Morgunblaðið - 27.03.1975, Síða 45

Morgunblaðið - 27.03.1975, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 45 / Likið á^grasfletinum J\ 21 — Þú heldur sem sagt að hann hafi verió i einhverju nágranna- húsanna þennan tíma? — Já, sagði Einar. — Það held ég. Þú getur kallað þetta órök- stutt hugboð, ef þú vilt.. en þú tekur nú oft slík hugboð góð og gild. En ég get fært ýmis rök fyrir þessu hugboði minu. Tommy átti heima i dalnum. .. það er sannað svo að ekki verður á móti mælt að á sunnudagskvöld hélt hann rak- leit frá járnbrautarstöðinni og í áttina hingað.... og það var hér, sem hann var myrtur síðustu nótt.... Við sátum um hríð í þungum þönkum, en loks rauf faðir minn þögnina og augljóst var að hann fylgdist betur með samræðum okkar en marka hefði mátt af svipbrigðalausu andliti hans. Hann sagði: — Ég get ekki varist því að velta einu fyrir mér, Einar. Ef fréttir berast hér um bæinn með þessum líka leifturhraða hvernig ætlar þú þá að skýra það að hvorki Mattsonhjónin né Holts- fjölskyldan vilja viðurkenna að vita nokkuð um ferðir hans? Eru þau öll að ljúga að yfirlögðu ráði að lögreglunni eða hefur frétta- þjónustan brugðist hér? — Já, Jóhannes, þarna kem- urðu vissulega að athyglisverðum púnkti, sagði Einar og sneri sér áfjáður að föður minum, prófess- ornum. — Það getur hugsast að fréttin — hafi farið hjá garði Wil- helms Holts. Hér í Skógum ræð- um við einkamál annars fólks, en alltaf að því fjarstöddu. Ef menn hittast augliti til auglitis þá brosa þeir elskulega og rabba um ósköp almenna hluti. — Ég verð að segja að mér finnst vera hreint og beint vió- bjóðslegt fólk sem hér býr, sagði ég full vandlætingar. — O, nei, það er nú of mikið sagt. Sjáðu til, þetta er alls ekki slæmt fólk og brennandi áhugi þeirra á göllum og gæðum ann- arra stafar ekki einvörðungu af illgirni, heldur ekki síður af mannlegri forvitni og þessari miklu þörf til að reyna — beint eða óbeint að upplifa eitthvað spennandi og óvenjulegt. Þess vegna er fólk eins og Tommy Holt augasteinninn þeirra. Víst krossar fólk sig og er yfir sig hneykslað, en það nýtur satt að segja þeirrar vissu að einhver í kunningjahópnum þorir að skera sig úr og er ekki sami smáborgar- inn og þau hin vita sig vera.... fólk dáist að því innra með sér að einhver — í þessu tilfelli Tommy — skuli hafa hugrekki til að láta öllum illum látum, þrátt fyrir allt bæjarslúðrið og hugsunarháttinn Ef þið bara vissuð hvað margat kjaftasögur hafa verið sagðar um Tommy meðan hann bjó heima hjá sér! En það breytti því ekki að hann var vinsæll hvar sem hann kom.... bæði meðal ungra og ald- inna. Og ég efast um að allar þær slúðursögur sem um hann voru sagðar hafi nokkurn tíma borizt fjölskyldu hans til eyrna. Auk þess sem þau halda sig að miklu leyti út af fyrir sig.. .. — Þú telur það að foreldrar Tommys og systir hans hafi alls ekki vitað það sem allir aðrir vissu: að honum hafði þóknast að koma heim? — Ég fullyrði ekkert. Ég segi að þessi möguleiki sé fyrir hendi. — Og Yngve Mattson var í ferðalagi. En Lou.... — Já. Þá komum við aftur að Lou. Og ég fæ ekki betur séð en þú hafir stefnt til hennar allan tímann! Einar brosti striðnislega. Ég verð að viðurkenna að ég á dálitið erfitt með að sjá Lou fyrir mér sem morðingja.. — Ég hef ekkert slíkt gefið i skyn. Ég hef aðeins sagt að mér finnst hún hegða sér vægast sagt einkennilega og ég held fast við það. í meira lagi einkennilega. Brosið hvarf af vörum Einars og hann horfði hugsandi á mig. — Lou hegðar sér alltaf óvenju- lega. Og ég skal viðurkenna að það er hægara ort en gert að botna í henni. En ég hef alltaf haft þá trú að innst inni væri hún ósköp elskuleg og góð stúlka.... blið og dálitið barnaleg og afskap- lega ástfangin af Yngve. Þú spurðir áðan, hvernig leiðir þeirra hefðu legið saman. Ef upplýsingar mínar eru réttar þá var hann einhvern tima í fríi á baðströnd og allt gekk svo fljótt fyrir sig að fólkið í Skógum fékk meira en lítió áfall. Og þvi meira vegna þess að allar mæður og dætur í bænum urðu að horfa á þaó, án þess að fá neitt við ráðið, að bezti hjónabandskandidat