Morgunblaðið - 17.05.1975, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
f
'Á'l
CAR REIMTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
Fa
'ALUR?
FERÐABILAR h.f.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbikar — stationbilar
— sendibilar — hópferðabilar.
Enskunám
í Englandi
Sumarnámskeið Scanbrit verður
í Bornemouth 12. júlí—16.
ágúst. Eyðið sumarleyfinu við að
bæta enskukunnáttuna í fögru
umhverfi. Uppl. gefur Sölvi Ey-
steinsson, sími 14029.
Grásleppu-
net
Lækkað verð
Dökkbrún girnisnet,
11 möskva djúp,
möskvastærð IOV2”.
Girni nr. 10 kr. 1.100.-.
Girni nr. 12 kr. 1.290.-.
HtÍAtant G. (iJJLiAjQn F
''sími 20000
PHILIPS
BÍLAPERUR
MARGAR
GERÐIR
HEILDSALA
heimilistæki sf
SÆTÚNI 8 — S. 24000
Sr. BOLLI
GÚSTAFSSON
í Laufási:
eiminn skortir ekki yfirlæti.
Menn eru sifellt að sigrast á
vandamálum og verk þeirra eru
ekki vanmetin af þeim sjálfum,
þegar sigranna er minnst eða
. frægðarverkin afhjúpuð. Jón
sterki lifir enn góðu lífi. Okkur
hefur tekist að sigrast á hinum
tæknilegu erfiðleikum á þess-
um vettvangi eða hinum, full-
kominn tækjabúnaður vakti
heimsathygli, hið flókna kerfi
brást ekki, vegna frábærra
hæfileika vísindamanna og
tæknifræðinga. Mikilsverðum
áfanga var náð á lei.ð til þess
markmiðs, sem konungurinn,
forsetinn, eða foringinn settu í
upphafi, er þeir birtu þá áætl-
un, sem nú er i framkvæmd.
Orðið, fullkomið, er notað i
auknum mæli um verk mann-
anna. Sú saga er sögð, að á
velmektardögum hins forna
Rómaveldis hafi keisararnir
jafnan gætt þess, þegar þeir
héldu hinar íbúðarmiklu sigur-
göngur, að hafa þræl að baki
sigurvegaranum á stríðsvagnin-
um, sem hvíslaði með vissu
millibili í eyra hans: Mundu, að
þú ert dauðlegur maður! Það
virðist ekki vanþörf á, að minna
sigurvegara tuttugustu aldar á
þá staðreynd, að þeir eru ein-
ungis ófullkomnir menn, jafn-
vel þótt þeir svífi dálítinn spöl
út fyrir þessa litlu plánetu, sem
við byggjum. Undirrót margra
þeirra skelfilegu atburða, sem
skráðir verða á söguspjöld
þessa tímaskeiðs, er sú, að ein-
staklingar eða þjóðir hafa
ofmetnast, telja sig hafa allt í
hendí sér; farsæld heimsins eða
tortíming séu háðar ákvörðun-
um þeirra. Guð fái engu breytt,
enda sé hann ekki gildur í
vísindastöðvum, viðskiptamið-
stöðvum eða i þingsölum og á
stjórnarsetrum. Guð. Hvers
vegna erum við ennþá að tala
um Guð? Hvers vegna eru
menn að læra þau óraunhæfu
fræði, sem eru einungis undir-
búningur þess, að flytja
boðskap Jesú Krists, að prédika
Guðs orð. Lengi var sagt hér á
landi, að það væri vegna þess að
arðvænleg embætti freistuðu
þeirra. Nú er miklu vænlegra
til veraldlegrar velgengni að
læra einhverja iðn eða þá að
ganga á verzlunarskóla. Hvers
vegna er þá verið að kenna
þessar gömlu og úreltu Biblíu-
sögur í barnaskólunum, náms-
grein, sem fer í taugarnar á
fjölmörgum róttækum og víð-
sýnum kennurum? Hvað varðar
menn um Adam og Evu og örk-
ina hans Nóa? Þetta er mörgum
brennandi og brýn spurn. Fer
ekki þessum ósköpum að linna?
Það verður ekki menntamála-
ráð eða ráðherrar, sem hafa
kirkjumál að aukastarfi, ekki
eínu sinni biskupar, sem taka
ákvörðun um það. Hver gerir
það þá? Andi Guðs. Það verður
Guð, faðir vor á himnum, sem
tekur ákvörðun um það, hve
lengi hann þolir mönnunum að
vaða reyk og hreykja sér, hve
lengi hann leyfir þeim óáreitt-
um að lítilsvirða kristna trú.
