Morgunblaðið - 26.06.1975, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 26.06.1975, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNl 1975 Stóðum víð allt og rúmlega það Sagði Hafsteinn Guðmundsson formaður ÍBK um Hooley-málið — ÞAÐ er alls ekki réll hjá Joe Hooley, þesar hann segir að við höfum ekki staðið við gerða samninga, og það hafi verið ein aðalástæðan fyrir þvf að hann hætti að þjálfa Keflavíkurliðið, sagði Hafsteinn Guðmundsson formaður fþróttabandalags Kefla- vfkur I viðtali við Morgunblaðið I gær. — Málið er einfaldlega það að Hooley var ekki ánægður með sjálfan sig og árangur strákanna og ákvað þvf að fara. Við stóðum við alla samninga við Hooley og meira að segja rúmlega það, þvf við gerðum meira fyrir hann og fjölskyidu hans í sambandi við ferðir og húsnæðismál cn okkur bar, sagði Hafstcinn. Joe Hooley sagði i viðtali við eitt dagblaðanna í gær að hann hefði ekki fengið þær greiðslur frá IBK sem honum bæri. Því ætlaði hann í málaferli gegn félaginu ef hann fengi ekki pen- ingana með góðu. Auk þess sagð- ist Hooley ætla að fá enska knatt- spyrnusambandið í lið með sér ef á þyrfti að halda. Verður fróðlegt að fylgjast með hvernig það geng- ur eftir að Hooley hefur stungið af frá íslenzkum og norskum félögum áður en samningar hans hafa runnið út, og fróðir menn segja að hann finnist hvergi á skrá enska knattspyrnusam- bandsins. — Þegar Hooley segir að hann hafi ekki fengið allt borgað sem hann á inni hjá okkur, sagði Haf- steinn, þá hlýtur hann að eiga við rúmlega 100 pund, sem við höfð- um ekki getað greitt honum vegna þess að hann á enn eftir að greiða ýmsan kostnað eins og t.d. kostnað vegna nokkurra simtala við England. Ég reikna ekki með að IBK skuldi Joe Hooley mikið þegar öll kurl eru komin til grafar og allir reikningar komnir fram, sagði iBK-formaðurinn. Hafsteinn sagði að ekki væri allt það rétt sem að undanförnu hefði verið skrifað um Joe Hooley og óánægju keflvískra knatt- spyrnumanna. — Þetta gekk ágætlega nema síðustu vikuna þá var hann orðinn áhugalaus og leiður og á fimmtudaginn sendi hann okkur bréf og kvaðst vilja hætta. Þar fór hann þess einnig á leit að honum yrði sleppt við um- samdan mánaðar uppsagnarfrest. Var failizt á þessa beiðni hans og héldum við að þar með væru öll vandamál úr sögunni I sambandi við hann. Svo virðist þó ekki vera, og vilji Hooley gera málaferli úr þessi, þá hann um það, sagði Haf- steinn. Um þær fréttir að Hooley sé á ieið til Sviþjóðar og ætli að taka þar við þjálfun kvaðst Hafsteinn ekkert vita og það kæmi sér mjög á óvart ef svo væri. Hooley hefði að vísu verið i sambandi við Sví- þjóð fyrir nokkru síðan, en kvaðst ekki trúa því að hann fengi starf þar hjá neinu stórliði, sem gæti boðið betur en IBK. Eftir öðrum leiðum sem Morgunblaðið kannaði i gær þá hefur Hooley fengið tilboð um að taka við ensku hálfatvinnumannaliði innan skamms og ekki var annað vitað en hann tæki við þvi starfi. Leikur Víkings og Völsunga settur á næsta