Morgunblaðið - 26.06.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.06.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 26. JUNt 1975 Eiður Guðnason: Lítið eitt um langa skýrslu Fjárlaga- og hagsýslustofnun hefur gefið út skýrslu nefndar um skipulag og rekstur Ríkisút- varpsins, langt plagg og ítarlegt, — 219 blaðslður með aragrúa skipurita og skýringartaflna. Víst er það góðra gjalda vert, þegar farið er ofan í saumana á stofnun- um ríkisins til að aðgæta, hvað þar megi betur fara. Stundum er það hinsvegar þvf miður svo, að þegar úrbótatillögurnar loks sjá dagsins ljós, þá hvarflar það að manni, hvort ekki hafi verið byrj- að á öfugum enda, og hvort í rauninni hafi ekki verið verr far- ið en heima setið. Þar sem mér þykir líklegt, að nokkrar umræður eigi eftir að verða í fjölmiðlum um efni þess- arar skýrslu, þá langar mig að koma nokkrum athugasemdum á framfæri um þá þætti skýrslunn- ar, sem mér eru kunnastir úr starfi. Dýrt eða ódýrt? Kostnaður við þessa skýrslu og tillögugerð nemur hátt á fjórðu milljón króna. Það er matsatriði, hvort það er mikið eða lítið, en allavega fengu menn þykka bók í hendur, og þar liggur greinilega mikil vinna að baki. Hinsvegar vaknar sú spurning, hvort ekki hefði verið ódýrara i framkvæmd að fá kunnuga menn til að gera það sem á bls. 3 í skýrslunni er nefnt: „Nákvæm lýsing á starfi hvers einstaks starfsmanns og tengsla milli einstakra starfa.“ Einhvern veginn finnst manni, að þar hefðu kunnugir menn getað betur um fjallað, en þeir sem, að undanskildum dr. Kjartani Jóhannssyni, hvorki höfðu nasa- sjón af sjónvarpi né útvarpi og urðu að byrja á þvi að kynna sér allt frá grunni. Var þessi kostnaðarsama starfsháttagrein- ing ef til vill nauðsynleg vegna þess að um þessi mál áttu að fjalla menn, sem fyrir utan Andrés Björnsson, útvarpsstjóra, ekki þekktu sjónvarps- eða hljóðvarps- rekstur nema af fjarlægri af- spurn? Það er að vísu ofur eðli- legt, að nefndarmenn hafi þurft fótfestu til að standa á um tillögu- gerð, en er hún ekki nokkuð dýr? Hefði ekki fyrst mátt leita til- lagna hjá þeim, sem fara með daglega stjórn stofnunarinnar og gjörþekkja reksturinn, því eins og segir i skýrslunni á bls. 3: „Starfsemi rikisútvarpsins er á ýmsan hátt sérstæð og flóknari en annar ríkisrekstur og á það ekki sist við um starfsemi sjónvarps.“ Sameining fréttastofa Tillögur nefndarmanna eru i 41 lið, og verður hér ekki drepið á nema fátt eitt, enda skortir mig innsýn í starfsemi margra deilda stofnunarinnar og tel mig ekki þess umkominn að gera þar at- hugasemdir. Liðir 29 til 33 fjalla um fréttir. Þar er lagt til að sameina þann þátt fréttastofanna, er lýtur að fréttaöflun i væntanlegri ný- NORRÆNIR sjúkrahúseðlisfræð- ingar héldu ráðstefnu á Hótel Loftleiðum 17. og 18. júni sl. og sóttu ráðstefnuna um 50 manns, eðlisfræðingar og læknar frá Norðurlöndum, Englandi og Sviss. Frá tslandi voru níu þátt- takendur og fluttu fjórir þeirra erindi, en alls voru flutt 35 erindi á ráðstefnunni. Af efnisatriðum, sem fjallað var um, má nefna lækningar með radíum, geislalíffræði, geisla- skammta á kynkirtla, geislamæl- ingar, örbylgjuáhrif og ýmis byggingu Rikisútvarpsins. I næsta lið segir, að meðan frétta- stofurnar séu hvor í sinu hús- næði, verði leitast við að auka samvinnu með því að sjónvarp nýti þær upplýsingar, sem unnar séu í hljóðvarpi eftir þvi sem