Sá heilagi Andi er staðreynd,
ekki nein séreign Hvítasunnu-
manna, heldur Iifir í samfélagi
Hátíð
andans
kristinna manna um allan heim
og hvergi augljósari en í kirkj-
unni, sem stendur fyrir mátt
hans. Það er ekki vegna girni-
legra embætta, sem þjónar
kirkjunnar ganga fyrir altari
Guðs, ófullkomnir og óverðug-
ir. Til guðsþjónustunnar erum
við knúin af sama leyndar-
dómsfulla aflinu. Það afl er
heilagur Andi, huggarinn, sem
Jesús segir, að faðirinn sendi í
hans nafni. „Hann mun kenna
yður allt og minna yður á allt,
sem ég hefi sagt yður,“ sagði
Jesús. Hann prédikar sífellt i
sálu þinni og minni. Hann
lætur okkur ekki í friði, ef við
breytum gegn því boðorði sem
felur i sér lögmálið og spá-
mennina. — Rætt er um
friðvana, leitandi sálir; að hann
eða hún séu leitandi. Sumir
vilja jafnvel halda því fram að
kirkjan sé leitandi. Væri þvi
svo háttað, þá er eitthvað meira
en litið að. Þá er kirkjan ekki '
lengur sú stofnun, er grund-
völluð var á hinum fyrsta hvíta-
sunnudegi. Þá veitti kirkjan
viðtöku þeim friði, sem Jesús
Kristur gefur með heilögum
Anda, þeim friði sem gróð-
ursettur var i hjörtu þeirra,
sem fagnandi gengu út i opinn
dauða fyrir trú sína og hrædd-
ust hvorki sverð, eld né óarga-
dýr. Sú bæn, sem er flutt i
þeirri trú, býr yfir þeim sigur-
mætti, sem leysir öll vandamál,
er á vegi okkar verða. „Svo er
án bænar sálin snauð, sjónlaus,
köld, dauf og réttsteindauð.orti
séra Hallgrimur. Ef kirkjan er
leitandi, þá er það ekki leit
eftir nýjum Guði eða nýju fagn-
aðarerindi, heldur leit að ráð-
um til að stöðva þá ringulreið,
sem i heiminum ríkir, ráðum til
þess að einstaklingurinn þurfi
ekki að komast i bráðan lífs-
háska til þess að finna þá lausn,
sem hann leitar að og til þess að
átta sig á þvi, að huggarinn er i
heiminum; heilagur Andi Guðs
lifir í kirkjunni, í þeirri þjón-
ustu, sem þú getur hæglega
orðið virkur i þar. Þá getur þú
með fögnuði játað: „Ég trúi á
heilagan Anda, heilaga
almenna krikju, samfélag heil-
agra, fyrirgefningu syndanna,
upprisu dauðra og eilíft líf.
Amen."
. Htrj alía Í^einjs-ljfjjgíi-irj-a jái-mrílíCj
' ^eií-'óc l|ir)(-jct.I,II. jjícj Sr'é-ur Íjcesí-ii
fjá-íicjij-ar/jjiijij íil-ieitsf-u-ner^-a,
sarr-ft eiij-^et-iijij 5017/05 ^^-ar-aifij
Tvær umferðir verða spilaðar
í dag í úrslitakeppni Islands-
mðtsins. Þriðja umferðin hefst
kl. 13 og spila þá saman sveitir:
Þóris og Helga
Jóns og Braga
Hjalta og Boga
Þórarins og Þórðar.
Fjórða umfcrðin verður svo
um kvöldið og hefst klukkan
20, þá spila saman sveitir
Helga og Þórðar
Boga og Þórarins
Braga og Hjalta
Þóris og Jóns
A morgun hvítasunnudag
verða svo spilaðar fimmta og
sjötta umferðin en mótinu lýk-
ur á mánudag en þá verður
sjöunda umferðin spiluð. Hefst
spilamennskan kl. 13 báða
dagana.
Sýningartaflan verður notuð
í dag og á morgun og verður
einhver leikjanna sýndur í
hverri umferð. Ahorfendur eru
velkomnir.
xxxxxx
Frá Bridgefélagi kvenna.
Eftir 3 umferðir f parakeppni
félagsins eru eftirtalin pör
efst:
stig.
Steinunn Snorradóttir —
Agnar Jörgensson 392
Gunnþórunn Erlingsdóttir —
Þorsteinn Erlingsson 382
Unnur Jónsdóttir —
Jón Baldursson 374
Margrét Ásgeirsdóttir —
Vilhjálmur Aðalsteinss. 373
Sigríður Pálsdóttir —
Jóhann Jóhannsson 363
Anna Guðnadóttir —
Kristján Guðmundsson 361
Kristjana Steingrímsdóttir —
Gunnar Vagnsson 360
Esther Jakobsdóttir —
Guðmundur Pétursson 354
Guðríður Guðmundsdóttir —
Sveinn Helgason 353
Lóa Kristjánsdóttir —
Baldur Asgeirsson
Meðalskor: 324 stig.
349
4. og næstsfðasta umferð
verður spiluð þriðjudaginn 20.
maí kl. S.e.h. stundvíslega í
Domus Mediea.
Bridgefélag Hafnarf jarðar
hauð Bridgefélagi kvenna til
keppni mánudaginn 14. apríl
s.l. og var spilað f Skiphól, 10
sveitir frá hvoru félagi. Bridge-
félag kvenna vann þessa
keppni með 120 stigum gegn 80
stigum Bridgefélags Hafnar-
fjarðar.
A.G.R.
• n
rmnmmi* Htff**"***"****