Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAi)!
128. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
99
Stríð eða
vald getur
aldrei leyst
deilu Araba
og Israela”
— segir Sadat
London, Tel-Aviv og Kaíró
9. júní Reuter.
ANWAR Sadat forseti Egypta-
lands sagði ( sjónvarpsviðtali við
BBC, að styrjöld gæti aldrei orðið
til þess að leysa deilu Araba og
Israela og að hann væri friðar-
sinni af heilum hug.
Sadat var að því spurður hvort
hann teldi styjöld óumflýjanlega
ef friðartilraunir nú færu út um
þúfur, og hann svaraði „Nei, alls
ekki, heldur segi ég þvert á móti
að helzta lexían, sem við ættum að
hafa lært af októberstríðinu sé sú
að deilan milli þessara aðila verð-
ur aldrei leyst með styrjöld eða
valdi.“ Sadat sagðist vera bjart-
sýnn þrátt fyrir að friðarumleit-
anír Kissingers utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hefðu farið út um
þúfur í marz sl. og sagði að þó svo
hefði farið þýddi það ekki að,
heimsendir væri í nánd.
Aðspurður að því hvort tsraelar
fengju leyfi til að láta skip sín
sigla um Súezskurð svaraði Sadat
að það færi eftir framkomu tsra-
ela. Fréttamaður minnti þá Sadat
á, að er samið hefði verið um
vopnahlé hefði hann sagt að tsra-
elar fengju að sigla um Súez-
skurð, ef vopnahléð yrði haldið í
reynd. Sadat svaraði aftur „Já, í
samræmi við hegðun þeirra“.
Sadat sagðist aðeins fara
fram á að ályktun Öryggis-
ráðs S.þ. nr. 242 frá því
í nóvember 1967 yrði virt,
í henni eru lagðar grundvallarlín-
ur fyrir samkomulagi deiluaðila.
Sadat var þá spurður hvort hann
myndi viðurkenna tilverurétt
Israels og hann svaraði því til að
það hefðu Egyptar þegar gert<
með því að samþykkja ályktun
242. Hann var þá spurður hvort
hann væri tilbúinn til að gefa
Israel fulla viðurkenningu og
svaraði: „Mikla viðurkenningu,
en ekki fulla.“
Stjórn Israels samþykkti eftir
tæplega 7 klst. fund í gær yfirlýs-
ingu, þar sem á ný var lögð
áherzla á vilja stjórnarinnar til
Framhald á bls. 35
Wibon hvetnr til
emmgar
imi
London 9. júní Reuter — AP
HAROLD Wilson forsætisráð-
herra Bretlands sagði i ræðu í
brezka þinginu i kvöld, að Bretar
myndu nú taka fullan og virkan
þátt f störfum Efnahagsbandalags
Evrópu og að Verkamanna-
flokkurinn myndi nú senda full-
trúa á Evrópuþingið, en flokkur-
inn hefur fram til þessa ekki
tekið þátt f þingstörfum. 1 ræðu
sinni skoraði Wilson á alla Breta
að taka úrslitum þjóðaratkvæða-
greiðslunnar og sætta sig við þau.
„Deilunni er nú lokið og söguleg
ákvörðun tekin“, sagði Wilson f
fyrstu ræðunni, sem útvarpað er
beint úr þinginu. Hann skoraði á
þjóðina að gleyma öllum
ágreiningsatriðum og styðja
stjórnina f virkri þátttöku f störf-
um EBE.
Hann sagðist vel skilja það, að
undanfarnir mánuðir hefðu verið
erfiðir fyrir hin EBE-löndin, en
hrósaði þeim fyrir þann anda sem
ríkt hefði í viðræðum um ný inn-
gönguskilyrði Breta í bandalagið.
Bretar myndu nú af öllu afli
vinna að því með félögum sinum í
bandalaginu að færa út umsvif
þess og auka tilfinningu þjóðanna
fyrir tilgangi bandalagsins.
Sem fyrr segir var nú i fyrsta
skipti bein útvarpsútsending úr
þinginu, en tilraunaútsendingar
fara fram næstu fjórar vikur.
Heyrðu brezkir hlustendur mjög
líflegar og litríkar umræður þing-
manna sinna, einkum er að fyrir-
spurnatima kom. M.a. kom þar
fram áskorun á Anthony Benn
iðnaðarráðherra um að hann
segði af sér vegna andstöðunnar
við EBE-aðild, en hann vísaði
þeirri áskorun á bug og sagðist
þegar hafa haft samband við
Altiero Spinelli, yfirmann iðn-
aðarmála EBE og boðið honum að
koma til London á fimmtudag til
viðræðna, sem Spinelli hefði þeg-
ið með þökkum.
Karl 16. Gústaf Svía-
konungur kemur í dag
KARL 16. GtJSTAF Svíakonungur
áumarið 1957, er Gústaf 6. Adolf, afi
kemur í opinbera heimsókn til Islands
í dag. Þetta er fyrsta heimsókn hans
til tslands, en konungur Svíþjóðar
hefur einu sinni áður komið í opin-
bera heimsókn til tslands; það var
verður haldið af staö til Bessa-
staða, en þar mun konungur
snæða hádegisverð í boði forseta-
Konungur kemur flugleiðis til
landsins og lendir flugvél hans á
Reykjavikurflugvelli kl. 11:30
fyrir hádegi I dag. Framan við
Loftleiðahótelið verður móttöku-
athöfn; þar taka á móti konungi
forsetahjónin, dr. Kristján Eld-
járn og frú Halldóra, og síðan
verður konungur kynntur fyrir
rikisstjórn Islands og ýmsum
embættismönnum.
