Morgunblaðið - 10.06.1975, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1975
11
Konungur Svíþjóðar heimsækir ísland
Breytt stjórnarskrá í Svíþjóö:
sinnar hafi komið nálægt gerð
þess og haft á hana mikil áhrif.'
T.d. er orðið konung að finna að-
eins á einum stað i hinum nýju
lögum. Annars staðar er orðið
„þjóðhöfðingi" notað.
Þá er reynt að setja stein i götu
gamla konungdæmisins með þvi
að sett voru inn atkvæði um mis-
mun kynja til ríkiserfða, þannig
að karlmenn einir geta orðið þjóð-
höfðingjar.
Konungur-
innfertil
Skaftafells
Fram til þessa hafa þeir er-
lendir þjóðhöfðingjar, er til
fslands hafa komið, ekki farið
til annarra landshluta en Suð-
ur- og Norðurlands, en nú
verður brugðið út af vananuni
og farið austur í Skaftafells-
sýslur.
Karl XVI Gústaf fer á mið-
vikudaginn austur á Höfn í
Hornafirði og til Skaftafells,
með viðkomu í Vestmanna-
eyjum, en konungur mun sér-
staklega hafa óskað eftir þvf
að koma þar við. Brottför
verður kl. 9.15 á miðvikudags-
morgun frá Reykjavfkurflug-
velli og þaðan flýgur kon-
ungur ásamt fylgdarliði til
Vestmannaeyja. Þaðan verður
flogið til Hafnar f Hornafirði,
þar sem hádegisverður verður
snæddur, en áður verður
komið við í Almannaskarði.
Frá Höfn verður haldið áleiðis
Þegar sænsku konungshjónin óku til Þingvalla var dr. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur fylgdarmaður þeirra og sést hér sýna konungi athyglisverð náttúru-
fyrirbæri á Þingvöllum. (Ljósm. Ól. K. Mag.)
Islandsheimsókn Svíakonungs 1957:
Þann 1. janúar s.l. tók breytt
stjórnarskrá gildi f Svíþjóð, sem
hafði það í för með sér, að kon-
ungur landsins varð svo til valda-
laus og er nú fyrst og fremst tákn
ríkisins.
Þau völd, sem konungur hafði,
gengu í hendur annarra, fyrst og
fremst ríkisstjórnarinnar, enda er
konungur nú oftast fjarverandi
þegar ríkisstjórnin tekur ákvarð-
anir sfnar. Konungi er aðeins til-
kynnt um málefni rikisins af for-
sætisráðherranum eða þá á ríkis-
ráðsfundum, sem ekki þarf að
halda óftar en ársfjórðungslega.
Þá hefur konungur nú ekki
lengur nokkru hlutverki að gegna
við myndanir nýrra stjórna, held-
ur er það forseti þingsins, sem
felur einstaka mönnum stjórnar-
myndanir. Konungurinn situr þó
þingið áfram, en hásætisræðunni
er sleppt, en í staðinn kemur
stefnuyfirlýsing rfkisstjórnarinn-
ar. Þá er táknræn yfirstjórn kon-
ungs á herjum Svía komin yfir á
ríkisstjórnina.
Hin nýja stjórnarskrá Svía var
lengi í vinnslu, fyrst f nefndum
ríkisstjórnarinnar og síðan tóku
þingflokkarnir nokkur ár'til að
fjalla um málið. Stjórnarskráin
ber það til kynna, að lýðveldis-
Fegurð Þingvalla heillaði—
og hádegisverðinum seinkaði
HEIMSÖKN Karls XVI Gústafs
Svfakonungs er önnur opinber
heimsókn Svfakonungs til
Islands. Afi Karls, Gústaf VI
Adolf, kom í júnflok 1957 f opin-
bera heimsókn til tslands ásamt
Louise drottningu. Áður hafði
Gústaf Adolf raunar komið til Is-
lands árið 1930 á Alþingishátíð-
ina, en þá var hann enn krónprins
Svfa. Hann varð konungur Svf-
þjóðar árið 1950, er faðir hans,
Gústaf V, lézt.
Heimsókn Svíakonungs sumar-
ið 1957 tókst einstaklega vel og
Ijóst var af öllum ummætum og
viðbröðgum konungs, að hann
naut dagana á Islandi mjög vel og
hreifst mjög af þvf, scm hann sá
og kynntist.
