Morgunblaðið - 14.02.1975, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRtJAR 1975
25
Tjón af völdum vargfugla:
Lambadráp mest 0,08% — Áhrif
á æðarvarp mótsagnakennd
Á SL. ÁRI réð menntamálaráðu-
neytið Árna Heimi Jónsson líf-
fræðing til að ferðast um landið
og safna upplýsingum um tjón af
völdum hrafns og svartbaks, en
alloft hafa borist kvartanir frá
bændum og samtökum þeirra
vegna slíks tjóns, sérstakiega í
sambandi við sauðburð og æða-
rækt. Einnig hefur verið kvartað
um að þessir fuglar — sérstak-
lega þó hrafn, — ætu fræ f
flögum og svartbakurinn laxa-
seiði í ám, einkum þegar niður-
gönguseiðum er sleppt. Jafn-
framt var Árna Heimi falið að
gera tilraunir með svefnlyf til
fækkunar þessum fuglateg-
undum. Upplýsingasöfnun þessi
fór fram í júní, júlí og ágúst
sumarið 1974, en svefnlyfjatil-
raununum var þó ekki iokið fyrr
en í september.
I greinargerð segir m.a.:
Arni Heimir ferðaðist um 20
sýslur og ræddi við 337 bændur
og tjón sem hrafnar og mávar
Ragnar
Halldórsson
kjörinn for-
maður SFÍ
Á aðalfundi Stjórnunarfélags-
ins, sem haldinn var 4. febr. s.l.
var Ragnar S. Halldórsson for-
stjóri kjörinn formaður félagsins.
Gestur fundarins, dr. Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra,
flutti ávarp. Þar kom fram, að
ráðuneytið hefur ákveðið að fela
Stjórnunarfélaginu framkvæmd
þeirrar stjórnunarfræðslu, sem
áður var i höndum sérstakrar
nefndar, sem skipuð var af
iðnaðarráðuneytinu.
Guðmundur Einarsson verk-
fræðingur, fráfarandi formaður
SFl, setti fundinn. Haraldur
Steinþórsson framkvæmdastjóri
var kjörinn fundarstjóri. I
skýrslu stjórnarinnar kom fram
m.a., að á fyrri hluta s.l. starfsárs
hefði fræðslustarfsemin gengió
erfiðlega vegna þeirrar spennu,
sem þá ríkti á vinnumarkaðnum.
Hins vegar væri ljóst samkvæmt
undirtektum i vetur, að stjórn-
endur fyrirtækja leggja nú meiri
áherslu en áður á það að bæta við
þekkingu sína og starfsfólksins,
og væri það vonandi að þakka
auknum skilningi þeirra á þýð-
ingu þekkingarinnar sem fram-
leiðsluþáttar. Þá kom fram i
skýrslunni, að félagið gekkst fyrir
8 fundum, einni ráðstefnu og 10
námskeiðum um mismunandi
efni. Nokkrir stjórnendur fóru i
kynnisferð til þriggja Evrópu-
landa á vegum félagsins til að
kynna sér fyrirtækjarekstur og
stjórnunarfræðslu.
Guðmundur Einarsson, sem
ekki gaf kost á sér til endurkjörs
sem formaður félagsins, gaf félag-
inu tvö hundruð þúsund krónur
til tækjakaupa. Voru honum
færðar þakkir fundarmanna fyrir
höfðinglega gjöf.
Eins og áður sagði flutti dr.
Gunnar Thoroddsen ávarp á
fundinum um breytingar á tilhög-
un stjórnunarfræðslu iðnaðar-
ráðuneytisins. Jakob Gislason
fyrrv. orkumálastjóri og fyrsti
formaður félagsins gerði nánari
grein fyrir þýðingu þessarar ný-
skipunar fyrir stjórnunarfræðslu-
málin I landinu.
I stjórn félagsins voru kjörnir:
Ragnar S. Halldórsson form.,
Brynjólfur Bjarnason deildar-
stjóri, Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson
forstjóri, Hörður Sigurgestsson
rekstrarhagfræðingur. Sigurður
R. Helgason rekstrarhagfræðing-
ur, Eggert Hauksson viðsk.fr.,
Guðmundur Einarsson verkfr.,
Jakob Gislason fyrrv. orkumála-
stjóri og Sigurður Gils Björgvins-
son rekstrarhagfræðingur.
valda á sauðfé, yfirleitt nýborn-
um lömbum eða lömbum í fæð-
ingu.
Af bændum sem spurðir voru,
urðu 76 eða 22,5% fyrir þannig
tjóni síðastliðið vor. Þess ber að
geta að Árni Heimir reyndi að
fara á sem flesta bæi þar sem
frést hafði um tjón.