bæjarins var gómaður rétt við nefið á þeim — og það af aðkomu- manneskju.. — Ekki get ég ímyndað mér að Ingve Mattson hafi þótt svo eftir- sóknarverður, að konur beinlfnis berðust um að vinna hylli hans. Þessi andstyggilegi og kvikindis- legi maður með þessi frosnu augu. Nei, þessu trúi ég ekki.... Faðir minn ræskti sig hógvær- lega í stólnum sínum, svo ég gerði mér grein fyrir að hann var óánægður með skorinorðar yfir- lýsingar mínar og þótti þær öfga- kenndar. Meira að segja Einar hristi höfuðió. — Nei, nú skalt þú bíða hæg. Mér hefur alltaf fundist Yngve mjög myndarlegur maður. Og hann er sterkríkur. Faðir hans stofnaði fyrirtæki hér í bænum og lét eftir sig mikið af peningum, sem Yngve hefur ávaxtað vel og dyggilega. Hann er snjall kaup- sýslumaður.. og kannski tillits- laus þegar þess gerist þörf. Eg var svo göfug aó ég sagði ekki eitt einasta orð um að tillits- leysið hefði einmitt skinið af and- Velvakandi svarar I slma 10-100 kl. 10.30— 11.30, frá mánudegi 'til föstudags. % Réttur og velferð barna Astrid S. Hannesson skrifar: Þegar svo mikið er rætt um fóstur og fóstureyðingar og ákvarðanir og réttindi i þeim sam- böndum, þá er eðlilegt að spyrja um réttindi og skyldur feðra ekki síður en mæóra gagnvart börn- um þeirra, og spyrja: Ber ekki feðrum skylda til að standa vörð um rétt barnanna, ófæddra sem fæddra alveg eins og mæðrunum? Ber þeiin ekki skylda til að búa svo í haginn fyrir börn sín að þau séu velkomin í þennan heiin? Liggur það ekki í eðli ináls að báðir foreldrar hafi hér skyldur og þar með þjóðfélagið allt, að búa vel i haginn fyrir börn sin að þau séu velkoinin i þennan heiin? Liggur það ekki í eðli máls að báóir foreldrar hafi hér skyldur og þar með þjóöfélagið allt, að búa vel i haginn fyrir koinandi kynslóð? Ber ekki að virða lifsrétt barnsins þegar frá upphafi, og ber ekki að sníöa lög og reglur inannfélagsins varðandi fóstur og börn, viö þennan grundvallandi rétt manneskjunnar til lífs? Á kvennaárinu er eðlilegt að konur berjist fyrir rétti sinum og jafnrétti. En jafnrétti er það ekki ef konan ein hefur rétt til að drepa það lif sem hún gengur með i inóðurlífi. Eólilegt er að áhuga- sainar konur berjist fyrir friði inilli þjóða, og óskandi er að vel inegi til takast uin árangur svo að allar þjóóir megi njóta réttarins til að lifa. En allsherjar friður verður ekki, meðan til eru konur sem berjast fyrir einkarétti til aó drepa fóstur i eigin móðurlifi. Er ekki eðlilegt að lifsrétturinn nái líka til fóstra i inóðurlifi, og til allra barna sein fæðast? Fyrir þessuin rétti ber ekki aðeins kon- um að berjast, heldur körlum ekki siður. Astrid S. Ilannesson". % Dymbilvika Lesandi hringdi til að spyrj- ast fyrir um orðið dyinbilvika, hvernig það væri til orðið og hvaða merkingu það hefði nú. Dyinbill er trékólfur sá nefnd- ur, sein áður og fyrr var settur í kirkjuklukkur í vikunni fyrir páska. Þannig hefur klukkna- hljómurinn orðið daufari og drungalegri i samræmi við and- rúinsloftið þessa daga. Undanfarin ár hefur kyrrð og hátíðleiki i dyinbilviku og reyndar páskadagana lika sætt nokkurri gagnrýni. Suinir hafa sagt, aó hátiðleikinn sé úreltur, þessa daga eigi fólk langt fri, sem sjálfsagt sé að nota til skemmtana og afslöppunar, í stað þess að hlýða á sálmasöng og orgelspil. Uin leið og þessu hefur verið haldiö fram, er svo fárast yfir hraða og iátuin í nútíinaþjóð- félagi, þannig að þarna skýtur nokkuð skökku viö. Margur hefði nú haldið, að fólk hefði einmitt gott af því að vera til friðs þessa daga, enda eru þeir áreiðanlega fleiri, sein una sér vel án hávaóans í nokkra daga. % Páskaegg Kona nokkur hringdi, og sagðist hafa komió inn í verzlun um daginn í þeim erindagjörðuin að festa kaup á páskaeggjuin. Kvaðst hún hafa veitt því athygli, að páskaeggjum hefði nú farið allmikið aftur frá því sem áður var, — þau værú ininna skreytt en áður, auk þess sein þau hefðu hækkaó gifurlega í verði frá þvi í fyrra. Það væri nú reyndar engin furða þótt þau hækkuðu eins og allt annað, en sér hefói brugðið i brún þegar inaður nokkur koin inn í verzlunina til að kaupa