Morgunblaðið - 14.02.1975, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975
1 ÍI'HIÍIUfllíTIIH MHBEUIBUÐSIWS
HAUKARNIR reyndust ekki mikil hindrun fyrir Víkinga, er liðin
mættust 1 1. deildar keppni Islandsmótsins í Iþróttahúsinu í Hafnar-
firði 1 fyrrakvöld. Fyrri hálfleikurinn og fyrstu mfnúturnar f seinni
hálfleik var reyndar um jafna baráttu að ræða, en undir lok leiksins
sigu Vfkingarnir örugglega framúr og sigruðu með fjögurra marka
mun: 22—18. Þetta var sanngjarn sigur. Víkingar voru betri aðilinn f
leiknum, en handknattleikurinn sem liðin sýndu á köflum var ekki
tilþrifamikill, þau eiga að geta gert betur, sérstaklega þó Vfkingarnir,
sem hafa yfir töluverðri breidd að ráða í liði sínu.
Mark það sem Ingimar skoraði í
þessum leik, var t.d. eitt falleg-
asta markið sem í leiknum sást.
I Víkingsliðinu var Einar Magn-
ússon í essinu sfnu, enda voru
Haukarnir oftast of seinir út á
móti honum, og hann fékk tima til
þess að koma sér á ferðina í upp-
stökkið. Fyrir utan framtak Ein-
ars var Víkingsliðið mjög jafnt i
þessum leik. Sóknarleikur liðsins
er ágætlega ógnandi, og vörnin
greinilega búin að öðlast töluvert
öryggi, og er fljótari og ákveðnari
en verið hefur hjá liðinu undan-
farin ár. Óhætt er að spá Víking-
unum frama í mótinu i vetur.
A.m.k. ef það leikur jafn skyn-
samlega og það hefur gert til
þessa, og lætur það ekki raska ró
FH-stúlkumar héldu markinu
hreinu allan fyrri hálfieikinn
HVAÐ er aó hjá Ármannsstúlk-
unum f handknattleik? Hvar er
liðið sem var í úrslitum f Reykja-
vfkurmótinu? Hvar er liðið sem
svo margir spáðu að mundi brjóta
á bak aftur alræði Vals og Fram f
kvennahandknattleiknum með
þvf að sigra f 1. deild kvenna í
vetur? Það er eitthvað mikið að
hjá Stúlkunum. Tveir sfðustu
leikir hafa tapazt með miklum
mun. Fyrst gegn Vfkingi með 10
mörkum gegn 4, og nú á miðviku-
daginn gegn FH með 17 mörkum
gegn 10, og það eftir að vera und-
ir 11 mörk gegn engu f hálfleik.
Já, ekkert mark skorað í fyrri
hálfleik, en fengu á sig ellefu.
Eins og undanfarandi ber með
sér var um algera einstefnu að
ræða á mark Ármanns. FH-
stúlkurnar léku þá oft stór-góðan
handknattleik, en Ármannsstúlk-
urnar voru alger andstaða þeirra.
Ef svo bar við að sóknir Armanns
enduðu með skoti, þá átti Gyða
Ulfarsdóttir í marki FH auðvelt
með varnir. Annars endaði lík-
lega helmingur sókna Ármanns
með því að stúlkurnar glopruðu
boltanum frá sér á hinn furðuleg-
asta hátt.
1 siðari hálfleiknum rétti Ár-
mann aðeins úr kútnum, þó eigin-
lega ekki fyrr en á sfðustu mínút-
um leiksins, en þá slakaði FH
verulega á enda leikurinn unn-
inn. Leiknum lauk því með sigri
FH 17 mörkum gegn 10.
Eins og fyrr getur lék FH oft á
tíðum mjög góðan handknattleik.
Einkum áttu þær góðan leik Svan-
hvít Magnúsdóttir og Kristjana
Aradóttir auk fyrirliðans Birnu
H. Bjarnason. Það var ánægjulegt
að sjá að Svanhvit virðist vera að
nálgast sitt gamla form, en hún
hefir átt fremur slaka leiki það
sem af er mótsins.
Það er óskiljanlegt hve slaka
leiki Armann hefir átt að undan-
förnu. Sennilega er áhugaleysi
um að kenna. T.d. lék Guðrún
Sigþórsdóttir ekki með að þessu
sinni, en hún hefir verið jafn best
Ármannsstúlknanna í vetur.
