Morgunblaðið - 26.06.1975, Side 1

Morgunblaðið - 26.06.1975, Side 1
32 SÍÐUR 141. tbl. 62. árg. FIMMTUDAGUR 26. JUNÍ 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ford vill afstýra þrátefli Washington, 25. júní. AP. Reuter. FORD forseti sagði á blaða- mannafundi f kvöld að Banda- rfkin mundu ekki láta „þrátefli eða kyrrstöðu“ viðgangast f friðartilraunum f Miðausturlönd- um, en neitaði að segja hvenær endurskoðun á stefnu Banda- rfkjastjórnar mundi Ijúka og hvort næsti áfangi tilraunanna yrði ráðstefna f Genf eða nýjar tilraunir til að leysa deilumálin skref fyrir skref. „Þvf lengur sem ekkert miðar í friðarátt I Miðausturlöndum, því meiri líkur eru á strfði og öllum þeim hörmungum sem því fylgja, sagði Ford. Hann sagði að Banda- rfkjastjórn héldi áfram viðræðum við leiðtoga deiluaðila og sér- fróðra aðila. Forsetinn sagði að þau ummæli Henry Kissingers utanrikisráð- herra að „ekkert land skyldi Framhald á bls. 18 Gandhi þraukar Nýju Delhi, 25. júnf. AP. Reuter. INDIRA Gandhi forsætisráðherra ætlar að gegna áfram embætti meðan mál hennar er fyrir hæsta- rétti þrátt fyrir vaxandi þrýsting frá stjórnarandstöðunni og þótt hún hafi misst atkvæðisrétt á þingi. H. R. Gokhale dómsmálaráð- herra lýsti þessu yfir í dag. „Hún hefur enga ásta'ðu til að segja af sér. Hún ætlar ekki að segja af sér. Hví skyldi hún segja af sér?“ sagði hann. Nokkrir flokkar stjórnarand- stæðinga skipuðu nefnd i dag til að skipuleggja baráttu um allt Indland með það fyrir augum að neyða frú Gandhi til að segja af sér. Baráttan hefst með svoköll- uðum óvirkum mótmælaaðgerð- um um allt landið og standa þær í eina viku. Hópar fólks munu einnig ganga að heimili frú Gandhi í Nýju Delhi og krefjast þess að hún fari frá. Simamynd AP Flugslysið f New York — sjá frétt á bls. 15. Hjálparsveitir á slysstaðnum. Á myndinni sést afturhluti flugvélarinnar, sem er af gerðinni Boeing 727, en hún skall niður á veg um 300 metrum frá flugbrautarendanum. Amin sent nýtt skey ti London, 25. júni. Reuter. AP. LESIÐ var upp í útvarpinu í Uganda í kvöld nýtt skeyti frá Harold Wilson forsætisráðherra til Idi Amin forseta þar sem hann ítrekar að James Callaghan utanríkisráð- herra sé reiðubúinn að fara til Ueanda iafnskjótt og Amin ákveði að þyrma lffi Bretans Denis HiIIs. Bátur aftrar björgun þriggja gísla Dar Es Salaam, 25. júní. Reulcr. AP. TILRAUN til að bjarga þremur stúdentum sem vinstrisinnaðir uppreisnar- menn í Zaire rændu fyrir 35 dögum fór út um þúfur f gær vegna afskipta fallbyssubáts Zaire-stjórnar á Tanganyika- vatni, að sögn sjónarvotta. Bandarískir stjórnarfull- trúar og fulltrúar fjölskyldna stúdentanna reyndu að bjarga þeim þar sem þeir voru i haldi á Zaire-strönd vatnsins og sigldu yfir vatnið í litlum vél- bát. Báturinn fór frá Kigoma á strönd Tanzaniu og stefndi til staðar á hinum bakkanum sem stúdentarnir höfðu vísað á með speglum sem þeir notuðu til að senda ljósmerki yfir vatnið. Þegar báturinn nálgaðist ströndina sigldi fallbyssu bátur frá Zaire í veg fyrir hann og skaut fyrir framan stefni hans svo að hann neydd- ist til að sigla aftur yfir vatnið til Tanzaniu. Talið er að björgunarleið- angurinn hafi haft meðferðis lausnargjald sem uppreisnar- menn hafa krafizt fyrir stúdentana sem þeir rændu frá vísindamiðstöð Tanzaníumeg- in vatnsins. Rikisstjórnir Bandarikjanna Framhald á bls. 18 Að sögn útvarpsins sagði Wil- son í skeytinu, sem virðist hafa verið sent I dag, að Amin hefði gefið í skyn að hann væri ef til vill fús að leyfa Hills að fara frá Uganda ásamt Callaghan. Wilson sagði að sögn útvarpsins að þar með gæti hafizt nýr kafli í sögu sambúðar Bretlands og