Morgunblaðið - 27.03.1975, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
Tt 21190 21188
LOFTLEIOIR
<g
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIONEER
Útvar'' og stereo, kasettutæki
FERÐABÍLAR h.f.
Bílaleiga, sími 81260.
F ólksbíkar — stationbílar
— sendibilar — hópferðabilar.
Hópferðabílar
8—21 farþega i lengri og
skemmri ferðir.
Kjartan Ingimarsson.
Simi 861 55 - 3271 6 - 37400.
Afgreiðsla B.S.Í.
MAQNÚS HHWII
VEITA • LETIIR • ÞÉTIIR
HLJÓÐLAUSIR • TVÖFAIT GLER
VIÐUR INNI • MALMUR ÚTI
STILLANLEG OPNUN • ÖRYGGI
NÝTT I • 6 STAROIR • NÝTT I
þakgluggar
j^KEFlAVh^^^lMM’2)3075i
MARGFALDAR
ÍÍÍ]IIÍ!
MARGFALDAR
2llt>vöimí>Intot»
URSLITALEIKUR Reykja-
vfkurmótsins 1 bridge verður
spiiaður laugardaginn fyrir
páska, 29. marz, í DOMUS
MEDICA.
Þar munu sveitir Þðris
Sigurðssonar, núverandi
Reykjavfkur- og íslandsmeist-
arar, og Hjalta Elíassonar
heyja 64 spila einvfgi um
Reykjavfkurmeistaratitilinn
1975. Sveit Þðris skipa auk
hans Hallur Símonarson,
Sfmon Sfmonarson, Stefán
Guðjohnsen, Hörður Blönda)
og Páll Bergsson. Sveit Hjalta
skipa auk hans Asmundur Páls-
son, Einar Þorfinnsson, Guð-
laugur R. Jóhannsson og örn
Arnþðrsson.
Urslitaleikurinn verður allur
sýndur á sýningartöflu og spil-
in skýrð fyrir áhorfendum.
Leikurinn hefst kl. 13.30 á
laugardag og verða þá spiluð
fyrri 32 spilin, en seinni lotan
hefst kl. 20.00 sama kvöld. Að-
gangur kostar kr. 500.- fyrir all-
an leikinn.
(Frá Bridgesambandi
Reykjavfkur)
Firmakeppni Hins Islenzka prentara-
félags lauk sl. sunnudag og sigraði
„Blandan „75“ en það var blönduð
prentarasveit sem spilaði fyrir ríkisprent*
smiðjuna Gutenberg. Hlutu þeir félagar
51 stig.
Röð annarra firma varð þessi:
Prentsmiðjan Hólar 33
Morgunblaðið 30
Félagsprentsmiðjan 6
Spilað var ( félagsheimili prentara.
Keppnisstjóri var Guðmundur Grétars*
son.
XXX
Meistaramðti Suðurnesja f
sveitakeppni er nýlega lokið og
sigraði sveit Guðmundar
Ingðlfssonar með 69 stig af 100
mögulegum. Aðeins 6 sveitir
tðku þátt í keppninni. 1 sveit
Guðmundar eru ásamt honum
Alfreð G. Alfreðsson, Skúli
Thorarensen og Hreinn
Magnússon.
Röð annarra sveita varð þessi:
Sveit Einars Jónssonar 60
Sveit Marons Björnssonar 49
Sveit Vals Sfmonarsonar 41
Sveit Óskars Pálssonar 35
Sveit Sigurðar Þorsteinssonar 30
Næsta keppni félagsins verður ein-
menningskeppni og hefst hún fimmtudag-
inn3apr"- XXX
BRIDGEFÉLAG KVENNA:
Eftir 9. umferð af 13 f aðal-
sveitakeppni félagsins, eru nú
eftirtaldar sveitir efstar:
Hugborg Hjartardóttir stig 155
Gunnþórunn Erlingsdóttir 150
Elfn Jónsdóttir 113
Margrét Ásgeirsdóttir 109
Guórún Bergsdóttir 109
Sigrfóur Ingibergsdóttir 106
Margrét Margeirsdóttir 97
Þess skal getið, að sveitir Margrétar
Ásgeirsdóttur og Aðalheiðar Magnúsdótt-
ur er ólokið, og hafa þvf þær sveitir spilað
aðeins 8 leiki. 10. umferð verður spiluð
þriðjudaginn 1. aprfl n.k., og hefst kl. 8
stundvfslega f Domus Mediea.
A.G.R.
Að horfa á hann
Er skáldið ekki að birta okkur
kaldhæðni trúleysingja og spott-
ara, fyrirlitningu á ráðningu gát-
unnar um endanleg örlög okkar?