miðvikudag án samráðs við Húsvíkinga MÓTANEFND KSl ákvað á fundi sfnum í gær að leikur Víkings og Völsunga, sem aflýsa varð síðastliðinn laugardag vegna þess að dómaratrfóið mætti ekki, skuli fara fram á Ólafsvfk næstkomandi miðvikudag. Hver á að greiða kostnaðinn af ferð Húsvíkinganna vestur hefur hins vegar enn ekki verið ákveðið, en næsta augljóst er að Knattspyrnusambandið verður að greiða ferðakostnaðinn og fyrir því er að minnsta kosti eitt for- dæmi í svona máli. Var það á síðasta keppnistímabili er 1. flokkur Breiðabliks fór fýluferð til Vestmannaeyja og neitaði að fara aðra ferð til leiks við Eyja- menn nema KSl greiddi ferða- kostnað þeirra. Var á það fallizt, og sami gangur hlýtur að verða á málum að þessu sinni. Er Morgunblaðið ræddi við Þor- móð Jónsson formann Völsunga f gær hafði hann ekki heyrt um það að búið væri að ákveða nýjan leik- dag. — Mér finnst furðulegt að þeir skuli ákveða daginn án þess að hafa samráð við okkur, sagði Þormóður. — Þá datt okkur ekki í hug að þeir myndu ákveða nýjan leikdag áður en þeir tækju fyrir kæru þá sem við sendum þeim vegna þess að dómararnir mættu ekki til leiks á laugardaginn. Ég veit ekki hvað við gerum í þessu máli, og það að ákveða nýjan leik- dag í miðri viku er mjög erfitt fyrir okkur. Mannskapurinn er jú i vinnu og sumir vinna langt fram á kvöld, sagði Þormóður Jónsson og var greinilega mjög öhress með þá meðferð sem þetta mál hefur fengið hjá knattspyrnufor- ystunni. Fylkir og Selfoss settu r IR og Gróttu í kuldann Hafsteinn Guðmundsson. TVEIR fyrstu leikirnir í Bikar- keppni KSl fóru fram í fyrra- kvöld. Þá vann Fylkir lið Gróttu með fjórum mörkum gegn einu og Selfyssingar unnu IR með þremur gegn engu. I leik Fylkis og Gróttu var hart barizt í fyrri hálfleiknum, en hvorugu liðinu tókst að skora. HEEVÍSMEIHAFINN AKI-BUA TAPAÐI Nokkur strekkingur var f fyrri hálfleiknum og hafði Grótta vind- inn í bakið, átti liðið þá nokkrar snarpar sóknarlotur, sem þó ekki nýttust. I seinni hálfleiknum lægði vindinn, og tók Fylkir öll völd í leiknum, er lengra leið á leiktímann. Ómar Egilsson skor- aði fyrsta markið, en Jón Albert jafnaði fyrir Gróttu. Þrjú síðustu mörkin voru svo Arbæinganna, markakóngurinn þeirra, Baldur Rafnsson skoraði eitt markanna, en Hörður Antonsson tvö þau síð- ustu. FYRSTU GRKIN HELSINKI-LEIKANNA BRETINN Alan Pascoe opnaði Helsinki-leikana f frjálsum fþróttum með því að sigra John Akii-Bua og Jim Boldin í 400 metra grinda- hlaupi í gær. Ugandamaðurinn Akii-Bua er heimsmethafi og ólympíu- meistari, en f fyrra var Bolding beztur f þessari grein í heiminum. Margt af bezta frjálsíþróttafólki heims tekur þátt f þessari miklu keppni f Finnlandi og þegar fyrsta daginn voru unnin mörg góð afrek. Tími Alans Pascoes í 400 metra grindahlaupinu var 49,28 sek., Akíi-Bua varð annar á 49,55 og Bolding þriðji á 49,63, sama tíma fékk Ralph Mann, sem er frá Bandaríkjunum eins og Boldin, en var dæmdur sjónarmun á eftir. I 100 metra hlaupi sigraði sovézki