Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
15
KRISTIN SKULADOTTIR
FRÁ KELDUM 70 ÁRA
Sjötíu ára verður á Páskadag
30. marz Kristín Skúladóttir frá
Keldum á Rangárvöllum. Kristín
er yngsta dóttir hinna merku
hjóna Svanborgar Lýðsdóttur frá
Hlíð í Gnúpverjahreppi og ’Skúla
Guðmundssonar bónda og fræði-
manns á Keldum.
Skúli faðir Kristínar er lands-
kunnur fyrir fræðistörf sín og
lærðir jafnt sem leikir vitna til
athugana hans á íslenzkum forn-
ritum, ekki sizt Njálu. Lands-
kunnur er einnig dugnaður Skúla
við að verja Keldnaland, þegar
sandfok lagði hverja jörðina á
fætur annarri i eyði á Rangárvöll-
um. Viðhald hans á gamla bænum
var til fyrirmyndar og umgengni
öll. Garnli bærinn aðKeldum ernú i
i umsjá Þjóðminjasafns Islands,
þar eð hluti hans, skálinn, er tal-
inn elzta hús á íslandi, frá því um
1200.
Kristín ólst upp með foreldrum
sínum og 5 systkinum. Þrjú
þeirra eru látin: Helga kennari og
húsfreyja á Selalæk, Guðmundur
bóndi á Keldum og Lýður bóndi á
Keldum. Systurnar Þuríður fyrr-
um húsfreyja í Vestmannaeyjum
og Aldís fyrrum húsfreyja á Mó-
eiðarhvoli eru búsettar I Reykja-
vík. Á Keldum ólst líka upp fóst-
ursonur, Engilbert Kristjánsson
sem nú er látinn, síðast bóndi í
Pulu í Holtum. Sigurður Eiríks-
son bóndi á Þingskálum dvaldist
með foreldrum sínum á Keld-
um og ólst þar upp. Hann er einn-
ig látinn.
A fyrri helmingi þessarar aldar
var íslenzka þjóðin að byrja að
rétta úr kútnum eins og kallað er
að því er efnahag snerti. Menn
voru þá yfirleitt ginnkeyptir fyrir
hvers kyns nýjungum og allt of
glaðir yfir að fleygja flestu, sem
gamalt var. Þannig fóru mikil
verðmæti í súginn. Á Keldum var
verðmætamat ólíkt þvi, sem var á
flestum heimilum í landinu. Engu
var fleygt, af þvi að það væri
gamalt og þvi siöur gleypt við
nýjungum, hvort sem það voru
hugmyndir, siðir eða búskapar-
hættir. Áherzla var lögð á vernd
landgæða, varðveizlu tungunnar
og tryggð við gamla siði og þjóð-
Sextugs-
afmæli
29. marz verður Elínbjörg
Georgsdóttir, Hæðarenda Ytri-
Njarðvíkum, 60 ára. Allan sinn
aldur hefur hún alið á æskuslóð-
um, þar hefur sól hennar risið i
ágætis eiginmanni, börnum og
barnabörnum. Þó gatan hafi ekki
verið rósum stráð frekar en
annarra af þessari kynslóð, hefur
starfsánægjan og ótrúlegt vinnu-
þrek ásamt fórnfýsi verið leiðar-
ljósið og mér hefur skilizt betur
hve sannur er málshátturinn:
„Margur er knár þótt hann sé
smár“. Eg veit þú fyrirgefur mér
þessa fátæklegu afmæliskveðju á
þessum merku timamótum.
Ég og f jölskylda mín óskum þér
innilega til hamingju ásamt eigin-
manni, börnum og barnabörnum
og biðjum ykkur allrar Guðs
blessunar i nútíð og framtíð.
JE.
hætti. A Keldnaheimilinu rikti
rótgróin Islenzk bændamenning,
þar sem fór saman verkmenning
og fræðimennska.
Skólahald var jafnan á vetrum
á Keldum og voru þá alltaf mörg
börn af nálægum bæjum i skólan-
um. Skólagangan örvaði til frek-
ara náms, enda skorti ekki áeggj-
an greindarkonunnar Svanborg-
ar, móður Kristínar. Kristín fór i
Kennaraskólann ásamt Helgu
systur sinni og lauk kennaraprófi
1928. Hún stundaði barnakennslu
um árabil bæði í Landeyjum, á
Rangárvöllum og í Stokkseyrar-
hreppi, þar sem hún kynntist
fyrri manni sínum, Sigurði Jóns-
syni frá Sigurðarstöðum i Bárðar-
dal í Þingeyjarsýslu. Bjuggu þau
á Sigurðarstöðum í góðu sambýli
við móður Sigurðar. Jóninu Sölva-
dóttur, og Sölva, bróður Sigurðar,
unz Sigurður lézt 1939 langt um
aldur fram frá eiginkonunni og 2
ungum sonum, þeim yngri aðeins
tveggja vikna gömlum. Kristín
bjó enn nokkur ár á Sigurðarstöð-
um, en fluttist þá suður I bú aldr-
aðra foreldra sinna og vann
þeim sem mest og bezt hún mátti.
