Morgunblaðið - 17.05.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1975 Greiðsluhalli ríkissjóðs: 3,3 milljarðar 1974 Geir Hallgrímsson Viðskiptaþing Verzlunarráðs Is- lands 1975 hefst þriðjudaginn 20. maí n.k. kl. 13.30 í Kristalsal Ilólel Loftleiða. Þingið hefst með ávarpi Geirs Hallgrímssonar for- sætisráðherra. Síðari dag ráð- stefnunnar mun Gylfi Þ. Gíslason fyrrum viðskiptaráðherra flytja ávarp. Við setninguna mun einnig flytja ávarp Gísli V. Einarsson formaður Verzlunar- ráðsins. Viðfangsefni þingsins er hlutverk verzlunar og verðmynd- unar í frjálsu markaðskerfi. A þriðjudag mun Þráinn Eggertsson hagfræðingur flytja erindi um frjálst hagkerfi og hlut- verk verðmyndunar með hliðsjón af þeim árangri, sem mismunandi búskaparhættir skila. Guð- mundur H. Garðarsson formaður V.R. mun ræða um gildi frjáls markaðsbúskapar frá sjónarhóli launþega. Prófessor Ölafur Björnsson mun ræða um þróun verðlagsmála og verðlagslöggjaf- ar síðustu áratugi og Ólafur Davíðsson hagfræðingur mun skýra hvernig verðmyndun fer fram í dag í hinum ýmsu fram- leiðslugreínum. Á miðvikudag hefst viðskipta- þingið kl. 12, en síðdegis ræðir Þorvarður Eliasson um verðlags- löggjöf og framkvæmd verðlags- eftirlits. Árni Arnason fjallar um eftirlit með óheilbrigðum við- skiptaháttum Guðmundur Einars- son formaður Neytendasamtak- anna mun ræða hvaða fyrirkomu- lag verðlagsmála tryggi bezt hags- Myntuppboð LISTMUNAVERZLUNIN Klaust- urhólar heldur myntuppboð í dag, laugardag. Verður uppboðið i Tjarnarbúð og hefst klukkan 14. -SAMNINÓAR VtAFA TEKIST UM LAUNAKJÖR ORGANISTA Gylfi Þ. Gíslason muni neytenda. Prófessor Guð- mundur Magnússon fjallar um á hvern hátt stjórnvöld geta haft áhrif á verðlag og um tilefni og afleiðingar slíkra afskipta. Báða dagana munu fara fram panelumræður. Fyrri daginn verður fjallað um þær breytingar, sem gera þarf á hagkerfinu til þess að atvinnurekstur skili þjóð- inni beztum árangri Síðari daginn verður rætt um ýmsa þætti verð- lagsmála og þá framtíðarskipan verðlagseftirlits, sem stefna ber að. SÚREFNISSKORTUR er þegar farinn að segja til sín í vélsmiðj- um og á bifreiðaverkstæðum, vegna verkfallsins í Aburðarverk- smiðjunni, sem er framleiðandi þess súrefnis, sem notað er í land- inu. Jónas Jóhannsson, yfirverk- sljóri i lsaga, sem er dreifingar- aðili súrefnisins sagði að enn væru engin stórverkstæði stopp af þessum sökum og treindu verk- stæðin sér súrefnið og notuðu allt öðru vísi en við eðlilegar kring- umstæður. Sjúkrahúsin fá jafnframt allt súrefni sitt frá Isaga. Jónas sagði að enn væri enginn hörgull súr- efnis í sjúkrahúsunum og væru þau birg fram yfir hvítasunnu. Þá kæmi að því, að endurnýja þurfi birgðír þeirra. Sagði Jónas jafn- framt að Isaga seldi ekki súrefni vegna sjúkrahúsanna og héldi til haga birgðum fyrir þau. Jónas KVEÐINN hefur verið upp hjá sýslumanni Gullbringusýslu dóm- ur í máli skipstjórans á Sæfara RE 77, sem tekinn var fyrir meintar ólöglegar togveiðar á friðaða svæðinu útaf Krísuvfkur- bjargi um s.l. helgi. Var skipstjór- inn dæmdur I 400 þúsund króna sekt og 45 daga fangelsi, afli og veiðarfæri voru gerð upptæk. Þess má geta, að ekki er nema FJÁRMALARAÐHERRA lagði í gær fram á Alþingi ríkisreikning- inn fyrir árið 1974. Gjöld rfkis- sjóðs árið 1974 reyndust 41,8 milljarðar króna, en tekjur 37,7 milijarðar króna. Gjöld umfram tekjur reyndust því vera 3.287 milljónir króna. Matthías Á. Mathiesen f jármálaráðherra sagði á Alþingi í gær, að hækkun skulda ríkisins hefði numið 3863 millj. kr. árið 1974. Sú breyting hefði annars vegar komið fram í óhagstæðum greiðslujöfnuði um 2.294 millj. kr. og óhagstæðum lánajöfnuði um 1.569 millj. kr. Fjármálaráðherra sagði, að