Morgunblaðið - 17.05.1975, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur. Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. sími 10 100.
Aðalstræti 6. simi 22 4 80.
Áskriftargjald 700,00 kr. é mánuði innanlands.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið
Verulegur skriður er
nú aö komast á undir-
búning að byggingu Borg-
arleikhúss í Reykjavík,
sem hýsa mun starfsemi
eins elzta og merkasta
menningarfélags höfuð-
borgarinnar, Leikfélags
Reykjavíkur. Teikningar
aö nýju Borgarleikhúsi,
sem rísa á í nýja miðbæn-
um, munu vera komnar
nokkuð langt á veg og í
fyrradag samþykkti borg-
arstjórn Reykjavíkur
stofnskrá fyrir Borgarleik-
húsið í Reykjavík, en sam-
kvæmt henni sameinast
Reykjavíkurborg og Leik-
félag Reykjavíkur um
byggingu Borgarleikhúss í
höfuðborginni.
Raunar er langt síðan
ljóst varð, að Reykjavíkur-
borg mundi eiga hlut að
byggingu Borgarleikhúss i
Reykjavlk, og fyrir 10 ár-
um var í fyrsta skipti veitt
fé á fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar í þessu
skyni. Síðan hefur ákveðið
framlag verið á fjárhags-
áætlun ár hvert og um síð-
ustu áramót nam geymslu-
fé borgarinnar til bygging-
ar Borgarleikhúss rúmlega
50 milljónur króna, en á
þessu ári er gert ráð fyrir
að verja í þessum tilgangi
20 milljónum kr., þannig
að Reykjavíkurborg hefur
þegar lagt til hliðar rúm-
lega 70 milljónir króna til
þessara framkvæmda.
Af hálfu Leikfélags
Reykjavíkur hefur ötul-
lega verið unnið að fjáröfl-
un til byggingar Borgar-
leikhúss og er húsbygging-
arsjóður félagsins nú tal-
inn eiga um 17 milljónir
kr., en í raun mun þessi
eign vera mun meiri, þar
sem hluti hennar er í fast-
eign, sem færð er til reikn-
inga á kaupverði en ekki
söluverði. Þannig er ekki
ólíklegt, að nú þegar liggi
fyrir um 100 millj. kr. til
þessarar byggingar.
I ræðu, sem Birgir ísl.
Gunnarsson borgarstjóri
flutti á fundi borgarstjórn-
ar í fyrrakvöld, er stofn-
skrá Borgarleikhúss var
samþykkt, sagði hann m.a.:
„Menningarstarf Leikfé-
lags Reykjavíkur á sér
hljómgrunn meðal allra
Reykvíkinga og raunar
miklu fleiri landsmanna.
Reykjavíkurborg hefur því
um alllangt skeið talið það
skyldu sínaaðleggja bygg
ingu borgarleikhúss allt
það lið, sem borgin má.
Áherzla hefur þó jafnan
verið lögð á, að frumkvæði,
framtak og stjórn í bygg-
ingarmálum Borgarleik-
hússins sem og í starfi þess
verði í höndum Leikfélags-
ins sjálfs, en þau drög að
stofnskrá, sem hér liggja
fyrir, gera einmitt ráð fyr-
ir að svo verði. Ég held
einnig, að enginn Reykvík-
ingur geti hugsað sér starf-
semi í húsinu, þegar það er
risið án Leikfélags Reykja-
víkur, enda hefur það með
starfi sínu sýnt, að því er
treystandi í þeim efnum.