Uganda. Wilson fagnaði þeim yfirlýs- ingum Amins að Ugandamenn væru alls ekki andvigir Bretum og Hills. Samkvæmt úrslitakost- um Amins verður Hills tekinn af lífi 4. júli ef Callaghan kemur ekki til Uganda fyrir þann tima. Callaghan kveðst fús til að f ara til Uganda en ekki tilneyddur og þetta var itrekað í skeyti Wilsons i dag. ÖTTAST FREIGATUR Stjórnin í Uganda hélt þvi fram I dag að tvö brezk herskip væru komin til hafnarborgarinnar Mombasa í Kenya til að bjarga háskólakennaranum Hills sem hefur verið dæmdur til dauða fyr- ir að kalla Idi Amin forseta harð- stjóra. Framhald á bls. 18 NVTT RlKI — Samora Moises Machel vann í gær embættiseið sinn sem forseti Mozambique, sem er orðið sjálfstætt ríki. Hann er foringi hreyfingarinnar Frelimo sem barðist gegn nýlendu- yfirráðum Portúgala í tiu ár. Hér er hinn nýi fáni landsins dreginn að húni í fyrsta sinn á iþróttaleikvanginum í höfuðborg- inni, Lourenco Marques. Hermenn Frelimo standa heiðursvörð. V opnahlé samið eftir blóðug átök í Beirút Beirút, 25. júní. Reuter. AP. VOPNAHLÉ var samið eftir blóðuga bardaga í Beirút í dag fyrir milligöngu samstarfsnefndar líbanskra yfir- valda og palestínskra skæruliða, en í kvöld mátti enn heyra skothrfð og sprengingar. Bardagarnir blossuðu upp í gær eftir þriggja vikna kyrrð í borg- inni og minnst fimm hafa fallið og 22 særzt. Tilkynnt var að sam- starfsnefndin hefði rætt við „ýmsa hópa“ til að stöðva bardag- ana en það vakti athygli að þeir voru ekki nafngreindir. Palestínska fréttastofan WAFA sagði að nefndin hefði setzt á rök- stóla að beiðni Palestinumanna. Það vakti athygli að fréttastofan kenndi ekki falangistum um að hafa átt upptökin að bardögunum eins og hún hafði áður gert. Barizt var i tveimur úthverfum í suðurhluta Beirút, Shiyyah og Ain Al-Rummaneh, og stræti sem liggur gegnum þau breyttist i einskismannsland vegna skot- hríðar og tiðra sprenginga. Ein- hverjir hörðustu bardagar hægri- sinnaðra falangista og vopnaðra vinstrisinna í síðasta mánuði geis- uðu í þessum hverfum. Snginn aðili lýsti sig ábyrgan á skothrið sem var haldið uppi á stöðvar falangista, þótt blað hlynnt Palestinumönnum héldi þvi fram í morgun að hægrimenn hefðu efnt til átakanna. Frétta- maður Reuters sá enga falangista skjóta úr byssum sínum i Shiyyah-stræti. Vopnaðir hægrimenn á þessu Framhald á bls. 18 Eitur til Castros Washington 25. júni — AP UNDIRHEIMAMAÐURINN John Rossclli segir að f tilraun- um til að myrða Fidel Kastro forsætisráðherra Kúbú f byrj- un þessa áratugs hafi allt verið notað: greiðslur f reiðufé, eiturtöflur, háþrýstirifflar, hraðbátsferðir til Kúbu, að sögn bandarfska blaðamanns- ins Jack Anderson á miðviku- dag. Segir blaðamaðurinn að Rosselli viti til þess að fimm sinnum hafi verið reynt að drepa Kastró. Hann hefur það eftir Rosselli að fregnir hafi eitt sinn borizt um það að forsætisráðherrann væri mjög veikur eftir að reynt hafði verið að byrla honum eit- ur, en hvort veikindin stöfuðu af eitrinu eða vírus kvaðst Rosselli ekki vita. Sagði Anderson í sjónvarps- viðtali að Rosselli hefði gefið sér þessar upplýsingar eftir að hafa setið i þrjár klukkustundir fyrir svörum hjá nefnd öldungadeildarinnar sem kann- ar starfsemi leyniþjónustunn- ar, CIA. Á miðvikudag stefndi nefnd- in að því að fá til yfirheyrslu William K. Harvey, fyrrverandi starfsmann CIA sem Rosselli nefndi i samtali sínu við Ander- son. Blaðamaðurinn hefur það eft- ir Rosselii aö hann hafi verið ráðinn í Los Angeles 1960 af Robert Maheu, sem þá var að- stoðarmaður billjónerans Howard Huehers, sem áður Framliald á bls. 18 * *:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.