hag- kvæmt þyki. Þar er bent á tvær leiðir við núverandi ástand. Annarsvegar, að fréttastofa hljóð- varps geri yfirlit yfir helztu frétt- ir liðins dags til lestrar í frétta- tfma sjónvarps, eða að fréttastofa sjónvarps fái öll fréttaskrif hljóð- varps til úrvinnslu og hugsanlegr- ar endursagnar. Hvorugur er kosturinn góður og hvorugur sýnist vera fram- kvæmanlegur. Væri það bót frá þvi, sem nú er, ef hver fréttatími sjónvarpsins hæfist á fimm til tíu mínútna löngu lesnu fréttayfirliti orðréttu úrfréttumhljóðvarpsins? Slíkt fréttayfirlit yrði væntanlega ekki tilbúið fyrr en um sama leyti og kvöldfréttatími hljóðvarpsins hefst, eða undir klukkan nítján. Tími til myndlýsingar fréttanna yrði nánast enginn. Hinn kostur- inn, að fá öll fréttaskrif hljóð- varpsins til úrvinnslu og hugsan- legrar endurskoðunar, sýnist mér hafa það í för með sér, að sendill yrði að vera á þönum allan daginn með fréttir af Skúlagötu inn á Laugaveg, eða að koma yrði á sérstöku fjarritasambandi til að senda þessar fréttir frá útvarpi til sjónvarps. Varla yrði það sérlegur sparnaður, og ekki minnkaði sá tvíverknaður, sem kann þegar að vera fyrir hendi í einhverjum mæli. Ekki er heldur sýnt fram á i skýrslunni, hvern sparnað þetta hefði í för með sér. Hann yrði held ég næsta lítill. Fréttaöflun útvarps og sjónvarps er gjörólík í grundvallaratriðum. Henni er að sjálfsögðu hægt að sinna á sama stað, en henni sinnir hinsvegar ekki sama fólkið svo vel sé. Okkur er tamt að vitna til hinna Norður- landanna. Hvarvetna þar er þessi starfsemi aðskilin og raunar alls- staðar annarsstaðar, þar sem ég þekki til. Einhver ástæða hlýtur að vera til þess, og annars væru nágrannar okkar á Norðurlöndum áreiðanlega búnir að sameina sín-. ar fréttastofur fyrir löngu. Þar er samvinna milli þessara stofnana á þeim sviðum, þar sem slíkt er skynsamlegt. Það er hér líka (þingfréttir, fréttaöflunarferðir til útlanda), en á öðrum sviðum er samkeppni, og það er hér líka. Raunar finnst mér samvinna um þingfréttir í núverandi mynd orka tvímælis, en það er önnur saga. Sé litið á heildarmyndina af rekstri Ríkisútvarpsins, þá eru fréttastofurnar þar ekki þungur baggi miðað við margt annað. Launakostnaður á fréttastofu hljóðvarps var 9.4 milljónir árið 1972, en sama ár 8,5 milljónir á fréttastofu sjónvarps, eða 17.9 milljónir, eða minna en Lénharð- ur kostaði allur (á öðru verðlagi, að vísu). atriði varðandi sjúkdómsgrein- ingu með töntgentækjum og geislavirkum efnum. Sjúkrahúseðlisfræðingar vinna í nánu samstarfi við lækna að geislalækningum og sjúkdóms- greiningu með geislavirkum efnum. Samtök þeirra á Norður- löndum nefnast Nordisk Forening for Klinisk Fysik og halda þau vísindalegar ráðstefnur annað hvert ár. Ráðstefnan á Loftleiðum var sú áttunda í röð- inni og jafnframt sú fyrsta á Islandi. Eiður Guðnason Fréttamönnum er eiginlegt að kappkosta að ná til frétta, nýrra frétta, sem ekki hafa áður birzt. Ef fréttaöflunarþáttur þessara tveggja stofnana yrði sameinaður, yrði kippt burtu mikilvægu frum- kvæði, og afleiðingin yrði tvimælalaust lélegri þjónusta við almenning og leiðinlegri fréttir og varla getur það verið ætlunin. Til hvers var annars komið á fót sérstakri fréttastofu sjónvarps, þegar sjónvarpsrekstur hófst hér? Þrítugasta og fyrsta tillaga nefndarinnar er á þá leið, að meginreglan verði sú, að eins fari aðili frá annárri stofnuninni