Ég vænti þess, að bygging
Borgarleikhúss f fyrsta
áfanga hins nýja miðbæjar
verði mikil lyftistöng fyrir
allt menningarlíf í borg-
inni og þá sér í lagi leiklist-
inni til framdráttar. En sú
listgrein á kannski öðrum
fremur greiða leið að hug-
um og hjörtum manna. Ég
vænti þess jafnframt, að
þegar rekstur Borgarleik-
hússins hefst í nýja mið-
bænum verði það til þess
að glæða hann auknu lífi
og fjölbreytileika og að
Leikfélagið muni geta
starfað þar við ekki minni
vinsældir borgarbúa held-
ur en það hefur nú starfað
um áratuga skeið við tjörn-
ina.“
Enginn vafi leikur á því,
að sú ákvörðun borgar-
stjórnar Reykjavíkur að
standa að byggingu leik-
húss yfir starfsemi Leik-
félags Reykjavíkur nýtur
almenns stuðnings borgar-
búa. Yfir þeirri ákvörðun
hvílir aðeins einn skuggi,
en hann er sá, að hið nýja
borgarleikhús á ekki að
rísa við Tjörnina, þar sem
Leikfélag Reykjavikur hef-
ur starfað nánast alla sína
tíð og hefur með starfi sínu
sett sinn óafmáanlega svip
á tjarnarsvæðið. En það er
búið og gert. Reykjavíkur-
borg og Leikfélag Reykja-
víkur hafa sameiginlega
komizt að þeirri niður-
stöðu, að nýtt Borgarleik-
hús skuli risa í nýja mið-
bænum og vonandi verður
sú ákvörðun starfsemi
Leikfélags Reykjavíkur til
heilla í framtíðinni.
Reykjavíkurborg hefur
jafnan lagt myndarlegan
skerf að mörkum til menn-
ingarstarfsemi í landinu og
má þar nefna Kjarvals-
staði, sem í framtíðinni
hljóta að verða miðstöð
gróskumikillar myndlistar-
starfsemi, þrátt fyrir þær
deilur, sem um stund hafa
risið um þann stað. Næsta
stórverkefni borgarinnar á
sviði menningarmála er
tvímælalaust Borgar-
leikhús. Ætla verður, að
með samþykkt þeirrar
stofnskrár, sem borgar-
stjórn hefur nú gengið frá
fyrir sitt leyti hafi sú af-
dráttarlausa stefna verið
mörkuð af borgarinnar
hálfu að láta þessar fram-
kvæmdir njóta algers for-
gangs fram yfir aðrar
framkvæmdir á sviði
menningarmála. Það er
rétt ákvörðun og nú ríður
á, að borgarbúar og Leik-
félagsmenn taki höndum
saman um að reisa það
borgarleikhús sem verða
má miðstöð nýrrar eflingar
leiklistarinnar í Reykjavík
og um leið verðugur
minnisvarði þess fólks, sem
á örfáum áratugum af litl-
um efnum, takmarkaðri
menntun en miklum áhuga
lagði grundvöll að íslenzkri
leiklist og hóf hana til vegs.
Borgarleikhús
7 þús. manns á fundum Sálar-
rannsóknarfélagsins í vetur
SÍOUSTU misseri hafa meiri um-
ræður orðið á opinberum vett-
v ngi um dulræn fyrirbæri, sálar-
rannéóknir, starfsemi miðla og
trúmál almennt en verið hefur um
langa hríð. Starfsemi Sálar-
rannsóknarfélags íslands hefur
einnig verið meiri en oftast áður,
og má þar nefna fjölmenna
skyggnilýsingarfundi og svo-
kallaða transfundi, sem félagið
hefur gengizt fyrir viða um land.
Mbl. sneri sér til Guðmundar
Einarssonar verkfræðings, sem er
forseti Sálarrannsóknarfélags ís-
lands, af þessu tilefni og spurði
fyrst hver væri ástæðan fyrir
þessu aukna starfi, eða a.m.k.
meira áberandi starfi spítista, eins
og þeir eru kallaðir i daglegu tali:
— Kveikjan að þvi var nú eigin-
lega sextugsafmæli Hafsteins
Björnssonar miðils í októbermánuði
siðastliðnum. Okkur fannst sjálfsagt
að mínnast þess afmælis með sér-
stökum hætti, en auk þess vill ein-
mitt svo til, að Hafsteinn átti um
sömu mundir fjörutíu ára starfs-
afmæli sem miðill, svo að heita má
að þetta sé tvöfalt afmæli.
— í hverjú hefur þessi aukna
starfsemi aðallega verið fólginn?
