Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975
15
Wilson kominn
til Moskvu
— og Brezhnev birtist loksins
Moskva, 13. febr. Reuter.
LEONID Brezhnev, flokksleiðtogi
Sovétríkjanna, var í fararbroddi
móttökunefndar þeirrar, sem
fagnaði Harold Wiison, forsætis-
ráðherra Breta, þegar hann kom
til Sovétrlkjanna í dag. Var þetta
Umdeildar
kosningar
Bangkok, 13. febrúar — Reuter.
SENI Pramoj, gamalreyndur
forystumaður lýðræðisflokks
Thailands var í dag kosinn for-
sætisráðherra landsins við at-
kvæðagreiðslu i þinginu með 81
atkvæðis mun yfir þeim sem næst
komst. Seni, sem var forsætisráð-
herra um tíma við lok siðari
heimsstyrjaldarinnar, mun vera í
forsæti fyrir samsteypustjórn
a.m.k. tveggja flokka. Þessi kosn-
ing í þinginu fylgir í kjölfar
kosninga í síðasta mánuði þar sem
Lýðræðisflokkurinn vann flest
þingsæti en ekki hreinan meiri-
hluta. Um 500 manns tóku þátt í
mótmælaaðgerðum utan við þing-
húsið og ásökuóu þingmenn fyrir
að hafa þegið mútur við kosningu
þingforseta í síðustu viku. Þá
mótmælti fólkið þeirri ákvörðun
þingforsetans að meina almenn-
ingi og fréttamönnum aðgang að
þinghúsinu á meðan forsætisráð-
herrakjörið fór fram.
í fyrsta skipti i sjö vikur, sem
Brezhnev sést opinberlega.
Stjórnmálasérfræðingar segja
að þetta megi túlka á þann veg að
Sovétmönnum sé mjög mikið í
mun að bæta samskiptin við Bret-
land, sem hafa verið heldur köld
síðustu þrjú árin.
Wilson heilsaði Brezhnev glað-
lega og lýsti þeirri skoðun sinni
að Brezhnev væri hreint ekki
veikindalegur og kvaðst sá síðar-
nefndi skyldu skýra honum frá
þvi síðar, hvað hann hefði haft
fyrir stafni síðan hann kom síðast
fram þann 24. desember.
Búizt er við að þeir Wilson og
Brezhnev undirriti viðskipta-
samning milli rikjanna meðan
Wilson dvelst i Sovétríkjunum. A
siðasta ári voru þau viðskipti
Bretum mjög óhagstæð, og munu
þeir leggja mikið kapp á að fá
jafnvægi á hlutföll innflutnings
og útflutnings milli landanna.
Norflmmn með
nýtt vörumeriá
fyrir fisk
ÚTFLUTNINGSNEFND norsks
ferskfisks hefur nýlega hafið
notkun þessa vörumerkis fyrir út-
fluttan ferskfisk, frystan fisk og
skelfisk. Vörumerkið, sem er
prentað í rauðu og bláu, verður á
fiski og fiskafurðum sem fram-
leiddar eru og pakkaðar í sam-
ræmi við settar reglur um þau
efni, til að tryggja gæðastig fram-
leiðslunnar.
Konurnar
vinsælar
París, 13. febrúar — Reuter.
KONURNAR tvær sem gegna ráð-
herraembættum í rikisstjórn
Valery Giscard d’Estaings, Frakk-
landsforseta, eru vinsælustu ráð-
herrar stjórnarinnar að því er
fram kemur i skoðanakönnun
sem birt var í París í dag. í könn-
uninni sem birt var I blaðinu
L’Aurore kemur fram að 62%
þeirra sem spurðir voru, eru
ánægðir með frammistöðu
Simone Weil heilbrigðismálaráð-
herra, sem var helzti frumkvöðull
frjálslyndari fóstureyðingalög-
gjafar er sett var nýlega.
