Morgunblaðið - 17.05.1975, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975
33
Ég þakka öllum ættingjum og vinum mínum fjær
og nær, sem með gjöfum og kveðjum heiðruðu
mig á áttatíu ára afmæli mínu.
Guð b/essi ykkur ö/l.
Áslaug Ó. Stephensen,
Se/fossi.
Samvinnuskólinn
BIFRÖST
Umsóknarfrestur um skóla-
vist við Samvinnuskólann Bif-
röst skólaárið 1975—1976
er til 10. juní n.k.
Skal senda umsóknir um skólavist á skrifstofu
skólans', Suðurlandsbraut 32, Reykjavík, fyrir
þann tíma ásamt Ijósriti af prófskýrteini. Þurfa
umsækjendur að hafa landspróf, gagnfræða-
próf eða hliðstæða menntun. Umsóknir frá fyrri
árum falla úr gildi nema þær séu endurnýjaðar.
Umsóknir um skólavist í framhaldsdeild Sam-
vinnuskólans í Reykjavík skulu sendar á skrif-
stofu skólans fyrir 20. ágúst n.k.
Skólastjóri.
FJÁRFESTING -
ENDURMAT
Á bak við hverja SELKÓ hurð er 25 ára reynsla
í smíði spónlagðra innihurða. Skipulögð fram-
leiðsla SELKÓ innihurða hófst hjá Sigurði Elías-
syni h. f. fyrir 15 árum. í ár fögnum við því tvö-
földum áfanga I hurðasmíði.
Einkunnarorð framleiðslunnar hafa ætíð verið
hin sömu: Vönduð smíði, góður frágangur og
fallegt útlit. Enda hafa SELKÓ hurðir fyllilega
staðizt erlenda samkeppni um árabil.
Þess vegna er það mjög algengt að þeir, sem
vilja endurnýja útlit eldra húsnæ'ðis með t. d.
tvöföldu gleri, nýjum húsgögnum, og fallegum
teppum, fjárfesti einnig í nýjum SELKÖ inni-
hurðum.
SELKÓ innihurðir gefa heimilinu traustan og
áferðarfallegan svip, samræma heildarútlit hús-
næðisins við nýja búslóð, og hækka verðmæti
íbúðarinnar, þegar meta þarf til skipta eða end-
ursölu.
Þér tryggið útiit og verðmæti íbúðarinnar með
SELKÖ innihurðum.
SELKÖ INNIHURÐIR — GÆÐI i FYRIRRÚMI
SIGURÐUR
ELÍASSON HE
AUÐBREKKU 52,
KÓPAVOGI, SÍMI 41380
TOYO
1.
SÉRRÉTTA
Vélsmiðjan
Logi
Sauðár-
krðki
Þökkum innilega þann vinarhug
okkur sýndan á 50 ára giftingar-
degi okkar með heimsóknum,
gjöfum og skeytum. Guð blessi
ykkur öll.
Guðrún og
Arnbjörn Guðjónsson.
;i,Vsin<;asíminn ek:
22480
Haldið yður
grönnum
og frískum
Blaðið sem allir ættu að lesa.
Fæst í flestum matvöruverslunum.
Heildsölubirgðir;
Haraldur Sigurðsson h.f.
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir
Litil tölva
til leigu eða sölu
Lítil fljótvirk segulplata er á góðri
leið með að hrinda skjalaskápnum,
upplýsingamöppum og tölvukortum
út af vinsældalistanum.
Segulplatan er hluti af IBM System
/32, nýju tölvukerfi, sem er á síærð
við venjulegt skrifborð. IBM System
/32 hentar litlum íslenzkum fyrir-
tækjum mjög vel hvað snertir af-
köst, færzlumöguleika, — kaup eða
leigu.
IBM System /32 sýnir útreikninga
sína á sjónvarpsskermi og skrifar
niðurstöður sínar út á prentara.
Fyrirferðarlitlir seguldiskar og disk-
ettur sjá um upplýsingar til úr-
vinnslu á hvers konar bókhaldi,
yfirlits og samanburðarreikningum,
°g uppgjöri.
Svo að segja hver sem er getur
stjórnað System /32 eftir fárra
klukkustunda þjálfun. Hefðbundið
letur og töluborð eykur öryggi
stjórnandans.
Ef þér efist um að fyhirtæki yðar
sé nógu stórt til að geta sparað sér
vinnu og tíma með tölvukerfL, hafið
samband við sölumenn IBM.
System /32 býður fyrirtæki yðar
hagstæð leigukjör eða betra kaup-
verð en yður grunar.
IBM World Trade Corporation
Klapparstíg 27, Reykjavík, sími 27700
argus