ólympíumeistarinn Valeri Borzov á 10,27 sekúndum, en annar varð landi hans Alexander Kornelyuk Elmar Geirsson ELMAR Geirsson, knatt- spyrnumaöurinn snjalli úr Fram, er væntanleg- ur hingað til lands f byrjun næsta mánaöar. Hefur Elmar gengiö frá félagaskiptum frá Hertu Zehlendorf og yfir í Fram og er löglegur frá og með deginum f dag. Verður Elmar heima f um það bil tvo mánuði en í haust fer hann til Tier við Landamæri Luxemborgar og mun starfa þar sem tann- læknir. á 10,46. I 800 metra hlaupinu sigraði Júgóslavinn Lucianov Sus- anj á 1:46.03, Rick Wohlhuter frá Bandaríkjunum varð annar á 1:46.50, Mike Boyt frá Kenya kom svo þriðji í mark á 1:46.76. Ian Stewart frá Bretlandi sigraði í 5000 metra hlaupinu á 13.27.55. I næstu sætum urðu Paul Mose og Bill Scott, en ólympíumeistarinn Lasse Viren frá Finnlandi mátti gera sér fjórða sætið að góðu á 13:34.51. I sleggjukasti sigraði Murofushi frá Japan með því að kasta sleggj- unni 70,76 metra, en Finninn Harri Huhtala varð annar með 69,32. I kringlukastinu kastaði Wolfgang Schmidt lengst allra, eða 65,56 metra og þar áttu Finnar einnig annan mann — Pentti Kahma, sem kastaði 64,60. Bandarikjamaðurinn Powell varð þriðji með 64,44. I 1500 metra hlaupi kvenna sigraði Francie Larreu, Frakk- landi, á 4:15.05 og Nina Holmen frá Finnlandi varð önnur á 4:15.26. Irena Szewinska frá Pól- landi hafði yfirburði í 400 metra hlaupi kvenna, en hún hljóp á 51,07 sékúndum. Sú sem varð önnur, Riita Salin frá Finnlandi, rann skeiðið á 52,08 sek. I hástökki kvenna vann Debbie Hill frá Kanada með því að stökkva 1,85, en Mikiko Sone frá Japan varð önnur með 1,75 m. Heimsmethafinn og ðlympfumeistarinn John Akii-Bua mætti ofjarli sfnum f 400 metra grindahlaupi fyrsta keppnísdag Helsinki-leikanna þar sem margt af fremsta frjálsíþróttafólki f heimi er meðal þátttakenda. I leik IR og Selfoss skoruðu Selfyssingar öll þrjú mörk leiks- ins í fyrri hálfleiknum og sendu ÍR-ingana þar með út úr keppn- inni. Mörk Selfoss skoruðu Tryggvi Gunnarsson (2) og Stefán Larsen. 1 gærkvöldi voru svo háðir 9 leikir í keppninni. Víkingur—Fram REYKJAVlKURFÉLÖGIN Fram og Víkingur leiða saman hesta sfna á Laugardalsvellinum i kvöld. Eru Framarar með sex stig, en Víkingur með fjögur í hinni galopnu 1. deildarkeppni. Hafa Framarar tapað tveimur leikjum, fyrir FH og IA, en Víkingar hafa tapað fyrir KR og Val. Fram hef- ur unnið KR, IBK og IBV, en Víkingar hafa auk þess að gera jafntefli við IA og IBV unnið Keflvfkingana. Bæði liðin tefla fram sterkustu leikmönnum sínum í kvöld og verður gaman að sjá Guðgeir Leifsson i baráttu á móti Framur- um, en með þeim hefur Guðgeir leikið tvö sfðustu ár, eða þar til hann gekk að nýjti í Víking í vor. Bacon á Hvaleyrinni GOLFKENNARINN Tony Bacon hefur að undanförnu verið við kennslu í Vestmannaeyjum, en f dag byrjar hann að nýju að kenna á Hvaleyrarvellinum. Mun hann kenna þar í dag fimmtudag, föstu- dag, laugardag og sunnudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.