Gerir það ekki grátt gaman að
þeirri lausn kristinnar trúar, sem
vísindin skýra ekki? Vegna þeirra,
sem kunna að hugsa eitthvað á þá
leið. að hér sé ósæmilegur kveð-
skapur þarflaus, vil ég vitna til
eftirmæla æðsta manns þjóðkirkj-
unnar um skáldið: „( list sinni
mátti hann engu una, sem var litlu
goldið, auðsótt, nærtækt,
áreynslulitið. Það eitt var gilt, sem
var ferskt í framrás sinni, skírt úr
deiglunni og þannig tjáð, að það
hafði ekki verið áður sagt." Þessi
umsögn kemur vel heim við Ijóðið,
sem er forsenda hugleiðingar um
dapurlegasta og skuggalegasta at-
burð veraldarsögunnar. Og ef við
gáum vel að, þá segir það ekkert,
sem bendir til neikvæðra skoðana
skáldsins á kristinni trú og gildi
hennar fyrir okkur. Kvæðið er
samhljóða spádómsorðum Jesaja
um Messtas: „HANN VAR FYRIR-
LITINN." En t stað framhaldsorð-
anna, „OG MENN FORÐUÐUST
HANN," segir Steinn: MENN
FARA „TIL ÞESS AÐ HORFA A
HANN." Það er beizkur sannleikur
um öld okkar, að þjáning með-
bræðranna af ofbeldissökum vek-
ur i mörgum tilvikum tilfinninga-
snauða forvitni vegna margslung-
ins og magnaðs áróðurs til múg-
sefjunar og sökum misbeitingar á
tækni. Efnishyggjan gróðursetur
yfirþyrmandi tómlæti í sálir barn-
anna. Menn verja jafnvel fjármun-
um til að horfa sljóum augum á
niðurlægingu og fúnandi siðferði í
öðrum menningarlöndum. Börnin
okkar geta horft á lesti, á morð og
blóðsúthellingar á sjónvarps-
skermi og kvikmyndatjaldi, og þau
hryllir ekki lengur við voveifleg-
ustu glæpum, verða ekki upp-
næmari fyrir þeim en hversdags-
legri misklið t leikjum sínum.
„Hver skaut hann?" spurði
hnokkinn, sem frétti lát frænda
stns, gamals manns i friðsælu
þorpi vestur á landi. „Og stúlka
með sægræn augu segir við mig:
Skyldi manninum ekki leiðast að
láta krossfesta sig." Þarna birtist
tómlætið f hnitmiðaðri og
ömurlegri mynd. Ef til vill
hafði hún séð eitthvað svipað
í btó áður. Steinn Steinarr talar
þvt máli, sem kemur við sálar-
kviku nútímamannsins. Skáld-
Teikning eftir Jón Engilberts
ið snauða og bituryrta stóð
nær krossinum og sá betur en
ýmsa fróma og settlega grunaði.
Kristur er okkur nær, eftir að við
höfum lesið einfaldar Ijóðlfnur
Steins; mynd hans á þjáningar-
veginum er felld skýrari inn t
hugarheim okkar. Á sama hátt og
evrópskir myndlistarmenn klæddu
atburði Bibltunnar t búning að
tízku samttðar sinnar, eins og t.d.
snillingurinn Dúrer, sem hafði
þýzkar sveitir og borgir að um-
gjörð, þannig flytur skáldið,
Steinn. frelsarann f islenzkt um-
hverfi nútímans. Krossinn stendur
úti á Seltjarnarnesi og véladynur
allt um kring. Og þaðer sólskin og
seltuangan berst utan af flóanum.
Ljós og Itf á næsta leiti við þjáning
og dauða. Atburðurinn á Golgata
er Itfgefandi, og sólaruppkoman er
eins og dauf mynd af honum;
sólaruppkoman, sem i dag er
sama guðdómsundrið hvort heldur
er á Seltjarnarnesi eða i
Jerúsalem, sama guðsgjöf og hún
var fyrir 2000 árum. — Hvers
metum við dagsbrún eilifðarinnar.
Hvers metum við sigur Jesú Krists
á synd og dauða. þegar á reynir?
Við getum svarað þvi til, að um
þessar mundir sé kærleiksfórnar
hans minnzt og hún þökkuð um
allan hinn kristna heim. En undir
niðri finnum við glöggt að svarið
nær skammt. Áhrifin frá þessum
minningardögum eru af mörgum
skilin eftir innan við þröskuld
helgidómsins. Verst allra meina,
sem lama framsókn kirkjunnar,
eru tómlæti og áhugaleysi, sem
ekki skortir, þótt heimurinn hafi
aldrei verið í meiri þörf fyrir boð-
skap Jesú Krists, en einmitt nú,
bæði til innri og ytri friðar. Hann
einn getur gefið okkur þær sigur-
vonir, sem i kærleika yfirstíga allt
mótlæti. Hann gekk þjáningaleið-
ina til enda í ýtrustu hlýðni við
vilja Guðs. Vegna þeirrar göngu
hans lítur Guð okkur mildum aug-
um. Sú er hin mikla gjöf föstu-
dagsins langa og páskanna, sem
verðskuldar ekki það tómlæti, að
við spyrjum áhugalaus með stúlk-
unni: „Skyldi manninum ekki leið-
ast að láta krossfesta sig." Guð
gefi, að á vörum okkar brenni
bænin: AUK OSS TRÚ. Guð gefi
okkur blessaða og friðsæla páska-
hátið. —
Sr. BOLLI GÚSTAFSSON í Laufási:
ti^vÁfa
Á Valhúsahæðinni
er verið að krossfesta mann.
Og fólkið kaupir sér far
með strætisvagninum
til þess að horfa á hann.
Það er sólskin og hiti,
og sjórinn er sléttur og blár.
Þetta er laglegur maður
með mikið enni
og mógult hár.
Og stúlka með sægræn augu
segir við mig:
Skyldi manninum ekki leiðast
að láta krossfesta sig?
(Passíusálmur nr. 51,
Steinn Steinarr).