Aðurgreindir bændur, sem
spurðir voru um tjón, áttu um
11—12% af þeim ám sem voru á
fóðrum siðastliðinn vetur. Mesta
hugsanlega tjón, sem fuglarnir
valda, er 0,08% af fjölda lamba
sem fæðast. Ef öll þau lömb hefðu
lifað til síðastliðins hausts og lagt
sig á 5000 krónur hvert er tjón að
meðaltali á hvern bónda með 250
ær nálægt 1300—1400 krónum og
er þá um algjör efri mörk tjóns að
ræða að þvi er Árni Heimir telur.
Tjón fer í stórum dráttum eftir
gæslu um burð. Af þeim bændum,
sem létu bera að mestu leyti inni,
urðu 5% fyrir tjóni. Samsvarandi
tala fyrir þá, sem létu bera „við
hús“ eða „á húsi“, er 29% og úti í
haga 47%.
Einnig drápu fuglarnir að sögn
bænda 19 kindur sem höfðu orðið
afvelta, fengið doða eða fest i
gaddavír.
Það virðist nokkuð útbreidd
skoðun hjá bændum að það séu
ákveðnir fuglar „sem komast upp
á lag með að drepa".
Yfirleitt var ekki gert upp á
milli fuglanna að því er tjón varð-
ar en almennt var hrafninn talinn
áræðnari vió fé og flestir töldu
aðkomuna verri eftir hann.
Árni Heimir ræddi samtals við
67 bændur sem stunduðu æðar-
rækt eða voru nýhættir þvi.
Samanlagt dúnmagn úr æðar-
varpi þeirra var að sögn 604 kg
vorið 1975.
Hjá þeim, sem höfðu æðarvarp,
var það í samdrætti hjá 60% en i
vexti eða stóð í stað hjá 40%. Sem
aðalskýringu á samdrætti nefndu
bændur aukin áhrif eftirtalinna
þátta: svartbakur, hrafn, minkur
og verri umhirða. Við þetta má
svo bæta sem hugsanlegri skýr-
ingu stóraukinni veiði hrognkelsa
í net, en bændur töldu að mikið af
æðarfugli dræpist í netunum.
Ekki viróist sem svefnlyf hafi
náð tilætluðum árangri við efl-
Framhald á bls. 22
STÚDENTAR
M.R. 1960
Fundur verður haldinn á Hótel Esju mánudaginn 17. feb. 1975 kl.
8.30.
Bekkjaráð.
FRÁ HÚSMÆÐRA-
KENNARASKÓLA
ÍSLANDS
HÁUHLÍÐ 9.
Kennsla frá kl. 13—1 7.
1. síldarréttir fyrir alla, dagana 19 og 21
febrúar.
2. borðbúnaður og áhöld hvers dags og áhöld
hvers dags og á tillidögum, 26 og 27 febrúar.
3. brauðgerð til nytsemdar og ánægju dagana
6 til 13 marz.
Hringið í síma 16145 kl. 9 —14 virka daga.
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
Blaðburðarfólk:
AUSTURBÆR
Óðinsgata, Sóleyjargata, Laufás-
vegur 2 — 57, Hverfisgötu
63 — 125.
ÚTHVERFI
Hluti af Blesugróf, Fossvogsblettir,
Selás, Ármúli, Laugarásvegur
1 _37, Skipholt 35 — 55.
VESTURBÆR
Nýlendugata, Tjarnargata I og II.
Upplýsingar í síma 35408.
Seyðisfjörður
Umboðsmaður óskast til að sjá um
dreifingu og innheimtu Mb. Uppl.
hjá umboðsmanni og í síma
Sjálfstæðisfólk Akranesi
Þorrablót
í Sjálfstæðishúsinu, Heiðarbraut 20, laugardaginn 15. febrúar kl. 8
siðdegis. Fjölbreytt skemmtiefni, dans. Takið með ykkur gesti.
Sjálfstæðisfélögin Akranesi.
Ekknasjóður fslands
Umsóknir um styrk úr sjóðnum sendist skrif-
stofu biskups, Klapparstíg 27. Umsögn sóknar-
prests fylgi umsókn.
Hnappagatavél o.fl.
Til sölu er „REECE" hnappagatavél (stór),
pressuborð, gufustraujárn og álímingarpressa.
Einnig nokkrir lampar, stimpilklukka ofl.
L.H. Múller, fatagerð.
Símar: 30620 — 37773.
Fiskiskip
Höfum verið beðnir að útvega 70 til 80 rúm-
lesta bát til leigu.
Landsamband islenskra útvegsmanna
Skipaleiga simi 16650.
Kodak ■ Kodak ■ Kodak ■ Kodak
KODAK
Litmqndir
á(i,dögum
HANS PETERSEN H/f.
BANKASTR. 4 SÍMI 20 313
GLÆSIBÆ SÍMI 82590