Morgunblaðið - 27.03.1975, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 27.03.1975, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 37 L4UG4RD4GUR 29. mars 1975 16.30 tþróttir Knattspyrnukcnnsla Enska knattspyrnan Aðrar fþróttir Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 18.30 Lfna Langsokkur Sænsk framhaldsmynd. 13. þáttur. Sögulok. Þýðandi Kristfn Mántylá. \ður á dagskrá haustið 1972. 19.00 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Dagskrá og auglýsingar 20.30 Elsku pabbi Breskur gamanmyndaflokkur. Ilús til sölu Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 20.55 Vaka Dagskrá um bókmenntir og listir á Ifðandi stund. Umsjónarmaður Aðalsteinn Ingólfs- son. 21.35 Kristnihald í Kongó Þýsk heimildamynd um tilraunir sumra afrfkuþjóða til að aðlaga kristna trú þjóðlegum siðuni og háttum. Þýðandi Auður Gestsdóttir. Þulur Jón Hólm. 22.15 Anastasfa Bandarfsk bfómynd frá árinu 1956. Leikstjóri Anatole Litvak. Aðalhlutverk Yul Brynner, Ingrid Bergman og Helen Hayes. Þýðandi Heba Júlíusdóttir. Myndin gerist f Parfs árið 1928. Nokkr- ir háttsettir Rússar vilja fyrir hvern mun ná út úr banka pcningum Niku- lásar Rússakeisara, sem tekinn var af lífi tfu árum fyrr, ásamt fjölskyldu sinni. Þeir frétta af stúlku, sem gefið hefur f skyn, að hún sé engin önnur en Anastasía prinsessa, sem margir töldu, að sloppið hefði lifandi úr höndum byltingarmanna. Þeir fara á fund stúlkunnar og fá hana til að gera kröfu til fjárins, en þróun málsins verður önnur en þeir höfðu búist við. 23.55 Dagskrárlok 20.30 Edvard Munch Kvikmynd um málarann Edvard Munch og æviferil hans. Síðari hluti. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. (Nordvision — Norska sjónvarpið) 22.15 RolfHarris Fyrsti þátturinn í flokki breskra skemmtiþátta, þar sem ístralski söngvar- inn og æringinn Rolf Harris skemmtir ásamt fjölda þekktra listamanna. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 22.55 Dagskrárlok. ÞRIÐJUDkGUR 1. aprfl 1975 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.35 Helen — nútfmakona Bresk framhaldsmynd. 6. þáttur. Þýðandi Jón O. Edwald. Efni 5. þáttar: Helen hefur fengið vinnu, sem hún er ánægð með. Frank býr hjá vinkonu sinni, sem leggur fast að honum að losa sig undan áhrifavaldi fjölskyldunnar. Faðir Helenar reynir eftir megni að telja dóttur sfna á að taka Frank f sátt, en hún tekur þvf dauflega og kveðst vilja standa á eigin fótum f framtíðinni. 21.30 Söngleikurinn mikli Sigvard Hammar ræðir við leíkstjórann Ingmar Bergman um Töfraflautuna og sviðsetningu hennar hjá sænska sjónvarp- inu. 1 þættinum rekur Bcrgman aðdrag- anda sjónvarpsupptökunnar og lýsir skilningi sfnum á óperunni. Þýðandi Jón O. Edwald. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 22.00 Landneminn „Kubbamynd“ eftir Jón Axel Egils. Aður á dagskrá 14. september 1974. 22.10 Heimshorn Fréttaskýringaþáttur. Umsjónarmaður Jón Hákon Magnússon. 22.40 Dagskrárlok. Á páskadagskrá sjónvarpsins: Töfraflauta Mozarts og Berg- mans og œska Edvards Munch í páskadagskð sjónvarpsins ber vafalaust hæst uppfærslu ING- MAR BERGMANS á óperunni TÖFRAFLAUTUNNI eftir MOZART sem sýnd verSur á FÖSTUDAG- INN LANGA. Þetta er ein viSa- mesta uppfærsla sem sænska út- varpið hefur ráðizt I, en tilefni hennar er 50 ára afmæli þess á þessu ári, og fáum við þvi þessa hátíðarsýningu splunkunýja. „Töfraflautuna" samdi Mozart snemma árs 1791, og hún var frumsýnd i Vinarborg i september sama ár. Aðeins