Morgunblaðið - 14.02.1975, Page 26

Morgunblaðið - 14.02.1975, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1975 t Eiginmaður minn, ARTHUR WATERMAN, andaðist þann 29.1. s.l. á sjúkrahúsi í N. Y. Greftrun hefur farið fram. Hildur Waterman. Eiginmaður minn. + ÓLAFUR GUOJÓNSSON, Álftamýri 56, Reykjavlk, lézt i Borgarspítalanum 1 2. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda. Guðlaug Jónsdóttir. t Útför konu minnar, GUÐRlÐAR JÓNSDÓTTUR, verður gerð frá Fossvogskirkju 1 5. febrúar kl. 1 0.30. Blóma er ekki óskað, en líknarstofnanir njóti vinarhugar og fórnar- lundar. Jón ívarsson. t Útför tengdamóður minnar og ömmu okkar, GUÐRÍÐAR ÍSAKSDÓTTUR fer fram frá Fríkirkjunni I Hafnarfirði laugardaginn 15. febrúar kl. 10.30. Sigurveig Jóhannsdóttir, Þuriður Guðmundsdóttir, Guðríður Guðmundsdóttir. t Móðir okkar MAGNEA GlSLADÓTTIR Háaleiti 23, Keflavík verður jarðsett frá Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði laugardaginn 1 5. febrúar kl. 1 1 f.h. Börnin. t Maðurinn minn, JÓN GUÐMUNDSSON frá Húsavlk, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 1 5. febrúar kl. 13.30. Sigrún Jónasdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, PÁLS GEIRMUNDSSONAR Blönduósi. Hjálmfrtður Anna Kristófersdóttir, Guðný Pálsdóttir, Kristinn Pálsson, Hjálmar Pálsson, Sigríður Þ. Sigurðardóttir. og barnabörn. t Þökkum vinum og vandamönnum og samstarfsfólki á Kleppsspitalan- um auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og bróður, FRIÐJÓNS ÞÓRARINSSONAR, Hofteigi 32. Einnig þökkum við starfsfólki Taugadeildar Landspítalans kærleiksrlka umönnuh. Fanney Tryggvadóttir, börn og systkini hins látna. t Þökkum samúð I orði og verki við fráfall og útför INDRIÐA H. EINARSSONAR verkfræðings. Kristin Leifsdóttir, Einar Indriðason, Hrefna Indriðadóttir, Lovísa Helgadóttir, Sigríður Einarsdóttir Hrefna Kolbeinsdóttir, Leifur Ásgeirsson. Tómas Tómasson Auðsholti — Minning Sveitin Biskupstungur er um- lukt tveim stórum fljótum, Hvítá að austan en aó vestan Brúará. Tungufljót klýfur hana að endi- lögu. Sveitin er víðáttumikil, gróðursæl og kostarík. Sunnan Hvltár eru þrjár jarðir, sem telj- ast til Biskupstungna en liggja fast að Skeiðahreppi. Austan Hvitár er fjölbýlisjörðin Auðsholt og liggur í tungunni milli Hvítár og Litlu-Laxár. Þar austur af er Hrunamannahreppur. Þessi sveit- arskipan er frá elstu tímum bisk- upsstólsins í Skálholti. Þar hafði biskupsstóllinn gagnsöm útibú. Auðsholt telst til Skálholtssóknar og á hreppsskil með Biskupstung- um. Biskupsstóllinn hafði lagt undir sig allar jarðir f sveitinni nema fjórar, það voru Hólar, Ein- holt, Drumboddstaðir og Bræðra- tunga. Allur leigumáli hefur ver- ið drjújj tekjulind fyrir stólinn og hlunnindi jarðanna verið nýtt frá Skálholtsstað. Vötnin voru mikill farartálmi, vöð fá og fjarlæg fjöl- fjörnum leiðum. Voru því viða fastir ferjustaðir. Svo var í Auðs- holti. Ferjunni fylgdi jafnan meira ónæði en ávinningur. Hlut- verk ferjumannsins gat stundum reynst stórt og afdrifarfkt, því oft var ferjan kölluð f brýnni nauð- syn. Eftir að stólsjarðirnar voru seldar, keypti maður vestan af Kjalarnesi Auðsholt, sá hét Tóm- as Halldórsson. Hann reisti bú í Auðsholti 1801. Eftir hann bjó f Auðsholti sonur hans Guðbrand- ur. Kona hans hét Friðsemd Gisla- dóttir frá Gröf í Hrunamanna- hreppi. Sonur þessara hjóna var Tómas, fæddur 1834. Hann hóf búskap í Auðsholti eftir föður sinn 1862. Kona hans var Guðrún Einarsdóttir af Álftanesi. Synir þeirra voru: Guðbrandur bóndi í Skálmholti, Einar, hann fór til Vesturheims, Guðjón á Dísastöð- um og Tómas bóndi f Auðsholti. Tómas Guðbrandsson