greiðslujöfnuður með þrengri skilgreiningu þ.e. jöfnuður sjóðs og bankareikninga, hefði verið óhagstæður um 3.171 millj. kr. Ef skuldaaukning á lánareikningum við Seðlabankann um 220 millj. kr. væri talin með væri greiðslu- jöfnuðurinn þannig skilgreindur óhagstæður um 3.391 millj. kr. Ráðherra sagði, að stærsfu gjalda- liðir hefðu verið eins og áður framlög til Tryggingastofnunar ríkisins og atvinnuleysistrygg- ingasjóðs eða 12,1 milljarður króna, sem væri 2 miíljörðum kr. umfram fjárlög. Til niður- greiðslna og uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir hefðu farið 4,6 milljarðar kr. eða 2,7 milljörð- um umfram fjárlög. Gjöld til vegagerðar hefðu numið 3 millj- kvaðst ekki bera neinn kvíðboga fyrir súrefnisskorti fyrir sjúkra- húsin, þar sem verkalýðsfélögin hefðu ávallt sýnt mikla lipurð vegna þeirra og bjóst hann ekki vjð því að standa myndi á undan- þágu fyrir súrefnisframleiðslu til sjúkrahúsanna nú fremur en endranær — ef til þess þyrfti að koma að leitað væri eftir henni. Samkvæmt upplýsingum Hjálmars Finnssonar, forstjóra Áburðarverksmiðjunnar, hefur ástand mála í sambandi við áburð- inn ekki breytzt frá því er Mbl. skýrði frá því siðast, en þá var frá því skýrt að Aburðarverksmiðj- unni hefði tekizt að senda út á nær allar hafnir landsins þann áburð, sem þangað átti að fara. Ætti því ekki að koma til vand- ræða, fyrr en lengri tími líður — og vonandi verður kjaradeilan leyst fyrir þann tíma. hálfur mánuður sfðan þessi sami bátur var færður til hafnar fyrir ólöglegar veiðar aðeins 2 sjómíl- ur útaf Eyjafjallasandi. Var þá sami skipstjóri með bátinn og var hann dæmdur í 330 þúsund króna sekt og30 daga fangelsi hjá bæjarfógetanum I Vestmannaeyj- um. Það var s.l. laugardag að þyrla Landhelgisgæzlunnar stóð Sæfara örðum kr. eða 960 milljónum kr. umfram fjárlög. Samtals væri hér um að ræða 19,6 milljarða kr. eða 48% af gjöldum ríkissjóðs og um 5,8 milljarða kr. umfram fjárlög eða um 50% af gjöldum umfram fjárlög. Matthías Á. Mathiesen sagði, að gjöld ríkisreikningsins vegna markaðra tekna og notkunar láns- fjár og sérstakra gjaldaheimilda hefðu numið 2,6 milljörðum króna umfram það sem fjárlög ætluðu. Ef tekið væri tillit til STEyPA er nú alls staðar gengin til þurrðar á Stór- Reykjavíkursvæðinu vegna vcrk- fallsins I Sementsverksmiðjunni. Síðasta steypustöðin sem átti steypu var steypustöð Breiðholts, og gekk steypa þar til þurrðar í fyrrakvöld. Steypustöðin h.f. og B.M. Vallá seldu síðustu steypuna á þriðjudagskvöldið. Áhrif þessa eru þau að múrar eru þegar verk- lausir, en trésmiðir geta enn haldið áfram uppslætti móta, sem byrjað var á. Astandið á bygg- ingarmarkaðinum mun verða mjög alvarlegt, ef ekki semst upp úr miðri næstu viku — var sam- dóma álit þeirra, sem Mbl. ræddi við í gær. Sigursteinn Guðsteinsson hjá B.M. Vallá sagði að í raun þyrfti fyrirtækið að segja upp starfs- fólki, en það myndi þó ekki gera það fyrstu vikuna í von um að verkfallið leystist. Hefur öll vinna þó verið skorin niður og er aðeins unnin knöpp dagvinna. Sigursteinn sagði að menn hefðu búizt við því að steypa yrði kannski til eitthvað lengur, m.a. í Steypustöðinni, en sú trú hafi verið á misskilningi byggð. Því væru múrarar nú unnvörpum verklausir um allan bæ. Sagði Sig- ursteinn að þeir yrðu allir at- vinnulausir í næstu viku, svo og trésmiðir úr því. Hann gat þess að samkvæmt upplýsingum Bene- „ÞEGAR allt er tekið með í reikn- inginn metum við þetta 50% tjón en Hvassafell er vátryggt fyrir 7 milljónir þýzkra marka,“ sagði Sverrir Þór deildarstjóri hjá Samvinnutryggingum er Mbl. ræddi við hann í gær. Vátrygg- tvisvar mánuði að veiðum 0,6 sjómílur inni á friðaða svæðinu útaf Krisuvíkur- bjargi. Var hann