Morgunblaðið - 17.05.1975, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAI 1975
Petta gerðist líka...
Síðustu stundir Vladimirs Komarovs
Baodarfkjamenn „hleruðu" siSustu stundir Vladimirs Komarovs
höfuðsmanns, þegar bilun i geimfari hans olli þvi, að það þeyttist
stjórnlaust i átt til jarðar, þar sem vis dauðinn beið hins
sovéska geimfara. Þessi atburður gerðist í april
1967, en Bandarikjamenn hafa þagað yfir
vitneskju sinni um hann þartil nú fyrirnokkrum
dögum. þegar Winslow nokkur Peck, fyrrum
starfsmaður við bandaríska hlustunarstöð i Tyrk-
landi, skýrði loks frá þessu. „Dauðastriðið" stóð
i fullar tólf stundir, og Bandarikjamennirnir
heyrðu hvert orð sem fór á milli geimfarans og
landa hans niðri á jörðinni. Peck segir: „Ég get
ekki lýst þvi, hve þetta var átakanlegt, en um
leið var það ótrúlega áhrifarikt ..." Þegar örlög
Komarovs máttu heita ráðin, talaði Kosygin við
hann frá skrifstofu sinni i Kreml, og mátti heyra á
röddinni hve forsætisráðherrann var hrærður.
„Þú og þinir likar hafa unnið stærstu afrekin i
sögu Sovétrikjanna," sagði hann. „Við munum
aldrei gleyma þér." Komarov kvaddi lika konuna
sina, sem i örvæntingu sinni gat litið annað sagt
en að endurtaka i sífellu: „Ég elska þig. Ég elska þig. ' Sovéskir
geimvísindamenn voru líka i sifelldu sambandi við geimfarann og gerðu
örvæntingarfullar tilraunir til síðustu stundar til að bjarga lífi hans. En
undir lokin virtist hann yfirbugast. Bandaríkjamennirnir heyrðu þegar
hann hróðapi: „Þið verðið að gera eitthvað! Ég vil ekki deyja!"
Litla stórveldið
Það er búið að skrifa og skrafa svo mikið um atburðina í Suð-austur
Asíu á undanförnum vikum, að fjöldinn allur af smáum og stórum
atriðum hefur bókstaflega drukknað í fréttaflóðinu. Ætli menn
átti sig til
dæmis almennt á
því, að svo
gífurlegt magn
af stríðstólum
féll í hendur
Norður-Víetnöm-
um að þeir gætu
nú skákað fram
þriðja stærsta
herafla veraldar; einungis Kinverjar og Sovétmenn stæðu þcim þar á
sporði. Saigonstjórnin skilaði semsagt nær öllum vopnabirgðum sínum
óskertum í hendur Norðanmönnum. Breska blaðið Daily Telegraph
nefnir til dæmis: 600 skriðdreka af Pattongerð, 500 flugvélar af ýmsu
tagi (þar á meðal yfir 100 orustuvélar og 32 fjögra hreyfla Hercules-
vélar), aragrúa brynvarinna bíla, 1500 fallbyssur af öllum stærðum og
gerðum og loks hundruð þúsunda bandarískra hermannariffla og
annarra smærri vopna. Þá er ótalinn floti Suður-Víetnama, en andvirði
alls þessa herfangs er sagt nema fimm þúsund milljónum dala.
0g þú líka, félagi Kmeri?
Fyrsta reynsla Sovétmanna af hinum nýju valdhöfum Kambódíu var
vægast sagt heldur óskemmtileg. Þeim varð ekki vært í sendiráði
sínu fremur en öðrum eriendum
sendimönnum og komust loks við
illan leik yfir í sendiráð Frakka, þar
sem hundruð annarra flóttamanna
höfðu þegar leitað hælis. Rauðu
kmerarnir sýndu Rússunum engu
meiri linkind en öðrum útlendingum.
Þeir gerðu aðsúg að þessum „félög-
um" sínum frá Moskvu þegar þeir
reyndu að bjarga sendiráðsfánanum.
Sovétmennirnir urðu auk þess fyrir
barsmíð og einn þeirra var með Ijótt
sár eftir byssusting að mönnum
sýndist, þegar hann komst loks til
franska sendiráðsins. Og loks átti
það fyrir Rússunum að liggja að vera gerðir brottrækir úr Kambódíu rétt
eins og starfsbræður þeirra frá löndum „heimsveldissinnanna".
