Morgunblaðið - 17.05.1975, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.05.1975, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975 Eiginkona mín og móðir okkar JÓHANNA ÉGGERTSDÓTTIR Langholtsvegi 167 R andaðist á Landspítalanum mánudag 12 maí. Útförin fer fram miðvikudag 21 þ m. kl. 13.30 frá Fossvogskirkju Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sjálfsbjörg, félag fatlaðra Steingrlmur Benediktsson, og börn. t Konan mín SIGRÍÐUR LAUFEY GUÐLAUGSDÓTTIR, Langholtsvegi 47, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 21. maí kl. 10 30 f.h Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna Ágúst Jónsson. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, frá Bergvík. Skaftahllð 32, Reykjavlk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 21. mai kl. 3 e.h Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Egill Hjartarson. t Eiginmaður minn GÍSLI VILHJÁLMSSON, Vesturgötu 70, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju laugardaginn 17 maí kl 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afbeðnir, en þeir sem vildu minnast hins látna láti líknarstofnanir njóta þess. Ferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.30 F h. ættingja Karen Vilhjálmsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ELÍAS ÓSKAR ILLUGASON skipstjóri, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 21. maí kl. 14 00 Elin Jósefsdóttir, Birgir Óskarsson, Skúli Óskarsson, Rós Jóhannesdóttir, lllugi Óskarsson, Margrét Pétursdóttir og barnabörn. Hugheilar þakkir flytjum við öllum þeim sem auðsýnt hafa okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför ELÍNBORGAR B. J. KRISTJÁNSDOTTUR WEG Ottó Arnaldur Magnússon Sveinn Olafsson Valborg Ólafsdóttir Agnar Ólafsson Anna Þórkelsdóttir Aðalheiður Guðmundsdóttir Glsli Jónsson Sigriður Pétursdóttir Karl G. Karlsson Kristln Árnadóttir Guðmundur Kristjánsson Camilla Kristjánsdóttir Kristján Kristjánsson t Af alhug þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur ógleymanlegan hlýhug, eínlæga vináttu og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föðúr, tengdaföður og afa VALDIMARS RAGNARS VALDIMARSSONAR, vélstjóra, Brekkustlg 31, Ytri-Njarðvik. Sérstaklega þökkum við yfirlækni, hjúkrunarfólki og öðru starfsliði sjúkrahússins I Keflavík fyrir frábæra hjúkrun og einstaka umhyggju I veikindum hans Guð blessi ykkur öll. Fanney Björnsdóttir, Ragnheiður S. Erlendsdóttir, Ragnheiður S. Valdimarsdóttir. Guðbjörn Magnússon. Eygló Hulda Valdimarsdóttir Nelson, Kenneth Dean Nelson, Viktorla Hafdls Valdimarsdóttir, Einar G. Gunnarsson og barnabörn. Steinunn Péturs- dóttir — Minning Fædd 20. júlí 1901 Dáin 9.maí 1975. Steinunn Pétursdóttir frá Ingj-' aldshóli andaðist i Borgarspítal- anum aðfaranótt 9. maí eftir stutta legu en veikindi um hrið. Utför hennar verður gerð i dag frá Ingjaldshólskirkju í átthögum hennar vestra. Hún dó inn í vorið nóttina eftir uppstigningardag og. öðlaðist hvild í sama mund og landið vaknar af þungum vetrar- dvala. Steinunn fæddist 20. júlí 1901 i Arnartungu í Staðarsveit. For- eldrar hennar voru hjónin Guð- laug Jónsdóttir og Pétur Jónsson er þá bjuggu í Arnartungu en svo í Dal í Miklaholtshreppi fáein ár og siðan lengi á Ingjaldshóli í Neshreppi utan Ennis. Var Stein- unn yngst af sex börnum þeirra. Systkin hennar Kristján Narfi, Ingibjörg og Jón eru látin, en á lífi eru Guðlaug í Reykjavík og Pétur Kristófer í Kópavogi, svo og uppeldissonur Ingjaldshólshjón- anna Kristmundur Georgsson í Hafnarfirði. Að Steinunni Pétursdóttur stóð traust Isienzkt bændafólk. Guð- laug móðir hennar var ættuð úr Vestur-Skaftafellssýslu og Rang- árþingi en Pétur faðir hennar af Snæfellsnesi. Steínunn var enn á barnsaldri þegar foreldrar hennar fluttu bóistað sinn á Ingjaldshóli. Lifði hún þar góða æsku og batt órofatryggð við átt- haga sína. Uppkomin átti hún lengst af heimili í Reykjavík en sótti atvinnu víða um land eink- um á sumrum er hún stundaði kaupamennsku og síldarsöltun. Dvaldist hún mörg ár á Siglufirði meðan silfur hafsins gafst úti fyrir Norðurlandi. Fastast var þó hugur hennar bundinn átthögun- um á Snæfellsnesi. Ingjaldshóll var alltaf rannur hennar og óðal i þakklátri endurminningu, og hún talaði löngum um að fara heim ef leið hennar lá þangað. Steinunn Pétursdóttir var myndarkona, frið sýnum og virðu- leg. Hannyrðir léku í höndum hennar, og hún