tveimur mánuðum siðar lézt hann, 35 ára að aldri. „Töfraflautan", sem hlaut heldur dræmar viðtökur við frumsýninguna, hefur siðan notið mikillar almenningshylli. Ingmar Bergman hafði i tvo áratugi langað til að setja upp „Töfra- flautuna", og þykir honum hafa tekizt að sanna að óperur geta verið skemmtilegar og fjörugar fyrir hinn almenna njótanda. Um verkið segir Bergman: „Við fáum að upplifa hinn undursam- lega raunveruleik sögunnar og draumsins. Ég sé einhverja konu og ég elska hana að eilifu. Sæt- leiki draumsins, en einnig þjáning og þrá draumsins. f „Töfraflaut- unni" er þetta alltaf i nðnd: Ijóð, saga, draumur. Þau hreyfast inn i hvert annað og kringum hvert annað með einkennilegum létt- leika. Persónur leiksins spyrja sig hvort þær dreymi eða séu vakandi, — hvort þetta sé draumur eða veruleiki: Tamino fyrir utan musteri vizkunnar, Pamina með hnif móðurinnar i hendinni, Papagenos i leit sinni að Papagenu, sem skyndilega birtist en hverfur jafn skjótt. Þrjár litlar manneskjur sem eltast og eru eltar gegnum drauma og veruleika sem allt eins gætu verið hugar- fóstur þeirra sjálfra." Það tók Bergman og sænska útvarpið rúm tvö ár að undirbúa töku „Töfraflautunnar. Upphaf- lega hafði Bergman viljað taka verkið upp i gamla Drottning- holmsleikhúsinu utan við Stokk- hólm, einkaleikhúsi Gústavs III frá því um aldamótin 1700, sem enn er notað. En leikhúsið reynd- ist of veikbyggt fyrir þessa viða- miklu sjónvarpsupptöku. og i staðinn var allt leiksviðið endur- byggt i stúdiói. Upptakan sjálf, sem er i litum, hófst svo i marzlok 1974. Kvikmyndari er SVEN NY- KVIST, hinn heimsfrægi mynda- smiður Bergmans, og hljómsveit- arstjóri er ERIC ERICSON. Leik- mynd gerði HENNY NOREMARK. Gifurleg vinna var lögð i alla um- gerð verksins Bergman reyndi alls 116 listamenn og valdi siðan úr þeim hópi i hlutverkin. Flytjendur eru bæði þekktir og óþekktir, en starfa allir á Norðurlöndum. Josef Köstlinger er Tamino. Irma Urrila er Pamina, Haakan Hagegaard er Papageno, og Elisabeth Erikson er Papagena, svo nokkur hlutverk séu nefnd. Á PÁSKADAG og ANNAN PÁSKADAG sýnir sjónvarpið leikna. norska sjónvarpsmynd um listmálarann EDVARD MUNCH. Leikstjóri þessarar myndar er brezkur, PETER WATKINS, og hefur hann vakið mikla athygli fyrir frumlegar og djarfar sjón- varps- og kvikmyndir, sem oft eru heimildalegs eðlis. Meðal þessara mynda eru „War Game" (sýnd hér m.a. af Kvikmyndaklúbbi mennta- skólanna), „Orrustan um Cull- oden" (sýnd af íslenzka sjónvarp- inu) og „Punishment Park" (sýnd af kvikmyndaktúbbnum). Eins og i öðrum myndum Watkins fara áhugamenn með hlutverkin í þess- ari sjónvarpsmynd. Myndin lýsir æsku og uppvexti Munchs innan fjölskyldu, þar sem sjúkdómar og dauði eru tiðir gest- ir. allt til þess tíma er hann kemst i tæri við bóhemlifið i Kristjaniu (Ósló) og hóf sina áköfu leit að listformi sem gat tjáð innri veru- leik manneskjanna. Einnig er brugðið upp mynd af pólitiskum og félagslegum aðstæðum á þess- um tima. Undirbúningur og gagnasöfnun fyrir töku þessarar myndar hófst veturinn 1971—72, og i desem- ber 1972 hófst sjálf upptakan eftir að um 500 manns höfðu verið reyndir i hlutverkin 360 (þar með talin statistahlutverk). Myndin var að mestu gerð i Ósló, auk tveggja daga töku i Paris, m.a. í Rodinsafninu. Myndatöku- maður er Odd Geir Sæther. I aðal- hlutverkum eru Geir Westby (Munch), Gro Fraas (frú Heiberg), Johan Halsbog (dr. Christian Munch) og Lotte Teig (Karen frænka). SUNNUD4GUR 