Vík frá mér, CIA
Kissinger verður varla láð það þó hann sé dálitið rislágur um þessar
mundir, en hann er samt enn sem fyrr eitt helsta frétta-
efni heimsblaðanna. Nú er það nýjasta
af honum, að vinátta hans og CIA hafi
kólnað allmikið upp á síðkastið. Utan-
rikisráðherrann kvað vera farinn að
tregðast við að lesa skýrslur og spár
leyniþjónustunnar um helstu „hættu-
svæði" heimsbyggðarinnar, en þó
einkanlega þau i Asiu og i Austurlönd-
um nær. Hann ráðfærir sig i staðinn við ýmsa sérfræðinga um
alþjóðamál, sem hann hefur fundið sér sjálfur.
Karlmenn krefjast kvenréttinda
Þá kom loksins að þvi, að karlmenn kvörtuðu undan misrétti
kynjanna. Karlmennirnir við þá deild bresku tollgæslunnar, þar sem
starfsfólkið ber einkennisbúning við vinnu sína, hafa kvartað undan því
opinberlega, að kvenfólkið njóti þar meiri friðinda. Bæði kynin fá
einkennisföt og regnkápu sér að kostnaðarlausu. en kvenfólkið að auki
(veina karlmennirnir) bæði skó og sokkabuxur. — Það fylgir þó ekki
sögunni. hvort breskir tollþjónar af „sterkara kyninu" ætli að byrja að
ganga i sokkabuxum.
Sitt lítið af hverju
Juan Vila Reyes, 47 ára gamall kaupsýslumaður i Barcelona, sem var
ákærður fyrir að svikja sem samsvarar 70 milljónum sterlingspunda
útúr spænska rikinu, hefur verið dæmdur i 223 ára fangelsi. Þrír aðrir
sakborningar „sluppu" með 108 ár hver . . . . Indverskir landamæra-
verðir fullyrða, að þeir hafi haft hendur í fiðri bréfadúfu, sem Pakistan-
arnir hafi þjálfað og gert út af örkinni með örsmáa myndavél undir
öðrum vængnum, til þess að taka myndir af hernaðarmannvirkjum i
Kashmir. . . Og loks er þess að geta, að þegar forstöðumaður bókasafns
eins i Oxfordshire í Bretlandi tilkynnti fyrir skemmstu, að hann mundi
ekki næstu þrjár vikurnar innheimta dagsektir fyrir þær bækur, sem
mönnum hefði láðst að skila á réttum tima, þá kom einn viðskiptavinur-
inn röltandi með bók undir handleggnum og þakkaði kærlega fyrir
lánið. Hann hafði fengið hana lánaða árið 1918.
MORGinnuaiB
fvrir 50 árum
AKUREYRI — Hjer eru
nú málaferli víðtæk á ferð-
inni. Fyrsta tilefni þeirra
var greinarkorn, sem
birtist í 14. tbl. Dags, um
Sigurgeir Daníelsson,
hreppstjóra á Sauðár-
króki. Stefndi hann fyrst
ritstjóranum fyrir æru-
meiðingar, og er það mál
þegar komið í dóm. Næst
gerist það, að 80 Sauð-
kræklingar birta í ís-
lendingi mótmæli og yfir-
lýsingu út af Dagsgrein-
inni, sem svo ritstjóri
Dags telur ærumeiðandi
fyrir sig, og hefir þegar
lagt drög til málshöfðunar
gegn þeim, sem skrifað
höfðu undir. En meðal
þeirra eru sýslumaðurinn,
sóknarpresturinn,
hjeraðslæknirinn og fleiri
málsmetandi menn á
Sauðárkróki.
Upp að Kolviðarhóli er
hægt að komast í bifreið
nú, en ekki lengra. Snjór
er að mestu tekin af
Hellisheiði.
Sextíu og níu húsasmiði
hefir bæjarstjórnin nú
viðurkent að mættu
standa fyrir smíði húsa
hjer í bæ.
Mótorbáturinn „Skjald-
breið" stundar síldveiði
vestur í Jökuldjúpi með
reknetum um þessar
mundir. í fyrrakvöld kom
svo mikið síldarhlaup í
reknetin á örstuttri stund
að þau sukku. Kl. 1 1 um
kvöldið var sama og ekk-
ert komið í netin, og kl.
1 2 voru þau sokkin.