var vel met- inn, hófsamur, grandvar og góð- viljaður. Hann var hreppsstjóri um langt skeið og hlaut heiðurs- verðlaun Dbr. manna. Árið 1907 lét Tómas af búskap og tók þá sonur hans Tómas við jörðinni. Tómas Guðbrandsson dó árið 1915. Tómas Tómasson var fædd- ur árið 1874. Kona hans var Vil- borg Jónsdóttir frá Syðra-Seli f Hrunamannahreppi. Þessi hjón eignuðust níu börn, fimm syni og fjórar dætur. Öll þessi systkini ólust upp hjá foreldrum sínum i Auðsholti til þroska og mann- dóms, gott og tápmikið fólk. I hópi þessara systkina var Tómas. faeddur 3. janúar 1911 og er þessi grein skráð til minningar um hann. Fyrstu kynni min við þessa fjöl- skyldu var veturinn 1918. Ég var þá ráðinn til farkennslu i sveit- inni, kennt var á bæjum þar sem + Eiginkona mín og móðir ARNDfS SIGURÐARDÓTTIR Norðurbyggð 15, Akureyri lést 1 2. febrúar. Vigfús Sigurjónsson, Sigurlaug Vigfúsdóttir. rúm voru húsakynni og hægt var fyrir börnin að ná til kennslunn- ar. Kennt var f tvær vikur á hverj- um stað. Þessi vetur er minnis- stæður þeim, er þá lifðu og mun teljast til stærri atburða í sögu lands og þjóðar. „Undur yfir dundu". Kötlugos hófst 12. október og stóð til 4. nóvember sama ár. Samtímis herjaði skæð drepsótt víða um landið, (spænska veikin). Hafís lagðist að landi og lokaði siglinga- leiðum, frosthörkur 20-til 40 gráð- ur. Vöruskortur og vaxandi verð- bólga, skólum jafnvel lokað vegna kolaleysis. Þá lauk heimsstyrjöld- inni fyrri, 1. desember gengu sambandslögin í gildi, þá var ís- lenski rfkisfáninn dreginn að hún í fyrsta sinn, tákn þess, að Island væri sjálfstætt og fullvalda ríki. Eftir þennan vetur fannst mér ég skynja betur hvað þjóðin hefur einatt orðið að þola á umliðnum öldum og skila ættinni fram til þessa dags. Ég hafði náin kynni af sveitungum mínum og heimilum þeirra þennan vetur. Þá voru margar stórar fjölskyldur að alast upp, án opinberra styrkja. Aðbúð var víða frumstæð, húsakynni köld og lítið upphituð. Húsbónd- inn þreytti andvöku til úrræða við frumstæð vandamál, húsmóðirin vann sitt f jölþætta hlutverk, bar í brestina og bætti úr þörfum heim- ilisins eftir getu. Ég ætla að sum- ar húsmæðurnar hafi gert þar kraftaverk, að metta marga munna af litlum fiski og fáum brauðhleifum. Svo varð líka að bjarga krökkunum frá kuldanum. Hér á landi má jafnan klæða af sér kuldann, þar munu ullarnær- fötin vel reynast. Þannig var það með skólakrakkana hjá mér þenn- an vetur, þau voru öll vel búin að ullarfatnaði. Ég hafði olíuofn til. að ylja upp kennslustofuna. Oft lét ég krakkana fara út milli kennslustunda, hlaupa og leika sér, þá var ég sjálfur jafnan með þeim. Tommi var þá líka í hópn- um þá aðeins sjö ára gamall. Það kom fyrir að hann fékk kul í fingurna, þá hljóp hann beint til mömmu sinnar og hendurnar hennar vermdu hann vel. Þá iðkaði ég að staðaldri ýmsar líkamsæfingar. Tommi var þá jafnan nærstaddur og horfði á mig og tók brátt að líkja eftir mér með tilburðina. Við horfðum þegjandi hvor gegn öðrum, dálítið glettnir í bragði. Mér þótti nær- vera stráksins notaleg og ég veitti honum sérstaka athygli. Hann var fjörmikill en þó enginn ærsla- + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR SESSELJU RÓSMUNDSDÓTTUR, Skerseyrarvegi 1, Hafnarfirði. Gústaf Sigurðsson, Július Sigurðsson, Þorlákur Sigurðsson, Rósmundur Sigurðsson. Ragnar Sigurðsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Anna Sigurðardóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Ásta Magnúsdóttir, Elísabet Pétursdóttir, Vilborg Hansdóttir, Hjördis Jónsdóttir, Egill Strange, Friðþjófur Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. belgur, dulur, íhugull, andlits- drættir