Francoise Giroud, ráðherra með
málefni kvenna, varð í öðru sæti
með 54%. Eini karlmaðurinn sem
hlaut yfir 50% stuðning í könnun-
inni var Jacques Chirac forsætis-
ráðherra sem hlaut 52%.
Símamynd — AP.
WILSON OG BREZHNEV léku á als oddi, þegar þeir hittust í Moskvu í gær, en
þangað var Wilson kominn í opinbera heimsókn. Fréttamönnum þótti tíðindum
sæta að Brezhnev kom nú fram, en hafði ekki sést opinberlega síóan í desember.
Kóreumenn fylgj-
andi einræðinu?
Seoul, 13. febr. Reuter.
PARK Chung-Hee, forseti Suður-
Kóreu, hlaut verulegan stuðning
við hina nýju ströngu stjórnar-
skrá landsins i úrslitum þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem voru kunn-
gerð i dag. Andstæðingar forset-
ans höfðu gagnrýnt stjórnarskrá
þessa fyrir að vera einræðisleg og
krafizt þess að önnur lýðræóis-
legri yrði gerð. Er 70,2% þeirra
rúmlega 13 milljóna atkvæða sem
greidd voru í þjóðaratkvæða-
greiðslunni í gær höfóu verið tal-
in í dag voru 52% fylgjandi
stjórnarskránni, aó því er sjón-
varpið skýrði frá.
Grípa Einingarsamtök-
in inn í Erítreumálið?
Addis Ababa,
13. febr. — Reuter.
EININGARSAMTÖK Afríkurikja
koma saman til ráðherranefndar-
fundar 1 Addis Ababa f dag. Þrátt
fyrir það að á dagskrá fundarins
séu aðaliega efnahags- og stjórn-
unarmál, hvllir skuggi bardag-
anna í Eritreu, sem nálgast hafa
borgarastyrjöld, yfir fundinum,
þótt ólíklegt sé að þetta feimnis-
mál verði tekið tii fermlegra um-
ræðna á fundinum. Hins vegar
verður það vafalaust aðalum-
ræðuefnið manna á meðal á fund-
inum þótt kyrrt fari.
Erítrea, sem var fylki í Eþíópíu
með talsverða sjálfstjórn áður en
það var gert að héraði árið 1962,
logaði í bardögum í janúar og
áreiðanlegar heimildir herma að
a.m.k. 1850 manns hafi farizt. En
Erítrea var með kyrrð og spekt í
dag, og bárust engar fregnir af
átökum milli hersveita Eþiópíu-
stjórnar og baráttusveita sjálf-
stæðishreyfinganna.
Ibúar Asmara, höfuóborgar Erí-
treu, sögðu að daglegt lif væri að
komast í eðlilegt horf, búðir væru
margar opnar á ný og svo fram-
vegis. Hins vegar hefur enn ekki
komizt rafmagn á í borginni eftir
12 daga rafmagnsleysi.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur
skorað á Einingarsamtökin að
koma í veg fyrir frekari blóðsút-
hellingar i Eritreu, en heimildir
innan samtakanna sögðu að þau
gætu ekki beitt sér i málinu nema
herstjórnin í Eþiópíu bæói um
það. Hins vegar lita yfirvöld i
Eþíópíu á átökin í Erítreu sem
innanrikismál, og vilja alls ekki
geraþað alþjóðlegt.
ENN BARIZT
í MALAGASY
Tananarive 13. febr. — Reuter
BARDAGAR héldu áfram i dag
milli hersveita stjórnvalda í Mala
gasy og uppreisnarflokka lög-
reglumanna sem sakaðir eru um
að bera ábyrgd á morðinu á þjóð-
höfðingj landsins, Rat-
simandrava ofursta, s.I. þriðju-
dagskvöld. Lögreglumennirnir
Mitterand —sátttus.
Mítterand forðast á-
rekstra við kommúnista
París, 13. febr.