Konungshjónin komu til
Reykjavíkur með flugvél frá SAS-
flugfélaginu um kl. 15 laugardag-
inn 29. júní. Forsetahjónin, herra
Ásgeir Ásgeirsson og frú Dóra
Þórhallsdóttir, tóku á móti
konungshjónunum á flugvellin-
um. Var síðan ekið um götur borg-
arinnar að Ráðherrabústaðnum,
en þar skyldi konungur búa á
meðan á Islandsheimsókninni
stæði. Við húsið hafði safnazt
saman mikill mannfjöldi til að
hylla konungshjónin og þegar þau
voru komin inn i húsið, var
Louise drottningu afhentur bögg-
ull með íslenzku sjali, gjöf frá
íslenzkri móður i þakklætisskyni
fyrir þá vinsemd og hlýhug sem
syni hennar hafði verið sýndur,
er hann dvaldist I Sviþjóð við
nám.
Konungshjónin og forsetahjón-
in gengu síðan út á svalir hússins
og hlýddu á söngkveðju félaga úr
karlakór borgarinnar.
Siðar um daginn hafði konung-
ur móttöku fyrir forstöðumenn
erlendra sendiráða í Ráðherra-
bústaðnum, en um kvöldið sátu
konungshjónin veizlu forseta-
hjónanna á Hótel Borg.
Næsta morgun heimsóttu
konungshjónin Háskóla Islands
og síðan Þjóðminjasafnið og skoð
aði konungur safnið af miklum
áhuga, enda kunnur áhugamaður
um fornleifafræði. Þvi næst var
haldið til Bessastaða, þar sem Ás-
mundur Guðmundsson biskup
messaði í kirkjunni, og síðan var
snæddur hádegisverður. Síðdegis
hafði borgarstjórinn i Reykjavik,
Gunnar Thoroddsen, móttöku fyr-
ir hina tignu gesti i Melaskólan-
um og um kvöidið neyttu kon-
ungshjónin kvöldverðar í Nausti,
áður en haldið var á hátíðasýn-
ingu á „Gullna hliðinu" í Þjóð-
leikhúsinu.
Þriðji dagur heimsóknarinnar
hófst með því, að konungur skoð-
aði tvö fiskiðjuver í Reykjavík,
en síðan var ekið áleiðis til Þing-
valla. A leiðinni var staðnæmzt að
Gljúfrasteini, þar sem konungs-
hjónin heimsóttu Nóbelsskáldið
Halldór Laxness og fjölskyldu
hans.
Er komið var að Almannagjá,
stigu konungshjónin út úr bifreið-
um sínum og virtu fyrir sér útsýn-
ið af gjárbarminum, en gengu sið-
an niður g.iána, í stað þess að aka.
Á Lögbergi voru gestirnir
fræddir um sögu staðarins, en síð-
an gegnu þeir að Valhöll, þar sem
rikisstjórnin hélt þeim hádegis-
verðarboð. Konungur bað for-
sætisráðherra afsökunar á því
hversu seint hann kæmi til hádeg-
isverðarins, en landslagið hefði
verið svo fagurt á Þingvöllum, að
hann hefði ekki staðizt mátið að
skoða það lengur en ráð var fyrir
gert.
Að hádegisverðinum loknum,
þar sem á borðum var nýveiddur
Ölfusárlax og síðan skyr og rjómi,
var haldið til Reykjavíkur sem
leið lá niður með Soginu, að
Hveragerði og yfir Hellisheiði.
Síðdegis þennan dag höfðu
konungshjónin móttöku í sænska
sendiráðinu fyrir sænska þegna
hér á landi og um kvöldið héldu
þau forsetahjónunum kveðju-
veizlu í Þjóðleikhúskjallaranum.
Árla næsta morgun kvöddu
konungshjónin Island og flugu
heim á leið í SAS-flugvélinni Arn-
grimi Vfkingi, en að skilnaði
hafði forseti tslands fært Svía-
konungi að gjöf litla afsteypu af
VERZLUN Islendinga við Svía
hefur verið mikil á undanförnum
árum og áratugum og í fyrra var
Svfþjóð f 7. sæti á listanum yfir
þau lönd, sem Islendingar flytja
mest inn frá, miðað við verðmæti.
Nam innflutningsverðmæti
sænskra vara alls 3.693 milljón-
um króna og hafði hækkað um
rösk 50% frá árinu áður.
