Morgunblaðið - 27.03.1975, Page 13

Morgunblaðið - 27.03.1975, Page 13
13 minna en ég hefói átt aó gera með tilliti til þess aö fáeinum árum síðar var byggð á þessu svæði að miklu leyti úr sögunni. Enda þótt Hjálmar væri einn síns liðs, sóttist honum ferðin vel. Hann kom niður í Látravík að Hornbjargsvita, og þar skildi hann eftir tjaldið, sem honum þótti þá vera orðið æði þung byrði. „Eftir það fékk ég ýmist að sofa í húsum hjá bændum á þess- um slóðum eða ég svaf undir berum himni í svefnpokanum. Á þremur vikum gekk ég allar Strandir i Steingrímsfjörð, var þó sumstaðar ferjaður yfir firði og stöku sinnum var settur hestur undir mig. Þessu næst gekk ég yfir Steingrímsfjarðarheiði og kom niður í Djúpið hjá Arn- gerðareyri." Hugur Hjálmars stefndi til framhaldsnáms erlendis, en ástandið í gjaldeyrismálum heima fyrir var með þeim hætti að ekki gat af því orðió fyrst um sinn. „Veturinn eftir stúdentspróf var ég heima á ísafirði, var við nám í tréskipasmiði og lenti í þeirri ein- kennilegu aðstöóu að vera um leið kennari og nemandi i sama bekk við sama skóla — Iðnskólann á isafirði. En i janúar 1940 komst ég þó út til Kaupmannahafnar með Gullfossi.“ Sú ferð er töluvert sögufræg, enda hefur Hjálmar sagt frá henni í máli og myndum á öórum stað. Skipið var 3 vikur á leiðinni og var fyrst farið til Kirkwall á Bretlandi, síðan til Björgvinjar, og siglt innan skerja þaðan til Oslófjaróar. Áfram var haldið, en undan Kullen festist skipið í is og losnaði ekki fyrr en eftir tiu daga. „A þessum árum var ég eins og fleiri ungir menn með flugvéla- dellu og var satt að segja staðráð- inn i að leggja fyrir mig flugvéla- verkfræði. Helzt var ég að hugsa um að komast til Þýzkalands í það nám, en eftir að til Kaupmanna- hafnar kom fékk ég vinnu við flugvélasmíði á vegum danska flotans til að byrja með, og vann við það þegar Þjóðverjar tóku Danmörku. Þótti mér þá heldur óráðlegt að halda til Þýzkalands, en sótti i þess stað um inngöngu i verkfræðiháskólann i Kaup- mannahöfn og fékk þar aðgang haustið 1940.“ Hjálmar hélt áfram að taka ljós- myndir, og hann komst fljótlega í kynni við danska áhugamenn um ljósmyndun. „Það var mikið Iíf í dönskum ljósmyndaklúbbum og áhugafélögum á þessum árum. Ég var gerður að heiðursfélaga heild- ar-samtaka danskra áhugaljós- myndarafélaga og það lagði á herðar mér þá kvöð að fara á milli félagsmanna um landið halda er- indi og leiðbeina þeim og dæma myndir sem klúbbfélagarnir voru að vinna að. Hafði ég mjög gaman af þessum ferðalögum og lærði auk þess töluvert af þeim sjálf- ur.“ Hjálmar hélt enn tryggð við landslagsmyndirnar, en var nú einnig að fást við ýmsar sérstakar myndir, t.d. persónumyndir og þó alveg sérstaklega svonefndar „table-top“-myndir eða sem við getum kallað borðstillingar. Ég komst í kynni við danskt útgáfu- fyrirtæki, sem hvatti mig mjög til að taka saman bók um „table- top“-aðferðina. Varð ég við þess- um tilmælum, enda lítið til af „litteratúr" um ljósmyndun í Danmörku um þetta leyti en þessi aðferð hins vegar mjög hentug við aðstæður þessara tíma, þegar fólk varð að halda sig mikið inni við. Er líka skemmst frá því að segja að bókin hlaut hinar beztu viðtökur." islenzkir námsmenn i Kaup- mannahöfn fengu fjárhagslega fyrirgreiðslu hjá sendiráóinu eft- ir að Danmörk var hernumin. Þeir fengu um 200 krónur dansk- ar á mánuði i gegnum sendiráðið en sparsemi var nauðsyn til að láta endana mætast. Eins og gefur að skilja hefur Hjálmar því vart mátt sjá af einum eyri þessa náms fjár i ljósmyndunina, svo aó hann varð að finna aðra leið til að standa undirþessari ástríðu sinni. Og þá leið fann hann í Mandens blad. „Þetta var danskt mánaðar- rit, aðallega helgað verzlunar- og viðskiptalifi en i því var einnig fastur þáttur um ljósmyndun. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 Myndskreyttar greinar um ljós- myndun voru vel þegnar en auk þess vildu útgefendur blaðsins hafa slagsterka forsíðumynd og ég lét þeim fyrst i té mynd og mynd. Hins vegar æxluðust málin á þá lund að ég varð ábyrgur fyrir uppsetningu forsíðunnar i heilt ár. Eg hafði oftast þann háttinn á, að ég skipulagði forsiðuna fram í tímann, rissaði forsíðumyndina upp og vann myndina siðan út frá þvi. Um áramót eitt sinn greip ég þannig til „table- top“-aðferðarinnar og lét gamla ártalið vera að brenna en smápúk- ar úr pipuhreinsurum að setja það nýja upp. i annað skipti vildi ég sýna vorkomuna og fékk þá ballettdansmey frá Konunglega ballettinum til aó stiga dansspor innan um blómaskrúða. Ég fékk 25 krónur fyrir fyrstu forsíðu myndirnar en 200 kr. fyrir þær síðustu, svo að ég gat látið þetta standa að verulegu leyti undir ljósmyndaiðkun minni, en hafði 200 krónurnar frá sendiráðinu óskertar til að lifa af.