til fréttaöflunar erlendis, og „þjóni báðum“ eins og það er orðað í skýrslunni. Þetta hefur verið gert að undanförnu og er hægt í sum- um tilvikum, en ekki öllum. Þurfi sjónvarpsfréttamaður að vinna með kvikmyndatökumanni og hljóðmanni allan daginn, eins og til dæmis er gert, þegar forseta Islands er fylgt á ferðalögum erlendis, svo aðeins eitt dæmi sé nefnt, þá getur hann ekki látið þá menn sitja aðgerðarlausa meðan hann bíður kannski tvisvar sinn- um á dag, einn til tvo klukkutíma, eftir að ná símasambandi heim til að tala fréttir til útvarpsins, eins og stundum vill verða, og sérstak- lega þegar þess er gætt, að er hann lýkur störfum við kvik- myndun, á hann eftir að sitjr fram á nótt við klippingu og frá- gang efnis. Sjálfsagt er að sami maður vinni fyrir báðar frétta- stofurnar, þegar það er hægt. Gallinn er aðeins sá, að það er ekki ætíð hægt. Fréttalestur Þrítugasti og annar liðurinn er um greiðslur til fréttamanna fyrir fréttalestur og að þeim verði breytt „til samræmis við unnar vinnustundir", en að öðrum kosti verði ráðnir sérstakir fréttaþulir eða kynningarþulir látnir annast þetta. Þessi tillaga þarfnast skýr- inga: Þegar sjónvarp hófst lásu þeir fréttamenn, sem voru á vakt, fréttirnar til skiptis hverju sinni og þá eftir að hafa unnið ellefu klukkustundir og setið við frétta- skriftir oft þangað til klukkan alveg að verða átta. Þetta fundum við sjálfir, að var ekki gott, hvorki fyrir okkur sjálfa né þá, sem á okkur hlýða. Þessvegna var gripið til þess að fá óþreytta menn til að lesa fréttirnar og varð það úr, að þeir fréttamenn, sem áttu frí, mættu klukkan sex á sínum frídögum, fylgdust með undirbúningi fréttanna, lásu yfir handrit, og undirbjuggu frétta- lesturinn. Þetta gekk vel, nema hvað heilir fridagar i hverjum mánuði urðu býsna fáir. Þá var auglýst eftir þulum. Margir voru þar kallaðir, en fáir útvaldir. Það kom nefnifega í ljós, að það eru ekki eins margir Iæsir og ætla mætti. Við þetta situr. Frétta- menn fá greidda tvo yfirvinnu- tíma og lestrarálag, alls 3.600 krónur fyrir 3 tima vinnu, og sundurslitinn frídag. Það þætti líklega ekki mikið í uppmælingu. Og til þess að leiðrétta margút- breiddan misskilning skal tekið fram, að aðeins einn þeirra tveggja eða þriggja fréttamanna, sem fram koma i fréttatímanum, fær sérstaklega greitt fyrir frétta- lesturinn. Ekki sæi ég eftir að hætta fréttalestri og það sama veit ég að á við um alla starfs- bræður mína, en hvort það yrði ódýrara fyrir Rikisútvarpið að ráða sérstaka fréttaþuli, eða láta kynningarþuli annast það verk, er önnur saga. Hinsvegar er góðra gjalda vert að viðurkenna það sjónarmið, að óþreyttir menn lesi fréttir. Vinnuferðir og yfirvinna Næsti liður í tillögum nefndar- innar er á þessa leið: öllum yfir- vinnugreiðslum til starfsfólks fréttastofanna í utanlandsferðum verði hætt. Margt fannst mér skrýtið í kýrhausnum við lestur þessarar skýrslu, en þetta þó skrýtnast. Tökum dæmi: Fréttamaður A, sem unnið hefur laugardag og sunnudag, samtals 24 klukkustundir, er á mánudagsmorgni sendur norður I land. Hann stimplar sig inn áður en hann fer út á flugvöll. Vinnur sitt verk fyrir norðan og kemur til baka um kvöldið og stimplar sig út. Hann fær greidda eftirvinnu allan tímann, sem rétt er og sam- kvæmt samningum. Fréttamaður B, sem unnið hef- ur sömu vinnuskyldu um helgina, fer á mánudagsmorgni til