Morgunblaðið - 27.03.1975, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
í söngskrá, sem Pólýfónkórinn hefur gefið út í tilefni
flutnings Messíasar birtist grein um Hándel og
Messías eftir stjórnanda kórsins, Ingólf Guðbrands-
son. Morgunblaðið sér ástæðu til að birta þetta yfirlit
um æviferil Hándels og fer það hér á eftir:
TÓNLIST barrokktímabilsins nær há-
tindi sinum i verkum Bachs og
Hándels. sem báðir voru fæddir i
Þýzkalandi árið 1685. Formskyn
þeirra beggja. kunnátta. snilli og af-
köst voru slik, að vart verður til þess
jafnað i allri sögu tónlistarinnar fyrr
eða siðar. Leiðir þeirra lágu aldrei
saman. svo að vitað sé, og gerði
Bach sér þó mikið far um að ná fundi
Hándels. Johann Sebastian Bach var
kominn af fjölmennri ætt tónlistar-
manna. þar sem tónlistargáfa og iðk-
un tónlistar var arfgeng i marga
að fyrir fullt og allt tveim árum siðar.
Hann flutti þar eina af óperum sín-
um, Rinaldo, og um leið var nafn
Hándels á allra vörum i borginni. Þvi
næst gekk hann i þjónustu Georgs
Ludwigs kjörfursta i Hannover, sem
siðar varð Georg I., konungur Eng-
Georg
Friedrich
ættliði. Á bernskuheimili Georgs
Friedrich Hándels í Halle i Saxlandi
var tónlist nánast bannorð, og sagan
segir, að móðursystir drengsins hafi
komið litlu klavikordi inn í húsið, þar
sem litli Hándel æfði sig á laun,
meðan faðir hans, rakarinn og skurð-
læknirinn, var á ferðalögum að sinna
störfum sínum. Fyrir atbeina hertog-
ans í Weissenfels, sem veitti tón-
listargáfu drengsins athygli, var hon-
um komið til náms hjá orgelleikaran-
um við Frúarkirkju í Halle, Zachow
að nafni, fjölhæfum og vel menntuð-
um gáfumanni, sem veitti honum
staðgóða tilsögn í hljóðfæraleik og
tónsmíðum. Ellefu ára að aldri dvald-
ist hann um hríð í Berlín og vakti
undrun og aðdáun við hirðina með
leikni sinni og kunnáttu. En 18 ára
gamall hleypti hann heimdraganum
og fór fyrst til Hamborgar, þar sem
hann vann fyrir sér með hljóðfæra-
leik og kennslu í 2 ár, en hélt þá til
ítalíu, sem um þær mundir var nær
alls ráðandi um stíl og tónlistar-
smekk Evrópu. Þekking Hándels,
ásamt meðfæddri snilld og dirfsku
opnuðu honum allar dyr meðal auð-
ugasta fyrirfólks og listfrömuða á
ítalíu. Hann dvaldist ýmist hjá furst-
um og þjóðhöfðingjum eða æðstu
prelátum kirkjunnar, og verkum
hans var tekið með kostum og kynj-
um í Róm, Napólí, Feneyjum og Flór-
ens. Hándel dvaldist á Ítalíu í nærri
4 ár og svalg í sig ítölsk áhrif, sem
mótuðu líf hans og hvarvetna gætir
síðan í verkum hans.
Árið 1710 lagði Hándel fyrst leið
sína til London, þar sem hann settist
Hdndel og„Messías
lands. árið 1714. Hándel hafði feng-
ið stutt leyfi frá störfum sinum við
hirðina i Hannover árið 1712 i þvi
skyni að flytja fleiri af verkum sínum
i London. en hann sneri aldrei aftur
til Hannover. London varð aðsetur
hans uppfrá þvi að undanskildum
stuttum ferðum til Þýzkalands og
ítaliu. Hann var tónlistarkennari
hirðarinnar og hirðtónskáld og dáður
og eftirsóttur gestur i samkvæmum
aðalsins.
Freistandi væri að halda áfram
samanburði á ævi. störfum og list
Bachs og Hándels. Bach var hinn
hógværi og hljóðláti, sístarfandi
orgelleikari, kantor og kennari, sem
samdi verk sín til flutnings við helgi
athafnir kirkjunnar, Guði til dýrðar.
Kringum Hándel var eilift veraldar
vafstur. Hann var kappsfullur og
metnaðargjarn, gæddur óbilandi
sjálfstrausti. en bar á sér snið hins
lifsreynda, menntaða og fágaða
heimsborgara.
Fyrstu 30 ár sín í Bretlandi helgaði
Hándel að mestu óperusmið og
frumflutti oftast a.m.k. eina nýja
óperu á hverju ári. Hann bjó um
skeið hjá lávarðinum af Burlington i
hinni glæstu höll hans, sem var at-
hvarf listamanna, eins konar Unuhús
Lundúna i þá daga, einnig hjá her-
toganum af Chandos á iburðarmiklu
sveitasetri hans i Edgeware, þar sem
pltrjpttjM&Míb'
óskar eftir starfsfólki
ÚTHVERFI
Hluti af Blesugróf, Fossvogsblettir, Ármúli,
Laugarásvegur 1 —37. Austurbrún 1 .