gekk að sérhverju starfi af kappi og skörungsskap meðan heilsan leyfði umsvif. Hún var og prýðilega sjálfmenntuð, bókhneigð og víðlesin. Steinunn var sjálfstæð i skoðunum, mat einarðlega menn og málefni og kunni vel fótum sinum forráð. Hún var skaprík en opinská og réttlát. Hún safnaði ekki kunn- ingjum en valdi sér vini af kost- gæfni og mannþekkingu. Besti eiginleiki i fari hennar var til- gerðarlaus og óeigingjörn hjálp- fýsi. Fjölskylda mín á henni ó- metanlega þakkarskuld að gjalda. Hún brá alltaf fljótt við ef lið- veislu þurfti og lét sannarlega muna um sig. Frændfólki sínu unni hún heitt en sér i lagi börn- unum. Þau hændust mjög að þessari röggsömu frænku, litu upp til hennar og skildu glöggt hver sómakona hún var. Vilja- styrkur Steinunnar var bjargfast- ur. Hún var rik þó ytri efni skorti. Engum duldist er sá hana og heyrði að hún var drengur góður líkt og Bergþóra. Steinunn Pétursdóttir flíkaði lítt tilfinningum sinum en var Gísli Vilhjálms- son — Minning Þá, ég var ungur drengur á Sauðárkróki varð mér oft starsýnt á mér ókunnan mann, sem al- mennt var nefndur Gísli Vill.- Er ég var fjórtán ára var mikið atvinnuleysi á Sauðárkróki og voru foreldrar oft í vanda stödd með iðjulausa unglinga sina. Ég var þá svo lánsamur, að faðir minn fékk vinnu fyrir mig hjá fyrnefndum öðlingsmanni, sem rak þá síldarsöltunarstöð á Króknum. Er mér minnisstætt, hve hann brýndi fyrir verkstjór- um sínum, að þeir ofbyði ekki vinnuþreki unglinga, og naut ég þess í ríkum mæli, sem og aðrir jafnaldrar mínir. Síðar i lifinu átti ég eftir, mér til gæfu, að kynnast nánar Gísla Vilhjálmssyni, sem í dag er til moldar borinn. Gisli Vilhjálmsson var umfram t Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar HAUKSBRAGA LÁRUSSONAR, yfirvélstjóra. Edith Clausen, Haukur Lárus Hauksson, Karl Pétur Hauksson, Elisabet Hauksdóttir, Arnór Valgeirsson, Valur Arnórsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför GUÐRÚNAR ÁRNADÓTTUR, Öldugötu 29, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Landspitalans fyrir frábæra umönnun I veikindum hennar. Börnin. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát litla drengsins okkar, ALFREÐS, sem lézt hinn 6. maí s.l. Jarðarförin hefur farið fram. Helga Alfreðsdóttir, Kristján B. Garðarsson. t Hugheilar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu, sem auðsýnt hafa okkar samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, fSLEIFS SKÚLASONAR, bifreiðastjóra, Hólmgarði 32. Guð blessi ykkur öll. Helga Pétursdóttir, Guðný Hulda ísleifsdóttir, Eggert Waage, Skúli ísleifsson. Guðlaug H. Hallgrfmsdóttir og barnaborn aðra menn sérstæður. — Hann var einn sá fjölfróðasti maður, ’sem ég hefi kynnst. — Þekking hans á landa- og náttúrufræðum var einstæð, af ólærðum manni að vera í þeim greinum. — Ég hlýt að taka mig hér á, því villa er að sá einn hafi þekkingu, sem þreytt 1 hefir skólaprófum á tilteknu sviði. — Hér er um mikinn mis- skilning að ræða, sem best sannast á þekkingu Gísla Vil- hjálmssonar svo viðfeðm, sem hún var.— Sjálfsmenntun er oft á tíðum haldbetra en skólalærdóm- ur. — Gísli Vilhjálmsson var sjálf- menntaður. — Lestrarfýsn hans og þekkingarþorsti var án tak- . marka og fékk aldrei fullnægj- andi svölun. Gísli Vilhjálmsson var þekktur af allflestum útgerðarmönnum á landi voru fyrir umsvif i sölu sjávarafurða. — Aldrei hefi ég heyrt annað en öll gerð hans á því sviði hafi verið með ágætum. — Ég veit með vissu að þar gætti hann í ríkum mæli hagsmuna ís- lendingsins. — Þó vil ég taka fram, að ekki þekki ég til þess, að umbjóðendur hans erlendis hafi vanvirt þessa umhyggju hans gagn- vart seljendum, nema síður sé, enda naut hann trausts þeirra í rikum mæli, og munu tveir þeirra flýta för sinni frá Grikk- landi, til þess að sýna honum virð- ingu sína meó því að fylgja honum til moldar. Um líf og starf Gísla Vilhjálms- sonar munu aðrir vafalaust dóm- bærari en ég, en ég tel að svo fremi að Island eigi marga slika, sé þjóð vorri vel borgið. Ég á þá eina ósk, að Guðirnir verði honum ekki verri en hann var öðrum, um leið og ég þakka honum samfylgdina, Stefán Sigurðsson. Bróðir minn, JÓHANNES VALGEIR JÓHANNESSON, frá Akranesi andaðist í Landspítalanum 15. þ.m. Guðrún Jóhannesdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför GUÐMUNDAR J. TÓMASSONAR, frá Auðsholti. Systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.