30. mars 1975 Pftskadagur 17.00 Pfiskaguðsþjónusta f sjónvarpssal Séra Árelfus Nfelsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Langholtssafnaóar syngur. Söngstjóri og organleikari Jón Steffins- son. 18.00 Stundin okkar Kór öldutúnsskóla f Hafnarfirði syngur. Nemendur f Ballettskóla Eddu Scheving dansa vordansa og sýnt verður leikritið „Mér er alveg sama þótt einhver sé að hlægja að mér“ eftir Guðrúnu Asmunds- dóttur. Umsjónarmenn Sigrfður Margrét Guð- mundsdóttir og Hermann Ragnar Steffins- son. 19.00 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.15 Elduríöskju Fyrir réttum hundrað firum, 29. mars firið 1875, hófst mikið eldgos f öskju, og var það upphaf þess harðindatfmabils, sem varð ein af meginorsökum fólksflóttans vestur um haf. I tilefni þess, að öld er liðin sfðan þetta varð, ræðir Elður Guðnason við Sigurð Þórarinsson, jarðfræðíng, um gosið og af- leiðingar þess, og sfðan verður sýnd stutt kvikmynd eftir ösvald Knudsen. Nefnist hún „Eldur f öskju“ og fjallar aðallega um öskjugosið 1961. 20.45 tslensk kammermúsik Rut Ingólfsdóttir, Pétur Þorvaldsson og Halldór Haraldsson leika Tfó f e-moll fyr- ir fiðlu, selló og pfanó eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Stjórn upptöku, Andrés Indriðason. 21.05 Edvard Munch Norsk kvikmynd um málarann Edvard Munch og æviferil hans. Fyrri hluti. Höfundur og leikstjóri Peter Watkins. Aðalhlutverk Geir Westby, Gro Fraas, Johan Halsbog og Lotte Teig. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. Myndin lýsir bernskuárum listamannsins á heimili, þar sem sjúkdómar og dauði setja mark sitt fi daglegt Iff. Sfðan er fylgst með þroskaferli hans og leit hans að tjáningarformi viðsitt hæfi. ÖII hlutverk í myndinni eru leikin af áhugafólki, og eru þðtttakendur alls um 360. Sfðari hluti myndarinnar verður sýndur á annan páskadag. (Nordvision — Norska sjónvarpið) 22.55 Dagskrfirlok. A1MUD4GUR 31. mars 1975 Annar f pfiskum 18.00 Endurtekið efni Björgunarafrekið við Látrabjarg Heimildamynd, sem öskar Gfslason gerði fyrir Slysavarnarfélag Islands, er breskur togari fórst undir Látrabjargi fyrir nær- fellt 30 firum. Mynd þessi hefur verið sýnd víða um land og einnig erlcndis. Hún var áður á dagskrá Sjónvarpsins fyrir rúmum sjö árum. 18.50 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Dagskrfi og auglýsingar yyRmmveruleikirm dramatískari en mgndin** Rœtt við Svein Ásgeirsson um etni myndarinnar „Hann skal erfa vindinn ”, sem endursýnd er á föstudaginn langa í sjónvarpinu A FÖSTUDAGINN langa endur- sýnir sjónvarpið myndina „Hann skal erfa vindinn" („Inherit the Wind"), sem byggð er á sönnum atburðum, sem gerðust fyrir nær 50 árum i bænum Dayton i Tennessee í Bandarikjunum. Sá maður hér á landi, sem vafalaust er fróðastur um þá atburði, er Sveinn Ásgeirsson, hagfræðingur, sem segir frá þeim i bók sinni „Apakettir og annað fólk", sem kom út i fyrra. Morgunblaðið innti Svein eftir þvi, hvernig honum hefði þótt myndin miðað við það, sem raunverulega gerðist. — Reunveruleikinn var drama- tiskari en myndin að mörgu leyti. Lög voru samþykkt i Tennessee 1 925, sem bönnuðu, að þróunar- kenning Darwins væri kennd í skólum fylkisins, þar eð hún væri i mótsögn við bibliuna. Málaferlin voru svo þvinguð fram af and- stæðingum laganna. Kennari nokkur tók að sér að leika hlut- verk hins seka, leyfði, að hann væri kærður og viðurkenndi brot sitt, þótt hann hefði vist aldrei á kenninguna minnzt við nemendur sina. — En er ekki