Frá flugvellinum verður ekið
að Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu, en þar mun kon-
ungurinn gista á meðan á heim-
sókninni stendur. KI. 12:40
hjónanna.
Kl. 16 kemur konungur í heim-
sókn í Landsbókasafnið og mun
þar fyrir hönd Svia afhenda for-
seta Islands að gjöf til þjóð-
arinnar eitt skinnblað úr handrit-
inu Kringlu. Skinnblaðið hefur að
geyma kafla úr Ölafs sögu helga,
en blaðið er hið eina sem varð-
veitzt hefur úr þessu elzta hand-
riti Heimskringlu. — Að afhend-
ingunni lokinni mun dr. Finnbogi
Guðmundsson landsbókavörður
Karls Gústafs, heimsótti landið ásamt
Louise drottningu. Heimsókn Svíakon-
ungs að þessu sinni stendur í fjóra
daga, lýkur á föstudag.
sýna konungi sænska bókasýn-
ingu, sem sett hefur verið upp í
safninu.
Frá Landsbókasafni verður
haldið í Stofnun Árna Magnús-
sonar á Islandi og þar mun kon-
ungur skoða handritasýningu
undir leiðsögn dr. Jónasar Krist-
jánssonar forstöðumanns stofn-
unarinnar.
Konungur mun kl. 18 hafa mót-
töku í Ráðherrabústaðnum fyrir
forstöðumenn erlendra sendiráða
á Islandi.
I kvöld kl. 20 hefst kvöldverðar-
veizla forsetahjónanna til heiðurs
Sviakonungi i Súlnasal Hótel
Sögu. Til veizlunnar hefur verið
boðið fjölda gesta, en hún mun
standa fram til kl. 23:30.
I fylgdarliði konungs í Islands-
heimsókninni eru sænski utan-
ríkisráðherrann, Sven Andersson,
fyrsti hirðmarskálkur Björn von
der Esch, Sverker Aström ráðu-
neytisstjóri, Tom Wachtmeister
Framhald á bls. 35
Bretar óska eftir samningavið-
ræðum við Norðmenn hið fyrsta
Kanadamenn krefjast 40% minnkunar á veiði útlendinga ‘Skan"”"ö S
London 9. júní Reuter—NTB
VIÐRÆÐUM Jens Evensens haf-
réttarráðherra Norges við brezka
starfsbræður sfna um landhelgis-
mál f kjölfar Genfarráðstefnunn-
ar lauk f Lundúnum f dag og hélt
Evensen þaðan til tslands, þar
sem hann ræðir við ráðamenn
þar.
Akveðið var að viðræðunum
yrði haldið áfram f Lundúnum 18.
júni nk. er Knut Frydenlund
utanríkisráðherra Noregs kemur
þangað til viðræðna við Challagan
utanrikisráðherra Breta. Tals-
maður brezku stjórnarinnar vildi
ekkert segja um viðræður Evens-
ens við David Ennals aðstoðar-
utanríkisráðherra, en Ennals
sagði á fundi með fréttamönnum í
dag, að Bretar héldu fast við þá
skoðun sina að engin þjóð ætti að
færa út fiskveiðilögsögu sina
nema alþjóðlegt samkomulag
næðist um slfk mál.
NTB-fréttastofan hefur það eft-
ir áreiðanlegum heimildum að
fram hafi komið á fundinum, að
Bretar séu ákveðnir í að hefja
sem fyrst samningaviðræður við
Norðmenn um gagnkvæma samn-
inga landanna vegna fyrirhugaðr
ar útfærslu Norðmanna, en að
innan brezka fiskiðnaðarins og
innan EBE, sem hefur sjálfstæða
stefnu í fiskveiðilögsögumálum
og þurfa Bretar að finna leið til að
samræma útfærslu í 200 mílna
efnahagslögsögu við þá stefnu.
Skv. stefnu EBE eiga öll banda-
lagsrikin að njóla sömu réttinda
innan 12 milna fiskveiðilögsögu
eftir árið 1982. Þurfa Bretar að fá
Framhald á bls. 35
Útgáfa Repu-
blica hefst á
ný í vikulokin
Lissabon 9. júní
Reuter — AP.
BLAÐAMENN við dagblaðið
Republica, málgagn jafnaðar-
manna i Portúgal, sögðu i dag,
að þeir vonuðust til að blaðið
gæti hafið göngu sína á ný
seinna f þessari viku, en létu í
Ijósi áhyggjur af gildi þeirrar
tryggingar, sem herforingja-
stjórnin setti, er hún lofaði að
blaðið fengi að koma út á ný.
tJtgáfa þess var stöðvuð 20.
maf, eftir mikil átök milli
blaðamanna og prentara blaðs-
ins, en hinir sfðarnefndu, sem
eru flestir I kommúnistaflokki
landsins stöðvuðu útgáfu
blaðsins og kröfðust þess að
aðalritstjóri þess Paul Rego
yrði rekinn.
Herforingjastjórnin lofaði i
yfirlýsingu sinni, að prentlög-
in skyldu virt, en þau banna
starfsfólki að gripa til aðgerða
Framhald á bls. 35