Morgunblaðið - 10.06.1975, Side 5
!
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNI1975
5
Umdæmisstúku-
þing í Stykkishólmi
Fjölsóttur fundur SVS og Varðbergs
SAMTÖK um Vestræna samvinnu
og Varðberg efndu til fjölmenns
fundar í Atthagasal Hótel Sögu sl.
laugardag. Á fundinum flutti
Robert Conquest, brezkt ljóð-
skáld, rithöfundur, gagnrýnandi
og sérfræðingur um sovézk mál-
efni, ræðu um vanda Vesturlanda
en í henni fjallaði hann um mis-
munandi þjóðfélagskerfi og þjóð-
félagshugmvndir í Sovétríkj-
unum og einræðisríkjum gegnum
aldirnar annars vegar og á
Vesturlöndum hins vegar. Að cr-
indinu loknu svaraði Robert Con-
quest fjölmörgum fyrirspurnum.
Var þetta einn fjölsóttasti
fundur, sem SVS og Varðberg
hafa efnt til um langt skeið.
UMDÆMISSTUKAN nr. 1 hélt
þing sitt fyrir árið 1975 í Stykkis-
hólmi dagana 31. maí og 1. júní.
Umdæmistemplar Ölafur Jónsson
setti þingið og stjórnaði því, en
þingfundir voru haldnir í barna-
skólahúsinu. Yfir 40 fulltrúar
sóttu þingið víða að úr umdæm-
inu. Mörg vandamál líðandi
stundar voru rædd á þinginu og
margar ályktanir gerðar bæði um
áfengismál og önnur erfið við-
fangsefni dagsins. Þingfulltrúar
lýstu sig mjög uggandi um aukn-
ingu tóbaksreykinga unglinga og
beindu þeim ákveðnu tilmælum
til foreldra skólastjóra og annarra
uppalenda að allt verði gert og
ekkert tækifæri ónotað til að
sporna við reykingum ungmenna
og í því sambandi var rætt um
ákveðnari áróður gegn þessu böli
og viðvörun tóbaksauglýsenda
sem allstaðar og undir ýmiskonar
yfirskyni reyna að leggja gildrur
fyrir þá sem ekki eiga nóg af
staðfesti til að bera. Þá var rætt
að búa þjóðina undir algert bann
á áfengi hér á landi sem allir voru
sammála um að væri eina varan-
lega lausnin á þessum vanda. Þá
var mjög ræddur „gróði“ ríkisins
af sölu áfengis og tóbaks sem vill
verða smár þegar öll kurl koma til
grafar. I sambandi við þingið var
eins og ætíð áður guðsþjónusta í
Stykkishólmskirkju þar sem sr.
Hjalti Guðmundsson prédikaði.
Þá voru einnig flestir fulltrúar
við kaþólska messu hjá sr. Hákoni
Loftssyni i kapellu sjúkrahússins
í Stykkishólmi.
Olafur Jónsson, Hafnarfirði,
var endurkjörinn umdæmis-
templar og Guðjón Br. Guðlaugs-
son umdæmisritari.
Barnaheimili systranna í
Sjúkrahúsinu i Stykkishólmi
hefst um miðjan þennan mánuð
og enn geta nokkur börn komist á
heimilið.
Fréttaritari.
357 nemendur íTón-
skóla Sigursveins
TÖNSKÖLA Sigursveins D. Krist-
inssonar var slitið 4. maí s.l. Skól-
inn hefur nú starfað i 11 ár, en
við skólann störfuðu í vetur 20
kennarar auk skólastjóra og voru
nemendur 357.
I haust var hafin kennsla í tón-
listarsögu við skólann, en kennt
var á 10 tegundir hljóðfæra, auk
þess sem söngkennsla fór fram. I
vor luku 125 nemendur stigprófi
við skólann.
Símon Helgi Ivarsson lauk
fullnaðarprófi f gítarleik frá skól-
anum á þessu vori og hélt hann
próftónleika í Norræna húsinu í
mafmánuði, en þar að auki voru
opinberir nemendatónleikar
haldnir fyrir jól og f vor.
Aldarafmælis barna-
r
fræðslu á Isafirði minnzt
STAKIR STÓLAR OG SETT.
KLÆÐI GÖMUL HÚSGÖGN.
GOTT ÚRVAL AF ÁKLÆÐI.
BÓLSTRUN
ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2,
Sími 16807.
Nýlega var Barnaskóla tsafjarð-
ar slitið. "Við athöfnina var
samankomið fjölmenni og söng
telpnakór undir stjórn Jakobs
Hallgrfmssonar söngkenn-
ara nokkur lög.
Nemendur í vetur voru 379.
Kennt var i 16 bekkjardeildum og
voru kennarar 15, auk skóla-
stjóra, Björgvins Sighvatssonar.
Á fullnaðarprófi hlutu fimm
nemendur ágætiseinkunn, Arný
Halldórsdóttir, 9.36, Heiðdís
Hansdóttir, 9.23, Lúðvfk M. Öla-
son, 9.13, Drífa Leonsdóttir, 9.06,
og Helga K. Einarsdóttir, 9.00.
I sambandi við skólaslitin
minntust Isfirðingar aldar-
afmælis barnafræðslu á Isafirði.,
Fræðsluráð Isafjarðar bauð
starfsfólki Barnaskólans og
öðrum gestum til hófs, þar sem
forseti bæjarstjórnar Isafjarðar,
Guðmundur H. Ingólfsson,
greindi frá hálfrar millj. kr. gjöf
til skólans, en gjöfinni skal varið
til eflingar skólastarfsins, sam-
kvæmt ákvörðun skólastjóra og
Fræðsluráðs.
Sýning á vinnu nemenda var
opin yfir hvítasunnuhelgina og
skoðuðu hana um 1300 gestir.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919
nalloKa
fyri r al la fjölskylduna
Við bjóðum hagstæðari barnafargjöld en aðrir.
íbúðir í háum gæðaflokki eru til reiðu fyrir fjölskyldufólk,
með góðri aðstöðu fyrir yngsta fólkið.
Þrautreyndir íslenzkir úrvals fararstjórar veita yður og
fjölskyldu yðar aðstoð og leiðbeiningar.
Sérstakur bæklingur með ýtarlegum upplýsingum og ráðum
varðandi Mallorcadvöl hefur verið gefinn út fyrir yður.
Njótið sumarleyfisins í hópi
fjölskyldunnar í úrvals
Mallorcaferð fyrir viðráðanlegt
verð.
FERDAUÓNUSTA
FARARSTJÓRN
FERÐASKFUFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
«■
i
I
I
‘i
|