Morgunblaðið - 27.03.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
35
Þetta lfnurit sýnir hvernig ölvaðir ökumenn sem teknir voru á árinu 1974 skiptast eftir
mánuðum.
Fjölbrautaskóli í
Breiðholti í haust
með 4 námsbrautum
13,410 ökumenn teknir grun-
aðir um ölvun frá árinu ’66
LOKIÐ ER A vegum Umferðar-
ráðs skráningu á fjölda þeirra
ökumanna, sem teknir voru vegna
gruns um ölvun við akstur árið
1974. Tekur skráningin til allra
lögsagnarumdæma landsins. I
skráningu þessari kemur fram, að
á s.l. ári voru samtals 2.306 öku-
menn færðir til töku blóðsýnis
vegna gruns um ölvun við akstur.
Árið 1973 voru 2.154 ökumenn
teknir grunaðir um ölvun við
akstur og er þvf aukningin 7%.
Til samanburðar má geta þess, að
árið 1968 voru 1.059 ökumenn
teknir vegna gruns um ölvun við
akstur.
Af 2.306 ökumönnum voru 265
(11,4%) með áfengismagn í blóði
undir 0,63 0/00, en það er undir
því lágmarki, er þarf til að málinu
verði framhaldið. 725 ökumenn
höfðu í blóði sér áfengismagn i
svokölluðum neðri mörkum, 1.231
ökumaður var með áfengismagn í
efri mörkum en i 85 málum lá
niðurstaðan ekki fyrir. Flestir
ökumannanna voru kærðir af lög-.
reglunni í Reykjavík, 1151, þar af
Námskeið fyrir
reykingamenn
ISLENSKA bindindisfélagið
heldur á næstunni tvö námskeið
fyrir fólk sem vill hætta reyking-
um.
Fyrra námskeiðið verður haldið
að Lögbergi (við Háskólann)
Reykjavík og hefst 6. apríl kl.
20:30 og stendur 5 kvöld (6.—10.
apríl). Seinna námskeiðið verður
haldið í Gagnfræðaskólanum á
Selfossi og hefst 13. apríl kl. 20:30
og stendur einnig 5 kvöld
(13.—17. apríl.) Læknir á nám-
skeiðinum verður dr. L.G. White
frá London.
58 af lögreglumönnum í þjóðvega-
eftirliti. Næstflestir voru kærðir
af lögreglunni f Hafnarfirði og
Gullbringusýslu eða 147 öku-
menn. Flestir voru ökumennirnir
teknir í ágúst, 239, en fæstir í
janúar, 124.
I 3,5% umferðaróhappa, sem
urðu í Reykjavík árið 1974, var
um ölvun við akstur að ræða. Er
það 0,1% lægra en árið 1973.
Nú hefur verið gerð skrá yfir
ökumenn grunaða um ölvun við
akstur frá þvl árið 1966, eða í 9 ár.
A þessu tímabili hafa 13.410
manns verið kærðir vegna gruns
um ölvun við akstur, og lætur það
nærri að 1490 ökumenn séu
teknir á ári að meðaltali. Fæstir
voru ökumennirnir árið 1966, 944,
en síðan hefur verið aukning á
hverju ári, mest milli áranna 1970
og 1971 19%.
