Morgunblaðið - 14.02.1975, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 14.02.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 7 „A eintali við sólu Rabbað við Árna Larsson um ljóðabók hans, Leikfang vindanna „Ég leita á vit auónarinnar ferðast með bláum himni á daglöngu eintali við sólu“. Þannig er eitt af ljóðum ungs höfundar, Árna Larssonar, 1 ný- útkominni ljóðabók hans LEIK- FANG VINDANNA. Arni Lars- son er fæddur í Reykjavík 1943 og hefur búið þar. 1 ljóðabók Árna eru um 90 ljóð, en bókina gaf hann út sjálfur. Skiptist hún f þrjá kafla sem heita: Um sólina manninn og auðnina, Valdið og Mannaður heimur. Ljóðin eru ort á árunum frá Árni Larsson. 1968 til 1974 og í stuttu spjalli við Árna spurðum við hann fyrst af hverju hann væri að yrkja. „Bókin svarar því bezt sjálf,“ svaraði Árni, „en ég geri það til þess að svala þörf tilfinninga minna þegar þær fá hljóm- grunn í degi og nóttu og maður finnur samræmið milli and- stæðnanna. Ég skrifa um þennan tíma, sem ég lifi á, ekki um Island eingöngu, heldur eins og mín skynfæri segja mér hvernig heimurinn er. Ég hlýt að taka einhverja afstöðu til þeirra hluta og atvika, sem koma fyrir almennt og maður heyrir um hversdags.“ „Sólin kemur víða við í ljóð- um þfnurn." „Já, ég spinn sólina inn í eða öllu heldur spinn ég atvikin í kring um sólina og hún kemur reyndar í gegn um bókina þótt maður geti ef til vill ekki boðið fólki upp á sólbað undir henni.“ „Hvernig er að gefa út bók sjálfur og selja?“ „Maður reynir þó, en það er talsverð vinna. Ég tel það þýð- ingarmikið að útgáfufyrirtækin gefi út og kynni unga höfunda. Það er sama og ekkert gert af því að kynna íslenzk verk. Mér finnst ég eiga heimtingu á því að íslenzkir rfkisfjölmiðlar kynni mín verk og annarra ís- lendinga, þvf ekki láta þeir þau erlendu sitja á hakanum. Eg á ekki heimtingu á þessu í öðrum löndum, en mínu landi. Þá finnst mér eðlilegt að aðrir ís- lenzkir fjölmiðlar kynni i þessum efnum, það er að segja ef menn telja íslenzk menn- ingartilþrif einhvers virði. Það er dýrt fyrir höfund að fá ekki kynnt sín verk og það getur verið jafndýrt fólkinu i landinu að þekkja ekki sína samtiðar- höfunda. Frjálshyggja eða frjáls andi fyrir þá sem tjá sig á einhvern hátt á erfitt uppdrátt- ar í okkar landi og þeir sem hafa aðstöðu til að kynna verk líðandi stundar mættu vera rýmilegri. Við eigum ekki alltaf að vera á eftir áætlun. Ef það er notagildi af mér, má ég tala, en flest er gert erfiðara fyrir þann sem vill standa á eigin fótum samvizku sinnar vegna. Annars hefur það verið skemmtilegur þáttur í sam- bandi við sölu á bókinni að ég hef gert mér ferðir til gamalla vina og kunningja, skólafélaga og vinnufélaga, sem ég hef ekki hitt í mörg ár, allt að 15 ár. Tilgángurinn var náttúrulega að reyna að selja þeim bókina, en það var miklu skemmtilegra og aðalatriðið þegar til kom, að hitta þetta fólk og sjá hvernig þvi hefur vegnað, hvar það stendur og stefnir. Einn félaga minn hitti ég sem er að byggja i annað sinn, svolítið kom mér á óvart að sjá eina gamla vinkonu mina ólétta og í einu húsinu sem ég kom í var rífandi draugagangur í stofunni i kring um gamalt skatthol, sem þar var. Þannig safnaðist saman röð skemmtilegra atvika úr ýmsum áttum og menn spjöll- uðu saman, nokkuð sem manni virðist stundum munaður á okkar tímum. Stundum gleymdi ég erindinu og var kominn út á götu þegar ég mundi að ég var að selja bókina mína. Þessi sölumennska átti tilfinningalega mjög illa við mig.“ „Hvað liggur svo fyrir næst?