Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 36
nucivsmcnR ^^-«22480 3HoT0tintilaí)i!& nuGivsincnR íg, ^22480 FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 Mestí afladagurinn MESTI afladagur loðnuvertíðar- innar í ár var í gær, en þá til- kynntu 48 skip um samtals 15.100 lestir á tímabilinu frá því á mið- nætti aðfaranótt gærdagsins til kl. 9.30 í gærkvöldi. Aflinn fékkst undantekningarlaust á svonefndu 2. veiðisvæði eða á milli Vestra- horns og Ingólfshöfða, en honum verður landað I höfnum allt frá Keflavfk að vestanverðu til Vopnafjarðar að austanverðu. Heildaraflinn er nú orðinn 146 þúsund tonn. Eftirtaldir bátar tilkynntu um afla i gær: Oskar Magnússon 500, Loftur Baldvinsson 470, Heimir 420, Álftafell 260, örn 300, Svan- ur 340, Keflvíkingur 220, Héðinn 420, Súlan 625, Skírnir 250, Sveinn Sveinbjörnsson 250, Öskar Halldórsson 310, Þorbjörn II. 150, Arnarnes 210, Kristbjörn II. 200, Ásver 200, Ársæll 230, Sæunn 140, Helga II. 270, Þórður Jónsson 360, Grímseyingur 210, Hilmir 370, Víðir 260, Skógey 220, Bergá 35, Sigurbjörg 260, Ljósfari 210, Huginn 400, Bergur 200, Glófaxi 100, Gullberg 420, Gísli Árni 370, Börkur 900, Ásgeir 380, Kópur 200, Ásberg 180, Guðmundur 750, Járngerður 220, Þórkatla II. 230, Náttfari 270, Guðrún 170, Hafrún 250, Reykjaborg 500, Þorsteinn 330, Hinrik 200, Harpa 330, Fífill 600 og Jón Finnsson 410. Nökkvinn ákærður fyrir landhelgisbrot SAKSÓKNARI ríkisins gaf I gær út kæru á hendur skipstjóranum á rækjubátnum Nökkva HU 15 fyrir fiskveiðibrot f janúar s.I. Að sögn Þórðar Björnssonar, sak- sóknara rfkisins, er skipstjórinn kærður fyrir að hafa stundað rækjuveiðar í janúarmánuði s.l. eftir að veiðileyfi sem sjávarút- vegsráðherra hafði veitt faonum til veiða hafði verið afturkallað. Kæran var lögð fram á dómþingi f Hafnarfirði f gær, og stjórnaði þvf Sigurður Hallur Stefánsson, settur dómari f málinu. Mættir voru saksóknari ríkisins, Þórður Alþýðubandalagið: Sendi bróður- legar kveðjur! 1 DESEMBERMANUÐI sl. var haldinn í Búdapest undirbún- ingsfundur fyrir ráðstefnu kommúnistaflokka f Evrópu. Fund þennan sóttu fulltrúar 29 kommúnistaflokka. Meðal þátttakenda voru fulltrúar kommúnistaflokka allra Norð- urlanda, nema Alþýðubanda- lagsins. 1 yfirlýsingu, sem send hefur verið út eftir þennan fund eru í upphafi taldir upp þeir kommúnista- flokkar, sem þátt tóku í ráð- stefnunni, en síðan segir: „Alþýðubandalagið á tslandi sendi fundinum bróðurlegar kveðjur." Björnsson, Ámundi Grétar Jóns- son, skipstjóri á Nökkva, og full- trúi verjanda hans, Öttar Yngv- arsson, en verjandinn, Benedikt Blöndal, gat ekki mætt. Sigurður Hallur Stefánsson tjáði Mbl. f gærkvöldi að hann hefði tilnefnt tvo meðdómendur, þá Þorstein Einarsson og Guðmund Guð- mundsson, fyrrum skipstjóra. Réttarhöldunum verður haldið áfram á mánudag næstkomandi. Morgunblaðinu barst f gær svo- hljóðandi yfirlýsing frá Ámunda Grétari Jónssyni, skipstjóra á mb. Nökkva HU-15: 1 tilefni af ákæru, sem ríkissak- sóknari hefur í dag gefið út á hendur mér vegna meints fisk- veiðibrots, þar sem ég hafi stund- að rækjuveiðar á Húnaflóa eftir að ég var sviptur rækjuveiði- leyfi, vil ég taka fram eftirfar- andi: 1. Eg lýsi mig alsaklausan af ákæruatriðinu. Eg tel mig enn hafa fullgilt rækjuveiðileyfi, þar sem leyfissviptingin byggðist á óheimilum forsendum og var því ólögmæt. 