Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 10
llliil
Þjóöhöföinginn ungi:
KARL XVI
GÚSTAF
Fyrir Svíþjóð — eftir kröfum tfmans, eru einkunnarorð, hans
hátignar Karls XVI Gústafs Svíakonungs, sem kemur í opinbera
heimsókn til Islands f dag. Hann er fæddur þann 30. apríl 1946 f
Haga-höll. Sem erfðaprins Svfþjóðar var hann hertogi af Jamta-
landi við fæðingu. Hann var einkasonur krónprinsins Gustafs
Adolfs, sem fórst f flugslysi 1947, og Sibyllu prinsessu, sem fædd
var prinsessa af Sachsen-Coburg und Gotha og lézt 1972. Erfða-
prinsinn var skírður Karl Gústaf Folke Hubertus og var opinber-
lega lýstur krónprins Svíþjóðar 1950.
30. aprfl árið 1971 varð Karl Gústaf 25 ára og uppfyllti þar með
þau aldursskilyrði sem stjórnarskrá Svfþjóðar gerir til verðandi
þjóðhöfðingja og eftir það kom hann fram sem fulltrúi konungs-
ins, afa síns Gústafs VI, Adolfs f fjarveru hans. Gústaf Adolf lézt
sem kunnugt er í september 1973 og. þá tók Karl Gústaf við
völdum. Konungurinn stundaði nám f heimavistarskóla fyrir
pilta og stúlkur f Sigtuna, skammt frá Stokkhólmi. Aðalnáms-
greinar hans voru saga, landafræði, félagsfræði og nútímamál og
stúdentsprófi lauk hann vorið 1966. A þessum árum fékk konung-
urinn mikinn áhuga á fornleifafræði og fetaði þar í fótspor afa
sfns, og tók m.a. þátt f uppgrefti gamla bæjarins í Sigtuna. A
skólaárum sfnum stundaði hann fþróttir af kappi og náði beztum
árangri f skotfimi, og var f keppnisliði skólans.
Ferming Karls XVI Gústafs fór fram árið 1962 f Borghólms-
kirkju á eynni Öland, þegar Sibylla prinsessa og fjölskylda
hennar voru f frfi þar.
Að stúdentsprófi loknu stundaði Karl Gústaf nám við Uppsala-
háskóla og gegndi herþjónustu. Um tveggja ára skeið var hann í
hinum ýmsu deildum sænska hersins, en lengst af f flotanum.
Veturinn 1966—67 var hann á tundurspillinum Alvsnabben, þar
sem hann fékk sfna fyrstu reynslu sem sjóliðsforingjaefni. Sfðan
var hann á.fallbyssubáti og einn vetur á sjóliðsforingjaskólanum
ogtók próf sem sjóliðsforingi haustið 1968. Þá varði konungurinn
fjórum mánuðum f nám og æfingar með land- og flughernum.
Arið 1968 og 69 stundaði Karl Gústaf nám við háskólann f
Uppsölum f þjóðfélagsvfsindum, stjórnmálavfsindum og sögu.
Að því námi loknu kynnti konungurinn sér hið fjölbreytta
atvinnulff Svfþjóðar og starfaði um skeið hjá fyrirtækjum eins og
Facit, Samvinnufélögunum, Svenska Cellulosa AB og um skeið
var hann hlaðamaður við Göteborgs Posten, auk þess sem hann
kynnti sér vel starf sænsku alþýðusamtakanna.
Karl XVI Gústaf tók við konungdómi af afa sfnum Gústaf VI
Adolf er hann lézt í september 1973. Hann sór konungseiðinn
þann 20. september og sat þann dag sinn fyrsta rfkisráðsfund sem
konungur. Við athöfn, sem þann dag fór fram f rfkissalnum, sagði
hann m.a.:
„Með þessum einkunnarorðum: Fyrir Svíþjóð — eftir kröfum
tfmans, — vil ég gefa til kynna hvernig ég mun leitast við að
mæta þeim kröfum sem gerðar eru til konungs nú á tfmum. Minn
dáði og elskaði afi varð tákn nútfma konungdóms. Ég er staðráð-
inn f að fylgja fordæmi hans.“
Völd hins unga konungs eru ekki eins mikil og afa hans, þvf um
s.l. áramót tók gildi f Svfþjóð ný stjórnarskrá, sem hafði í för með
sér verulega skerðingu á valdi konungs. Konungurinn er nú fyrst
og fremst tákn ríkisins.