25 aura kosta Bollapör í
dag. Nokkur hundruð
steikarapönnur á 1,50.
— Baldursgötu 1 1.
au<;i.ysin<;asimi\n EK:
22480
Hvað gerðist
á hvítasunnu?
Hvítasunnudagur er stofn-
dagur kristinnar kirkju. Hvað
merkir orðið „kirkja"? Orðið
„kirkja" þýðir hús Drottins.
Sumir lita á kirkjuna sem
stofnun, hús, prestur og með-
hjálpari. Þetta er ekki rétt.
Kirkjan er samfélag trúaðra
þar sem trúaðir koma saman til
að tilbiðja, uppbyggjast og
þjóna Drottni. Lúther útskýrir
þriðju grein trúarjátningar-
innar: Greinin sjálf: „Ég trúi á
Heilagan anda, eina, heilaga,
almenna, kristilega kirkju,
samfélag heilagra, fyrirgefning
syndanna, upprisu holdsins og
eilíft líf.“
Utskýring Lúthers: „Ég trúi,
að ég geti eigi af eigin skynsemi
eða krafti trúað á Jesúm Krist,
minn Drottin, né til hans
komist, heldur hafi Heilagur
andi kallað mig með gleðiboð-
skapnum, upplýst mig með
gjöfum sínum, helgað mig og
haldið mér í réttri trú, eins og
hann kallar gjörvalla kristnina
á jörðunni, safnar henni saman,
upplýsir hana og helgar og
heldur henni við Jesúm Krist í
hinni réttu, einu trú. I þessari
kristni fyrirgefur hann dag
hvern ríkulega mér og öllum
trúuðum allar syndir; og á
síðasta degi mun hann upp
vekja mig og alia dauða, og gefa
mér og öllum trúuðum í Kristi
eilíft líf. Það er vissulega satt.“
Við uppstigninguna sagðist
Kristur ekki ætla að skilja læri-
sveina sína eftir munaðarlausa,
hann ætlaði að senda Heilagan
anda til þeirra, og segir svo í
Postulasögunni frá þessum at-
burði: Post. 2,1—4.
Þetta var furðulegur at-
burður í margra augum, enda
voru viðbrögðin eftir því. Menn
af öllum þjóðum voru staddir í
Jerúsalem og heyrðu postulana
tala á sínum tungum, og spurðu
hvað getur þetta verið? Aðrir
sögðu þá vera drukkna af sætu
víni.
Þá reis Pétur upp og hóf að
útskýra þennan atburð. —
Hann vitnaði fyrst í einn spá-
mannanna. Jóel, kafla 3, 1—2,
en þar er sagt fyrir um þessa
viðburði, og rakti í stuttu máli
hvernig fyrirætlun Guðs kom
fram með Jesú. „Þegar hann
því nú er upp hafinn með Guðs
hægri hendi, og hefir af föðurn-
um fengið fyrirheitið um
heilagan anda, hefir hann út-
helt honum, sem þér sjáið og
heyrið.“
„En er þeir heyrðu þetta,
stungust þeir í hjörtum og
sögðu við Pétur og hina
Merkasla <ákn lleilags anda er dúfa á leiú
niður.
postulana: Hvað eigum vér að
| gjöra bræður?
En Pétur sagði við þá: Gjörið
iðrun og sérhver yðar láti
skírast í nafni Jesú Krists til
i fyrirgefningar synda yðar, og
þér munuð öðlast gjöf heilags
anda; því að yður er ætlað fyrir-
heitið og börnum yðar og öllum
þeim, sem í fjarlægð eru —
öllum þeim, sem Drottinn Guð
vor kallar til sín.“ (v. 37—39.)
Þeir, sem trúðu boðskap
Péturs voru síðan skirðir og
það voru hvorki meira né
minna en 3.000 manns, og
kaflinn endar með orðunum:
„Drottinn bætti daglega við í
hópinn þeim, er frelsast létu.“
Postularnir héldu sér stöðugt
saman, mörg tákn og undur
gerðust af þeim, og ennþá sjást
merki þess að Guð er enn að
starfi. Hefur þú tekið eftir
starfi Guðs?
um það sem koma átti.
Sfmon Pétur, sem áður hafði verið
hræddur við þernu eina, útskýrði atburð
hvítasunnunnar fyrir mannfjöldanum.
Myndirnar eru úr N.T. útgáfu The Bible
Society í Bandaríkjunum.