Morgunblaðið - 17.05.1975, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1975
og ribbaldaskap
# Sjónvarpskvikmyndin Lénharður fógeti verður frumsýnd í sjónvarpinu n.k.
mánudagskvöld á 2. í hvítasunnu. Myndin er 74 mínútur, tekin í litum og er
viðamesta kvikmyndun, sem sjónvarpið hefur lagt í. Kostnaður við gerð myndarinn-
ar er tæplega 20 millj. kr., en alls fóru 37 dagar í kvikmyndun. Um 14 manna fast
starfslið vann við upptökuna, en alls komu um 30 manns við sögu kvikmyndunarinn-
ar. Blaðamaður varð einu sinni vitni að því að norskur sjónvarpsmaður kom í
Valsheimilið við Hlíðarenda, en þar voru innisenurnar teknar. Spurði hann hvar
starfsliðið væri og þegar honum var sagt að það væri allt til staðar þarna inni, varð
hann dolfallinn og sagðist hafa haldið að það væri hlé frá vinnu. Miðað við það sem
þekkist erlendis var það ekki stór hópur sem vann Lénharð fógeta, en það var
samstillt fólk, sem lagði sig fram um að gera verkið vel úr garði.
# Morgunblaðið ræddi
stuttlega við nokkra sem
unnu að gerð kvikmyndar-
innar um Lénharð fógeta
og fara viðtölin hér á eftir:
Einstaklega
samhentur
hópur í
kvikmynduninni
TAGE AMMENDRUP UPP-
Ingólfur bóndi á Selfossi.
Ribbaldar
Lénharðs
ríða austur.
Sagan gerist í byrjun 16. aldar
en þá voru miklar ýfingar milli
kirkju og veraldlegra höfðingja á
íslandi. Fyrirmaður höfðingja á
Suðurlandi var Torfi sýslumaður
Jónsson í Klofa á Landi. Fulltrúi
kirkjunnar var Stefán biskup
Jónsson í Skálholti. Á Bessastöð-
um sat umboðsmaður hirðstjóra
Danakonungs. í upphafi sögunn-
ar situr Ingólfur stórbóndi á Sel-
fossi að búi sínu. Tveir ungir
menn líta Guðnýju, dóttur hans
hýru auga, Magnús, fóstursonur
Stefáns biskups í Skálholti, og
Eysteinn úr Mörk, sem er efna-
lítill og af lágum ættum. Þær
fréttir berast, að Lénharður
fógeti fari um sveitir með óaldar-
flokk sinn, taki hús á bændum,
ræni búpeningi þeirra, brenni
bæi og svívirði konur. Skjótt
dregur til tíðinda og hefur Torfi
sýslumaður forystu fyrir bænd-
um.
Einars H. Kvarans, en textann
vann Ævar R. Kvaran og kvik-
myndahandritið Baldvin
Halldórsson, Haraldur Friðriks-
son, Snorri Sveinn Friðriksson og
Tage Ammendrup. Tónlistin er
eftir Jón Nordal, Baldvin
Halldórsson leikstýrði, Marinó
Ölafsson annaðist hljóðupptöku
og hljóðsetningu, Erlendur
Sveinsson klippingu, Snorri
Sveinn Friðriksson gerði leik-
mynd og búninga, Haraldur
Friðriksson annaðist kvikmyndun
og upptöku stjórnaði Tage
Ammendrup.
TÖKUSTJÓRI: Raunverulega má
segja að tæp tvö ár séu liðin síðan
farið var aó líta á handritið að
þessari sjónvarpskvikmynd.
Handritið var unnið upp úr
leikritinu, en taka byrjaði síðan
27. maí s.l. ár. Upptökudagar voru
37, en við vorum einstaklega
heppin með veður, því sumarið
var eitt það yndislegasta sem hér
hefur verið í manna minnum. Við
unnum samkvæmt áætlun í þrem-
ur liðum, tökur í dumbungsveðri,
tökur i sól og innitökur. Aðeins
tveir dagar duttu úr í töku vegna
veðurs og þetta small því afskap-
lega vel saman, því vinnan er
óskaplega mikil.
Hópurinn sem vann þetta verk-
efni var mjög sérstakur að því
leyti að menn voru tilbúnir til að
leggja á sig mikla vinnu, fólk
hafði svo mikla trú á þessu og oft
var unnið dag og nótt. Þannig var
það einmitt í sambandi við klipp-
ingu og frágang, unnið
myrkranna á milli til að ljúka
verkinu á tilsettum tíma.
Margir bændur létu okkur hafa
afnot af sínum jörðum og þar
fórum við um með mikið af fólki
og hestum. Allir tóku þessu því
mjög vel og voru tilbúnir til að
gera allt fyrir okkur.
Hvíta hestinn i myndinni á
Jóhann Friðriksson í Kápunni, en
hesturinn er 20 vetra gamall.
Vakti hann hvarvetna mikla at-
hygli fyrir glæsileik og hann var
sannkölluð primadonna, því hann
hélt sig alltaf utan hestahópsins
og ávallt þegar hann stoppaði i
kvikmynduninni stillti hann sér
upp með glæsilegum tilþrifum.
Bjarni Sigurðsson frá Hvoli út-
vegaði hina hestana og annaðist
þá.
Alls tókum við um 40 þús. fet af
Persónur og leikendur í aðalhlutverkum eru:
Lénharður fógeti ............................. Gunnar Eyjólfsson
Guðný á Selfossi ................................... SunnaBorg
Eysteinn úr Mörk ............................. Sigurður Karlsson
Torfi sýsiumaður í Klofa........................ Ævar R. Kvaran
Ingólfur bóndi á Selfossi...................... Rúrik Haraldsson
Magnús......................................... Gísli Alfreðsson
Hólm....................................... Sigurður Hallmarsson
Fyrsti Lénharðsmaður....................................... Fiosi Ólafsson
HelgaíKlofa ................................. Þóra Friðriksdóttir
Bjarni frá Hellum................................. Valur Gíslason
Freysteinn á Kotströnd ............................ Jón Júlfusson
Kona Freysteins............................... Ingunn Jensdóttir
Leikritið Lénharður fógeti var
fyrst sýnt árið 1913.
Kvikmyndin er byggð á leikriti
Rabbað við leikara
og leikstjóra
Tage Ammendrup
Baldvin Halldórsson
Gunnar Eyjólfsson.