2. Eg tel, að mér hafi aidrei verið sett það skilyrði fyrir rækjuveiðileyfinu, að ég mætti ekki landa aflanum til vinnslu f heimahöfn Nökkvans á Blöndu- ósi, enda sótti ég ekki um rækju- veiðileyfi á þeirri forsendu, og ekkert er um slfkt skilyrði getið f leyfisbréfinu. Og þó að slfkt skil- yrði hefði verið sett mér, væri það kolólöglegt. Það eru margar aldir liðnar sfðan yfirvöld á Islandi hættu að skipta sér af þvf til hvaða staða eða fyrirtækja fs- Framhald á bls. 22 Ljósmynd Ól.K.M. UTGERÐIN — Aukafundur Landssambands fslenzkra útvegsmanna var haldinn að Hótel Loftleiðum í gær og var myndin tekin af nokkrum fundargestum skömmu áður en fundurinn hófst. Aukafundur Landssambands ísl. útvegsmanna: Aframhaldandi taprekstur bl»dr vifi “ Tði ti/-frekari að' UldMl VIU gerða af halfu rikisstjornannnar LANDSSAMBAND fsi. útvegs- manna hélt f gær aukafund sinn sem boðað hafði verið til fyrir alllöngu en jafnan frestað vegna dráttar sem varð á ákvörðun um hið almenna fiskverð. Fundurinn hófst kl. 4 að Hótel Loftleiðum og á honum var gerð einróma sam- þykkt um viðhorf útgerðarinnar til verðákvörðunar og þeirra efna- hagsráðstafana ríkisins sem þeg- ar liggja fyrir. Segir f samþykkt aukafundarins, að sá vandi sem við blasti um áramótin sfðustu sé jafn óleystur og áður nema sér- stakar aðgerðir komi til. Kristján Ragnarsson, formaður LlU, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann vænti þess að næstu daga yrðu hafnar viðræður um það hvernig þessi vandi yrði leystur. Utgerðarmenn gerðu sér grein fyrir að einhverra tafa mætti vænta vegna þings Norðurlanda- ráðs hér á landi en þeir vonuðust til að áfram yrði haldið að reyna að finna á málinu einhverja við- unandi lausn. Samþykkt aukafundar LlÚ fer annars hér á eftir: Aukafundur Landssambands fsl. útvegsmanna, haldinn í Reykjavík-13. febrúar 1975, ítrek- ar fyrri ályktun sína þess efnis, að fiskverðshækkun ein saman leysi ekki þann rekstrarvanda, sem út- gerðin á við að stríða. Sú fisk- verðshækkun, sem nú hefir verið ákveðin samfara 25% hækkun á söluverði , erlends gjaldeyris hrekkur aðeins fyrir þeim aukna tilkostnaði, sem gengisbreytingin veldur. Sá vandi, sem við blasti um áramótin, er jafnóleystur og áður, nema sérstakar aðgerðir komi til, en frá áramótum hafði vandinn aukizt vegna mikillar hækkunar á verði oliu og vátrygg- ingariðgjalda vegna áhafna- og skipatrygginga. Stjórnvöld hafa ekki skýrt út- vegsmönnum frá öðrum hugsan- legum aðgerðum, sem stuðli að varanlegri lausn á vandamálum útgerðarinnar og ekki hefir verið sýnt fram á, aó gengisbreytingin sem slík feli i sér slíka lausn. Framhald á bls. 22 Einnig galli í Hvalbaki Afstaða stjórnarandstöðu til gengislækkunar: Alþýðubandalagið klofið í þrennt ÞINGFLOKKAR stjórnarand- stöðunnar hafa allir lýst and- stöðu við efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar og þá lækk- un á gengi krónunnar, sem ákveðin var sl. miðvikudag. Al- þýðubandalagið virðist þó vera þríklofið i afstöðu sinni til gengisbreytingarinnar. Lúðvík Jósepsson lýsti