1 frétt frá Umferðarráði segir
að í umferðarlögunum sé það
tekið fram, að sé áfengismagn í
blóði ökumanns 0,5 0/00 eða
jneira, sé ökumaður undir áhrif-
um áfengis og geti ekki stjórnað
ökutæki örugglega. Sá, sem
þannig er ástatt um, má því ekki
aka eða reyna að aka vélknúnu
ökutðeki. Reynist áfengismagn
ökumannsins vera á svokölluðum
neðri mörk'um (0,50 — 1,20 0/00)
er refsing í formi fésektar og
heimilt að ljúka máli með sátt og
ökuleyfissviptingu, sem al-
gengust er 3—8 mánuðir. Um leið
og brotið er komið á alvarlegra
stig (áfengismagnið er yfir 1,20
0/00) breytist málsmeðferð
þannig, að ekki er heimilt að
ákveða ökuleyfissviptingu
skemur en í ár. Refsimál skal
höfða á hendur ökumanni og
dómur verður ávallt í formi varð-
halds, þótt að vísu sé tíðkað að
breyta varðhaldsdómi með náðun
í fésekt samkvæmt beiðni viðkom-
Rekstur ríkis-
stofnana í athugun
1 frumvarpi rfkisstjórnarinnar
um ráðstafanir 1 efnahagsmálum
og fjármálum kemur fram, að
rekstur nokkurra rfkisfyrirtækja
og stofnana hefur verið f athugun
með það fyrir augum að koma
fram auknum sparnaði. 1 athuga-
semdum með frumvarpinu kem-
ur fram, að starfsemi rfkisút-
varpsins hefur verið f athugun að
undanförnu og niðurstöður munu
væntanlegar innan skamms, en á
grundvelli þeirra verða gerðar
umtalsverðar spranaðartillögur.
A sama hátt er nú verið að athuga
rekstur og skipulag landhelgis-
gæzlunnar og flugmálastjórnar.
Þá er hafinn undirbúningur að
endurskoðun tryggingalöggjafar-
innar, þar sem þess verður m.a.
freistað að koma á einföldun alls
tryggingakerfisins.
Matthías A. Mathiesen fjár-
andi. Itrekað brot leiðir alltaf til
varðhaldsrefsingar og þá skal
svipta ökuleyfi ævilangt.
Logreglustjóri getur krafist að
sá sem fær ökuskirteini sitt af-
hent að nýju að loknum svipting-
artíma, skuli gangast undir bif-
reiðastjórapróf að nýju. Skal það
að jafnaði gert, ef svipting hefur
staðið lengur en eitt ár.
Skipting ölvaðra ökumanna á ár-
inu 1974 eftir umdæmum:
FJÖLBRAUTASKÖLINN f Breið-
holti tekur til starfa á hausti kom-
anda, þ.e. haustið 1975. En skól-
inn er ætlaður öllum ungmenn-
um f Breiðholtshverfunum þrem,
sem lokið hafa prófi úr 9. bekk og
fæddir eru árið 1959. Þegar á
fyrsta ári mun skólinn bjóða
nemendum sfnum margar náms-
brautir, en skipa þeim f fjórar
námsbrautaheildir, þ.e. mennta-
skólabrautir, iðnfræðslubrautir,
viðskiptabrautir og loks sam-
félags- og uppeidisbrautir. Um
mislangar brautir getur verið að
ræða, frá 1 árs námi til fjögurra
ára náms, en engin námsbraut á
samt að enda f blindgötu, heldur
veita tækifæri til framhalds og
viðbótarmenntunar.
Hafin er kynning meðal ung-
menna í Breiðholtshverfum á
væntanlegri starfsemi og verður
almennur fundur um skólann
þriðjudaginn 1. april næstkom-
andi í Fellaskóla, sem hefst kl.
20.30. Þar mun skólameistari,
Guðmundur Sveinsson, flytja er-
indi um skólann, en hann og
Jónas B. Jónsson, fyrrv. fræðslu-
stjóri svara fyrirspurnum. Eru
foreldrum og ungmennum úr
Breiðgerðishverfunum sérstak-
lega boðið á fundinn, en öllum
heimill aðgangur.
Þá verður skólameistari til við-
tals í Fellaskóla miðvikudaginn 2.
apríl og fimmtudaginn 3. apríl kl.
10—12 og 14—16. Umsóknir um
Fjölbrautaskólann skuiu berast
fræðsluskrifstofu Reykjavíkur,
sem hefur umsóknareyðublöð og
einnig fjölritað kynningarrit um
skólann. Þá hefur Fræðsluráð
Reykjavíkur óskað eftir þvi við
menntamálaráðuneytið að
kennarastöður við skólann verði
auglýstar til umsóknar.