— Við höfum haldið fjölmarga
skyggnilýsingarfundi bæði hér i
Reykjavík og nágrenni og eins úti
um land Mér telst svo til áð um
2 800 manns hafi komið á skyggni-
lýsingarfundi félagsins frá því í
nóvemberbyrjun Þá hafa um 2.100
manns komið á transfundi, sem
haldnir hafa verið I fullri birtu, en
það er nýjung Þar til nýlega fóru
allir transfundir fram i rökkri og voru
þeir fámennír. Við gerðum siðan
tilraun með að halda transfund i
björtu og það kom nú eiginlega til af
því, að farið var að undirbúa fund til
upptöku i sjónvarpi Sá fundur gat
skiljanlega ekki farið fram öðru vísi
en með lýsingu og þvi var þetta
reynt Það gafst ágætlega og nú
höfum við haldið áfram með þetta
Miðillinn sjálfur er með dökk
gleraugu, sem er nauðsynlegt Haf-
steinn hefur verið með einkafundi
eins og venjulega, þrátt fyrir þessar
miklu aukaannir og ég held, að á
þessu sama timabili hafi um 500
manns sótt þá fundi Þá hefur Björg
Ólafsdóttir verið með daglega fundi
allan tímann og hafa um 1200
manns komið á fundi hennar siðan í
nóvemberbyrjun, og auk þess höf-
um við fengið hingað tvo enska
miðla — þær Kathleen St George
og Joan Reed. Sú fyrrnefnda er
bæði það sem kallað er hlutskyggni-
og skyggnimiðill, en Joan Reed er
lækningamiðill Á fundum þeirra
hafa verið samtals um 400 manns
Þannig munu rétt um 7000 manns
hafa komizt í beina snertingu við
starf Sálarrannsóknarfélagsins á
þessum 6 mánuðum, sem liðnir eru
frá þvi að við fórum af stað með
þessa kynningarstarfsemi.
— Nú er vitað, að aðsókn al-
mennings að fundum Sálar-
rannsóknarfélagsins, hvort sem um
er að ræða skyggnilýsingar- eða
transfundi, hefur alltaf verið langt-
um meiri en hægt er að anna Eftir
hverju er fólk að sækjast og hver er
tilgangur ykkar með þessari kynn-
ingarstarfsemi?
— Tilgangur fólks er tvimæla-
laust sá að öðlast eigin reynslu, fá
svör við spurningum sinum, reyna
að öðlast skilning á stöðu sinni i
tilverunni — reyna að skilja sjálfa
Guðmundur Einarsson, forseti
Sálarrannsóknarfélags íslands.
tilveruna, býst ég við Nú, — og svo
eru auðvitað margir, sem koma til
að leita huggunar eftir missi ástvina.
Þetta er að mínum dómi heilbrigð
og jákvæð viðleitni — það liggur í
eðli mannsins að reyna að fá
vitneskju um það, sem hann þekkir
ekki og skilning á því, sem er hon-
um ráðgáta
— Verður starfsemi á vegum
Sálarrannsóknarfélags (slands jafn
umfangsmikil á næstunni og verið
hefur 1 vetur?
— Það er alveg Ijóst, að þörfin er
áfram jafnmikil og verið hefur, en
það er ekki vist hvað hægt verður að
gera Við búum við hálfgerð hús-
næðisvandræði Þótt við eigum hús-
eign við Garðastræti þar sem starf-
semin fer fram, þá er húsnæðið þar
alltof lítið og raunar mjög óhentugt.
Við stefnum að þvi að byggja yfir
starfsemina og stefnum að þvi að
vera komin í nýtt hús á 60 ára
afmæli félagsins, sem er eftir 4 ár.
Þangað til verðum við að verða
okkur úti um bráðabirgðahúsnæði
og erum við nú einmitt að leita að
því.
-— Hvað eru sálarrannsóknar-
félög mörg á landinu og hvað eru
félagsmenn margir?
— Félögin eru 8, með um 5 þús.
félaga alls, en að undanförnu hefur
sú tala aukizt talsvert.
