Morgunblaðið - 26.06.1975, Síða 13

Morgunblaðið - 26.06.1975, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNl 1975 13 Gólf- og veggflísar nýkomnar J. Þorláksson og Norðmann h.f. A þjóðhátfðardegi tslendinga 17. júnf sl. héldu aðairæðismannshjónin f Helsinki, Kurt Juuranto og frú, móttöku á Palace-hótelinu f Helsinki. Meðal þeirra mörgu gesta, sem þangað komu, voru sendimenn er- lendra rfkja, ráðherrar úr finnsku ríkisstjórninni og ýmsir aðrir framámenn f viðskipta- og menningarlífi Finnlands. Þessi mynd var tekin við það tækifæri og sést utanríkisráðherrann, Olavi J. Mattila (til vinstri), og eiginkona hans ræða við aðalræðismannshjónin. I þriðja lagi er sr. Þórir sár vegna ummæla minna um „grautartrú." Ég get hæglega fall- izt á það, að unnt er að þýða orðið „synkretismi" á einhvern diplómatiskari hátt, þótt ég reyndar ekki þekki íslenzkt orð, er betur hæfir þessu fyrirbæri. Ég tek fúslega við tilsögn. En hitt stendur óhaggað, að sr. Þórir Stephensen boðar „synkretisma" af predikunarstóli. Að því er nánar vikið í Kirkjuriti, sem nú er að koma út, — og mætti þó auðveldlega enn um bæta. Ur því að minnzt er á Kirkjurit er rétt að geta þess, að sr. Þórir hælist um út af því, að ég jafnvel telji mig „þurfa að biðjast afsökunar á því fyrirfram, sem þar er væntanlegt f næsta hefti.“ Satt að segja munu menn leita án teljandi árangurs að hróp- yrðum í „væntanlegri" grein minni í Kirkjuriti. Hins vegar var ég svo einfaldur að taka alvarlega þær sættir, er ég nefndi i upphafi þessa pistils. Vildi ég því ekki styggja sr. Þóri i neinu, enda hélt ég, að við mann væri að eiga, og lét því ekkert það til sparað, er til friðar horfði. Nú geta þau tröll, er teygt hafa sr. Þóri í hamra, hlakkað að vild sinni yfir þessari trúgirni mennskrar manneskju. V Að lokum þakka ég sr. Þóri kveðju dagsins. Ég þakka fyrir sjálfs mín hönd og annarra þeirra, er að þvf hafa unnið að búa hér í haginn fyrir hann og aðra stéttarbræður okkar. Dómkirkjuprestur lætur þess sérstaklega getið, að grein hans komi út á fyrsta degi presta- stefnu. Þá vitum við öll, að þar var engin tilviljun á ferð. Satt að segja hefur mér skilizt, að jafnvel einlægum stuðnings- mönnum sr. Þóris hafi blöskrað hið siðast nefnda. Ef dómklerkur ekki vill eiga við mig frekari orðastað, hlýt ég að una því. Sáttaboð mitt áður nefnt sé ég þó ekki ástæðu til að aftur- kalla. Eflaust rennur sá dagur, er hamrarnir opnast og sr. Þórir losnar úr ánauðinni. Þá kann að vera, að um skipist fyrir honum. A þeirri stundu bíður hans a.m.k. ein framrétt hönd. Með þökk fyrir birtinguna. Skálholti, 24. júní 1975 Heimir Steinsson. Séra Heimir Steinsson: ®> Notaöir bílar til sölu O „Hvað gengur að manninum?” Enn orð í eyra dómklerki i. Undanfarnar vikur höfum við, ég og séra Þórir Stephensen, skipzt á sendingum i Morgunblað- inu. Öþarft er að rekja þá sögu til upphafs, enda munu málavextir blaðalesendum kunnir. Þriðjudaginn 10. júni var svo komið, að sr. Þórir í svargrein snupraði mig i hófi, en mælti að öðru leyti sáttgjarnlega i minn garð. Þótti mér þar drengilega talað, — og ætlaði dómkirkju- prest hafa skrifað af heilum huga. Níu dögum síðar svaraði ég þvi ^rein þessari, — öldungis I sama tóni. Þó kvað ég nokkru fastar en sr. Þórir að þeim orðum, er til sátta horfðu. Þ. á m. fórust mér að lyktum orð á þessa leið: „Eg hefi aldrei lagt það f vana minn að slá á framrétta hönd. Eg þakka sr. Þóri Stephensen hlý orð f minn garð og Skálholtsskóla. Eg þakka honum góð kynni, — og vænti framhalds á þeim. Velkom- inn skal hann vera með ferming- arbörnin sfn f Skálholtsskóla f haust, — ef svo má verða. Ég bið sr. Þóri blessunar í starfi öllu og stríði.“ Með þessum orðum hélt ég, að átökum okkar sr. Þóris í Morgun- blaðinu væri lokið þessu sinni. Sama máli gegndi um hvern þann, er ég átti orðastað við, eftir að greinarnar tvær birtust. Báðir virtust málsaðilar hafa haldið velli eins og gjarnan verður í trú- máladeilum. En sáttir hélt ég, að við værum, — heilum sáttum. II Dagana um og eftir 19. júní var ég önnum kafinn við að undirbúa komu fjölmennis í Skálhoit. Prestastefna fór að. Innritaðir þátttakendur voru nokkru fleiri en venja er til. Einn þeirra var sr. Þórir Stephensen. Ég hlakkaði til að hitta hann, — og vænti þess að nú gætum við tekizt í hendur, eins og bræður, — synir íslenzkr- ar kirkju, — þrátt fyrir skoðana- ágreining. Prestastefna gekk í garð i dag, hinn 24. júni. Fjölmenni dreif að úr öllum áttum. Hátíð var i lofti. En sr. Þórir Stephensen kom ekki. Eðlileg forföll gátu valdið því. Skeytti ég þessu ekki frekar, en einhver gaukaði að mér Morg- unblaðinu, nær hádegi. Þar var þá á ferðinni ný grein sr. Þóris, — „Lokasvar," — eins og hann nefn- ir ritsmíð þessa. Ef grein þessi er borin saman við ummæli sr. Þóris i Morgun- blaðinu hinn 10. þ.m., hlýtur les- andann að reka i rogastanz. Þessu sinni rfkir stjórnlaus geðshræring í huga dómklerksins. öll sáttfýsi er rokin út í veður og vind. Griða- mál í lok síðustu morgunblaðs- greinar minnar eru að engu höfð. Viðbrögð sr. Þóris eru þessu sinni í einu orði sagt óskiljanleg. Ekki er að undra, þótt margir gesta i Skálholtsstað hafi i dag þráspurt: „Hvað gengur að mann- inum?“ III Sr. Þórir hefur átt erfitt með að finna ónotaleg orð í síðustu grein minni i Morgunblaði. Raunar tín- ir hann til þrjú umræðuefni og blæs þau út á alla vegu. Kem ég að þeim siðar. En þar eð grein min frá 19. júni er svo fátæk af hnýfilyrðum i garð sr. Þóris sem raun ber vitni, leitar hann þessu sinni á önnur mið. Tekur hann nú upp hanzk- ann fyrir aðra menn, sem ég sendi aðrar kveðjur i öðrum blöðum. Þeir menn höfðu ávarpað mig i þeim tóni, að ekki hæfðu önnur svör en þau, er þeir fengu. Sá tónn hefur ekki komið upp i orða- skiptum okkar sr. Þóris, — fyrr en nú. Ekki verður annað séð en hér sé verið að leita að tilefni til nýrrar illdeilu. En hvað veldúr? Það liggur í augum uppi, að ekki er sjálfrátt um þessa nýjustu tiltekt sr. Þóris. Nokkurt umhugs- unarefni hlýtur það að vera, hvað valdið geti svo skyndilegum skap- brigðum. En ég finn enga skýr- ingu, — aðra en þá, sem raunar altöluð er, — að sr. Þórir Stephen- sen er hættur að stýra penna sín- um sjálfur. Á dögunum réttir sr. Þórir fram hönd til sátta. Ég tek fast í þá hönd, — berum orðum og ótví- ræðum. Þetta hafa einhverjir þeir, sem nú etja sr. Þóri, ekki getað þolað. Þeir keyra hann fram á völlinn aftur, nauðugan viljug- an. Þar stendur hann, magnar all- an fjandskap á hendur mér að nýju, — tínir til orð, sem honum aldrei voru ætluð, — miklar önn- ur fyrir sér, — og ræðst siðan til atlögu. Þessu sinni bið ég menn vor- kenna sr. Þóri Stephensen. Sam- úð er áreiðanlega það, sem hann þarfnast mest. Hinir hafa ekki unnið gott verk, er að baki honum standa og stugga honum hrjáðum inn á hringsviðið. IV Fáorður skal ég vera um hugar- hrellingu dómkirkjuprests. Þó hlýt ég að bera af mér högg. Sr. Þórir kvartar sáran undan þvi, að ég véfengi heilindi hans. Séra Heimir Steinsson. Sjálfur gerir hann sig sekan um hið sama, enda dregur hann full- komlega i efa einlægni mína, ekki sizt sáttaboð og vinsemd. Hafi ég borið honum „lygar“ á brýn, er sú sök þannig goldin af hans hálfu, svo að ekki hallast á. I annan stað kveinkar dóm- kirkjuprestur sér undan orðinu „lýðskrumari". Telur hann með þvi vegið að embættisheiðri sin- um. Hve oft skyldi sr. Þórir hafa vegið að starfi mínu undanfarnar vikur? Fyrstu grein sína, i Morg- unblaðinu hinn 16. maí, hóf hann með brigzlyrðum af því tagi, þannig hefur hann haldið áfram síðan. Ég hygg, að sú útlegging min á orðum Michaels Ramseys, er fram kom i Morgunblaðinu 19. júní, verði að teljast tiltölulega meinlaus, sé hún borin saman við síendurteknar tilraunir sr. Þóris til að draga Skálholtsskóla og- stað inn í þessar umræður. Hafi sr. Þórir þurft að verja mannorð sitt, eins og hann svo mjög fjöl- yrðir um, hef ég þvi einnig átt f sömu baráttu. Hvorugur okkar ætti að hóta hinum með himnesk- um eða jarðneskum dómstólum þess vegna. Land-Rover Diesel lengri gerð '72 Volvo 144 '72 Peugeot404'68 Citroen Ami 8 '74. HEKLAhf Laugavegi 1 70—1 72 — Sími 21240 Skrásetning nýrra stúdenta r í Háskóla Islands fer fram frá 1. til 15. júlí 1975. Umsókn um skrásetningu skal fylgja Ijósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskirteini, skrásetningar- gjald kr. 4200.— — fjögur þúsund og tvö hundruð — og tvær Ijósmyndir af umsækjanda (stærð 3,5 x 4,5 cm). Einnig nafnnúmer og fæðingarnúmer umsækjanda. Skrásetningin fer fram í skrifstofu Háskólans, og þar fást um- sóknareyðublöð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.