Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNl 1975
13
Ljósm. Br. H.
Mosaikmynd Gerðar Helgadóttur afhjúpuð f Samvinnubankanum. Erlendur Einarsson formaður
bankaráðs flutti ávarp, en systurdóttir Gerðar, Sigrlður Asgeirsdóttir afhjúpaöi. Mvndin er á vegg I
afgreiðslusal,relieve-mynd úr mosaik.
Mosaikmynd eftir Gerði afhjiípuð
ínýbyggingu Samvinnubankans
• •
Onnur bronzmynd væntanleg
SAMVINNUBANKINN f
Reykjavfk tók á laugardag í
notkun nýbyggingu við eldra
húsnæði bankans í Bankastræti
7. Um leið var afhjúpuð f af-
greiðslusal stór veggmynd úr
mosaik eftir Gerði Ilelgadóttur
myndhöggvara, síðasta lista-
verkið sem hún gerði en mynd-
in var tilbúin til heimsending-
ar í Þýzkalandi, er hún lézt 17.
maí sl., að því er Erlendur
Einarson formaður bankaráðs
sagði í ávarpi við það tækifæri.
Hafði það verið einróma álit
bankastjóra og bankaráðs að
prýða bankann góðum lista-
verkum, og var leitaö til Gerðar
í samráði við arkitcktinn
Hákon Hertevig. Gerði Gerður
tvö listaverk fyrir bankann,
mosaikmyndina og veggskreyt-
ingu úr bronzi, sem Oidtrnans f
Þýzkalandi tóku að sér að Ijúka
við vegna sjúkleika hennar
sjálfrar en þeir unnu einnig
mosaikmyndina. Verður bronz-
myndin sett upp sfðar. Systur-
dóttir Gerðar, sem starfar í
bankanum, Sigrfður Asgeirs-
dóttir, afhjúpaði myndina. En
viðstatt var starfsfólk bankans
oggestir.
Vegna mikillar aukningar á
starfsemi Samvinnubankans á
undanförnum árum var hús-
næði það, sem hann hafði liaft
frá 1963 orðið óhcntugt og
ófullnægjandi. En samhliða ný-
byggingunni hefur einnig verfð
unnið að gagngerum umbótum
á eldra húsnæði. Mun þvf öll
aðstaða fyrir starfsemi bankans
stórbatna, til hagræðis fyrir
viðskiptavini og eins til auk-
innar hagkvæmni í rekstri.
Bankastjóri Sanivinnubankans
er Kristicifur Jðnsson.
ÖII afgreiðsla liefur nú verið
sameinuö og fer fram á 1. hæð á
annarri hæð eru aðrar skrif-
stofur bankans. Þriðja hæðin
verður að mestuin liluta leigð
út fyrir starfsemi lífeyrissjóðs
SfS og lögfræðiskrifstofu. A
fjórðu hæðinni er matsalur og
setustofa. ásanit húsvaröar-
fbúð. Nýbyggingin. sein er fjór-
ar hæðir og kjallari, er að stærð
um 944 ferni. og hefur aðál-
bankinn þá yfir 2007 ferm.hús-
rými að ráöa. Getur bankinn nú
í f.vrsta sinn boöiö viðskiptavin-
um bankahólf á leigu seni eru í
kjallaranum. Hönnun og eftir-
lit annaðist Teiknistofa Sam-
bandsins.
Dregið í happdrætti
S j álfstæðisflokksins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
landshappdrætti Sjálfstæðis-
flokksins:
„Dregið var hjá borgarfógeta í
landshappdrætti Sjálfstæðis-
flokksins s.l. laugardagskvöld.
Upp komu eftirtalin vinnings-
númer:
16911 Bronco Sport. bifreið.
56997 Úrvals-sólarferð til Mallorka
16880 Úrvals-sólarferð til Mallorka
78446 Ún als-sólarferð til Mallorka
26013 Kassettu-segulbandstæki
55004 Kassettu-seKulbandstæki
59977 Kassettu-segulbandstæki
40318 Kassettu-segulbandstæki
72634 Kassettu-seKulbandstæki
55610 Kassettu-segulbandstæki.
Eigendur ofantaldra vinnings-
miða framvfsi þeim í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, Laufásvegi
46, Reykjavík."
„Ótrúleg listaverk
í safni Einars”
Rabbað við norska mótasmiði
NORSKU mótasmiðirnir Kluger
og Lindseth hafa nú lokið við að
taka mót af Öldu aldanna, högg-
mynd Einars Jónssonar sem á að
setja upp í bronzi f Vestmanna-
eyjum í haust.
3 seldu en meðal-
verðið misjafnt
Þrír bátar seldu sildarafla i
Hirtshals i gær og komst meðal-
verðið allt upp i kr. 73,73, en i
þeirri heildarsölu var aflinn litill.
Faxaborg seldi 78,3 lestir fyrir 1,9
millj. kr. og var meðalverðið kr.
25,28, Rauðsey AK seldi 43,1 lest
fyrir 1,2 millj. kr., meðalverð kr.
27,85 og Guðmundur RE seldi 4,3
lestir fyrir317 þús. kr., meðalverð
kr. 73,73.
Morgunblaðið rabbaði stuttlega
við þá félaga en þeir hafa ekki
fyrr komið til Islands þótt oft hafi
þeir unnið með íslenzkar högg-
myndir. „Það er hreint ótrúlegt
að safn eins og Listasafn Einars
Jónssonar skuli vera til hér á
landi. Þetta eru stórkostleg verk
og hvert öðru betra“, sagði
Mjöl og hrogn
til útlanda
Siglufirði — 9. júní
I DAG er verið að landa úr togar-
anum Stálvfk um 70 tonnum af
þorski. Þá er verið að lesta vél-
skipið Sæborgu til útlanda með
550 tonn af loðnumjöli.