Reuter.
FRANCOIS Mitterand, leiðtogi
franskra sósíalista, sem stendur
nú frammi fyrir auknum ögrun-
um frá félögum sinum í sam-
bandi franskra vinstri flokka,
kommúnistaflokki George
Marchais, lýsti í dag á blaða-
mannafundi yfir því að hann
hefði trú á vinstra samstarfi og
forðaðist að styggja kommúnista.
„Ég held ekki að kommúnistar
vilji slíta samstarfinu,” sagði
hann. „Ekkert hefur breytzt. Við
erum áfram sterklega fylgjandi
vinstra samstarfinu."
Marchais réðst s.l. mánudag á
Mitterand persónulega fyrir að
vera yfirgangssamur og of örugg-
ur með sjálfan sig, og gerði þar
með vaxandi togstreitu þessara
vinstri flokka enn biturri. Eru
kommúnistar sagðir hafa miklar
áhyggjur af vaxandi vinsældum
sósíalistaflokksins og telja sósíal-
ista græða á vinstra samstarfinu á
kostnað kommúnista. Þá ásaka
þeir Mitterand fyrir að vera að
mjaka sér til hægri og vera reiðu-
búinn til að makka við Giscard
d’Estaing forseta.
Mitterand svaraði þessum ásök-
unum þannig á blaðamannafund-
inum í dag: „Hvernig getum við
verið að hneigjast til hægri og um
leið reynt að taka atkvæði frá
kommúnistum?’.’
Söngkonur
með vafa-
samarbók-
menntir?
Belgrad, 13. febr. Reuter.
BANDARlSKA sendiráðið i
Beigrad hefur óskað eftir við-
ræðum við júgóslavnesk
stjórnvöld vegna máls tveggja
bandarískra óperusöng-
kvenna, sem voru settar í varð-
hald á hóteli sinu sl. mánudag
og sakaðar um að flytja inn í
landið bókmenntir, sem væru
f jandsamlegar Júgóslaviu.
Konurnar eru Gloria Bently
og Ann Waterman. Þær komu
akandi frá Rúmeníu og við
komuna til gistihúss þeirra
var farangur þeirra rannsak-
aður og vegabréf þeirra tekin
af þeim.
voru innikróaðir i aðalfangelsi
Tananarive, nálægt bækistöðvum
uppreisnarmannanna sem teknar
voru I áhlaupi i morgun. Allmarg-
ir fangar sluppu úr haldi í árás-
inni, og yfirvöldin skoruðu á þá
að gefa sig fram.
Ekki var vitað um örlög
Brechard Rajaonarison ofursta,
sem talinn er forsprakki upp-
reisnarinnar. Áreiðanlegar heim-
ildir hermdu að mannfall hefði
orðið í umsátrinu og árásinni á
bækistöðvarnar í morgun, en ekki
var vitað hversu mikið það var.
Embættismenn óskuðu eftir þvi
að almenningur kæmi á sjúkra-
hús borgarinnar til að gefa blóð.
Verða keyptar
Viggenvélar?
Stokkhólmi, 13. febr. Reuter.
ENN ER í athugun hvort hægt sé
að láta sænsku Viggen-
orustuvélarnar leysa af hólmi
Starfightervélarnar hjá fjórum
ríkjum Atlantshafsbandalagsins,
að þvi er Alv Jakob FostervoII,
varnarmálaráðherra Noregs,
sagði hér á fundi í dag með blaða-
mönnum.
Hann sagði það mikinn kost við
Viggen-vélarnar hversu stutta
braut þær þyrftu til að komast á
loft og lenda. Noregur, Danmörk,
Belgia og Holland eru að leita
eftir því að festa kaup á 346
orustuvélum til að leysa af hólmi
bandarisku Starfightervélarnar,
sem komnar eru til ára sinna.
Sagði ráðherrann að niðurstöðu
mætti vænta fljótlega.