Morgunblaðið - 26.06.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNl 1975
23
ætti vegna heilsubrests og flytja
til Reykjavikur. Þau hjónin Guð-
laug og Halldór bundust miklum
vináttuböndum viö prestshjónin
og börn þeirra á þpssum árum,
sem héldust óslitin til æviloka.
Vitjaði Guðlaug þeirra hjóna oft á
efri árum þeirra eftir að hún
fluttist til Reykjavíkur og heilsu
þeirra hnignaði, enda létu þau oft
senda eftir henni til þess að hún
veitti þeim ánægju og hressingu.
Eftir sjö ára veru á Snæfélls-
nesi færðu þau hjón sig um sét og
þá til átthaga hennar. Nú var fað-
ir hennar orðinn aldraður og bil-
aður maður og óskaði þess, að þau
kæmu til sín og tækju við jörð og
búi með sér í Hólmi, hvað þau
gerðu vorið 1915, en þar beið
þeirra mikið verkefni og marg-
þætt, bæði fyrir þau sjálf, en
einnig fyrir sveitina og íbúa
hennar.
Þau hófu fljótt miklar umbætur
á jörð sinni með aukinni ræktun,
stækkuðu, sléttuðu og girtu túnið,
veittu vatni á engjar og reistu að
nýju Ibúðarhús úr steinsteypu af
stærð, sem hæfði jörðinni. Hall-
dór var hagleiksmaður og smíðaði
sjálfur að mestu það, sem heimil-
ið þurfti. Heimilisstjórn innan-
húss fór Guðlaugu ágætlega úr
hendi og samsvarandi því, sem
bóndi hennar annaðist utanhúss.
Gestakoma var mikil í Hólmi á
þéim tjma enda fóru menn þá
hægar yfir en nú gerist. Þjóðleið
lá þá meðfram túninu í Hólmi og
kusu þá margir að hvílast heima á
bænum og njóta gestrisni húsráð-
enda, sem ætið var í té látin af
góðum hug og myndarskap.
Halldór var fljótt valinn til
margra starfa í sveit sinni og jafn-
an endurkosinn til þeirra. Hann
var þar kennari nokkra vetur og
hafði einnig verið það á Snæfells-
nesi. Þegar Kaupfélag Austur-
Skaftfellinga var stofnað undir
árslokin 1919 var hann kosinn í
fyrstu stjórn þess og átti þar sæti
meðan ævin entist.
A þessum árum, að lokinni
heimsstyrjöldinni fyrri, þegar
flestir væntu meiri hagsældar og
batnandi fjárhagsafkomu frá því,
sem verið hafði, en ráku sig þess í
Stígahlið 45-47 sírni 35645
Hangilæri
Hangiframpartar
Venjulegt verð:
Lærikr. 477.- kg.
framp. kr.'375.~ kg.
Tilboðsverð:
Læri kr. 397,- kg.
framp. kr. 325. - kg.
stað á stóraukna erfiðleika vegna
hraðlækkandi verðlags útflutn-
ingsvara og sölutregðu, var þeim
sem fóru með stjórn atvinnufyrir-
tækja og fjármálastofnana meiri
vandi á höndum en lýst verði í
fáum orðum, og verður ekki gert
hér. Það skal þó tekið fram að
Halldór f Hólmi, og þau hjón
bæði, létu ekki örðugleikana, sem
almennir, beygja sig. Þau stóðu
einörð og óhvikul með þeim mál-
stað, er þau höfðu að sér tekið og
fengið áhuga fyrir, en beittu jafn-
an lipurð og sanngirni i allri máls-
meðferð.
Halldórs naut þvi miður ekki
lengi, hann lézt 17. júní 1930.
Urðu það því aðeins fimmtán ár,
sem hann var að störfum austur
þar. Var hans mikið saknað af
öllum þeim, er honum höfðu
kynnzt. Eftir lát manns síns hélt
Guðlaug búskapnum áfram í
Hólmi næstu fjórtán árin af sömu
reisn og dugnaði og verið hafði.
Hún hélt öllu í svipuðu formi, en
vitanlega reyndi þá enn meira á
þrek hennar og þol.
A þessum árum öllum var í for-
stöðu heimilisins með henni Elías
Jónsson frá Holtaseli á Mýrum,
síðar bóndi á Rauðabergi á Mýr-
um, mikill dugnaðarmaður, ráð-
settur, vandvirkur og ósérhlifinn,
sem vildi heimilinu hið bezta.
Vorið 1944 breytti Guðlaug til,
hætti búskap og flutti til Reykja-
víkur. Var hún þá tekin að eldast
og þreytast, en þó ennþá fær til
allra innanhússtarfa, létt á fæti
og snör í öllum hreyfingum, likari
ungri konu heldur en nærri sjö-
tugri.
Sigriður, systir Guðlaugar, sem
nefnd er hér fyrr, var með systur
sinni og mági til æviloka, en hún
andaðist síðla árs 1942. Hún var
góðum hæfileikum gædd; sívak-
andi um hag heimilisins og hafði
einlæga fórnarlund i þágu þess og
var sérstaklega vel verki farin.