Loks er vélskipið Tjaldur á för-
um til útlanda með heilan farm af
söltuðum grásleppuhrognum og
er þá framleiðslan frá síðustu ver-
tfð svo til öll farin til erlendra
kaupenda. —mj.
Sýning á munum
aldraðra borgara
1 FÉLAGSHEIMILI aldraðra við
Norðurbrún 1 stendur yfir sýning
á listmunum, sem aldraðir borg-
arar í Reykjavík hafa unnið i
vetur, en tómstundastarfið sem
Félagsmálastofnun gengst fyrir
er mjög fjölbreytt. Þarna eru leir-
munir, útskurður í tré og bein,
skartgripir úr slipuðum islenzk-
um steinum, horni, beini og hval-
tönnum; leðurvinna margs konar,
vefnaður, teppi og isaumur o.fl.
Sýningin hófst á laugardag og
lýkur í kvöld, þriðjudag. Hún er
opin kl. 1—5 e.h. Ljósm. blaðsins
tók þessa mynd á sýningunni i
gær.
A SLYSSTAÐ — Frá slysstaðnuiii við Grindai ikun eg. 1 ■■|,lslu i;il,'n""
Kluger, en það vakti einnig at-
hygli þeirra hve þeir sáu víða
listaverk á vfðavangi í Reykjavík.
Þeir félagar vinna saman í Osló
og steypa þar aðallega fyrir 7
myndhöggvara, en einnig vinna
þeir margháttuð önnur verkefni.
M.a. sögðust þeir steypa pípumót-
in fyrir Lille—Hammer reykpip-
urnar sem kunnar eru hér á landi.
Mótin verða nú send til Osló þar
sem höggmyndin verður steypt i
bronz. Til vinstri á myndinni er
Kluger og til hægri er Lindseth.
Vitni vantar
FÖSTUDAGINN 30. mai laust
fyrir klukkan 16 varð árekstur á
Skúlagötu gegnt Sænska frysti-
húsinu. Þar rákust saman tvær
bifreiðir, Peugeot og Volkswagen
sendibifreið. Vitni munu hafa
verið að þessum árekstri og eru
þau beðin að hafa samband við
rannsóknarlögregluna.
Banaslys
á Grinda-
víkurvegi
BANASLYS varð á Grindavfkur-
vegi um klukkan 18,30 á laugar-
daginn. Bifreið valt út af veg-
inum eftir að einn hjólharöinn
hafði sprungið og fór hun 3—4
veltur niður allháan vcgarkant-
inn. 1 bifreiðinni voru 5 menn,
allt skipverjar á Lundey RE.
Einn þeirra kastaöist út úr bif-
reiðinni og slasaðist það mikið að-
hann lézt á sjúkrahúsinu í Kcfla-
vík um kvöldið. Ilann hét Guðni
Jónsson til heimilis að Kirkju-
Guðni Jónsson.
teigi 11 í Reykjavfk, 70 ára að
aldri.
Bifreiðin var á leiðinni frá
Grindavík til Reykjavfkur. Þegar
hún var stödd skammt norðan
Svartengis hvellsprakk einn hjól-
barðinn og missti ökumaður við
það stjórn á bifreiðinni. Stakk*t
hún út af veginum vinstra megin
við akstursstefnu og niður allhá-
an vegarkantinn og fór 3—4 velt-
ur áður en hún stiiðvaðist á hjöl-
unum. Guðni heitinn kastaðist út
úr bifreiðinni i einni veltunni.
Lögreglan í Grindavík kom brátt
á staðinn og flutti Guðna á sjúkra-
húsið i Keflavík þar sem hann
andaðist um klukkan 21 þetta
sama kvöld. Þá slasaðist annai
farþegi all mikið og var hann
fluttur á sjúkrahús í Reykjavfk.
Hinir sem í bilnum voru sluppu
með minniháttár meiðsli. Bifreið-
in er töluvert skemmd.
Guðni Jönsson lætur eftir sig
eiginkonu, Kristinu Vigfúsdóttur.
og 5 börn. Þau eru <>11 uppkoníin
og liafa stofnað heimili. Guðni var
fæddur 13. ágúst 1904. og þvi 70
ára gamall.
Viðlagasjóðsstaðreyndir:
Hvað er hvers?
í GREIN MINNI I Morgunblað-
inu s.l. laugardag um starfsemi
Viðlagasjóðs get ég um að Verk-
fræðistofa Guðmundar G.
Þórarinssonar hafi fengið
greiddar 15 millj. kr. frá Við-
lagasjóði fyrir grunnteikningar
á Viðlagasjóðshúsunum inn-
fluttu og eftirlit með byggingu
þeirra. Þá get ég um að Karl-
Erik Rocksén arkitekt hafi
fengið greiddar 8 millj. kr.
vegna eftirlits á byggingu hús-
anna. Þessar tölur eru réttar,
en rétt er að geta þess að
Guðmundur G. Þórarinsson og
Karl-Erik Rocksén unnu að
þessum verkefnum algjörlega
saman og reyndar eru þeir
saman með vinnuaðstöðu að
Skipholti 1. Hvers vegna er
verið að skipta þessum 23 millj.
kr„ sem þeir fá greiddar i 15 og
8 og hvernig skiptist það fé?
Fróðlegast væri að
Guðmundur gerði grein fyrir
því sjálfur og þá um leið skipt-
ingu 250 millj. kr. fyrir ein-
falda grunnbyggingu Viðlaga-
sjóðshúsanna en Guðmundur
var einvaldur í samningum þar
að lútandi.
— Arni Johnsen.