síðustu kjarasamninga, i lok febrúarmánaðar á sl. ári, hefur framfærslukostnaður almennings hækkað um eða yfir 50%. Kaup- gjald hefur hins vegar verið svo til óbreytt frá 1. marz 1974, þar sem stjórnvöld hafa með lagaboð- um svipt launafólk öllum verð- lagsbótum á laun frá sama tíma. Af þessu hefur leitt svo stórfelld skerðing aimennra lifskjara, að orðið er óbærilegt láglánafóiki, enda haga samtök þess sagt upp kjarasamningum í þeim tilgangi að knýja fram óhjákvæmilegar leiðréttingar. I samningaviðræðum að undan- förnu hafa hvorki samtök at- vinnurekenda né rikisstjórn léð máls á neinum þeim úrbótum í kjaramálum, sem iíklegar voru til að svara lágmarkskröfum verka- fó'ks, en rikisstjórnin hefur nú á hinn bóginn ákveðið að fella gengið um 20% og hækka þannig enn almennt verðlag í landinu um a.m.k. 7—8%. Jafnframt er talið líklegt að skattheimta verði auk- in, bæði með beinum og óbeinum hætti, og lífskjör enn rýrð veru- lega að þeim leiðum. Miðstjórn og samninganefnd Alþýðusambands Islands mót- mæla þessari aðferð allri harð- lega og telja hana í heild harka- lega árás á verkafólk og samtök þess, sem hafa sýnt ótrúlegt lang- lundargeð í kjaramálunum, og veitt stjórnvöldum margra mánaða frest til að leysa vanda- mál þau, sem við er að etja, með skaplegum og friðsamlegum hætti. Þótt svokallaðar „hliðarráð- stafanir" stjórnvalda séu enn ekki komnar í dagsljósið, virðist miðstjórn og samninganefnd, að hér sé eingöngu um að ræða, að stefnt sé einhliða að því að þrýsta Iífskjörum almennings niður á stig, sem óhugsandi er að þoiað verði. Samtimis eru atvinnu- rekendum færðar að gjöf milljarðafúlgur af sparifé al- mennings, og þeim jafnframt mörgum hverjum tryggður gróði af rekstri fyrirtækjanna, án nokkurs aðhalds af opinberri hálfu um ráðstöfun eignar- aukningar og tekna, sem þeim eru fengnar með lagaboðum. Miðstjórn og Samninganefnd Alþýðusambands Islands telur, að nú sé svo komið, að ekki verði umflúið að verkalýðshreyfingin sé viðbúin til hverra þeirra að- gerða, sem nauðsynlegar kunna að reynast til þess að rétta hlut láglaunastéttanna. Samþykkir miðstjórnin og samninganefnd ASl þvi að kalla saman hið fyrsta ráðstefnu verkalýðsfélaga til þess að samræma stefnu og aðgerðir þeirra varðandi næsta skref kjarabaráttunnar. Albert Guðiriundsson: Eignaupptaka hjá verzluninni ER FRUMVARP til laga um ráðstafanir vegna gengisfell- ingar fslenzku krónunnar var til umræðu í efri deild Al- þingis í gær, kvaddi Albert Guðmundsson sér hljóðs vegna málefna verzlunarinnar. Gerði hann að umtalsefni orð við- skiptaráðherra, sem hann sagði fela það í sér, að verzlun- inni myndi óhcimilt að endur- meta vörubirgðir til nýs verðs, til samræmis við hina nýju gengisskráningu. Hér væri um heina eignaupptöku að Framhald á bls. 22 Neyðarþjónusta í Rangárvallasýslu FIMM sveitarfélög f Rangarvalla- sýslu — Fljótshlíðarhreppur, Austur-Landeyjahreppur, Vestur- Landeyjahreppur, Hvolshreppur, og Rangárvallahreppur — hafa samið við sfmstöðvarstjórann á, Hvolsvelli, Jón Stefánsson, um að hann annist gegn ákveðinni þókn- un neyðarþjónustu á þeim tfma sólarhrings, sem sfmstöðin er ekki opin. Sfmamálastjórn leggur til tækjabúnaðinn sem til þessar- ar þjónustu þarf. Samningur þessi kom til fram- kvæmda 3. febrúar sl. og gildir fyrst i ákveðinn reynslutíma, en verður síðan framlengdur ef ekk- ert kemur upp á. Að sögp heimild- armanns blaðsins, er það von allra sem að samningnum standa, að þetta fyrirkomulag geti staðið til frambúðar, þannig að vöntun á neyðarþjónustu heyri fortíðinni til. Blaðamannafundur um kaup og kjör þíngmanna 1 UPPHAFI funda f báðum þingdeildum f gær var frá þvf skýrt (Sverrir Hermannsson f neðri deild og Helgi F. Seljan f efri deild), að þingfararkaups- nefnd Alþingis myndi innan skamms, innan viku tíl tíu daga, boða til blaðamannafund- ar um kaup og kjör þingmanna, að gefnu tilefni f fréttum fjöl- miðla undanfarið. Myndu þar allar upplýsingar og gögn, mál- ið varðandi, lögð fram og fyrir- spurnum svarað. Að þvf yrði stefnt að þessum fundi verði sjónvarpað. Gylfi Þ. Gfslason upplýsti að þingflokkur Alþýðuflokksins myndi flytja frumvarp til laga, þess efnis, að kjaradómur, sem ákvarðar kaup ráðherra og hæstaréttardómara, fengi og ákvörðunarvald um kaup og kjör þingmanna._______________ Jafnrétti kynjanna rætt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.