Hins vegar hefur um alllangt
skeið verið mikill halli á við-
skiptajöfnuði við Svfa og á sfðasta
ári nam heildarverðmæti þeirra
vara, sem Islendingar seldu til
Svfþjóðar 684 milljónum króna
og hafði aðeins aukizt um tæp 9%
frá árinu áður.
Aðalástæðurnar fyrir þessum
mikla mun á verzlun okkar við
Svía eru einkum tvær:
Sviar hafa á boðstólum góðar og
þekktar vörur, sem þeir hafa selt
hér á landi um áratuga skeið með
góðum árangri.
Utflutningsmöguleikar Islend-
inga á sænskan markað eru
höggmynd Einars Jónssonar,
„öldu aldanna", og myndaalbúm
með 58 ljósmyndum Péturs
Thomsen frá heimsókn konungs-
hjónanna til íslands.
Lauk þannig heimsókn sænsku
konungshjónanna, en óhætt er að
fullyrða, að þau hafi unnið hug og
hjarta Islendinga með alúðlegri
og frjálsmannlegri framkomu
sinni.
takmarkaðir eftir að sfldveiðin og
síldarsöltun hér á landi lagðist
niður fyrir nokkrum árum. Salt-
síldin hafði lengi verið aðalút-
flutningsvara Islendinga til Sví-
þjóðar og ekki hefur fundizt önn-
ur vara sem gæti tekið sess
hennar i útflutningsverzluninni.
Innflutningsvörurnar frá Svf-
þjóð eru afar fjölbreyttar, enda
eru Svíar meðal fremstu þjóða
heims á sviði iðnaðar. Nokkrir
vöruflokkar eru þó veigamestir í
innflutningnum og skal þeirra
getið hér, ásamt verðmætistölum
frá síðasta ári:
Stærsti liðurinn var alls kyns
vélar og tækjabúnaður (877
milljónir króna). Flutningstæki
komu þar næst (540 milljónir
króna), og er þar einkum um að
ræða Volvo-, Saab- og Scania
Vabis-bila. Trjáviður er einnig
stór liður (540 milljónir króna),
og pappír, pappi og vörur úr þess-
um efnum, sem unnin eru úr trjá-
viði (200 milljónir króna). Loks
skal svo getið hráefna eins og
járns og stáls (227 milljónir
króna) og óunninna plastefna
vestur f Skaftafell og m.a.
stoppað við Jökulsárlónið á
Breiðamerkursandi. Þvf næst
verður haldið að Svfnafells-
jökli og komið í Skaftafell um
kl. 18.40. I nýja skálanum und-
an Skaftafellsbökkum verður
borinn fram kvöldverður. Að
honum loknum verður ekið til
Fagurhólsmýrar. Þaðan
verður flogið til Reykjavíkur,
en þangað verður ekki komið
fyrr en um kl. 22.30.
(203 milljónir króna). Samtals
nam verðmæti þessara stærstu
vöruflokka um % hlutum af heild-
arverðmæti innflutningsins frá
Svíþjóð.
Stærsti liðurinn i heildarverð-
mæti útflutningsvara Islendinga
til Svíþjóðar eru 247 milljónir fyr-
ir frysta rækju, en Svíar eru
stærsti viðskiptavinurokkar á því
sviði og keyptu nær helming allr-
ar rækjunnar, sem flutt var út
árið 1974. Aðrar sjávarafurðir,
sem Sviar keyptu af okkur, voru
einkum fiskmjöl og söltuð þorsk-
hrogn. Þá keyptu þeir allnokkuð
af landbúnaðarvörum, talsvert af
osti, nokkuð af lambakjöti og all-
mikið af gærum og húðum.
Einnig má nefna brotajárn, sem
Svíarnir keyptu mikið af. I lokin
skal svo nefnd ein vörutegund',
sem fæstum dettur líklega i hug
að telja til útflutningsfram-
leiðslu, en Svíar keyptu þó meira
af henni en nokkur önnur erlend
þjóð. Það eru frimerki, en á árinu
1974 keyptu Svíar af okkur
frimerki fyrir tæpar 13 milljónir
króna.
MIKIÐ FLUTT INN AF
VÖRUM FRÁ SVÍÞJÓÐ
KONUNGURINN ER
FYRST OG FREMST
TÁKN RÍKISINS