Seinni maður Kristínar var
hinn ágæti maður Agúst Andrés-
son i Hemlu, hreppstjóri V-
Landeyinga, en þau giftust árið
1951, og var hún síðari kona hans.
Eftir að Kristín fluttist að
Hemlu með sonum sínum og móð-
ur, sem þá var orðin ekkja, tók
hún að stunda kennslustörf að
nýju. Skólinn var í Hemlu og
stýrði Kristin skólanum og undi
hag sínum vel. Enn í dag er Krist-
In hinn áhugasami góðviljaði og
þolinmóði kennari og njóta þess
nú sonabörnin og frændsystkin,
sem aldrei frekar stöðvast í ærsla-
leik en við sögur hennar og fræði..
Synirnir tveir eru Skúli Jón,
fulltrúi flugmálastjöra, kvæntur
Sjöfn Friðriksdóttur úr Reykja-
vík, og Sigurður dýralæknir,
kvæntur Halldóru Einarsdóttur
frá Kaldrananesi í Mýrdal. Sona-
börnin eru orðin 5.
Ágúst í Hemlu lézt 1965 og brá
Kristín þá búi og fluttist til
Reykjavikur, þar sem hún unir
hag sinum bærilega, þótt þráin
eftir sveitinni, jörðinni og skepn-
unum, einkum „blessuðum hest-
unum“ sé sívakandi.
Kristín hefur erft fræðimanns-
eðli föður sins. Hún hefur látið
Þjöðminjasafninu ýmislegt í té úr
búi afa síns, Guðmundar Brynj-
ólfssonar á Keldum. Eftir lát
Skúla 1946 fékk Þjóðminjasafnið
m.a. 39 veizluspæni Guðmundar
og lét Kristin fylgja þeim teikn-
ingar eftir sig og ýmsan fróðleik,
sem herra Kristján Eldjárn vitnar
til I hinni ágætu bók sinni Hundr-
að ár i Þjóðminjasafni. Einnig
veit ég, að Kristin er velunnari
byggðasafnsins að Skógum og
hins mikla menningarstarfs, sem
þar er unnið af Þórði Tómassyni.
Hin síðari árhefurKristínhaft
frjálsan tima og tækifæri til að
ferðast og kýs hún helzt að skoða
fósturjörðina. Hún er hinn bezti
ferðafélagi, þvi með ólíkindum
er, hve vel hún er að sér um alla
staðhætti og mannlif á fyrri öld-
um, næstum hvar sem er á land-
inu. En skemmtilegast er að
fylgja henni um gamla Keldnabæ-
inn, þá verða persónur úr frá-
sögnum hennar af æskudögum
ljóslifandi. Maður heyrir fótatak
liðins tíma. Glaðværar raddir
skólabarnanna, suðið í rokkum
systranna, tifið í klukkunni inni
hjá fræðaþulnum, glamrið i
prjónum húsmóðurinnar og kjöt-
súpulygt berst úr eidhúsinu hjá
Höllu eldakonu.
Kristin Skúladóttir hefur þann
sið að klappa saman lófuna og
fagna, þegar hún hefur Þjórsár-
brú að baki og er komin í sína
kæru Rangárvallasýslu. Þennan
sið hefur hún kennt okkur frænd-
fólki sínu og finnst okkur gaman
að. Nú veit ég, að á þessum tíma-
mótum i ævi hennar fagna Rang
æingar og aðrir vinir og óska
henni hjartanlega til hamingju
með afmælið. Á afmælisdaginn
dvelst Kristin hjá Sigurði syni
sínum að Grafarholti við Vestur-
landsveg.
Júlía Svb.
ÞvílíkTOP hljómgæði
fást aðeins
ef notaður er
Super segulbands-
þráðurinn
frá
T.D.K.
Sérfræðileg þekking á segulmagni og seguláhrifum hafa sett T.D.K.
í fremstu röð framleiðenda á segulbandsþræði. Þegar þú hljóðritar
uppáhalds hljómlistina þína, kemstu fljótt að raun um að T.D.K.
spólurnar hafa:
Alla háu tónana, alla millitónana, alla lágu tónana, allar
yfirsveiflur og allt, sem skiptir máli til að ná
fullkominni upptöku.
UTSÖMJSTAÐIR:
Karnabær,
Laugaveg 66 og Austurstræti 22
Fálkinn,
Suðurlandsbraut 8,
Hljóðfærahús Reykjavíkur
Laugaveg 96,
Hljóðfærahús
Sigríðar Helgadóttur,
Aðalstræti 6,
Filmur og Vélar,
Skólavörðustíg 41,
Sjónvarpsmiðstöðin,
Þórsgötu 1 5,
Miðbæjarradió,
Hverfisgötu 18.
Hverfitónar,
Hverfisgötu 50,
J.P. Guðjónsson,
Skúlagötu 26,
Faco,
Laugaveg 89
STAÐIR
ÚTI Á LANDI:
VCkurbær, Keflavík,
Eplið Akranesi,
Magnús Magnússon, Selfossi,
Eyjabær, Vestmannaeyjum, *
Radíóröst, Hafnarfirði,
Tónabúðin, Akureyri,
Hljómdeild K.E.A^ Akureyri,
Cesar, Akureyri.
umboðið,
® Laugavegi 66, s. 14388.