Morgunblaðið - 10.06.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1975
25
Nýr sýningarsalur Náttúru-
gripasafnsins á Akureyri
Akureyri 27. maí.
NÁTTURUGRIPASAFNIÐ á
Akureyri opnaði í dag sýníngar-
sal I nýju húsnæði á fyrstu hæð
Hafnarstrætis 81. Það hafði áður
sýningarsal á fjórðu hæð f sama
húsi, en þar eru nú skrifstofa
safnsins, bókasafn, náttúruvernd-
arstofa, rannsóknarstofa og
geymslur.
Náttúrugripasafnið hefur verið
lokað í vetur, meðan unnið var að
innréttingum á neðstu hæðinni,
flutningi og uppsetningu nýrrar
sýningar.
I safninu hefur nu verið komið
fyrir sérstakri sýningu á skeljum
og kuðungum víðs vegar að úr
heiminum. Það safn er hluti af
gjöf til Náttúrugripasafnsins frá
Pétri Holm, fyrrum búsettum í
Hrísey. Hann gaf þvi einnig safn
sjávardýra og steina, Islenzkra og
erlendra.
Meginhluta fuglasafnsins hefur
nú verið komið fyrir í samfelldum
skáp með öllum austurvegg salar-
ins. Skápurinn er prýddur mál-
verkum EHsabetar Guðmunds-
dóttur. Fuglaskápnum er haldið
rykfríum með loftdælu og
elektrónískum loftsíum.
Auk þess, sem nefnt hefur
verið, er I sýningarsalnum safn
íslenzkra steina og bergtegunda,
sjávardýra og sjávarþörunga og
einnig er þar sýning mynda úr
þjóðgarðinum i Jökulsárgljúfr-
um.
Jón Sigurjónsson, trésmíða-
meistari, hefur séð um allar inn-
réttingar og smíðar I hinum nýja
sýningarsal, en honum til
aðstoðar var Kristján Rögnvalds-
son. Raflagnir og lýsingu annaðist
Raftækni.
Náttúrugripasafnið á Akureyri
var stofnað árið 1951, er Jakob
Karlsson gaf Akureyrarbæ fugla-
og eggjasafn sitt. Fuglana hafði
Kristján Geirmundsson sett upp.
Safnið var opnað almenningi árið
1952 I húsakvnnum Slökkvistöðv-
arinnar. Kristján Geirmundsson
var þá ráðinn safnvörður og
gegndi hann því starfi til ársins
1963.
Arið 1960 var plöntusafn Stein-
dórs Steindórssonar keypt til
Náttúrugripasafnsins og árið 1963
var Helgi Hallgrímsson ráðinn
safnvörður. Með þessu urðu
nokkur þáttaskil á starfsemi
safnsins. A næsta áratug jukust
grasasöfnin hröðum skrefum, og
telja nú um 40.000 eintök, ef með
er talið sveppa- og fléttusafnið,
sem er fullkomnast sinnar teg-
VÖRUBILAR
Volvo NB 86—44 1969
Sturta á 3 vegu 5,1 m 2-skiptar hliðar.
T 19-000 kg L 10.725 kg. Lítur vel út.
D. Kr. 58.000.—
Volvo NB 86 1967
Sturta á 3 vegu 5,1 m 2-skiptar hliðar.
80.000 km eftir fóðringar og stimplar
ný. Gírkassi viðgerðir aftur hásing
með öllu. T. 19.500 kg. L. 11.150 kg.
D.Kr. 35.000.—
Volvo N84 1968
Með lyftihásingu Nopa sturtur á 3
vegu. 4,8 m. 2-skiptar hliðar. T 18150,
L 11075. D. kr. 20.000 —
Volvo F83—38 1970
svínabill, 5,12 2,30 m er með bréf upp
á svínaflutninga. T 8,400 kg. L 4.650
kg. D.Kr. 8000 —
Volvo F83 1969
Nopa sturtur á 3 vegu 4,0, 2-skiptar
hliðar. Hjálbarðastærð 825x20, 2-
hraða. T 8.400 kg. L 4, 150 kg. D.Kr.
9.000.—
Bedford 16/4 1970
með lokuðu vöruhúsi og lyftihlið að
aftan T 9.500 kg, L 5.300 kg (Er til
sýnis). Til sölu ódýrt, eins og hann er.
D. Kr. 6000.— með moms.
Urban tengivagn
7 m, hlasshæð 1 m 4-hjóIa hjólbarð.
stærð 7,5x15, T 8000 kg. L 5.250 kg.