“ Hjálmar tók þátt í ýmsum sýn- ingum i Danmörku og eins i Sví- þjóð þar sem hann skrifaði einnig greinar í sænsk ljósmyndatímarit um sérfræðileg efni. Um þetta leyti var Hjálmar farinn að geta sér töluverðan orðstír i Dan- mörku, kom til dæmis danskt kvikmyndafyrirtæki að máli við hann og vildi ráða hann sem kvik- myndatökumann. „Sannast sagna var mjótt á mununum að ég slægi til en að ihuguðu máli ákvað ég samt að ljúka fyrst við skipaverk- fræðina. Hins vegar hét ég for- ráðamönnum danska kvikmynda- fyrirtækisins að ráða mig ekki annað fyrr en ég hefði talað við þá — yrði það úr að ég legði verkfræðina ekki fyrir mig að námi loknu.“ Skipaverkfræðin varð ofan á, eins og flestum mun kunnugt, og Hjálmar hélt heim til islands eft- ir að hafa starfað ytra um tima að námi loknu. „Fyrst eftir að ég kom heim hélt ég áfram að fást við ýmsar greinar ljósmyndunar- innar, ljósmyndaði m.a. til gamans i Þjóðleikhúsinu um tima og vann áfram að ýmsum til- raunum í ljósmyndun. En eft- ir þvi sem dvölin hér heima lengdist, kom það eins og af sjálfu sér að ég fór æ meir að snúa mér aftur að landslags- myndunum. Má segja að ég hafi tekið upp þráðinn þar sem ég hvarf frá við utanferðina og sam- einaði nú aftur áhugamálin tvö — ljósmyndunina og náttúruskoðun- ina. Hef ég haldið mig við hvort tveggja allt siðan, gerzt félagi L Jöklarannsóknafélaginu og Surts- eyjarfélaginu og farið með þeim margar skoðunarferðir, sem um leið hafa orðið mér ómetanlegar sem ljósmyndara." Ljósmyndabækur Hjálmars bera vitni veru hans í þessum félögum báðum, en bækurnar eru allar þrjár helgaðar íslenzkri náttúru og þá ekki sizt þessum höfuðeinkennum hennar — eldin- um og isnum. „Fyrsta bókin sem ég tók saman með myndum af Islandi var „island farsælda frón,“ sem út kom 1953—54. önn- ur i röðinni er svo ísland, sem út hefur komióitveimurútgáfum og er með texta á 6 tungumálum en þriðja bókin — Is og eldur, sem út kom fyrir fáeinum árum, er þó tvímælalaust mitt meginverk á þessu sviói. Ég hafði unnið að henni í 8 ár samfleytt svo aó segja, þar sem ég gerði drög að henni strax í upphafi og vann síðan gagngert eftir þeim allan þennan tima." Hjálmar segir, að fyrir bragðið sé þessi bók ekki einungis hugsuð sem safn mynda frá Islandi held- ur hafi hann leitast við að vinna úr efniviðnum eina samstæða heild. „Ég er að lýsa þessum and- stæðum náttúru landsins, sem heiti bókarinnar gefur til kynna og frásögnin hefst á hafisnum sem gaf landinu heitið, en síðan fetar myndavélin sig áfram eftir islenzkum náttúrueinkennum — um jöklana, snjóinn, isinguna, vatnið.þaðan yfir i heita vatnið og endar á Surtseyjargosinu og elds umbrotunum í Heklu. Lokaorð bókarinnar eru þannig, að landið hefði allt eins vel getað hlotió nafnió Éldland eins og Ísland." Hjálmar kveðst einnig hafa lagt mikla áherzlu á uppbyggingu og útlit þessara bókar og leitast við að hafa hverja opnu sem mynd- ræna heild, þar sem þess væri gætt a,ð hver ljósmynd nyti sín til Framhald á bls. 25. Hollendingurinn fljúgandi nefnist efri myndin og er dæmi- gerð „table-top“-mynd eða borðstilling. Hjálmar nær fram „malerískum" áhrif- um sem undirstrika leyndarhjúpin í kring- um sögnina um draugaskipið en á neðri myndinni sést úr hverju Hjálmar hefur unnið sjálfa myndina — skipslíkan úr pappa og úfinn sjór úr silkikjól, sem fellt er inn f mynd af skýja- fari. Myndirnar eru úr bók Hjálmars, sem gefin var út í Dan- mörku um „table- top-aðferðina.“ Myndirnar tók Hjálmar á Drangajökli með 28 ára millibili — hina efri á hvftasunnudag 1938 en hina neðri á sama stað f ágúst 1966. Til vinstri sést Hrollleifsborg en til hægri Reyðarbunga og séu myndirnar bornar saman má berlega sjá hversu jökkullinn hefur eyðzt á þessum árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.