með sitt fyrsta tog í veiðiferðinni. Var bátnum skipað að koma til hafnar. Sigurð- ur Hallur Stefánsson fulltrúi sýslumannsins í Gullbringusýslu fékk málið til meðferðar og kvað hann upp dóminn í fyrradag. Meðdómendur voru Þorsteinn Einarsson og Árni Sigurðsson skipstjórar. Skipstjórinn á Sæfara RE 77 áfrýjaði ekki dóm- inum til hæstaréttar en í fyrra tilfellinu, þegar hann var dæmd- ur í Vestmannaeyjum, áfrýjaði hann til hæstaréttar. þessarar sjálfvirku gjaldfærslu utan fjárlaga næmu umframgjöld 8,9 milljörðum kr. eða um 28% umfram fjárlög og þessar sér- stöku heimildir. Fjármálaráðherra sagði, að tekjur ríkissjóðs hefðu numið 35,7 milljörðum króna eða 8,5 milljörðum umfram fjárlög. Þetta er í fyrsta sinn, sem ríkisreikn- ingurinn, A-hluti, er lagður fyrir Alþingi með þessum hætti aðeins rúmum fjórum mánuðum eftir að reikningsárinu lauk. dikts Davíðssonar ynnu um 3 þús- und manns í byggingariðnaðin- um, en hann myndi fljótlega fara að lamast. Bjóst Sigursteinn við að um miðja næstu viku myndu á annað þúsund manns verða at- vinnulausir vegna verkfallsins í Sementsverksmiðjunni. Sagði hann að þetta ástand skapaðist á allra versta tima fyrir byggingar- iðnaðinn — eða einmitt þegar bjartsýni og lif hefði verið að fær- ast yfir hann, eftir erfiðan vetur. Sveinn Valfells, verkfræðingur hjá Steypustöðinni, sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar hjá fyrirtækinu um upp- sagnir starfsfólks, en ef verkfallið leystist ekki, — sem allir vonuðu — yrðu uppsagnir óhjákvæmileg- ar. Ljóst væri að fyrirtækið gæti ekki staðið við óbreytt útgjöld á sama tíma og tekjur þess færu niður í ekki neitt. Sveinn sagði að þegar gætti mikils samdráttar, þvf að þegar hefði öll eftir- og næturvinna stöðvazt. Væri það mikið tjón t.d. fyrir þá aðila, sem ynnu hjá steypustöðvunum, þvi að um það bil helmingur tekpa þeirra væri af eftir- og nætúr- vinnu. Þá segði verkefnaleysi þegar til sín á byggingarsvæðun- um og ástandið kæmi við allan byggingariðnaðinn. Bjóst hann við því að um 1.500 til 2.000 manns yrðu verkefnalausir eftir Framhald á bls. 47. ingarupphæðin reiknuð í íslenzk- um krónum er 455 milljónir svo samkvæmt því reiknast tjónið á um 225 milljónir króna. Hvassafellið verður dregið upp í slipp hjá Slippstöðinni á Akur- eyri i dag og þá verður fyrst hægt að meta með nákvæmni hve miklar skemmdir hafa orðið á skipinu. Sverrir Þór sagði, að menn væru með lauslegar getgát- ur um tjónið og hann vildi ekki tala af meiri nákvæmni en það, að 100 milljónir nægðu ekki til að gera við skipið og 30 milljónir nægðu ekki til að greiða björg- unarlaun og annan kostnað við björgun skipsins. Sverrir sagði að á næstunni yrði leitað tilboða í viðgerð á skipinu. Það væri geysi- mikið verk, t.d. væri álitið að botninn væri að mestu ónýtur. Samningsaðilar vísari um vísitöluna SAMNINGAFUNDUR ASl og vinnuvcit* enda, sem boðaður var klukkan 16 I gær stóð í tæplega 2 klukkustundir. A fundinum gerðu hagfræðingar ASÍ og VSÍ grein fyrir athug- unum sfnum á vfsitölumálinu. Næsti fundur er ráðgerður á þriðjudag eftir hvftasunnu, en þá mun fyrirhugað að Jón Sigurðsson, for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, og Klemenz Tryggvason, hagstofustjóri, geri grein fyrir spám um verðlagsþróun næsta misseri. Viðskiptaþing V.L hefst á þriðjudag Afleiðingar verkfalls í Aburðarverksmiðju: Súrefnisskorts gæt- ir í vélsmiðjum Sjúkrahúsin eiga súrefnisbirgðir fram gfir hvítasunnu Sæfari RE tekinn í landhelgi á V2 Skipstjórinn dœmdur í samtals 730 þús. króna sekt og 75 daga fangelsi Astandið í bgggingariðnaðinum: •• 011 eftir- og nætur- vinna skorin niður HvassafeU: Tjónið metið á 225 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.