VESTURBÆR
Nýlendugata, Upplýsingar í síma 35408.
SEYÐISFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu. Mbl. uppl. hjá umboðsmanni og á
afgr. í síma 1 01 00.
BÚÐARDALUR
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl.
Uppl hjá umboðsmanni eða afgreiðslunni í
síma 1 Ö1 00.
GRINDAVÍK
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl.
Uppl. hjá umboðsmanni eða afgreiðslunni í
síma 1 01 00.
hann samdi og frumflutti nokkur
tónverka sinna. Hann var í nánum
tengslum við konungshirðina og
Georg I. var tiður gestur í óperunni
ásamt fylgdarliði sínu. Hándel var
einn af frumkvöðlum Royal Academ
ie of Music, sem upphaflega
var komið á fót til að hefja óper
una til vegs og virðingar, en ekki
til kennslu i tónlist, eins og
siðar varð. Óperur sinar
samdi Hándel við italska texta, mis-
jafna að gæðum, og réð til sin helztu
söngvara ítaliu fyrir of fjár, enda var
óperuflutningur hvergi annars staðar
með slikum glæsibrag um hans
daga.
Hándel var gæddur fjölþættum —
universal — gáfum, hann var snjall
framkvæmda- og fjármálamaður, og
yfir list hans var still heimslistar af
hæstu gráðu, yfir fasi hans fágaður
heimsbragur. Stundum er þvi haldið
fram, að slikt fari sjaldan saman i
fari alvarlegs, skapandi listamanns.
En sagan hefur þó margsýnt, að
frábærir tónlistarhæfileikar eru oft-
ast samfara miklum almennum gáf-
um á mörgum sviðum. Umfram flest
tónskáld sögunnar jós Hándel alla
ævi af ótæmandi uppsprettu lag-
rænnar fegurðar og fjölbreytni. Á
þann hátt, sem honum einum var
laginn. kemst Hándel oftast bein-
ustu leið að kjarnanum. Tónsnilling-
ar seinni tima virtu hann og dáðu.
Beethoven sagði um hann: „Þarna
er sannleikurinn" — og — „Enginn
annar hefur getað sagt það stórkost-
lega á jafn einfaldan og sannfærandi
hátt."
Handel tileinkaði sér það bezta i
list og fari þriggja þjóða, og af þvi
spratt listsköpun, sem ekki á sér
neina hliðstæðu i sögunni. Sagt er,
að Bach hafi eitt sinn verið spurður
um, hver væri undirrót listar hans og
snilldar. Svarið var stutt: „Ég vann
mikið." En raunar hefði Hándel get-
að svarað spurningunni á sama hátt.
Skapferli Hándels var mótað af
ströngu uppeldi i bernsku, þar sem
heiðarleiki, nákvæmni og réttsýni
voru formúla allra mannlegra við-
skipta.
Á háskólaárum sinum i Halle i
Þýzkalandi kynntist Handel tón-
skáldinu G.P. Telemann, og siðar D.
Buxtehude i Lúbeck, einnig R. Keis-
er, stjórnanda Hamborgaróperunnar,
sem var eitt helzta óperutónskáld
þess tima, og söngvaranum og tón-
skáldinu Mattheson, sem varð náinn
vinur hans.
Tvitugur að aldri heillast Hándel af
list og fegurð ítaliu. Hann kynnist
fremstu itölskum tónlistarmönnum
og tónskáldunum Corelli og feðgun-
um Scarlatti. Tónmál Hándels var
alla tið síðan með itölsku ivafi, sem
þó var samofið þýzkum uppruna
hans og enskum áhrifum. Purcell var
dáinn 15 árum áður en Hándel kom
til Bretlands, en áhrifa hans gætti
engu að síður.
Hándel varð brezkur þegn árið
1726. Áfyrstu Lundúnaárunum voru
óperur Handels fluttar i Kings
Theatre i Haymarket, sem þá var
undir stjórn Aarons Hill. Eftir að
Royal Academic var lokað vegna
fjárskorts, tók Hándel upp samvinnu
við Svisslendinginn Heidegger um
rekstur Kings Theatre, þar sem
Til sölu
við Vesturberg
if 4ra herb. ibúð á 3. (efstu) hæð
if Sameign og bílastæði fullfrágengin.
ir Gott útsýni.
if Verð kr. 5,5 millj. útb. 3,5— 4 millj.
if Upplýsingar í síma 73841.
Einbýlishús við Selbrekku
Kópavogi til sölu 1 60 fm. Bílskúr, 5 — 6 her-
bergi. Hitaveita. Útborganir á árinu 7 milljónir.
Gunnlaugur Þórðarson hrl.,
Bergstaðastræti 74 A,
sími 1 6410 í dag kl. 2—5.
óperur Handels voru frumfluttar
hver af annarri um 8 ára skeið. En
samkeppnin var hörð, og velgengni
Handels og snilli vakti öfund, sem
brátt fékk útrás i ofsóknum óvina.
Rekstur óperuhúsanna gekk verr
með hverju árinu og bæði Kings
Theatre og Covent Garden Theatre,
sem siðar varð hið konunglega
óperuhús Lundúna var lokað vegna
skulda. Hándel hafði gefið heiminum
margar dýrmætar perlur og barizt
harðri baráttu en tapað aleigu sinni.
Heilsu hans hrakaði, og hann fór
einförum. Hnignandi gengi
óperunnar, sem flutt var á itölsku
máli, sem fæstir skildu, olli þvi að
Hándel fór að hugleiða annað tón-
listarform -oratoríu, -leikhúsverk,
sem fjallaði um atburði úr Biblíunni
með enskum texta. Að formi til er
oratorian þó náskyld óperunni og
fjallar oftast um dramatiskt efni en
án leiks eða sviðsbúnaðar. Oftast
skiptast hlutverk milli nokkurra
sögupersóna, sem flytja söguþráðinn
i resitativum og arium, en inn á milli
syngur kór, sem venjulega táknar
múginn i eins konar hópsenum.
Ásamt passium Bachs eru oratoríur
Hándels hápunktar þessa tónlistar
forms. Hándel hafði þegar samið
nokkrar oratoriur, sem fluttar voru
við ákveðin tækifæri, t.d. í Oxford
1733. En árið 1741, þegar Hándel
var snauður af fé og hylli og heilsa
hans á þrotum, svo sem heimurinn
hefði snúið baki við honum, samdi
hann mesta snilldarverk sitt, ora-
toríuna Messias. Auðugur uppskafn-
ingur, Charles Jennes að nafni sendi
honum handrit sem reyndist vera
vandlega valdar ritningargreinar, að
mestu úr Gamla testamentinu, en
fjölluðu allar um „Messías", —
„hinn smurða" — frelsara mann-
kynsins
Þjáður, vonsvikinn og yfirgefinn
hafði Hándel dregið sig út úr öllu
veraldarvafstri og einangrað sig i
húsi sinu í Brook Street. Það var
sem vitund hans hæfist á æðra til-
verustig, hann gleymdi stund og
stað. likast og knúinn áfram af yfir-
náttúrulegu afli. Hann vék ekki
burtu úr húsinu i 24 daga. en á þeim
tima hafði hann lokið verkinu. Það
var sem hann lifði í öðrum heimi,
hann gleymdi að sofa eða matast.
Þegar hann hafði lokið 2. þætti með
Hallelúja-kórnum. kom þjónn hans
að honum, meðan tárin streymdu
niður kinnar hans, og hann sagði:
,.Mér fannst ég sjá himnariki og Guð
sjálfan birtast mér."
Hándel fékk boð um að koma til
Dublin til hljómleikahalds og þar.var
Messías frumfluttur i april árið
1742. Áheyrendur voru gagnteknir
af hrifningu. Og ummæli dag-
blaðanna voru á sömu lund. „Mestu
kunnáttumenn telja það vera feg-
urstu tónsmið, sem um getur." „Orð
skortir til að lýsa þeim fögnuði, sem
verkið vakti meðal hugfanginna
áheyrenda. Upphafnir hljómar, sem
ýmist voru mildir eða magnaðir,
tengdir háleitum, hjartnæmum
orðum. gagntóku eyru og hjörtu
áheyrenda."
Sú hrifningaralda. sem Messias
vakti strax i upphafi, hefur siðan
borizt um allan hinn menntaða heim.
Verkið. sem er i þremur þáttum eins
og óperur þess tima, er einstætt
meðal oratoria Hándels, þar eð það
fjallar ekki um sogulega atburði og i
þvi er engin atburðarás eins og i
passium Bachs. Það er eins konar
hugleiðing um Frelsarann. spádóm-
ana um komu hans, fæðinguna,
þjáningu hans og dauða fyrir syndir
mannkynsins, upprisu hans og
endurlausn mannsins fyrir trúna á
hann. Sterkra dramatiskra áhrifa
gætir samt sem áður i verkinu, eins
og vænta má, þar eð verk Hándels
eru flest mótuð af dramatiskri
tjáningu.
Fróðir menn telja, að enginn hafi
fyrr né siðar sýnt slíka snilld sem
Hándel i að semja laglínur og kóra
fyrir mannsraddir, þótt Bach væri
ofjarl hans i tónsmiðum fyrir önnur
hljóðfæri.
Ekkert verka sinna mat Hándel
jafnmikið og Messias. Það var
siðasta verkið, sem hann stjórnaði i
Covent Garden, nokkrum dögum fyr-
ir dauða sinn. þá löngu orðinn blind-
ur. Hann dó 9 árum eftir Bach. á
föstudaginn langa árið 1759, 74 ára
að aldri og saddur lifdaga. Hann
hvilir i Westminster Abbey i London.
og á fagra marmarastyttu hans eru
letruð orð og tónar: „I know that my
redeemer liveth." Ég veit, að lausn-
ari minn lifir.
I.G.