Hún hugsaði meira um annarra
hág en sinn og i rikara mæli en
oftast er. Voru þær systur mjög
samrýndar og reiðubúnar að lið-
sinna hvör annarri eftir því sem
bezt gegndi. Sigríður var ein
þeirra kvenna, sem tilbúnar eru
að fórna og hjálpa eins og kraftar
leyfa og á þann hátt, er kemur sér
bezt.
Þegar þau hjónin voru á Snæfells
nesi höfðu þau tekið að sér korn-
unga stúlku, Svöfu Hildi, af barn-
mörgu heimili, ættleitt hana, alið
upp og voru henni ætíð sem hún
væri þeirra eigið barn, og hún
skoðað þau sem foreldra sina.
Hún hafði þessi seinustu ár, sem
Guðlaug bjó í Hólmi, verið með
köflum við störf hér I Reykjavfk.
Stofnuðu þær mæðgur um þetta
leyti til heimilis hér, og giftist
Svafa norskum manni, Willy
Juliussen. Hefir fjölskyldan
lengst af átt heimili í Sörlaskjóli 7
hér í borginni.
Þrjú önnur fósturbörn en Svöfu
tóku þau Guðlaug og Halldór. Þau
eru:
1. Sigriður Eirrarsdóttir, sem er
systurdóttir Halldórs. Hún er hús-
frú hér i Reykjavík, gift Pétri
Lárussyni.
2. Tryggvi Sigjónsson útgerðar-
maður á Höfn i Hornafirði; kvænt
ur Herdísi Clausen frá Eskifirði.
3. Sigurlaug Guðjónsdóttir frá
Viðborði á Mýrum; gift Haraldi
Teitssyni matreiðslumanni. Hún
er gjaldkeri hjá Sindrasmiðjunni
h.f.
Nokkur fleiri börn hafa verið í
fóstri þeirra hjóna lengur eða
skemur. Allt er þetta vel gefið
myndarfólk og vel fært í þeim
störfum, sem það hefir að sér
tekið. Öll hafa þau átt það sameig-
inlegt að láta sér annt um Guð-
laugu og viljað létta henni tilver-
una, verið henni nærgætin og
fórnfús og í því meiri mæli sem
aldur hennar varð hærri og heilsu
hennar hnignaði. Annars naut
Guðlaug lengst af góðrar heil-
“0
lcefood
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4—6,
Hafnarfirði.
Seljum reyktan lax og graflax
Tökum lax i reykingu
Útbúum graflax
Vacuum pakkað ef óskað er
Póstsendum um allan heim.
ÍSLENZK MATVÆLI
SÍMI 51455
brigði og var fleyg og fær langt
fram yfir það, sem margir verða
að hlíta, er svo háum aldri' hafa
náð.
Guðlaug var á sinni löngu ævi í
hópi þeirra kvenna, sem fremst
hafa staðið í öllum störfum, er
hún kom nærri. Þessvegna verð-
skuldar hún miklar þakkir þeirra,
sem henni hafa kynnzt lengur eða
skemur. Þeir minnast þess með
söknuði, sem hún var þeim. Sið-
ustu vikurnar var hún á Landspít-
alanum, farin að líkamsþreki, en
lengst af andlega hress og virtist
hugsa með björtum vonum til
þess að komast af þessu tilveru-
stigi á annað.
Það er ekki efað að hinar björtu
vonir hennar rætist og fylgja
henni einlægar blessunaróskir.
Ég votta'vandafólki hennar öllu
innilegustu samúð og óska því
heillaríkrar framtiðar.
Jón tvarsson.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinú með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á i
miðvikudagsblaði, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera I sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu Hnubili.
Ævintýraheimur
húsmæðra
Kryddhúsið í verzl. okkar í Aðalstræti 9.
Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun
hinna ýmsu kryddtegunda kl. 2 — 6 í
dag.
Verið velkomin.
Matardeildin,
Aðalstræti 9.
Strásykur 1 kg.
verð kr. 189.00
Molasykur 1 kg.
verð kr. 206.00
Strásykur 25 kg.
verð kr. 4.660.00
fftll irumarkaðurinn hf.
Árm Mat úla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112 vörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S 86-113
egg 1 kg. kr. 375.-
strásykur 1 kg. kr. 189,-
Hveiti 5 Ibs. kr. 202.-
Flórsykur Vi kg. kr. 209.-
Púðursykur 1/2 kg. kr. 122,-
Molasykur 1 kg. kr. 206,-
Kaffi 1/4 kg. kr. 107,-
Ljómasmjörlíki V2 kg. kr. 140.-
Snap Cornflakes 51 0 g. kr. 165 -
Coctailávextir heildós kr. 191.-
Hveiti 25 kg. kr. 21 50.-
Strásykur 25 kg. kr. 4660 -
kjöt
úrvalið
hjá
okkur
vendHA
i verlii er
eftiiar..
h. merbi
KINDA
kjöt
SVINA
kjöt
NAUTA
kjöt
KALFA
kjöt