Morgunblaðið - 27.03.1975, Page 1
96 SIÐUR (TVO BLOÐ)
70. tbl. 62. árg.
FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
lögö í ómerkta gröf. Aður en kon-
ungur var jarösettur söfnuöust
syrgjendur saman i gríöarstórri
opinni mosku og báöu fyrir hin-
um látna konungi, og blessuöu
störf hans fyrir þjóð sina. Flestir
voru klæddir hvitum búningum
meö rauðan höfuöbúnaö. Konur
sáust hvergi á f erli viö útförina.
Flestir leiötoga Araba tóku þátt
í sorgarathöfninni og gættu lítt að
öryggi sínu, en mjög mikill og
strangur vöröur var þó um
Hussein Jórdaniukonung og Yass-
er Arafat skæruliöaforingja. Áö-
ur en greftrun fór fram var at-
höfn í moskunni og sátu þar sam-
an Sadat Egyptalandsforseti,
Boumedienne, forseti Alsír, og
Assad Sýrlandsforseti. Ræddu
þeir síðan saman hljótt. Idi Amin,
forseti Uganda, kom til athafnar-
innar með byssu við belti sér og
ungan son sinn sér vió aðra hönd.
Mohammed II krónprins Marokkó
gekk meðal þeirra fremstu í göng-
unni frá moskunni til grafreits-
ins.
I kvöld var ekki ljóst hvort
Khaled konungur myndi ræða
Framhald á bls. 47.
Eiturskipið
rekið á brott
Las Palmas, 26. marz
— Reuter.
FINNSKA flutningaskipinu
Enskeri, sem flytur banvænt
arsenikeitur, var bannaö aö koma
til hafnar í Las Palmas á Kan-
arfeyjum af heryfirvöldum á
staðnum. Enskeri, sem er I eigu
olfufélags finnska rfkisins, Neste,
var synjaö um leyfi til aö losa
hinn 100 lesta eiturfarm sinn í
hafið á þessum slóðum fyrir
tveimur dögum, aö því er embætt-
ismenn f Las Palmas sögðu. Var
skipinu vísaö um 90 mflur út frá
eyjunum, og var ekki vitað hver
yröi næsti áfangastaöur þess.
Saigon, Da Nang,
26. marz Reuter.
* I FRÉTTASKEYTUM Reuter
fréttastofunnar f kvöld var frá því
skýrt að hin fornfræga keisara-
borg Hue væri fallin í hendur
herliðs Þjóðfrelsishreyfingarinn-
Nýr fróðleikur um
V ínlan dsf erðirnar:
Kólumbus leit-
aði upplýsinga
hjáMendingum
FERÐUM norrænna víkinga
til Amerfku lauk ekki við
Virginíu- og Karólfnufylki á
austurströndinni, eins og
margir fræðimenn hafa hald-
ið, heldur sigldu þeir þvert á
móti fyrir suðurodda Flórída-
skaga og inn á Mexicoflóa, auk
þess sem þeir gengu á land á
Bahamaeyjum og fleiri eyjum
á Karfbahafi. Þetta kemur
m.a. fram f grein frá NTB-
fréttastofunni eftir Helge Giv-
erholt þar sem fjallað er um
nýútkomna bók norska rithöf-
undarins Káre Prytz, „Lykke-
lige Vinland", en auk ofan-
nefndra upplýsinga segir
greinarhöfundur ýmislegan
nýjan fróðleik að finna í bók-
inni um ferðir vikinganna og
Kólumbusar til Vfnlands.
I greininni segir Giverholt
m.a. að enginn vafi sé á því að
Kólumbus hafi farið til Islands
til að afla sér frekari upplýs-
inga um hið auðuga land sem
víkingarnir fundu í vestri. I
bók sinni tímasetur Prytz
þessa Islandsheimsókn með
gildum rökum árið 1477. Þá
eru á kortum sem varðveitzt
hafa, m.a. kortinu sem Kólum-
bus sigldi eftir árið 1492, bæði
Flórida og Kúba merkt inn á,
og hljóta þau því að byggjast á
þekkingu Norðurlandabúa.
Einnig færir Prytz rök að því
að mörg norræn nöfn á Norð-
ur-Ameríku hafi verið tekin
upp i breyttri mynd af hinum
nýju landnemum frá megin-
landi Evrópu, og rekur hann
t.d. „Vinland hið rauða'* til
Kúbu, þar sem það skýtur oft
upp kollinum í umbreyttum
myndum.
ar. Drógu þeir fána sinn að húni
þar sfðdegis.
if Þá var Ijóst að Danang, sem er
næst stærsta borg Suður Vfetnam
er algerlega einangruð á landi og
var eldflaugaárás gerð á borgina í
dag og létust þá sex óbreyttir
borgarar og um 40 særðust.