Islenzk fræði og bók-
menntiráhugaefni Svía
Samskipti tslend-
inga og Svía hafa
alltaf verið nokkur, allt
frá þvf að land byggðist
hér og fslenzka þjóðin
varð til. Raunar er
greint frá þvf f heimild-
um um landnámið að
sænskir menn hafi orð-
ið fyrstir norrænna
manna til að stfga hér
fæti á land. Naddoður
vfkingur kom að Aust-
f jörðum f könnunarferð
og Garðar Svavarsson
átti vetursetu í Húsavfk
við Skjálfanda. Og með-
al landnámsmanna voru
einnig nokkrir sænskir
menn.
Um tíma lutu Svíar og
tslendingar sama þjóð-
höfðingja, er Kalmar-
sambandið var við lýði,
og segja má, að með
réttu hefðu tslendingar
átt að fylgja Norðmönn-
um, þegar Svíar fengu
yfirráð yfir Noregi að
loknum Napóleonsstrfð-
unum, þar sem Danir
fóru mjög halloka. Ef
Svfar hefðu fengið yfir-
ráð yfir tslandi f byrjun
19. aldar, hefði saga ts-
lands vafalaust orðið
önnur á sfðustu öld og
þessari en f raun varð.
Hin sfðari ár hafa
samskipti tslendinga og
Svía aukizt mjög. Eru
menningarsamskiptin
mjög fjölbreytt, en þó
má segja, að helztu
þættir þeirra séu þrfr:
# Samstarf á sviði
hinnar skipulegu nor-
rænu menningarmála-
samvinnu, sem byggist
á Norræna menningar-
málasáttmálanum, er
tók gildi 1972. Norræna
menningarmálastofn-
unin f Kaupmannahöfn
vinnur að framkvæmd
sáttmálans og skiptist
starf hennar í þrjár
deildir eftir viðfangs-
efnum: vfsindarann-
sóknir, fræðslumál og
almenn menningarmál.
Fer sú samvinna fram i
ýmsum myndum, t.d.
með ráðstefnuhaldi,
vinnu að sameiginleg-
um verkefnum o.fl.
0 Framhaldsnám ts-
lendinga f ýmsum
greinum í Svíþjóð. Fyr-
ir 1930 var fátítt, að
Islendingar færu til
framhaldsnáms f Svf-
þjóð, en á fjórða ára-
tugnum varð þar breyt-
ing á og sérstaklega eft-
ir sfðari heimsstyrjöld-
ina hefur fjölgað þeim
námsmönnum, sem
sækja framhaldsmennt-
un til Svíþjóðar. Er Svf
þjóð f hópi 4-5 landa,
þar sem flestir Islend-
ingar eru við nám.
0 Samskipti á sviði
bókmennta og fslenzkra
fræða. Löngum hefur
verið töluvert mikill
áhugi á fslenzkum fræð-
um f Svfþjóð og hafa
t.d. fjórir háskólar þar f
landi lengi haft fs-
lenzka sendikennara f
kennaraliði sfnu. f
þessu sambandi má
minna á orð Gústafs V-I
Adolfs Svfakonungs f á-
varpi hans í forseta-
veizlunni í fslands-
heimsókn 1957, er hann
sagði: „Hefði eigi
Snorra Sturlusonar not-
ið við, væri fróðleikur
vor Svfa um fornsögu
þjóðar vorrar mjög f
molum.“ — Þá hefur ó-
víða erlendis verið
meiri áhugi á íslenzk-
um nútfmabókmennt-
um en f Svíþjóð. Sér-
staklega hafa verk
Halldórs Laxness verið
þar f miklum metum og
þar starfar sá maður,
sem einna mest og bezt'
hefur kynnt verk
Laxness á erlendum
vettvangi, Peter Hall-
berg, kennari f bók-
menntum við háskólann
í Gautaborg. 1 nútfma-
bókmenntum íslenzk-
um hafa vafalftið verið
töluvert sterk áhrif frá
sænskum bókmenntum,
kannski ekki sfzt f
ljóðagerð á sfðustu ára-
tugum.
