Morgunblaðið - 27.03.1975, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
10
Miðbær Hafnarfjarðar 1924, þegar Hellyer kom til Hafnarfjarðar Stóra húsið fremst til vinstri er það sama
hús og Jón Mathiesen byrjaði að verzla í. í litla húsinu við hliðina á því verzlaði þá Ólafur Runólfsson.
Kubbslega húsið með flata þakinu hét Arahús. Lengra frá sér á gaflinn (gluggarnir hvítmálaðir) á
Bergmannshúsi, en þar er nú Hafnarfjarðarbíó.
Fiskbreiðsla á fiskreit þar sem nú stendur Sundhöll Hafnarfjarðar eða þar um bil. Myndin tekin 1915.
Fiskverkunarstöð Bookless Brothers — nafnið er málað á þak stöðvarinnar. — Bátabryggjan er framundan.
Myndin tekin árið 1913.
Horft yfir salthús Bæjarbryggjunar — árið 1915.
Verkafólk hjá Hellyer leggur upp frá Flatahrauni sumarið 1924 í skemmtiferð til Þingvalla. Fyrsta bflnum,
(sem var fyrsti kassabfllinn sem ók milli Reykjavfkur og Hafnarfjarðar) ók i þessari ferð eigandinn Magnús
Guðjónsson. sem hefur verið starfsmaður fyrirtækisins Natan & Olsen í mörg ár. Þrfr þeirra, sem f fyrsta
bflnum óku, eru nú á lífi, Magnús, GeirZoega og Gísfi Sigurgeirsson.
„FJÖRÐ-
URINN”
— fyrir
fjölda
ára
ÞESSAR gömlu myndir frá
Hafnarfirði eru úr merkilegu
ljósmyndasafni, sem brezki
togaraútgerðarmaðurinn og
saltfiskframleiðandinn Bookl-
ess tók í Hafnarfirði. Flestar
myndanna I safninu eru tekn-
ar á fyrstu árum aldarinnar.
Bookless hóf fiskkaup hér og
saltfiskverkun í Hafnarfirði
árið 1909 eða 10. Bookless
Brothers hét fyrirtækið en það
varð gjaldþrota 1919. Hægri
hönd Bookless var Þórarinn
Egilson í Hafnarfirði. Stöðina
keypti svo árið 1924 annað
brezkt útgerðarfyrirtæki,
Heliyers Brothers. Þeir ráku
stöðina til ársloka 1929. Var
Geir Zoega framkvæmdastjóri
Hellyers-bræðra meðan þeir
ráku stöðina. Myndasafnið sem
hér um ræðir, sendi ekkja
Dried Fish. Smoked Fish.
Gurers and Exporters
to all parts of the World.
DRIED FISH—
Drled Un*.
Drird Haddooka.
Drled Saithe.
Dried Tnak.
Ubrador (Ieeland)
SMOKED FISH—
Red Herrinfa. Golden Herring*. Silrer Herrind*.
Head Offioe:
BOOKLESS BROS.,
ABERDEEN.
Curing Stations :
HAFNARFJORD, ICELAND.
YARMOUTH, ENGLAND.
Telegrame: "BtoKLEis, AnKRDEKN.”
Auglýsing frá Bookless Brothers.
Vera má að á skjaldarmerkinu
megi greina á sporði saltfisksins
bókstafina B.B. Neðst má lesa
Curing Stations: Hafnarfjord, lce-
land. Yarmouth, England.
Bookless á sínum tíma til
Hellyers, en frá Hellyers-
bræðrum fékk Geir mynda-
safnið sent. Safnið varð fyrir
nokkrum skemmdum I heims-
styrjöldinni síðustu I loftárás á
Hull er rnyndasafnið skemmd-
ist af vatni í slökkvistarfinu.
Tveir kunnir borgarar Hafnarfjarðar: Til hægri Gunnlaugur Stefánsson
kaupmaður, nú í hárri elli, og með honum Ólafur H. Jónsson
kaupmaður, löngu látinn. Kolaportið var Geirs Zoega.
Þennan mann þekktu allir Hafn-
firðingar i gamia daga. Þetta er
Gisli sem kallaður var Gisli lóðs.
Hann var jafn£ramt hafnsögu-
mannsstörfum fiskmatsmaður,
„Government Sorter" hefur
Bookless skrifað aftan á mynd-
ina. Sonur hans var Jón heit.
Gíslason útgerðarmaður. Gisli var
mjög mætur maður.
Á hafskipabryggjunni. Við bryggj-
una er togarinn Lord Fischer. Til
hægri með enska húfu er Jón
Oddsson skipstjóri togarans, sem
hann keypti næsta ár. Jón var
brezkur þegn en fluttist aftur
hingað heim og lézt hér. Hann
reit endurminningar sinar. Það er
„tjalli", skipstjóri af öðrum
togara, sem Jón er að tala við.
Þessi mynd er frá árinu 1924.