Astæðan fyrir fjarveru Guðrúnar
er sú að hún hefir litið sem ekkert
æft aó undanförnu og var því ekki
valin. Það var helst að Erla Sverr-
isdóttir sýndi lit í leiknum við
FH, en hún á við meiðsli að stríða
þannig að hún gat ekki beitt sér
sem skyldi.
Leikinn dæmdu Geir Thor-
steinsson og Hafsteinn Jóhanns-
son og komust all vel frá sínu.
Mörkin. FH: Kristjana 7 (3v),
Svanhvít 6 (2v), Guðrún Júlíus-
dóttir 2, Birna og Anna Lísa Sig-
urðardóttir eitt mark hvor.
Ármann: Erla 4 (2v), Katrín
Axelsdóttir 2, Jóhanna Asmunds-
dóttir, Helga Egilsdóttir, Sigríður
Rafnsdóttir og Þórunn Hafstein
eitt mark hver.
Sigb.G.
Jafnvel slfk færi sem þetta tókst Haukunum ekki að nýta f leiknum f fyrrakvöld. Elfas Jónasson hefur
komist milli Magnúsar Guðmundssonar og Skarphéðins Oskarssonar f hið ákjósanlegasta færi, en hitti
ekki markið. Ljósm. Friðþjófur Helgason.
sinni þótt andstæðingurinn haldi
í til jafns við það, til að byrja með.
ISTUTTU MÁLI:
ÍSLANDSMÖTIÐ 1. deild
Iþróttahúsið Hafnarfirði 12. febr-
úar
Úrslit: Haukar — Víkingur 18 —
22 (10—10)
Gangur leiksins:
Min.
Haukar
Víkingur
57. Hilmar
58.
58.
59.
60. Hilmar
60. Hörður
16:19
16:20 Einar
16:21 Jón
16:22 Skarphéðinn
17:22
18:22
Þessi sigur Víkinga tryggir
stöðu þeirra á toppnum í fyrstu
deildinni. Þeir hafa tapað einu
stigi minna en FH og Valur en
líklegt verður að teljast, að barátt-
an um íslandsmeistaratitilinn
standi milli þessara liða. Tap
Hauka f leiknum þýddi það fyrir
þá, að heita má aó með öllu sé
vonlaust að þeir blandi sér í bar-
áttuna í vetur. Hefur ferill liðsins
í vetur verið gagnstæður því sem
oftast hefur verið áður, — er það
Dönsku
stúlkurnar
sigruðu
DANMÖRK sigraði HoIIand
með 18 mörkum gegn 11 í
landsleik í handknattleik
kvenna sem fram fór í Kaup-
mannahöfn um síðustu helgi.
Leikur þessi var liður f undan-
keppni heimsmeistarakeppni
kvenna í handknattleik, og má
segja að með þessum sigri séu
dönsku stúlkurnar vel á veg
komnar að tryggja sér þátt-
tökurétt f lokakeppninni.
Leikurinn í Kaupmannahöfn
var mjög jafn lengst af. Hol-
lenzku stúlkurnar höfðu 7—6
forystu í hálfleik, og skömmu
fyrir leikslok var staðan 9—8
þeim í vil. Á lokamínútunum
losnaði hins vegar allt úr bönd-
unum hjá þeim, og dönsku
stúlkurnar skoruðu hvert
markið af öðru.
Sem kunnugt er léku hol-
lenzku stúlkurnar tvo lands-
leiki vió Island í vetur og unnu
báða leikina með eins marks
mun.
hefur byrjaó illa í mótum, en síð-
an sótt sig.
Fyrri hluta leiksins náðu liðin
að sýna nokkurn veginn það bezta
sem í þeim býr, og meðan svo var,
var leikurinn nokkuð jafn og
skemmtilegur. Haukarnir keyrðu
hraðann upp og reyndu að opna
Víkingsvörnina meó fléttum.
Þetta tókst bærilega, og yfirleitt
voru þeir fyrri til að skora og
höfðu reyndar tvö mörk yfir á
tímabili, er staðan var 7:5. En er á
leikinn leið og þeir Haukaleik-
menn sem spilinu höfðu stjórnað
tóku að þreytast datt botninn úr
leik liðsins. Var einkum áberandi
hversu Haukarnir duttu niður, er
Ölafur Ölafsson var ekki lengur í
fullu fjöri, en hann virðist fremur
úthaldslítill. Eftir að Víkingar
höfðu náð tveggja marka forystu
um miðjan seinni hálfleik var
ekki um mikla keppni að ræða, og
mestur munur varó sex mörk.