yfir því á AI- þingi, að hann væri andvígur gengislækkuninni, hún væri ranglát og auk þess ekki líkleg til þess að leysa þann vanda, sem við er að etja í efnahags- málum. Tveir áhrifamenn i Al- þýðubandalaginu, sem ekki eiga sæti á Alþingi, hafa hins vegar tekið aðra afstöðu til þessa máls. Guðmundur Hjartarson, sem Lúðvík Jósepsson, skipaði á sl. ári bankastjóra Seðlabankans stendur að ákvörðun banka- stjórnarinnar og rikisstjórnar- innar um 20% lækkun á gengi krónunnar. Guðmundur Hjart- arson hefur um áraraðir verið með áhrifamestu mönnum í Al- þýðubandalaginu. Ingi R. Helgason greiddi ekki atkvæði gegn gengislækkun, þegar til- lögur þar um voru bornar undir bankaráð Seðlabankans, þar sem hann situr sem þingkjör- inn fulltrúi Alþýðubandalags- ins. Hins vegar lét hann bóka, að hann gæti ekki greitt at- kvæði með 20% gengislækkun meðan gjaldeyrisvarasjóðurinn væri óvarinn fyrir hömlulausri ásókn. I bókuninni kemur þó ekki fram, að hann sé andvígur Framhald á bls. 22 ATHUGUN á vél Hvalbaks frá Breiðdalsvik leiddi I ljós sams konar galla og fannst í togurun- um Brettingi og Páli Pálssyni. Hins vegar reyndist vél togarans Arnars frá Skagaströnd vera í lagi. Fleiri togarar smíðaðir í Jap- an verða athugaðir á næstunni, t.d. mun Rauðinúpur frá Raufar- höfn koma til Reykjavikur í dag og verður vél hans athuguð. Jap- ansskuttogararnir eru alls 10 tals- ins. Búið er að hafa samband við framleiðendur vélanna úti i Jap- an, og eru sérfræðingar frá þeim væntanlegir hingað. Að sögn Sigurðar Guðmunds- sonar, útgerðarstjóra Hvalbaks hf. á Breiðdalsvik, fundust stál- flisar í legum aflvélar Hvalbaks þegar hún var athuguð, en þangað höfðu þær borizt með smurningu. Þarf að rífa vélina í sundur, skipta um allar legur og hreinsa vélina rækileg’a. Er búið að panta varahluti frá Japan. Það var Rannsóknastofnun iðnaðarins sem gerði athugun á vél Hval- baks. Hvalbakur lá i Reykjavík vegna bilunar í spili og var því tækifærið notað til að kíkja á vél- ina. Það getur tekið allt að mánuð að gera vél togarans upp. Sigurð- ur sagði, að þetta stopp kæmi sér ákaflega illa fyrir bæði Breiðdals- vík og Stöðvarfjörð. Lægi mest allt athafnalif niðri á meðan tog- arans nyti ekki við. Sveinn Ingólfsson, fréttaritari Mbl. á Skagaströnd, sagði í gær, að sem betur fer hefðu allar legur í vél skuttogarans Arnars reynzt í lagi. Vélin yrði þó athuguð nánar áður en skipið héldi á veiðar. Nýtt loðnu- verð 16. febrúar STRAX OG búið var að til- kynna um gengisfellinguna sögðu seljendur loðnu upp nú- verandi lágmarksverði á loðnu til bræðslu, en það er bundið gengisákvæðum. Verðlagsráð sjávarútvegsins fjallaði þegar um málið í gær, en nýtt verð var ekki ákveðið á þeim fundi. Að sögn Sveins Finnssonar, framkvæmdastjóra Verðlags- stjóra sjávarútvegsins, á hið nýja loðnuverð að taka gildi 16. febrúar n.k., en þann dag átti verð á loðnu til bræðslu að lækka í kr. 1.90 kílóið, en það er nú kr. 2.05 kílóið. Þá sagði Sveinn að núgild- andi verði á rækju og hörpu- diski hefði einnig verið sagt upp af hálfu seljenda. Hann sagði ennfremur að ekki yrði lokið við að reikna út verð á bolfiski fyrr en síðdegis i dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.