Ólýsanleg ringulreið og skelfing
er meðal borgara f Danang eftir
að fréttist um að herir Þjóð-
frelsishreyfingarinnar nálguðust
borgina óðfluga. Brottflutningur
manna með flugvélum hófst í
kvöld.
Van Thieu, forseti Suður
Vfetnam, kom tvfvegis fram f út-
varpi f dag og ávarpaði þjóð sfna.
Beindi hann máli sfnu til hersins
f því fyrra, en í hinu síðara til
óbreyttra borgara. Hann viður-
kenndi að mikill hluti mið-
hálendis landsins, svo og mestur
hluti norðurstrandar landsins
væri fallinn, en varnarlína yrði
dregin við Danang og eggjaði
hann stjórnarhermenn til að
berjast til síðasta manns, ef með
þyrfti til að Danang félli ekki.
Thieu sagðist hafa gert ráð-
Framhald á bls. 47.
Khaled
konungur: j 9
MUN FRAMFYLGJA
STEFNU BROÐUR MINS”
Riyadh, 26. marz. Reuter.
KHALED konungur Saudi
Arabíu hét þjóð sinni f dag að
fylgja fram þeirri stefnu, sem
bróðir hans, Feisal, hefði markað.
Hann sagði að Feisal hefði lagt
hornsteininn að góðri sambúð við
aðrar þjóðir og hann hefði hug á
þvf að halda starfi hans áfram og
vfkja ekki frá stefnu hins látna
konungs í neinu. Flutti Khaled
konungur þjóðinni þennan stutta
boðskap sinn fáeinum stundum
eftir að Feisal hefði verið borinn
til grafar.
— Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum frá Riyadh i kvöld er
morðingi konungs, Feisal Ibn
prins,26 ára gamall, á lífi og er í
stöðugum yfirheyrslum sem hinn
nýi konungur og krónprinsinn
Fahd hafa yfirumsjón með.
Um eitt hundrað þúsund undir-
sátar hins látna konungs fylgdu
honum til grafar og voru allir
harmþrungnir og létu óspart í ljós
hryggð sína. Fjöldi erlendra
Arabaleiðtoga og trúarleiðtogar
Múhammeðstrúarmanna, svo og
fulltrúar frá fjölda mörgum ríkis-
stjórnum hvaðanæva að komu til
Riyadh til að vera við útförina.
Rockefeller, varaforseti Banda-
rikjanna, var fulltrúi Fords. Sam-
úðarkveðjur hafa haldið áfram að
berast og morðið á Feisal hefur
verið harmað mjög um allan
heim.
Menn gengu á eftir kistunni
sem að trúarsið landsmanna var
Enn hafnbann í
tveimur höfnum
London, 26. marz. Reuter.
FRED Peart, landbúnaðarráð-
herra Breta, fagnaði f dag þeirri
ráðstöfun Norðmanna að ákveða
nýtt lágmarksverð á frystum fisk-
afurðum sem þeir selja til Bret-
lands og kvaðst vona að sjómenn
hættu að loka höfnum til að mót-
mæla erlendri samkeppni.
Brezkir sjómenn og fulltrúar þeirra ræða við Fred Peart landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra f
ráðuneyti hans um löndunarbannið. Til vinstri við hann er Denis McKenny, formaður samtaka sjómanna
f South Humberside, og til hægri er George Crawford, formaður samtaka sjómanna í Northumberland.
Hið nýja lágmarksverð Norð-
manna tók gildi í dag, nær það
bæði til þorsks og ýsu og er hærra
en núverandi markaðsverð á
Bretlandi. Peart ráðherra hrósaði
Norðmönnum fyrir þessa ráðstöf-
un sem hann kallaði „jákvætt
skref“ og sagði að þar með þyrftu
Bretar ekki að biðja Efnahags-
bandalagið að gripa til aðgerða til
að „verja markaðinn í Bretlandi."
Peart tók skýrt fram í yfir-
lýsingu i Neðri málstofunni að
„skjótra ráðstafana" væri ekki að
vænta til að verða við kröfum um
útfærslu tólf mílna landhelgi
Breta. Hann kvaðst hafa tekið
„fullt tillit“ til skoðana sjómanna
á hugsanlegri útfærslu á fundi
með þeim í gær en „tekið skýrt
fram að stjórnin mundi ekki grípa
til einhliða ráðstafana eða taka
fram fyrir hendurnar á hafréttar-
ráðstefnunni í Genf.“
Sjómenn halda áfram hafn-
banni sínu i Grimsby og
Immingham þrátt fyrir dómsúr-
skurð um að hætta því, en það
hefur verU stöðvað í Hartlepool
Framhald á bls. 47.
Hue fallin - Danang
er í hættu
Varnarmálaráðherra Saudi
Arabiu (t.h. á myndinni) Sult-
an ben Abdul Aziz prins og
nokkrir aðrir úr konungsfjöl-
skyldunni sjást hér bera kistu
Feisals konungs í áttina að
greftrunarstað hans i Raid f
gær.