“ „Það sem mig langar að gera næst er að birta greinar sem ég hef skrifað á síðustu árum, en ein bók hefur komið eftir mig áður. Hún heitir Uppreisnin í grasinu og er 16 skáldsöguþætt- ir sem Almenna bókafélagið gaf út. Leikfang vindanna, sem ég gef út sjálfur er unnið í offset-fjölritun Leturs s.f. Það sem ég hef skrifað bæði í ljóð- um, söguþáttum og greinum tel ég svo skylt og tengt og þvi langar mig að koma því öllu á þrykk úr þvi að ég er kominn úr vör.“ „Hver er sérstaðan I ljóða- bókinni?" „Mér finnst ljóðabókin hafa þá sérstöðu að bróðurparturinn af henni snýst um valdið og ég vil hvetja stjórnmálamenn að kaupa þessa bók og jafnframt þá sem engan áhuga hafa á stjórnmálum. Að mínu mati snýst Ijóðabókin um höfuð- atriði mannlífsins." XV Myndskreyting eftir höfund- inn. vm sólin hefur gefiS mér daglangt efasemdarauga á auðninni leitt mig um fúafen staSreynda fest mig í haldleysi veruleikans hvatt mig til aS bera eld aS myrkrinu XXIX ég dey ekki allur Ig skil eftir þessa auðn þennan himin þessa sól þennan eld þetta gras þennan gróður f rústunum Hjarta fléttað saman úr leiður- um Morgunblaðsins og Þjóð- viljans. XXV ég gef þér tóm verustað fyrir örvæntinguna og segi út í bláinn ekkert endist já, ekkert endist ekki einusinni sorgin sem fór í gegnum þig eins og sólargeisli og sóltn stígur okkur til höfuðs þegar við getum ekki snúið við með eldinn eldinn sem við grípum aðeins berum höndum í myrkri okkar sjálfra og horfum á birtuna höggva nekt okkar út úr myrkrinu frelsið Til sölu 4ra—5 manna hjólhýsi Aspa Sprite. Upplýsingar i sima 94—7199 milli kl. 10 og 1 1 á kvöldin. Húsbyggjendur og aðrir Tilboð óskast í vinnuskúr uppi- stöður og klæðningu, jeppakerru, smáverkfæri ofl. öfl. Upplýsingar í síma 51776 og 53307 milli kl. 1 9 og 20 næstu kvöld. Stýrimaður og háseti óskast á 60 tonna netabát frá Rifi. Útsala á garni næstu daga. Ennþá er hægt að gera góð kaup. Uppl. í síma 93—6709. HOF, Þingholtsstræti 1. Glæsilegur reiðhestur Sjö vetra skjóttur gæðingur undan Blika frá Vatnsleysu til sölu. Simi 14975.' Vogar Til sölu góð 3ja herb. íbúð í Vog- um. Sér hiti. Fasteignasalan Hafnargötu 27, simi 1 420. Rafstöð 20-—25 kw. diesel rafstöð helzt loftkæld óskast keypt. Sími 1321 1 eða 1 1 138. Verzlunarhúsnæði óskast í austurbænum 1 50—300 fm. Mætti vera að hluta til á tveim hæðum. Upplýsingar i síma 38555. Breiðsfjörðsuppistöður Töluvert magn af Breiðfjörðsuppi- stöðum til sölu á góðu verði. Upp- lýsingar í síma 22830, 86189. JS<>r0nnI>lníiiJ» nUGLVSinCRR <Ö*-»22480 Valhúsgögn febrúar-tilboð sófasett á kr. 120 þús.f á kr. 135 þús. á kr. 155 þús. Allt falleg og vönduð húsgögn. Gefið yður tíma og næðr að bera saman verð og gæði. Valhúsgögn Ármúla 4. /------------------s— \ Ferðaskrifstofan ÚTSÝN — SAS flugfélagið ÚTSÝNARKVÖLD AUSTURLANDAHÁTÍÐ í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 16. febrúar /-----------------------------------\ •jt Kl. 19.00 — Húsið opnað — Svaladrykkir og lystaukar. it Kl. 19.30 — Hátiðin hefst: Ijúffengir blandaðir Blpéjá Austurlandaréttir (Verð aðeins kr. 895.) ★ kl. 20.30 — Ævintýraheimur Austurlanda: Kvik- myndasýning frá Thailandi. if Fegurðarsamkeppni: Ungfrú ÚTSÝN 1975 — |||l§te|| forkeppni. it Stórkostlegasta ferðabingó ársins: 2 Útsýnarferðir X til sólarlanda og 2ja vikna ferð til Austurlanda. SgWjí's Verðmæti vinninga samtals ca. 400 þúsund kr. it Nýstárlegt skemmtiatriði á austurlenzka visu. it Dans — Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarna- *#!v. sonar. Missið ekki af þessari óvenjulegu, glæsilegu en ódýru skemmtun. Ath. að veizlan hefst stundvíslega og borðum verður ekki haldið eftir kl. 1 9.30. T ryggið ykkur borð hjá yfirþjóni á föstudegi frá kl. 1 5.00 í síma 20221. VERIÐ VELKOMIN — GÓÐA SKEMMTUN: Ferðaskrifstofan ÚTSÝN — SAS flugfélagið V_____________________________________________s

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.