Kaup- mannahafnar. Hann kemur til Kaupmannahafnar undir kvöldið, fer þar á undirbúningsfund vegna þess verkefnis, sem hann á að inna af höndum daginn eftir. Hann vinnur sitt verk, og fer með flugvél heim síðdegis og kemur efninu í fréttatíma og dagskrá sjónvarpsins um kvöldið. Hvort- tveggja eru raunveruleg dæmi. Þessa tvo daga átti fréttamaður- inn, sem fór til Kaupmannahafn- ar, að eiga fri samkvæmt vakta- töflu og næsta dag á hann að skila tólf tíma vinnu á fréttastofunni. En hann á ekki að fá kaup! Hvaða glóra er í slíku? Halda þeir menn, sem slíkar tillögur gera, að svona ferðir séu skemmtiferðir, sem við- komandi fréttamenn eigi að þakka fyrir að fá náðarsamlegast að fara? Hér eimir eftir af þeim gamla hugsunarhætti frá því að það tók viku að fara til Kaup- mannahafnar, að aliar ferðir til útlanda séu skemmtiferðir, þar sem menn sitji í skuggum trjánna og drekki bjórinn, sem er bannað- ur á Fróni, og skjótist kannski inn á fundi öðru hverju, rétt svo að stóll íslands sé þar ekki auður alla daga. Tillögugerð á borð við þetta er dæmigert kák út i bláinn. Hvaða munur er á því að vinna erlendis eða hér heima? Ef eitt- hvað er, þá er vinnan langtum erfiðari erlendis, vegna þess að þar gerir ókunnugleikinn mönn- um erfitt fyrir, vegalengdir eru meiri og margt annað mætti til tína. Sem sagt vinna erlendis er ekki vinna, heldur sjálfboða- vinna! Yfirvinna og aukastörf Nú eru þessar athugasemdir orðnar langtum lengri en ætlunin var í upphafi, en samt er freist- andi að halda áfram. I tillögum nefndarinnar er tal- að um mjög mikla yfirvinnu á fréttastofum hljóðvarps og sjón- varps. Hvað sjónvarpið áhrærir, þá er þetta mikið rétt, og yfirvinn- an hefur þar ætið verið langtum meiri en boðlegt getur talizt og miklum mun meiri en starfsmenn hafa óskað eftir. En þess ber að geta, að sumir fréttamanna hafa unnið tvöfalt starf um langt skeið annars vegar sem frétta- menn og hinsvegar sem dag- skrármenn og umsjónarmenn fastra þátta. Þetta á einkum við um þá, sem hlotið hafa nokkra sérmenntun f gerð og upptöku sjónvarpsþátta. Þessi yfirvinna hefur að mati yfirmanna sjón- varpsins verið nauðsynleg vegna þess, að ekki hefur fengist leyfi til' að fastráða eða sérmennta fleiri starfsmenn, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir dagskrárstjóra Frétta- og fræðsludeildar um starfsmannafjölgun og síauknar kröfur um innlenda dagskrár- gerð. Fáir mundu þó fagna þvi jafnmikið og við, ef unnt yrði að draga úr þessari yfirvinnu. Er það nokkuð óeðlilegt, að hjá ein- staka manni fari yfirvinna og greiðslur fyrir föst umsamin verk eða þætti upp i allt að 75 prósent fastakaupsins eða jafnvel meira, þegar stundum eru unnir þrettán dagar f törn, tíu til tólf klukku- stundir á dag og stundum meira? Þetta var gert sfðastliðinn vetur, vegna þess að það reyndist nauð- synlegt að mati yfirmanna stofn- unarinnar og vegna þess að ekki fékkst leyfi til að fjölga föstum starfsmönnum. Það er og rétt að taka það fram, að þessi vinna er unnin, og við njótum ekki þeirra forréttinda, sem forstöðumenn ýmissa ríkisstofnana njóta, að fá greidda 10 til 20 yfir- vinnutíma á mánuði fyrir „ómælda yfirvinnu," sem ekki þarf að sanna að hafi raun- verulega verið unnin. Yfirvinnan er fljót að hrannast upp, þegar mannfæðin er slik, að verði einn fréttamaður veikur, eða fari burtu til fréttaöflunar, þarf ann- ar að bæta á sig 