Morgunblaðið - 17.05.1975, Qupperneq 32
32
MORG UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975
Verkakvennafélagið Framsókn Tekið á móti umsóknum í Ölfusborgir í sumar frá miðvikudeginum 21.5. Þeir sem ekki hafa verið áður hafa forgangsrétt. Verkakvennafé/agið Framsókn. Kona óskast til starfa í eldhúsi. Upplýsingar í síma 22476 eftir kl. 1 í dag. Veitingahúsið Vogakaffi Súðarvogi 50.
Spónlagningapressa Spónlagningapressa og spónsög óskast til kaups. Uppl. í síma 35609 — 401 48. Akranes — Starf Hérmeð er starf aðalbókara Akranesskaupstað- ar auglýst laust til umsóknar. Umsóknir er greini frá fyrri störfum, aldri og menntun, berist undirrituðum fyrir 1. júní n.k. Akranesi 16. maí 1975, Bæjarritarinn á Akranesi.
Bátakrossviður
Vatnsþolinn birkikrossviður til bátasmíði
Lengd 5,00 x 1,50 metrar þykkt 9 mm.
Plöturnar fást hjá okkur
Timburverzlun Árna Jónssonar & Co hf.
Simar: 11333 og 11420.
Til sölu glæsileg
2ja herbergja íbúð í Hraunbæ
Upplýsingar í síma 86229 til kl. 7 laugardag
og sunnudag.
Bókhaldari
óskast til starfa hjá heildsölufyrirtæki til að
annast tölvustýrt bókhald og gjaldkerastö<f.
Framtiðarstarf fyrir ungan, áhugasaman og
ábyggilegan mann eða konu.
Tilboð merkt „Bókhaldari — 9762” sendist
afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtudagskvöld 22.
maí.
Bátar til sölu
4—6 — 1 5 — 1 8 tonna úrvals trébátar til sölu.
Látið skrá þá báta, sem seljast eiga í sumar.
Hringið strax, ef þér óskið eftir að kaupa bát í
sumar.
Viðskiptaþjónusta Guðmundar Ásgeirssonar
Melagötu 2, Neskaupstað sími 71 77.
Herbergi eða
lítil íbúð óskast
Okkur vantar herbergi eða litla íbúð í sumar
fyrir danskan starfsmann. Herbergið þarf að
vera rúmgott, einhver afnot af eldhúsi eru
æskileg. Laugarneshverfi, Vesturbær og fleiri
svipaðir staðir koma til álita. Upplýsingar í síma
22299 eða 21199 frá kl. 1 3 — 1 6 daglega.
Scandinavian Airlines Laugavegi 3.
Opið um
hvítasunnuna
ÞÓRSCAFÉ
Dansleikur II. í hvítasunnu
Loksins
Haukar í Þórscafé.
Aldurstakmark 16—19 ára.
F.U.J.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
eins og
venjulega
ASKUR
Suðurlandsbraut 14
r
Kappreiðar
Hestamannafélagsins GUSTS verða haldnar á
Kjóavöllum sunnudaginn 25. maí.
Keppnisgreinar:
250 m skeið,
250 m unghrossahlaup,
300 m stökk,
250 m tölt,
1500 m brokk.
Einnig fer fram góðhestakeppni í A og B flokki.
Skrásetning keppnishrossa er í símum: 40967
og 41 1 43.
Lokaæfing og skráning verður á Kjóavöllum frá
kl. 8.30 — 22.30, þriðjudaginn 20. maí.
I....................... .
I
I
— 7 þús. manns
Framhald af bls. 24
brögð hafi verið f tafli við þessar
rannsóknir. Kvikmynd hefur verið
gerð um rannsóknir þessar á Uri
Geller og hefur Sálarrannsóknar-
félagið einmitt sýnt hana á fundum
sínum undanfarið
Hvað viðvíkur grein Heimis
Steinssonar, þá viðurkennir hann
þar reyndar, að hann efist ekki um
að yfirnáttúruleg fyrirbæri eigi sér
stað Hins vegar er hann mótfallinn
þvf að menn stundi rannsóknir á
slikum fyrirbærum
Ég held, að almennt láti þeir, sem
spíritisma aðhyllast sér ummæli
Heimis Steinssonar og reyndar önn-
ur skrif hans um þetta mál í dag-
blöðum nýlega, sér í léttu rúmi
liggja Þau orð, sem hann læturfalla
um hýðingar og fleira i Kirkjurits-
grein sinni boða alla vega mun
mildari aðgerðir en galdrabrennurn-
ar, sem kirkjan stóð að hér áður fyrr,
segir Guðmundur og hlær við
Það stendur hins vegar óhaggað,
sem viðurkennt er, að öruggasta
leiðin til að viðhalda fáfræði er að
vera með fordóma án rannsókna,
segir Guðmundur að lokum.
— Lénharður
fógeti
Framhald af bls. 17
I leikritinu er sagt frá of-
sóknunum, en i kvikmyndinni
verður að sýna slikt og það gerir
hana harðneskjulegri, þetta form
kallar á það.
Bóndinn, sem húsið er brennt
ofan af, er komiskur í leikritinu
og það hlutverk hefur oft gert
lukku, en í kvikmyndinni leggum
við áherzlu á ofbeldið og drögum
það beinlínis fram þannig að í
kring um þá voðalegu atburði
verður ekkert komiskt.
Ég hef notað texta höfundar
eftir föngum, en breytt atburða-
rásinni og siðan hefur þetta á
þroskastigi kvikmyndarinnar lent
í öðrum höndum, leikstjóra,
klippara og þeirra aðila sem
leggja hönd á plóginn, en í textan-
um reyndi ég að halda málfari
höfundar og stíl.
Það var ánægjulegt að vinna við
þetta verk, en svo er eftir að vita
hvernig því verður tekið. En allir
hafa lagt sig fram og þetta hefur
verið óskaplega mikil vinna. Ég
leik Torfa sýslumann, í Klofa og
mér þótti gaman að þvi og hlut-
verkið skemmtilegt og ég held að
öllum sem komu við sögu kvik-
myndarinnar hafi þótt gaman að
Þvi. — á.j.
Sjónvarps-
og útvarps-
viðgerðir
Kvöldþjónusta — Helgarþjón-
usta. Símar 1 1770 — 1 1741.
1 0% afsláttur til öryrkja og elli-
lifeyrisþega.
Sjónvarpsviðgerðir,
Skúlagötu 26.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU