Morgunblaðið - 26.06.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JUNl 1975 7
«
L
„Fátt er svo
með öllu illt
að ekki boði
nokkuð'gott”
Það er nú einsýnt, að
vinnufriSur verður
tryggður i landinu næsta
misserið. Hver vinnu-
deilan af annarri hefur
verið leyst með skapleg-
um hætti og með hlið-
sjón af rikjandi aðstæð-
um i þjóðfélaginu, þó
vissulega hafi verið teflt
á tæpasta vað að þvi er
varðar rekstrarstöðu
einstakra atvinnugreina.
Á heildina litið stefna
samningarnir að launa-
jöfnuði, þar sem hags-
munir hinna lægst laun-
uðu hafa setið i fyrir-
rúmi. Frá þessari megin-
reglu er aðeins ein
leið undantekning:
samningarnir við flug-
menn, sem striða gegn
réttlætiskennd al-
mennings og eru utan
og ofan við þær forsend-
ur, sem fyrir hendu voru
og eru.
Aðeins ein umtalsverð
vinnudeiia er óleyst:
verkfaliið á hinum stærri
togurum. Vonir standa
þó til, að einnig sú deila
sé á lokastigi. Leysist
hún bráðlega er vinnu-
friður næstu mánuði
ánægjuieg staðreynd.
sem þjóðin fagnar heils
hugar.
Þvl var óspart haldið
að þjóðinni, að nú-
verandi rikisstjórn hlyti
að valda stanziausu
striði á vinnumarkaði.
Raunin varð hinsvegar
sú, að fáar rikisstjórnir
hafa lagt meira af mörk-
um til að tryggja vinnu-
frið. Þessi viðleitni rlkis-
stjórnarinnar hefur borið
rikulegan ávöxt. Hún
hefur unnið athyglis-
verðan sigur yfir óróa-
öflum, sem töldu upp-
lausnarástand á islenzk-
um vinnumarkaði nauð-
synlegan jarðveg fyrir
valdatöku nýrrar vinstri
stjórnar, þar sem
kommúnistar hefðu tögl
og hagldir.
Sú efnahagskreppa,
innflutt og heimatilbúin,
sem hafði I för með sér
skertar þjóðartekjur og
rýrð kjör allra starf-
stétta, var sá jarðvegur,
sem kommúnistar sáðu i
slnum ófriðarfræjum.
Uppskeran varð þó
minni en vonir þeirra
stóðu til. Dómgreind al-
mennings varð sá
varnarveggur, sem
áróðursbrögð þeirra
strönduðu á. Mál-
flutningur Þjóðviljans
var og með þeim hætti
að verka þveröfugt við
tilganginn. Það má ekki
vanmeta eða vanþakka
áhrif þeirrar „áróðursúr-
bræðslu" á framvindu
mála. „Fátt er svo með
öllu illt. að ekki boði
nokkuð gott."
Seinagangur
Hitaveituf ramkvæmd-
ir I landinu voru litlar
sem engar öll vinstri-
stjórnarárin, er Magnús
Kjartansson fór með yf-
irstjórn þeirra mála.
Engar nýjar ákvarðanir
voru teknar né fram-
kvæmdir hafnar á sviði
vatnsaflsvirkjana. Jafn-
vel svokölluð byggða-
llna norður I land, sem
leysa átti að hluta orku-
þörf Norðlendinga,
komst ekki á fram-
kvæmdastig fyrr en
hann var stiginn niður
úr ráðherrastóli. Þetta
algjöra aðgerðarleysi
var staðreynd, þrátt fyrir
slhækkandi olluverð.
sem gerði umræddar
framkvæmdir um nýt-
ingu innlendra orkugjafa
enn brýnni.
Ollukreppan I heimin-
um var ekki einungis
arablskt gróðabragð.
Sovétrlkin, sem eru stór
ollusali, létu ekki sitt
eftir liggja I þvl efni.
Sem dæmi má nefna, að
innf lutningur okkar I
benzlni og olium frá
Sovétrikjunum árið
1972 (380 þúsund
tonn) kostaði okkur þá
93S m. kr. eða að með-
altali 2.2 m.kr. hver
þúsund tonn. Áætlaður
kostnaður okkar á þessu
ári fyrir sama innflutn-
ing (500 þús. tonn)
hækkar I hvorki meira
né minna en 7.300 m.
kr. eða 14.6 m. kr. pr.
1000 tonn að meðaltali.
Þetta þýðir nærri sjö-
földun söluverðs þeirra
á þessari vörutegund til
okkar.
Það er þvl ánægjuefni
að núverandi rikisstjórn
hefur sett nýtingu inn-
lendra orkugjafa I for-
gangsflokka fram-
kvæmda I landinu. Viða
um land er kominn um-
talsverður skriður á hita-
veituframkvæmdir og á
undirbúning nýrra
vatnsaflsvirkjana.
Næsta stórvirkjun verð-
ur á Norðurlandi, sem er
eftirtektarverð stefnu-
breytin I þessum
málaflokki. En sá skaði
er ómældur, sem að-
gerðarleysi orkuráð-
herra vinstri stjórnarinn-
ar hefur valdið þjóðar-
heildinni og Ibúum oliu-
kyntra ibúða. Ef fram-
kvæmdir á þessum vett-
vangi, t.d. fyrir ná-
grannabyggðir Reykja
vlkur og á Suðurnesjum,
hefðu hafizt nokkrum
árum fyrr, hefðu fram-
kvæmdirnar sjálfar orðið
margfalt ódýrari, sparað
þjóðarheildinni milljarði
I erlendum gjaldeyri og
fært hundruðum heimila
raunverulegar kjarabæt-
ur I verulegri lækkun
hitunarkostnaðar.
J
Sumarblóm
Höfum úrval af sumarblómaplöntum: stjúpur, bellis, hádegisblóm,
kornblðm, chrysanthemum, levkoj, petúnia, skrautnál, paradlsarblóm,
Ijónsmunna, flauelsblóm, anemónur o.fl.
Fjölærar plöntur: gullhnappar, geitabjöllur, valmúur, hvítt blágresi o.fl.
Blómkálsplöntur, Dahllur, margar tegundir. Lækkað verð.
GRÓÐRARSTÖÐIN GRÆNAHLÍÐ,
v / Bústaðaveg,
sími 34 122.
Sjúkraliðaskóli
á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins tekur til starfa 1. október næstkom-
andi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í ráðuneyt-
inu. Umsóknarfrestur er til 31. júlí.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
23. júní 19 75.
Jackson hefur
nýja sóknarlotu
Sóknaraðgerðirnar gegn Moskvu, sem starfslið
Jacksons öldungadeildarþingmanns hefur nú í undir-
búningi, gætu jafnvel reynzt skaðvænlegri en tilraun-
in til að fá sovézk stjórnvöld til að veita Gyðingum
brottfararleyfi úr landinu í skiptum fyrir viðskipta-
hagsmuni. En spurningin er, hver skaðast mest?
Verða það stjórnvöldin I Kreml, Jackson öldungadeild-
arþingmaður og tilraunir hans til að ná útnefningu til
forsetakjörs eða verður það ríkisstjórn Fords og utan-
rikismálastefna hennar.
Henry Jackson öldungadeildarþingmaður er for-
maður rannsóknarnefndar öldungadeildarinnar í
innanrikismálum og mun hún á næstunni hefja yfir-
heyrslur, sem gætu haft alvarleg áhrif á væntanlega
sölu á tæknikunnáttu til Sovétrikjanna. Þeir sem
rannsóknina hafa annazt hafa afhjúpað nokkur „stór-
hneyksli", og samkvæmt heimildum úr herbúðum
Jacksons kemur þar fram, að Sovétrikin hafa aflað sér
leyndarvitneskju frá Bandarikjunum varðandi iðnað
og hernað án þess að leggja nokkuð af mörkum til
endurgjalds, svo að heitið geti.
Í gögnum nefndarinnar er m.a. getið um meinleysis-
legt tæki, sem fundið hefur verið upp og notað á
sjúkrahúsum til rannsókna á röntgenmyndum. En
þannig vill hins vegar til, að tæki þetta hefur verið
gert fyrir leyniþjónustu Bandaríkjamanna, CIA, í þeim
tilgangi að rannsaka myndir, sem teknar hafa verið úr
gervitunglum, og er tækið nú þannig úr garði gert. að
það leiðir I Ijós öll smáatriði á myndum.
Það væri augsýnilega óréttmætt að banna útflutn-
ing á sjúkrahúsbúnaði til Sovétrfkjanna, en starfs-
menn Jacksons telja, að Rússar reyni allt sem þeir
geti til að sigla unair fölsku flaggi og kaupi tæki f
þágu hersins undir þvf yfirskyni, að þau verði notuð f
friðsamlegum tilgangi. Þeir segja, að unnt sé að synja
um útflutningsleyfi vegna þess að setja megi saman 6
Eftir
Victor Zorza
einingar úr tækinu á þann hátt að hæfi til notkunar f
hernaði. Þá mundu seljendur fara fram á útflutnings-
leyfi á þremur einingum, sem hafi ekki beina hern-
aðarlega þýðingu og að nokkrum tfma liðnum mundu
þeir fara fram á að flytja út hinar þrjár.
Þeir segjast þekkja dæmi þess að vélarhluti, sem
ætlaður var til notkunar f verksmiðju, er framleiddi
neyzluvarning, hafi hafnað f hergagnaverksmiðju.
Hlutir, sem hægt er að nota F hernaðarskyni. hafa
verið pantaðir fyrir háskóla. og samningur um sölu á
uppfinningu, sem nota átti f verksmiðju til framleiðslu
á neyzluvarningi, var undirritaður af manni, sem
rannsóknarnefndin telur sig hafa fullvissu fyrir, að sé
liðsforingi og hafi þann starfa að útvega vopnabúnað.
Yfirheyrslurnar verða haldnar nú I sumar, og mun
þá verða staðfest réttmæti þessarar ákæru eða hún
hrakin. Yfirheyrslurnar munu ef til vill fara fram með
miklum fyrirgangi og draga að sér athygli almennings,
Henry Jackson öldungadeildarþingmaður.
en það er það sem Jackson þarf til þess að glæða
sigurhorfur sfnar fyrir útnefningu til forsetaframboðs.
En ef honum reynist ókleyft að færa sönnur á þessar
ákærur, munu andstæðingar hans snúa sókn hans f
vörn. Þeir hafa þegar sagt, að tilraunir hans til að
knýja Sovétrfkin til að veita Gyðingum ferðafrelsi f
auknum mæli f skiptum fyrir viðskiptahagsmuni, hafi
haft þær afleiðingar einar, að færri Gyðingar en áður
hafi flutzt frá Sovétrfkjunum og jafnframt hafi við-
skiptahorfurnar farið dvfnandi.
Ef Jackson tekst að sanna mál sitt með þeim
afleiðingum að dregið verður úr útflutningi á tækni-
þekkingu til Sovétrfkjanna, geta Rússar trauðla
svarað f sömu mynt eins og þeir gerðu með þvf að
ógilda samninginn um viðskipti og ferðafrelsi. Skipti á
tækniþekkingu þjóða á milli eru ekki bundin alhliða
sáttmála, en eru hins vegar f þvf fólgin að f sérhverju
tilviki gera Sovétrfkin sérstakan samning við ákveðin
fyrirtæki, sem oft eru reiðubúin til að leggja fram
þekkingu sfna f þvf skyni að komast inn f fordyrið í
von um að geta lagt hinn geysimikla markað f Rúss-
landi að fótum sér síðar meir.
Sovézkir viðskiptafulltrúar eru mjög lagnir í að færa
sér f nyt samkeppnisæði bandarfskra fyrirtækja. Miklu
fleiri fyrirtæki hafa þegar komizt inn f fordyrið en
hægt er að hýsa til langframa. „Ef til vill er ekki um
annað að ræða en fordyrið." sagði einn af starfsmönn-
um Jacksons nýlega. Hins vegar er einnig mögulegt,
að einungis nokkrum þeirra, sem komnir eru inn f
fordyrið, verði leyft að halda lengra. Öll hafa fyrirtæk-
in samt þurft að greiða aðgangseyri f formi tæknilegr-
ar fræðslu og þann aðgangseyri er ekki hægt að fá til
ba ka.
Framhald á bls. 21
HS' ÍSLANDSMÓT í HS'
HANDKNATTLEIK
1975/1976
íslandsmótið utanhúss í meistaraflokki karla og
kvenna og 2. flokki kvenna fer fram í ágúst
næstkomandi.
Þátttökutilkynningar í útimótið sendist til skrif-
stofu H.S.Í. fyrir 5. júlí.
Félög þau sem áhuga hafa á því að sjá um
framkvæmd íslandsmótsins utanhúss sendi
umsókn til skrifstofu H.S.Í. fyrir 5. júlí.
Þátttökutilkynningar í
fslandsmótið innanhúss
1976 sendist fyrir 5. júlí til skrifstofu H.S.Í.
Pósthólf 864 Reykjavík.
Handknattleikssamband íslands.
ENSKRÚM
fráSlumberland
stærðir:
1m x 2m
1.5m x 2m
Ath. bjóðum sérstakar
dýnur fyrir bakveikt fólk
SpGn.