Morgunblaðið - 17.05.1975, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐÍÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975
Ao kríta
heldur liðugt
ÞAÐ sérstæða atvik gerðist á
fundi neðri deildar í gær, er rætt
var um frumvarp til laga um iðn-
aðarmálagjald, og klukkunni
hallaði í þann tfma er þinglausnir
voru ráðgerðar, að Magnús Kjart-
ansson, alþingismaður, kvaddi
sér hljóðs og talaði nokkuð á
annan tíma um álsamninginn og
járnblendiverksmiðju f Hval-
firði, sem alls ekki voru á dagskrá
þingsins. Yfirleitt virða þing-
menn dagskrárefni og taka tillit
til naums tfma á sfðasta degi
þings, en hér var verulega vikið
frá þeirri reglu.
Meðal annars, sem fram kom i
ræðu Magnúsar, var það, að
ráðherrar Framsóknarflokksins
og Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna hefðu í öndverðu
ekki talið máli skipta, hvort Is-
lendingar ættu meirihluta í
væntanlegri járnblendi-
verksmiðju, en hann hefði tekið
af skarið og þeir síðan fylgt hans
stefnu.
Ölafur Jói.annesson, fyrr-
verandi forsætisráðherra, greip
fram í fyrir ræðumanni og sagði:
„Er nú ekki háttvirtur fyrr-
verandi ráðherra farinn að kríta
heldur liðugt?“
Þá hélt ræðumaður því fram að
með álsamningnum hefðum við
játazt undir erlenda lögsögu á
þýðingarmiklu efnahagssviði.
Jóhann Hafstein, alþingis-
maður, svaraði þíngmanninum
því til, að álsamningurinn hefði
verið samþykktur af Alþingi Is-
lendinga árið 1966 í formi
frumvarps að lögum og gilti sem
íslenzk lög. Að auki væru skýr
ákvæði í samningum þess efnis,
að túlkun hans skyldi í einu og
öllu byggð á íslenzkum lögum.
Þessi staðreynd stæði ohögguð
þrátt fyrir það, að tiltekin deilu-
mál, sem upp kynnu að koma
bæri að leggja í sérstakan gjörða-
dóm, sem öll aðildarríki alþjóða-
bankans viðurkenndu.
Jóhann Hafstein.
Yfirlit yfir störf Alþingis:
75 lagafrumvörp og 31
þingsályktun samþykkt
Þingið heí ur staöið í rá 29. okt. til 21. des. 1974 og frá'
27. jan. til 16. maí 1975, alls 164 daga.
ÞINGFUNDIR hala verið haldnir:
1 neðri deild ................................ 93
I efri deild ................................. 97
í sameinuðu þingi .......................... 82
Alls 272 þingf.
Þ I N G M Á L og úrslit þeirra:
I. / Laga1rumvörp:
1. Stjórnarfrumvörp:
a. Lögð fyrir neðri deild ................ 31
b . - - efri deild ..............; . . . 39
c. - - sameinað þing ................ _4 74
2. Þingmannafrumvörp:
a. Borin fram í neðri deild .............. 52
b. - - í elri deild ................ 23 _75
Alls 149
Orslit urðu þessi :
Laga1rumvörp:
a. Algreidd sem lög:
Stjórnarirumvörp .......... 59
Þingmannalrumvörp ......... 16^ Alls 75 lög
b. Fellt þingmannairumvarp ............... 1
e. Vísað til ríkisstjórnarinnar:
Þingmanna í ruinvörpum ................ 11
d. Ekki útrædd:
Stjórnarfrumvörp .......... 15
Þingmanna i rumvör p ...... 41_ 62
11. l>i ngsá lyk t unar t i 1 liigur :
a .* Bornar fram í sameinuðu þingi ........... 79
b. - - í noðri dcild ................. 8
e. - - íelrideild .................... 6 93
Orslit urðu þessi:
a. Alyktanir Alþingis ...........31
b. Vísað til ríkisstjórnarinnar 7
e. Ekki útræddar ................55 Alls 93
III. Fyrirspurnir:
I sameinuðu þingi 97
Sumar eru fleiri saman á þingskjali, svo mála-
tala þeirra er ekki nema ......................49
I efri deild .................................. 3
Allar voru fyrirspurnir þessar ræddar nema fimm
Mál til meðferðar í þinginu alls .............. 295
Skýrslur ráðherra voru ........................ 4
Tala prentaðra þingskjala ..................... 860
Lög og þingsályktanir:
96. löggjafarþingi lokið
Alþingi Islendinga, 96. lög-
gjafarþingi, lauk sfðdegis ■ gær,
er forseti Islands, herra Kristján
Eldjárn, las upp forsetabréf um
þinglausnir. Síðustu dagar þings-
ins urðu mjög erilsamir eins og
oft vill verða þegar dregur að
þingslitum og málafjöldi biður
lokaafgreiðslu og stóðu þingfund-
ir fram á rauðar nætur. Fjöldi
laga og þingsályktana hlaut
fullnaðarafgreiðslu á þessum dög-
um, mörg mál dagaði uppi, og
öðrum var vísað frá til nánari
athugunar hjá ríkisstjórninni og
ráðuneytum hennar.