Gústaf VI Adolf Svfakonungur og herra Asgeir Asgeirsson forseti. Myndina
tók öl. K. Mag. f tslandsheimsókn Svfakonungs 1957.
Olof Kaijser, sendiherra Svíaá íslandi:
„Áhugamálin eiga ekki aö snú-
ast um þaö liöna, heldur fyrst
og fremst um framtíöina ’ ’
Koma Svfakonungs hingað til lands f þessari
viku er til marks um hið nána samband sem er á
milli þessara tveggja norrænu þjóða. Það hefur
alltaf verið talið eðlilegt og sjálfsagt, að tsland
eigi að heima f hinum nána félagsskap sem tengir
saman grannlöndin Danmörku, Noreg, Svfþjóð og
Finnland. Fyrr á tfmum töluðum við sama tungu
málið og þekkingu á sögu okkar á fyrri öldum
höfum við f rfkum mæli fengið frá fslenzkum
söguriturum, sem kunnir eru um öll Norðurlönd.
Þegar okkur verður hugsað til fyrri tfma, sjá-
um við að landfræðileg fjarlægð og stjórnmála-
legar aðstæður á Norðurlöndum komu f veg fyrir
nánara samband þjóðanna. Margar aldir liðu frá
þvf að vfkingaferðirnar lögðust af þar til að
ferðamenn frá Svfþjóð fóru á ný að sækja til
tslands. — Uno von Troil skrifaði sfna frægu bók
„Bréf frá íslandi“ eftir tslandsdvöl árið 1772 og
Albert Engström ritaði hinu vinsælu bók „Til
Heklu" eftir heimsókn til landsins árið 1911.
Þrátt fyrir það er það fyrst sfðustu 20 árin, sem
Island hefur orðið alþekkt meðal almennings f
Svfþjóð, og það er fyrst nú á allra sfðustu árum,
sem tsland hefur orðið ferðaland f augum Svía
og Svfþjóð f augum tslendinga. A árunum 1971,
1972 og 1973 fóru 3304, 4258 og 5441 Svfi í
ferðalag til tslands og fjöldi þeirra tslendinga.
sem komu til Svfþjóðar árið 1973, reyndist hvorki
meiri né minni en 1.526.
Ahuginn á tslandi, sem vaxið hefur mjög á
sfðustu árum, jókst um allan helming, þegar
eldgosið á Heimaey hófst. I daga og vikur eftir á
fylgdust allir Svfar af geysimiklum áhuga með
hverjum fréttatfma f útvarpi og sjónvarpi, sem
skýrði frá þróun mála f Vestmannaeyjum.
Þegar konungur Svfþjóðar kemur f heimsókn
til tslands, eiga áhugamálin ekki að snúast um
hið liðna, heldur fyrst og fremst um framtíðina,
en um leið verður hver og einn að viðurkenna, að
hið liðna hefur lagt grunninn, — og það sterkan
grunn að sænsk-fslenzku samstarfi f framtfðinni á
mörgum og ólfkum sviðum, samvinnu, sem maður
vill, hvernig sem á málin er litið, fyrst og fremst
þróa innan ramma hins norræna samstarfs. Þegar
eru mörg dæmi um mikilvægt og árangursrfkt
samstarf og framundan er samstarf á sviði um-
hverfisverndar og orkunýtingar, þar sem hlutur
tslands mun verða mjög mikilvægur.
Með þennan bakgrunn f huga er eðlilegt að taka
ekki heimsókn konungsins Karls XVI Gustafs
aðeins sem staðfestingu á vináttu og þeim áhuga,
sem tengja Svíþjóð og Island heldur einnig sem
staðfestingu á trú okkar á norrænu samstarfi og
þýðingu þess fyrir öll Norðurlöndin.