Tilvalinn til bátaflutninga. D. Kr.
10.500.—
ScaniaLB 140 21/6 ’74
5,8 opinn bíll, tvöf. svefnpláss. 90.000
km með 3 öxla tengivagni 8,8 m. Opinn
falleg strekkislanga 70 pet gúmmí.
Sonnnrr1
L
VOLVO
]
Kongevejen 101, 3000
Helsingör,
sími (03) 2131 11,
kvöldsími (03) 10 82 90,
E. Hjorth.
undar á landinu. Á sama tíma
hefur Náttúrugripasafnið á Akur-
eyri þróazt i það að verða rann-
sóknastofnun, sem bæði stundar
rannsóknir að eigin frumkvæði,
og tekur einnig að sér rannsókna-
verkefni.
Náttúrugripasafnið sér um rit-
stjórn tveggja tímarita, Týli, sem
gefið er út af Bókaforlagi Odds
Björnssonar, og Acta Botanica
Islandica, sem er grasafræðirit
gefið út af Bókaútgáfu Menning-
arsjóðs. Auk þess gefur Náttúru-
gripasafnið sjálft út fjölrit.
Náttúrugripasafnið á Akureyri
er rekið af Akureyrarbæ með
nokkrum styrk frá ríkinu. 1
núverandi stjórn þess eru Sig-
urður Öli Brynjólfsson, Ingólfur
Árnason og Oddgeir Árnason.
Forstöðumaður þess er nú dr.
Hörður Kristinsson. en hann tók
við árið 1973 af Helga Hallgríms-
syni.
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra hafði ætlað
að vera við opnun salarins, en
forfallaðist á síðustu stundu. Sig-
urður Óli Brynjólfsson, formaður
safnsstjórnar, flutti ræðu við upp-
haf athafnarinnar og bauð síðan
til kaffidrykkju að Hótel KEA.
Þar flutti dr. Hörður Kristinsson
ágrip af sögu safnsins og Helgi
Hallgrímsson hugleiðingu um
hlutverk þess.
Safnið verður opið almenningi
daglega kl. 1—3 síðdegis.
Sv.P.
Hluti fuglaskápsins I hinum nýja sýningarsal.
(Ljósm. Hördur Kristinsson).
Plastprent hf.
f lytur að
HÖFÐABAKKA 9
o
MIKLABRAUT
Ptatprent hf.
0 X o -n
> CD í» X GLIT
A (O
SIS
VESTURLANDSVEGUR
Systurfyrirtæki sameinast
Plastprent h/f. og Plastpokar h/f. hafa nú hafið
starfsemi nýrrar og fullkominnar plastverksmiöju aö
Höfðabakka 9 í Árbæjarhverfi. í hinni nýju og rúmgóðu
verksmiðju verða framleiðslu- og söludeildir undir einu
þaki.
Ný og fulikomin verksmiðja.
Plastprent h/f. hefur frá upphafi verið í fararbroddi í
plastiðnaði. Fyrirtækið hóf starf sitt árið 1958 með
einni vél og tveim mönnum á 60 m gólffleti. í dag
starfa 30 manns við fyrirtækið. Gólfflötur nýju verk-
smiðjunnar er 2018 m og vélarnar eru 18, þar af 6
nýtízku vélar, sem hafa verið teknar í notkun á þessu
ári.
Tækninýjungar.
Aukning vélakosts og sífelld endurnýjun hefur gert
fyrirtækinu kleift að framleiða plastvörur í háum gæða-
flokki, — fyllilega sambærilegum við erlenda fram-
leiðslu. í hinni nýju verksmiðju að Höfðabakka 9, mun
Plastprent h/f. framleiða sína eigin plastfilmu í öllum
þykktum, hvort sem filman verður notuð í bygginga-
plast eða umbúðaplast, garðaplast eða heimilispoka.
Framleiðsluvörur.
Plastprent h/f. er fyrsta fyrirtækið á íslandi, sem
framleiðir og prentar á plastpoka. Plastprent h/f fram-
leiðir heimilispoka, burðarpoka, sorpsekki, umbúða-
poka fyrir iðnvarning, byggingaplast, garðaplast ofl.
Auk þess annast fyrirtækið prentun á umbúðapappír
og sellofanumbúðir.
VERIÐ VELKOMIN AÐ
HÖFÐABAKKA9
SÍMINN ER 85600
Plaslprent
fyrstirog ennþá fremstir
argus