Hin nýju lög
Á síðustu dögum þingsins vóru
m.a. eftirtalin mál afgreidd sem
Iög frá Alþingi:
Lög um tónlistarskóla, um hús-
stjórnarkennaraskóla, um hús-
stjórnarskóla, heimildarlög um
lántöku vegna Rafmagnsveitna
ríkisins og Vegagerðar ríkisins,
ríkisábyrgð vegna Flugleiða,
launajöfnunarbætur, happ-
drættislán vegna Norður- og
VIÐ þinglausnir í gær gaf forseti
sameinaðs þings, Ásgeir Bjarnason,
yfirht yfir störf Alþingis, sem er rekið
I sérstakri rammafrétt hér á þingsið-
unni. Að þeirri skýrslugerð lokinni
mælti hann m.a. á þessa leið:
„Það yfirlit, sem ég hef nú lesið,
sýnir, að mörg mál hafa legið fyrir
þessu þingi, þótt nú sem jafnan áður
hafi þau ekki öll hlotið endanlega
afgreiðslu.
Þegar I byrjun þessa þings var það
Ijóst, að vandamálin, sem við var að
fást, voru mörg og margþætt og þvl
eðlilegt að það tæki tlma fyrir al-
þingismenn að kynna sér þau, áður
en til endanlegrar afgreiðslu kæmi.
Þegar litið er á lagasetningu þessa
þings þá ber hún glöggt vitni þess.
Austurvegar, vegalög, lög um
félagsráðgjöf, um fjarskipti, að-
setursskipti, almennar tryggingar
(tryggingar íþróttamanna), lög
um verðjöfnun á olíu og benzini,
lög um fæðingarorlof (atvinnu-
leysistryggingar), iðnaðarmála-
gjald og lög um ættleiðingu.
Frumvarpi að siglingalögum
var vísað til ríkisstjórnarinnar og
frumvarp um skákkennslu bíður
haustþings með samkomulagi
þingmanna og flutningsmanns, en
þingmenn allir vóru því máli
mjög hlynntir.
Þingsályktanir
Fjöldi þingsályktana náði sam-
þykki á þessum lokadögum þings-
ins. Þar á meðal: um samstarfs-
samning Norðurlanda, um
heimilfl Færeyinga til fiskveiða
við Island, um öryggisþjónustu
Landssímans, um aldarafmæli
landnáms Islendinga í Vestur-
heimi (aðild heimaþjóðar), um
setningu löggjafar um islenzka
stafsetningu, um nýtt dýpkunar-
skip, könnun á lækkun byggingar-
kostnaðar (lækkun eða niðurfell-
að vandamálin, sem við var að etja,
voru á sviði efnahagsmála. Við höf-
um I nokkur ár að undanförnu búið
við góðæri til lands og sjávar og not
ið hagstæðra viðskiptakjara við er-
lendar þjóðir, þar til á s.l. ári að inn-
flutningsvörur okkar hækkuðu ört I
verði, jafnframt þvl sem útflutnings-
vörur okkar lækkuðu I verði. Verð-
sveiflur þessar hafa komið sér illa
fyrir marga, skert Iffskjör, aukið
verðbólgu, valdið vinnudeilum og
stöðvun atvinnufyrirtækja, eins og
nú er með togarana. Framtíðin I
þessum efnum er óljós. Sumum
finnst ef til vill, að Alþingi sé svifa-
seint, þegar ráða þarf bót á vanda-
málum sem þessum. En vel hefur
Framhald á bls. 47.
ingu innflutningsgjalda og sölu-
skatts af byggingarefni), um iðju
og iðnað, um nýtingu áveitu- og
flæðiengja, um rannsókn á fram-
færslukostnaði. — Allnokkrum
þingsályktunum var og vísað til
ríkisstjórnarinnar til athugunar,
án þess að þær fengju samþykki
'Alþingis sem slikar.
Orkuráð og
stjórn Viðlaga-
tryggingar
I gær fóru fram kosningar í
sameinuðu þingi í nokkur
trúnaðarstörf.
Orkuráð:
Ingólfur Jónsson, alþingis-
maður, Daníel Agústínusson,
Akranesi, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, alþingismaður,
Valur Arnþórsson, kaupfélags-
stjóri, Akureyri, og Magnús
Kjartansson, alþingismaður.
Endurskoðendur reikninga í
vörzlu Framkvæmdastofnunan
Þorfinnur Bjarnason, fyrr-
verandi sveitarstjóri, og Jón
Kristjánsson, Egilsstöðum.
Stjórn Viðlagatryggingar Is-
lands.
Jóhannes Árnason, sýslu-
maður, Friðjón Guðröðarson,
lögreglustjóri, Ölafur Jónsson,
Kópavogi. Varamenn: Vig-
lundur Þorsteinsson, Benedikt
Sigurðsson og Erlingur Vigfús-
son.
Nefnd til úttektar á stöðu
áfengismála.
Magnús Sigurjónsson,
Reykjavik, Jónas Gíslason,
skólastjóri, Helgi F. Seljan, al-
þingismaður, Hörður Zópaní-
asson, skólastjóri, og Steinar
Guðmundsson, Kópavogi.
Framkvæmdastjóri Söfn-
unarsjóðs Islands
var kjörinn Sigurður Briem,
deildarstjóri í Menntamála-
ráðuneytinu.
Forseti sameinaðs þings:
Vandamálin eru á sviði
atvinnu- og efnahagsmála