sex páskaegg, sein hann tók frain að ættu að vera handa börnuin sín- uin, konu sinni og sér. Hann hafði fjargviðrazt inikið yfir því hve eggin voru orðin dýrkeypt, — sagðist hafa keypt egg i fyrra, sein kostuóu rúinar 900 krónur. Hann sagðist ætla að kaupa egg á svipuðu verði nú, en að sjálfsögðu væru þau iniklu minni en þau, sein hann fékk í fyrra. Nú spyr konan, sein varð vitni að þessuin innkaupuin: „Hvernig hefur sá, sein hefur efni á að spandera 6 þúsund krónum i páskaegg handa farnilíunni, ráð á þvi að tala um dýrtið?" Spyr sá, sem ekki veit, en kannski fjölskyldan sé orðin svo aóþrengd eftir föstuna, aó ekki veiti af að borða vel af súkkulaði á eftir. 0 Hvernig á að verja fríinu? í nútimaþjóðfélagi er eitt vandamál, sein oft er nefnt, en það eru tómstundirnar. Það er vandrataður ineðalvegurinn; þegar búið er að fá því fraingengt eftir inargra ára baráttu að tóin- stundir séu ríflegar, er farió að vandræðast út af þvi hvað eigi að gera af sér þegar ekki er verið að vinna. Nú um páskana eiga flestir frí i fiinin daga sainfleytt og þá er kannski von að spurt sé: Hvað á að gera? Kvikmyndahús og leik- hús eru ekki opin þessa daga og ballhúsin eru meira að segja lokuð lengst af. En sein betur fer er ýinislegt annað hægt að gera sér til dund- urs og ánægju. Skíðaiðkun og úti- líf af ýmsu tagi hefur átt vaxandi vinsælduin að fagna undanfarin ár og sérstaklega hefur Bláfjalla- svæðið koinið Reykvíkinguin í góðar þarfir að þessu leyti. Þegar Bláfjöll eru nefnd keinur skíða- iþróttin fyrst i hugann, en ástæða er að vekja athygli á því, að inenn þurfa ekki að vera skióakappar íneð útbúnaö úpp á tugi þúsunda til að fara þangað. Þar eru ágætar sleðabrekkur auk þess sem þar er hægt að fara i gönguferðir. Og það er víðar hægt að stunda útivist en í Bláfjölluin, þvi að Reykjavik og nágrenni eru injög víða skeimntilegar gönguleiðir og reyndar um allt land. Við óskuin lesenduin gleði- legrar hátíðar og hvetjuin þá til að nota tíinann vel og skynsain- lega. SlGGA V/öGA £ “Í/LVERAW — Að eyða . . . Framhald af bls. 13 fulinustu en væri um ieið hluti af stærri myndrænni heild. I bókinni ís og eldur eru mynd- irnar ýmist i lit eða svarthvítu enda tekur Hjálmar jöfnum hönd- um lig og svar-hvítt. Hins vegar segir hann að mun meiri vinna sé fólgin í svart-hvítu myndunum en litmyndunum, þar’eð framköllun- in og stækkun sé oft meira en hálfur vandinn við svart-hvítu myndirnar en nánast öll vinnan í litmyndinni fari fram í sjálfri tök- unni. „Ljósmyndun hefur veitt mér ómældar ánægjustundir en einn- ig mikla vinnu og erfiði," segir Hjálmar. „Hins vegar er ekki hlaupið að því að gefa öðrum ráð hvernig taka eigi myndir. Það er án efa að einhverju leyti með- fædd tilhneiging, þó að auðvitað séu til ótal reglur þar að lútandi, eins og innan annarra greina sjónmenntar. Og að sjálfsögðu er gott að þekkja þessar reglur en ég held að enginn öðlist samt fullt öryggi vió ljósmyndunina nema hafa lært þær og gleymt þeim aftur. Góður ljósmyndari byggir upp mynd sína nánast ósjálfrátt, en oft getur tekið langan tíma að finna beztu lausnina. Sjálfur hef ég iðulega eytt heilum degi til að ná einnieinustumynd.í annað skiptið var ég næstum heilan vet- ur aðundirbúatæknilegan búnað við ljósmyndun á einu verkefni —t nánar tiitekið á ískristöllum vegna bókarinnar „ís og eldur". Þá hefur það oft reynst mér vel að fara oft á sama stað i leit að fyrirmyndum, því að eftir þvi sem maður þekkir staðinn betur, þeim mun betri árangri nær maður, og þess vegna get ég vel skilið tíðar ferðir listamanna til sömu staða aftur og aftur. En fyrir bragðið henta hópferðir mér illa og reynd- ar er ekki hentugt að vænta þess, að fjöldi fólks taki tillit til duttl- unga minna. Þess vegna feróast ég yfirleitt einn mins liðs nú oróið eða meó mönnum sem hafa hlotið nær takmarkalausa þolinmæði og umburðarlyndi i vöggugjöf. IHLb=IHLHL!=U£Q:liflHyf Vesturröst h/f Laugaveg 1 78. Simi16770 Remimíton Haglabyssur 2%" og 3" „Automatic" eða „Pumpur". Rifflar 22 cal. 243 cal. 22—250 cal. 22 cal.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.