Sumaráætlun að taka
gildi hjá Flugleiðum
Reykjavfk
Þjolðvegaeftirlit
Hafnarfj./Kjósars./Seltj.
Keflavfk/Gullbringus/Grindav.
Keflavfkurflugvöllur
Akureyri/Eyjafj.s./Dalvfk
Kópavogur
Árnessýsla
Isafjörður/tsafj.sýslur
Snæfellsnes- og Hnappadalss.
Sauðárkrókur/Skagafj.sýsla
Vestmannaeyjar
Húsavfk/Þingeyjarsýslur
Höfn, Hornaf./A-Skaftafellss.
Akranes
Mýra- og Borgarf j.sýsla
Eskifjörður/S-Múlasýsla
Rangárvallasýsla
Húnavatnssýsla
Bardastrandasýsla
Dalasýsla
Neskaupstaður
Siglufjörður
Bolungarvfk
önnur umdæmi
1093
58
147
142
141
121
113
104
48
45
45
44
34
28
23
23
20
19
15
10
FYRSTA apríl n.k. gengur i gildi
sumaráætlun millilandaflugs
Flugleiða. Áætlunin er með svip-
uðu sniði og á sfðasta ári, nema
hvað ferðir verða færri milli
Luxemborgar, tslands og Banda-
rfkjanna. Nýnæmi er f sumar-
áætluninní, að nú verður í fyrsta
skipti millilandaflug frá flugvelli
utan Reykjavfkur og Keflavfkur.
Hér er um að ræða áætlunarflug
milli lslands og Færeyja, sem
verður flogið milli Egilsstaða og
Voga f Færeyjum.
Frá Keflavíkurflugvelli munu
þotur Loftleiða fljúga 18 ferðir á
viku til Bandaríkjanna, þar af
verða 15 ferðir til New York og
þrjár til Chicago. Af þessum 15
New York ferðum munu 12 koma
frá Luxemborg, tvær frá Norður-
löndum og ein frá Bretlandi. Að
auki eru þotuflug Flugfélags Is-
lands þannig tímasett að farþegar
frá þessum löndum ná framhalds-
flugi frá Islandi til Bandaríkj-
anna með þotum Loftleiða.
Boeing þotur F.l. munu fljúga
fjórar ferðir í viku frá Keflavik-
urflugvelli til Narssarssuaq í
Grænlandi. Þá munu Fokker-vél-
arnar fljúga til Kulusuk.
12 ferðir á viku verða frá Kefla-
vik til Kastrup í Kaupmannahöfn.
Til Öslóar verða fjórar ferðir i
viku, og til Stokkhólms tvær ferð-
ir. Til Frankfurt verður flogið
einu sinni í viku og til Lundúna
fimm sinnum og sömuleiðis fimm
sinnum í viku til Glasgow. Til
Færeyja verður svo flogið fjórum
sinnum i viku og þá bæði frá
Reykjavik og Egilsstöðum.
Forseti alheimssamtaka
notary heimsækir Island
málaráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að sérstök
áherzla yrði lögð á að hleypa ekki
verkum af stað fyrr en tæknileg-
um undirbúningi væri lokið að
fullu. Þá sagði ráðherra, að af
hálfu ráðuneytisins yrðu gerðar
ráðstafanir til þess að fylgjast sér-
staklega vel með öllum greiðslum
úr ríkissjóði í þeim tilgangi atf
tryggja markvissara eftirlit með
útgjöldum ríkisins.
Þá sagði fjármálaráðherra að
haft yrði vakandi augu með at-
vinnuástandinu og atvinnusjónar-
mið yrðu sett ofarlega, þegar
meta ætti hvaða. framkvæmdum
ætti að fresta og hverjum ætti að
flýta. Þess yrði gætt, að frestun
opinberra framkvæmda hefði
ekki í för með sér óeðlilegan sam-
drátt í atvinnu, hvorki fyrir
þjóðarbúið i heild né einstök
byggðarlög.