— Með auknum umsvifum
félagsins hefur færst nokkurt líf i
umræður um trúmál, sérstaklega
Rætt við Guðmund Einarsson
um starfsemi félagsins o.fl.
með tilliti til splritismans, en heita
má, að þessi mál hafi legið í þagnar-
gildi mjög lengi. Grein, sem Heimir
Steinsson, rektor i Skálholti ritaði í
Kirkjuritið nýlega hefur vakið sér-
staka athyglí, en þar farast honum
m.a svo orð:
„Hér á landi er það sérstök skylda
okkar að herja á andatrúna, þetta
fyrirlitlega samsull lygavisinda, raka-
lausrar trúarheimspekilegrar þvælu
og ógeðslegrar sefjunar af lágreistri
og ómennskri gerð Sú sjón, sem
nýlega bar fyrir augu okkar flestra i
sjónvarpi og eflaust hefur þrásinnis
borið fyrir augu margra okkar á
ýmiss konar fundum, þessi hugstola
þráseta allslausra reikunarmanna
umhverfis vanheila persónu, sem
nefnd er „míðill", hlýtur hún ekki að
brýna okkur til dáða? Rennur ykkur
ekki til rifja að sjá þessa takmarka-
lausu sjálfsblekkingn þessa andlegu
lágkúru, þennan intellektúella vesal-
dóm fólks, sem sagt er að tilheyri
einni af menningarþjóðum veraldar?
Er ekki kominn timi til að hýða
opinberlega bæði seint og snemma
alla þá, sem að þessum auðvirðilegu
rökkuróperum standa, en stugga
hinum, sem um þá safnast, áleiðis
út á klakann kalda?"
Hver er skoðun þin á þessum
ummælum, sem birtast í málgagni
Prestafélags íslands? Heldurðu, að
hér sé það andlega yfirvald, sem
viðurkennt er í landinu, að ráðast á
spiritismann?
— Mér finnst þessi orð koma úr
ólíklegustu átt. Maður hefði getað
búizt við þeim frá trúleysingja, en
ekki aðila, sem hefur verið þjónn
kirkjunnar og enn siður frá skóla-
stjóra, sem ætla má að hafi skipu-
lagða þekkingarleit að aðalmark-
miði. Annars hefði ég áhuga á að
vita hvort Þjóðkirkjan leggur bless-
un sina yfir þennan málflutning.
Séra Guðmundur Óli Ólafsson,
prestur í Skálholti, er ritstjóri Kirkju-
ritsins, og lýsir hann ánægju sinni
með það, sem Heimir gerir að um-
ræðuefni i grein sinni i forystugrein
sama tölublaðs. Séra Guðmundur
segir þar: „Loks er hér vakið máls á
því hvað sé hrein trú og rétt.
Umræður í þá veru hafa ef til vill
verið heldur slævðar um sinn. Hollt
og nauðsynlegt er að hrista af sér
dofann og slenið "
Heimir Steinsson segir i grein
sinni, að sálarrannsóknir og tilraunir
hafi ekki leitt til neins á undanförn-
um 100 árum Þetta er fjarri sanni,
en ég býst við, að alltof langt mál
væri að fara að rekja sögu sálar-
rannsókna hér og nú. Þeir vita það
hins vegar, sem vita vilja, að
vitneskja um sálarrannsóknir og
árangur þeirra er til, bæði hér á
landi og um allan heim. Þarna hafa
virtir raunvísindamenn unnið mikið
starf og má í þvi sambandi benda á
niðurstöður tilrauna og rannsókna,
sem gerðar voru á Uri Geller á árinu
1974 og þóttu með merkustu eðlis-
fræðiuppgötvunum það árið Það
voru eðlisfræðingarnir Russell Taeg
og Harold Putoff við Stanford
Research Institute í San Fransisco,
sem er þekkt og viðurkennd vísinda-
stofnun. Þar starfa ekki aðrir
vlsindamenn en þeir, sem ótvíræða
viðurkenningu hafa hlotið, enda
hefur enginn haldið þvi fram, að
Framhald á bls. 32