Morgunblaðið - 10.06.1975, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNI 1975
29
félk í
fréttum
+ Evrópuheimsókn Fords for-
seta lauk með heimsókn I Vati-
kanið. Á myndinni eru þeir
Ford forseti og Páll páfi VI að
ræða um gjafir þær er þeir
skiptust á. Aður hafði Ford set-
ið á fundi með Giovanni Leone
forseta Italíu og ræddu þeir um
samskipti Evrópu og Banda-
rfkjanna.
+ Tatum O’Neal, hin 12 ára
gamla leikkona og dóttir
leikarans Ryan O’Neal var
nýlega rekin úr skóla. Það
er f þriðja skiptið á einu ári,
sem hún þarf að skipta um
skóla. „Mér er alveg sama.
Ég mæti þar hvort eð er
aldrei," sagði frökenin.
+ Soraya kom fram eitt
kvöld sem persnesk keisara-
ynja. Þetta var á grfmuballi
f Parfs. Hana skortir ekki
æfinguna, þar sem hún var f
sjö ár gift Iranskeisara.
+ Það vantar ekki skapið f
Romy Scheider. I Parfs sló
hún ljósmyndara einn niður
þegar hann ætlaði að taka
myndir af Romy og nýjasta
vini hennar. Hún þurfti að
borga tannlækni ljðsmynd-
arans 1500 franka.
+ Peter Sellers hefur
tilkynnt vinum og kunningj-
um að piparsveinatíma hans
sé senn lokið. Hann hefur
pantað tíma fyrir „opinbera
trúlofunarmynd" hjá vini
sfnum Patrick Lichfield. Sú
hamingjusama er sænska
stúlkan Titti Eachtmeister.
Leikkonan Glenda
Jackson íhugar
skilnað við eigin-
mann sinn Hodges;
+ Brezka leikkonan
Glenda Jackson ætlar i«ú
að skilja við eiginmann
sinn, leikstjórann Roy
Hodges, en hjónaband
þeirra hefur varað I 17 ár.
Glenda Jackson sem nú er
39 ára gömul hefur unnið
tvenn Öskarsverðlaun,
„Seinustu fjögur ár hjóna-
bands okkar hafa verið
hræðileg.
Það er erfitt að benda á
eitthvað ákveðið, en þetta
var bara ekki lengur hægt,
og það stendur ekki f
neinu sambandi við frama
minn f leiklistinni," sagði
Glenda Jackson.
Glenda Jackson viður-
kennir að það er kominn
„nýr“ maður f lff hennar,
Ijósameistarinn Andy
Philips, 35 ára gamall, en
hún fullyrðir að skilnaður
hennar standi f engu sam-
bandi við hann. Hún segir
að hún muni aldrei gifta
sig aftur, og að hún ætli að
búa f hinu stóra húsi
þeirra hjóna f Blacheath
ásamt 6 ára syni þeirra,
Daniel.
+ Danski rithöfundurinn Leif
Panduro hefur nú afhent
Gyldendals handritið að 12.
skáldsögu sinni. Bókin kemur
út með haustinu. Titill bókar-
innar verður „Höfeber“. Efni
bókarinnar er um dómara f
Hilleröd. Aðspurður um hvort
bókin væri skemmtileg sagði
Panduro. „Því er erfitt að svara
en hún er skrýtin. Það skeður
svo margt einkennilegt f
henni.“
Ljósm.: Hermann Stefánsson
+ Nei, þessi mynd er ekki frá Reykjavfk, heldur er þetta götumynd
frá Isafirði og sýnir lífið í Hafnarstrætinu fyrir vestan.
Fjölbreytt úrval
af buxum
í mörgum
efnum,
sniðum
og litum
TOÐ TAKIÐ
RÉTTSPORo
cTWEÐ PVÍ
AÐ KAUPA
ShiBivo^
Nýkomið úrval af nýjum PÍLU rúllugluggatjaldaefnum.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Setjum ný efni á notaðar stangir.
PÍLU rúllugluggatjöld
Ólafur Kr. Sigurðsson & Co.
Suðurlandsbraut 6. Sími 83215 — 38709.
v___________________________________________-