Eins og verið hefur í vetur voru
það þeir Ólafur, Stefán, Hörður
og Elías sem mest kvað að i
Haukaliðinu, en Ólafur og Elías
voru þó óvenjulega daufir í dálk-
inn i þessum leik og gerðu mörg
mistök, einkum þó Ólafur, sem
skoraði jafnvel ekki úr opnum
færum. Til að byrja með gekk
Herði illa með skot sín, en þar
kom að hann hafði náð rétta sigt
inu á Víkingsmarkið og var þá
ekki að sökum að spyrja. Eins og
svo oft áður nýtti hann fullkom-
lega þröng færi, og skoraði hvert
niarkið af öðru. Virðist svo sem að
því verði tæplega ógnað að hann
verði markakóngur mótsins í ár.
1 þessum leik vöktu tveir aðrir
leikmenn Haukanna sérstaka at-
hygli: Ingimar Haraldsson og
Arnór Guðmundsson. Sá fyrr-
nefndi er mjög ungur að árum, en
hefur geysilega gott auga fyrir
leiknum, og er snöggur og fljótur
að átta sig á þvi hvað er að gerast.
2. Arnór 1:0
3. 1:1 Sigfús
4. Arnór 2:1
5. Ólafur (v) 3:1
7. 3:2 Einar
8. Ingimar 4:2
9. 4:3 Ólafur
10. 4:4 Einar
12. Hörður 5:4
14. 5:5 Einar
16. Hörður 6:5
18. Hörður (v) 7:5
20. 7:6 Einar (v)
22. Hörður 8:6
22. 8:7 Þorbergur
26. 8:8 Einar
28. Hörður 9:8
28. 9:9 Sigfús
29. Stefán 10:9
30. 10:10 Einar (v)
Hálfleikur
33. Ólafur(v) 11:10
34. 11:11 Einar
34. Hörður 12:11
35 12:12 Páll
36. 12:13 Stefán
37. Hörður (v) 13:13
38. 13:14 Stefán
42. 13:15 Jón
43. 13:16 Skarphéðinn
43. Hörður 14:16
45. Stefán 15:16
50. 15:17 Stefán (v)
52. 15:18 Einar
55. 15:19 Skarphéðinn
Mörk Hauka: Hörður Sigmars-
son 9, Ólafur Ólafsson 2, Stefán
Jónsson 2, Hilmar Knútsson 2,
Arnór Guðmundsson 2, Ingimar
Haraldsson 1.
Mörk Víkinga: Einar Magnús-
son 9, Stefán Halldórsson 3,
Skarphéðinn Óskarsson 3, Sigfús
Guðmundsson 2, Jón Sigurðsson
2, Páll Björgvinsson 1, Ólafur
Friðriksson 1, Þorbergur Aðal-
steinsson 1.
Brottvfsanir af velli: Logi Sæm-
undsson, Haukum, í 1. mín., Jón
Sigurðsson, Víkingi, i 2 mín.
Misheppnuð vítaköst: Sigurgeir
Sigurðsson varði vítakast Harðar
Sigmarssonar á 48. mín., Ólafur
Ólafsson skaut framhjá á 54. mín.,
Gunnar Einarsson varði vitakast
Einars Magnússonar á 49. mín.
Dómarar: Hannes Þ. Sigurðsson
og Karl Jóhannsson og dæmdu
þeir yfirleitt mjög vel.
— stjl.
LIÐ HAUKA: Gunnar Einarsson 1, Logi Sæmundsson 2, Svavar
Geirsson 1, Elías Jónasson 2, Ólafur Ólafsson 1, Stefán Jónsson 3,
Frosti Sæmundsson 1, Hörður Sigmarsson 3, Hilmar Knútsson 2,
Ingimar Haraldsson 3, Arnór Guðmundsson 2.
LIÐ VlKINGS: Rósmundur Jónsson 1, Magnús Guðmundsson 2,
Jón Sigurðsson 1, Einar Magnússon 4, Sigfús Guðmundsson 2,
Páll Björgvinsson 1, Stefán Halldórsson 2, Ólafur Friðriksson 1,
Þorbergur Aðalsteinsson 1, Erlendur Hermannsson 2, Skarphéð-
inn Óskarsson 2, Sigurgeir Sigurðsson 2.
Víkingarnir sterkari á enda-
sprettinum