18 til 36 klukku- stunda vinnu á viku. Enda skilja starfsbræður okkar á Norðurlönd- unum ekki hvernig unnt er að halda úti 25 til 30 mínútna frétt- um sex daga vikunnar, með sex til sjö fréttamönnum og aðeins þrem ur á vakt á hverjum degi, og fréttastjóra, sem jafnframt hefur annað umfangsmikið verkefni, sem er fræðsluefnið í dagskránni. Fréttastjóri danska sjónvarpsins, Hans Jörgen Jensen, hefur á að skipa þreföldu eða fjórföldu starfsliði á við fréttastofu ís- lenzka sjónvarpsins, og hefur við- lfka rúm f dagskránni, en hann telur sig samt hafa of fátt starfs- lið. Viðmiðun við starfsfólk á tveimur fréttastofum sænska sjónvarpsins er gjörsamlega út í hött, þar starfa sjálfsagt fttnm til sexfalt fleiri aðeins á annarri fréttastofunni. Það er f rauninni sérstakt rannsóknarefni, hvernig hægt hefur verið að halda úti sjónvarpsfréttum hér með jafn fá- mennu starfsliði og raun ber vitni, en skýringin er kannski fyrst og fremst tiltölulega ungt og áhugasamt starfslið. E.t.v. eiga af- leiðingar míkils vinnuálags eftir að koma í ljós, þótt síðar verði. Vaktamál og vinnutími í skýrslunni er talsvert fjallað um vaktamál og um það mætti skrifa langt mál. Þar segir á blað- sfðu 29: „Á fréttastofu sjónvarps virtist vaktaskipulagið gott.“ En það er erfitt að vera sjálfum sér samkvæmur, því á bls. 48 stend- ur: „Rétt er einnig að benda á, að á fréttastofu sjónvarps vinna inn- lendir fréttamenn á 14 klukku- stunda löngum vöktum f einu frá klukkan 09.00 að morgni til klukkan 23.00 að kvöldi." Síðan er það sagt mjög vafa- samt, hvort starfsmenn geti skilað eðlilegum vinnuafköstum á svo löngum vinnudegi, enda séu ákvæði í kjarasamningum um að vaktir skuli ekki vera lengri en 10 klukkustundir og þurfi einnig að kanna hvort ástæða sé til að hafa vakt á fréttastofu lengur en til klukkan 20.30, er fréttalestri lýk- ur. Sem sagt, vaktafyrirkomulag- ið er ekki gott! Rétt er hinsvegar að benda á það, að allar götur síðan byrjað var á fréttaútsendingum sex daga vikunnar, en það mun hafa verið síðla árs 1967, hafa vaktir á frétta- stofu aðeins verið til klukkan 21.00, en ekki til klukkan 23.00, eins og segir f skýrslunni. Von- andi eru ekki fleiri mistök af þessu tagi I skýrslu nefndarinnar. Tvöfaldar greiðslur Að lokum skal svo tekið undir 41. lið tillagna nefndarinnar, um að hætt verði að greiða „ráðherr- um, stjórnmálamönnum og opin- berum starfsmönnum fyrir að koma fram f sjónvarpi eða hljóð- varpi nema undir sérstökum kringumstæðum.“ Þetta vil ég taka undir. Mér hefur alltaf fund- ist það hálf hjákátlegt að vera að greiða ráðherrum og formönnum stjórnmálaflokka tvö eða þrjú þúsund krónur fyrir að koma fram í pólitískum þáttum. Það hlýtur að skoðast sem hluti af starfi þeirra. Það er líka rétt sem fram kemur í skýrslunni, að „upp- taka slíkra þátta fer oft fram í þeim tfma, er þeir f raun eiga að gegna öðrum störfum og fá þeir greitt tvöfalt þegar þannig stend- ur á“. Þessu er ég hjartanlega sam- mála. 1 þesSum orðum nefndar- innar kemur einnig fram, að öll hennar störf hljóta að hafa verið unnin fyrir utan venjulegan vinnutíma þeirra gegnu embætt- ismanna, sem þar áttu sæti, þvi varla getur verið, að „þejr hafi fengið greitt tvöfalt", eins og þeir sjálfir komast að orði. Reykjavik, 24. júni 1975. Eiður Guðnason. Ráðstefna sjúkra- húseðlisfræðinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.