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning:
Þriðjudaginn 1. april n.k. mun
forseti Rotary International,
William R. Robbins, koma hingað
til lands í tveggja daga heimsókn.
Meðan hann dvelst hér mun
hann m.a. ganga á fund forseta
Islands og koma á sameiginlegan
fund sex Rotaryklúbba á Reykja-
vikursvæðinu, sem haldinn
verður að Hótel Sögu miðviku-
dagskvöldið 2. april.
Mr. Robbins var kjörinn forseti
alheimssamtaka Rotary á siðasta
ársþingi Rotaryhreyfingarinnar. 1
samtökunum eru 16.000
Rotaryklúbbar, sem starfa víðs-
vegar um heim og eru meðlimir
þeirra alls um 750 þúsund talsins.
Hér á landi er starfandi 21
Rotaryklúbbur og er félagafjöld-
inn 756.
Forseti Rotary International
kemur hingað frá Bandaríkjun-
um á ferð sinni til fleiri landa, en
eitt af hlutverkum hans er að
heimsækja Rotaryklúbba sem víð-
ast um heim. Mr. Robbins hefur
lengi starfað innan Rotaryhreyf-
ingarinnar í Bandarikjunum og
verið m.a. forseti Rotaryklúbbs-
ins í Miami í Florida og varafor-
seti Rotary International
1959—1960. Heimiii hans er I
Florida, þar sem hann stundar
búskap. Kona hans er 1 för með
honum hingað til lands.
Meðan Mr. Robbins dvelst hér
mun hann m.a. hitta borgarstjóra
Simaskráin fer í
dreifingu 1. apríl
BYRJAÐ verður að afhenda síma-
skrána til sfmnotenda f Reykja-
vfk frá og með 1. aprfl n.k. og
gengur hún f gildi mánudaginn
14. aprfl n.k. Upplag símaskrár-
innar er nú um 90 þúsund eintök.
Brot skrárinnar er breytt frá þvf
sem áður hefur verið, hæðin 29,6
sm f stað 27 sm.
Á forsíðu kápunnar innan-
verðri er skrá yfir nevðar- og
öryggissíma, og er svo einnig á
baksfðunni.
Reykjavikur að máii og fara i ferð
um nágrenni Reykjavíkur. Þá
mun hann ávarpa félaga allra
Rotaryklúbbanna á Reykjavíkur-
svæðinu á sameiginlegum fundi
þeirra sem haldinn verður í
Súlnasal Hótel Sögu kl. 19.00
miðvikudaginn 2. apríl. Forsætis-
ráðherra, Geir Hallgrímsson, mun
þar einnig flytja ávarp. Fundur
þessi er opinn öllum Rótaryfélög-
um.
Umdæmisstjóri Rotaryhreyf-
ingarinnar á Islandi er nú Val-
garð Thoroddsen, rafmagnsveitu-
stjóri ríkisins.
Sýning á ljós-
myndum frá
lýðháskólum
Á VEGUM Norræna félagsins og
Norræna hússins hefur nú verið
komið fyrir sýningu á Ijósmynd-
um frá lýðháskólum.
Danski ljósmyndarinn og lýðhá-
skólamaðurinn Johan Henrik
Piepgrass gerði þessa sýningu úr
garði en hún er farandsýning og
hefur farið víða, og hlotið hvar-
vetna mjög góða dóma. Piepgrass
er vel kunnur hér á landi fyrir
ljósmyndir sinar en hann hefur
dvalist hér á landi og tekið marg-
ar myndir og haldið sýningar á
þeim í Norræna húsinu auk þess
sem hann hefur haldið fyrirlestra
bæði þar og á Akureyri.
Sýningin mun vera i Norræna
húsinu fram yfir páska en síðan
verður hún send til Akureyrar og
sett þar upp í Amtsbókasafninu
og þaðan verður hún send til
Húsavíkur og Akraness.
(Fréttatilkynning frá Norræna;
félaginu)