efni þessa máls léttvægt fyrir menn nú á dögum? — Saga þessara réttarhalda er i hæsta máta tímabær. Apamálið er sigilt og hið frábærasta efni til frásagnar. Það eru fá mál, sem ég hef kynnt mér, sem hafa i senn fangað huga minn og skemmt mér um leið. Sjálft spursmálið, hvort maðurinn sé kominn af öpum eða skapaður af guði í sinni núverandi mynd, er hreint aukaatriði. Að- dragandi og tilorðning laganna er skripamynd af nútima lagasetn- ingum, og frá henni greini ég að sjálfsögðu i bókinni. Málflutning- ur allur og málatilbúnaður var einnig spaugilegur i allri sinni alvöru, en án hennar hefði þetta ekki orðið það heimsfræga leikrit, samiðaf lífinu sjálfu, sem þaðvar, er og verður. Efnisþráðurinn, tengslin milli apa og manns, er eins og upp fundinn af snjöllum höfundi. sem er að fjalla um djúp- stæð. mannleg vandamál. — Það er fyrst og fremst rök- semdafærslan i málflutningnum, sem er I senn nútimaleg og sígild. Það er hinn kaldi rökhyggjumaður og sveimhuguli stjórnmálamaður, sem eigast við. Menn skulu hafa I huga, að helzti málflutningsmaður rlkisins við þessi réttarhöld var einn mesti mælskumaður, sem Bandarikin hafa átt, W.J. Bryan. Til þess að skilja hið raunverulega drama þurfa menn að þekkja feril og forsögu mannsins nokkuð. Hann var þekktasti stjórnmála- maður Bandarikjanna i áratugi og var þrivegis i framboði til forseta- kjörs fyrir demókrata. Hann réð þvi siðan á flokksþingi demókrata 1912. að Woodrow Wilson varð forsetaefni þeirra, og varð sjálfur siðan utanrikisráðherra i stjórn hans. Heimurinn i dag er fullur af stjórnmálamönnum eins og hon- um, en þeir eru fáir ef nokkrir jafnmælskir. En röksemdafærslan og málflutningurinn ætti að koma mönnum kunnuglega fyrir. — Nútimamenn hafa engin efni á þvi að hneykslast á þessum réttarhöldum frá neinu sjónarmiði og ekki heldur á lagasetningu þeirra i Tennessee fyrir 50 árum. Hundruð milljóna manna I sjálfri Evrópu búa i dag víð lög. sem banna kenningar og lögfesta aðr- ar. Og brot gegn þeim lögum varða alvarlegri dómum en 100 dollara sekt, sem svo er felld nið- ur. Og réttarhöldin, sem haldin eru vegna meintra brota á þessum nútimalögum eru allt annað en spaugileg. Mættum við þá heldur fá fleiri apa-réttarhöld eins og þessi i Tennessee. Þau voru til- tölulega saklaus. Að visu dó Bryan i Dayton, en það var ekki við sjálf réttarhöldin, heldur fjórum dögum siðar en þó var lát hans og allt i sambandi við það stórum dramatiskara og sögulegra en í myndinni. þrátt fyr- ir allt. Um apamálið var mikið rætt og ritað, rifizt og deilt i Bandarikjun- um og vfða um heim. Mér datt í hug, er ég var að skrifa bókina, hvort islendingar I Vesturheimi hefðu ekki deilt svolitið um málið á sina vísu. Og mikið rétt, Lögberg og Heimskringla voru á öndverð- um meiði i máli þessu og rifust hressilega, eins og ég að sjálf- sögðu segi frá í bókinni. Lögberg fylgdi Bryan, og þar birtist m.a.s. hetjukvæði um hann fallinn. eftir Pétur Sigurðsson, siðar erindreka góðtemplarareglunnar. í formálskafla bókar minnar sofli ég: „Við lestur þeirra frá- sagna, sem hér fara á eftir, skyldi enginn dæma og enginn fyrírgefa. Heldur aðeins lita i þær eins og spegil, en i spegli má bæði sjá sjálfan sig og aðra. Sagan af apa- málinu er viðamest og er þvi stærstur spegill." Og við það hef ég aðeins þvi að bæta, að hann er að visu spéspegill, en annars væri heldur ekkert gaman að honum. MaCurinn er ekki skyldur apanum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.