sýndu vijafestu og kjark og ef honum fannst eitthvað mik- ið liggja við brá fyrir leiftri í brúnum augum hans, merki lífs- vilja og manndóms. Bærinn i Auðsholti þar sem ég dvaldi, stóð fast við Hvítá. Nú var hún ísi þakin, engin feigðarvök. Nú kallaði enginn á ferju. Oft var glugginn i kennslustofunni svo loðhrímaður, að frostrósirnar, sem krökkunum sýndust stundum stásslegar, hurfu að mestu. Það var „púað á loðinn ljóra“ og skyggnst suður um hjarnbreið- una, stöku sinnum heyrðust dynkjandi frostbrestir. Skólaljóðin voru lesin og lærð. Það var sem til okkar bærist vermandi glóð og okkur gafst sýn til sólarlanda. (Lýsti sól, stjörnu stól, — Ingólfur sté á land.) Er kuldinn beit i kinnarnar var kveð- ið við eyra: „Fjör kenni oss eldur- inn, frostið oss herði“. Ég held að Tommi hafi skynjað þetta allt. Veturinn leið og vorið kom. Ég hvarf þá lengra burtu, fór viða og dvaldi á ýmsum stöðum til nánari kynna, bæði við störf og nám. Vorið 1927 reisti ég bú i Hauka- dal, skammt frá Geysi. Samtímis hóf ég þar skólastarf, íþrótta- skóla. Verkefnin voru mörg og þung í vöfum. Þurfti ég því að leita eftir aðstoð til framkvæmda. Var mér jafnan vel tekið og margur rétti mér hjálparhönd. Þar á ég mörgum gott að gjalda. Skólinn hófst haustið 1927, vorið eftir hélt ég sex vikna námskeið. Þar kom Tommi frá Auðsholti. Þá rifjast upp gömul kynni, hann er þá orðinn seytján ára og væn- legur piltur. Næsta vetur er hann nemandi í skólanum og reyndist þá sem vænta mátti góður nem- andi og þroskamikill. Eftir þetta leitaði ég oft til Tomma um aðstoð og dvaldi hann oft hjá mér lengri eða skemmri tíma. Vann hann mjög við bústörfin og reyndar hvað sem þurfa þótti, annars vann hann heima að búi foreldra sinna. 1 hvert sinn er Tommi var kominn til min, létti af mér áhyggjum um störfin. Svo var hann framtakssamur, vandvirkur, vel hagur og svo trúr líkt og hann ynni þar sínum eigin hag. Að vetr- inum var hann mér oft til aðstoð- ar við íþróttaæfingarnar. Hann var góóur íþróttamaður, einkum i fimleikum og sundi. Glímumaður var hann góður, glímdi af viti og stillingu, mjúkur í vörn, bragð- fimur, einkum á lágbrögð, snar- menni og sterkur, fylgdi vel sett- um leikreglum. Ég baó hann oft að glíma við byrjendur og leið- beina þeim.fórst honum það vel úr hendi. Þeir sem voru stórir og sterkir vildu sýna Tomma að þeir væru ekki valtir á fótum og stóðu fast fyrir og treystu á afl sitt og þunga, en fundu brátt að slfkt dugði ekki einungis í glimunni. Tommi var ekki hár vexti, en þéttbyggður og svaraði sér vel, mjúkur og sterkur eins og áður segir. Hann var góður félagi og ávann sér traust 'þeirra. Sam- skipti okkar voru á marga lund, kallaði ég jafnan til hans ef eitt- hvað þurfti að færa í betra horf, því ég treysti honum *ezt til úr- ræða. Man ég ýms atvik sem geta r iUtt þessi ummæli og skal hér eiit greint: Það var seint á jóla- föstu að mig vantaði fimm ær sem ér þurfti að finna.Bað ég Tomma að koma með mér að leita þeirra. Veður var hjart, nokkurt frost, snjólítið og gott færi. Þóttist ég vita, að ærnar væru inni á Hauka- dalsheiði. Eftir þriggja stunda göngu sáum við ærnar fremst í Ásbrandshólma. Liggur sá hólmi milli Ásbrandsár og Fars, þessar kvíslar renna saman í Tungufljót. Við vildum ganga á ís út í hólm- ann, en hann brast sundur og urðum við votir til mittis. Eftir að ærnar komu úr hólmanum hlupu þær heimleiðis. Við runnum fast eftir þeim, þær fóru rétta leið ofan við Fljótsbotna, þar eru margar uppsprettur og lækir, sem útfaraskreytlngar Gróðurhúsið v/Slgtún sími 36770

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.