Morgunblaðið - 10.06.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNI 1975
27
Einstakur áhugi og
samhugur meðal hár-
greiðslukvenna hér
— segja dönsku hárgreiðslumeist-
ararnir Pía og Lauritz Möller
Hárgreiðslukonur leggja mikla
áherzlu á að halda við og endur-
nýja þekkingu sína f starfi. Félög-
in beita sér þar mjög og sjálfar
virðast hárgreiðslukonurnar
mjög áhugasamar og hika ekki
við að leggja á sig auka-námskeið
eða leita eftir að fá að koma á
hárgreiðslustofur erlendis til að
kynnast nýjungum. Nú nýlega
var efnt til viðamikillar sam-
keppni um hárgreiðslu, þar sem
kepptu bæði meistarar, sveinar
og nemar og nú er að Ijúka nám
skeiði, þar sem fengnir voru
þekktir hárgreiðslumeistarar frá
Danmörku, Pfa og Lauritz Möller,
til að koma og leiðbeina um nýj
ungar í litun og permanenti.
Það er alveg einstakt að meist-
arar, sveinar og lærlingar taki
saman þátt í hárgreiðslusam-
keppni, sögðu þau við fréttamann
Mbl. — Það hefur aldrei komið
fyrir í Danmörku. Og á námskeið-
unum hefur okkur þótt það áber-
andi hve vel stúlkurnar vinna
saman, þó að þær séu í daglega
lífinu í samkeppni. Við höfum
haft þann hátt á að láta 4 vera
saman með eina hárgreiðslu. Þær
ræða þá málið og miðla hver ann-
arri af þekkingu sinni. Þetta gerir
þær samstilltar og hefur gefizt
mjög vel.
Kostnaður við
fokhelt hús
27-29% af
heildarverði
Á aðalfundi Meistarasambands
byggingamanna, sem haldinn var
2.—3. maí, kom fram f skýrslu
formanns, Gunnars S. Björnson-
ar, að hlutföll milli efniskostnað-
ar og vinnu f fullbúnum hús-
byggingum hefur raskazt þannig
að undanförnu, að 1. júnf 1973
var launakostnaður að meðaltali
50.4%, en efniskostnaður 49.4%.
1. marz 1975 námu Iaunagreiðsl-
ur 43.6%, en efniskostnaður
56.4%. Þá kom fram, að kostnað-
ur við íokhelt hús er aðeins
27—29% af heildarverði hússins.
Félagsdeildir Meistarasam-
bands byggingamanna eru 14 að
tölu, víðs vegar á landinu. Gunnar
S. Björnsson var endurkjörinn
formaður sambandsins, en
stjórnarmenn eru auk hans 14 að
tölu, eða einn frá hverju félagi.
Pia og Lauritz Möller reka hár-
greiðslustofu í Haderslev, en
bæði fara mikið um og leiðbeina
eftir að nýja tízkan kemur fram,
og þykir^gaman að þvf. I haust
fara hjónin þannig til Parísar. Pia
er þrefaldur Danmerkurmeistari
f hárgreiðslu og sú eina , sem
hefur unnið bikarinn til eignar
með því að sigra þrjú ár i röð. Það
þótti skemmtilegt, þvi hún var
fyrsta konan sem sigraði í þeirri
keppni. Hún var Norðurlanda-
meistari í hárgreiðslu 1969 og hef-
ur tekið þátt I heimsmeistara-
keppni. Hún er meðlimur í Haute
Couture og f stjórn þeirra í Dan-
mörku.
Þetta er í fyrsta skiptið, sem
þau hjónin koma til Islands, og í
þetta sinn eru þau að kenna með-
ferð á Wellavörum við litun og
permanent, en þær vörur eru
mjög mikið notaðar á hárgreiðslu-
stofum hér. Aðspurð sögðu þau að
í tízku væri að hafa hárgreiðsluna
sem eðlilegasta, og þá jafnframt
litun og permanent. Þetta þyrfti
að hæfa vel persónunni og allt að
fylgjast að: klipping, litun og
lagning. I litun mætti þannig lita i
þremur litum, sem rynnu hver
inn í annan, og permanent væri
hægt að setja í hluta af hárinu. En
permanent er nú mikið notað,
jafnvel í slétt hár, því til eru svo
margar gerðir, og alveg hægt að
ráða hvernig það er.
Námskeiðinu hér var skipt í 3
hópa. Og var það ákaflega vel sótt.
71 stúlka tók þátt í námskeiði,
sem stóð venjulega frá kl. 9 á
morgnana til kl. 5, sem er feiki-
mikil þátttaka, sögðu dönsku hár-
greiðslumeistararnir, því hár-
greiðslustofurnar eru ekki nema
rúmlega 50 talsins. Fyrsta nám-
skeiðið var fyrir meistara, annað
fyrir sveina i iðninni og þriðja
fyrir nema og höfðu aðeins félags-
menn i Hárgreiðslumeistarafélagi
Islands auk sveina og nema, sem
hjá þeim starfa, aðgang að þeim.
Höfðu þau Pia og Lauritz Möll-
er sérstaklega orð á því hve stúlk-
urnar hefðu sýnt mikinn áhuga.
Greinilega væri hér ekki um það
hugarfar að ræða, eins og víða
I annars staðar, að þær tækju þátt (
slikri þjálfun til að fá frí úr vinn-
unni. I lokin fá þátttakendur
skjal til staðfestingar og afhenti
formaður félagsins, Hanna
Kristín Guðmundsdóttir, það við
hátíðlega athöfn sl. fimmtudag.
Að lokum sögðu dönsku hár-
greiðslumeistararnir að þeir
hefðu haft mikla ánægju af að
koma til Islands, séð hefði verið
um að þeim Iiói vel og þeim sýnt
landið, t.d. farið til Þingvalla á
björtu kvöldi. Og nú væri farið að
ræða um hraunliti i hárið.
Áhugamenn — Hestamenn
Hross til sölu, af góðu kyni, á góðum kjörum,
nokkuð ræktað.
Upplýsingar milli kl. 19 og 21 í kvöld í síma
85706.
Vörubílaúrvalið er hjá okkur
Volvo FB 89 árg. '74, búkkabíll með robsondrifi.
Volvo FB 88 árg. '73, búkkabill með grjótpalli. Scania
Vabis 110 árg. '74 m/búkka. Scania Vabis 110 árg.
'69 m/3V2 t. herkúleskrana. Scania Vabis 76 árg. '65
m/búkka. Merzedes Benz 1513 árg. '74, '73 m/21/2
t. Focokrana. Scania Vabis 85 super árg. '71
m/búkka.
BÍLASALA MATTHÍASAR
V/MIKLATORG, SÍMI 24540.
Vörubílaúrvalið er hjá okkur.
I námsekiðslok hittust þátttakendur og skfrteini voru afhent. A myndinni eru f fremri röð dönsku
hárgreiðslumeistararnir Pfa og Lauritz Möller, formaður Hárgreiðslumeistarafélagsins, Hanna Kristfn
Guðmundsdóttir, Halldór Jónsson, umboðsmaður Welia-vara. Og f efri röð stjórnarkonur í félaginu,
Pálfna Sigurbergsdóttir, Lovfsa Jónsdóttir og Arnfrfður Isaksdóttir.
Rr. 39.900
r
Verdfltreikning
SKBIFSTDFUVELftK H.F.
^ ^ --------------
Hverfisgötu 33 Sími 20560
reiknar dsmin