Morgunblaðið - 04.07.1975, Side 21

Morgunblaðið - 04.07.1975, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JULI 1975 21 Stjórnarsamþykkt áhuga- manna um sjávarútvegsmál Mbl. hefur borizt eftirfarandi: STJÓRNARFUNDUR haldinn f Félagi áhugamanna um sjávarút- vegsmál mánudaginn 30. júnf gerir eftirfarandi ályktun um landhelgismál. Fundurinn harmar það skiln- ingsleysi, sem ávallt hefur komið fram hjá nágrönnum okkar á bar- áttu íslands fyrir vernd og nýt- ingu þeirrar einu auðlindar, sem íslenzka þjóðin getur byggt til- veru sina á. Jafnvel frændur okkar á Norðurlöndum hafa aldrei lýst yfir opinberum stuðn- ingi við þessa sérstöðu, sem virða bæri á alþjóðavettvangi. Bretar og Þjóðverjar hafa beitt okkur ofbeldi með vopnum og efnahags- þvingunum. Enn stendur yfir átakadeila við Þjóðverja. Þessi saga og ástand er því hörmulegra, að örlitill þrýstihópur, togaraeig- endafélögin í viðkomandi löndum, hafa algjörlega ráðið stefnu ríkisstjórnanna. Aðrir miklu mikilvægari þjóðarhags- munir þessara aðila, skv. umsögn þeirra sjálfra, i öryggismálasam- vinnu og viðskiptum, hefur verið ýtt til hliðar. Hér veldur eflaust miklu um túlkunarskortur okkar íslendinga sjálfra. Ekki hefur náðst yfirsýn yfir sameiginleg hagsmunamál heldur málin þró- azt í langvarandi málþóf um Iög- fræðiatriði og hámarksafla. Vegna alheimsþróunar i haf- réttarmálum, sem við höfum verið brautryðjendur í meðal Evrópuþjóðanna, er 200 milna efnahagslögsaga nú staðreynd, allsherjaryfirráð strandríkisins komin í texta 2. nefndar hafréttarráðstefnunnar, og væntanlega verður formlega frá þessu gengið innan nokkurra mánaða. Ávallt að lokum harðra átaka i deilum okkar við andstæð- inga i landhelgismálum hefur þeim skilizt að þeir háðu deilu við okkur á röngum forsendum. Ávalit hafa þeir fylgt okkur eftir og gert nákvæmlega það sama í sinum landhelgismálum, sem þeir kostuðu miklu til að koma í veg fyrir að við gerðum í okkar. Þessar aðgerðir hafa aldrei verið í neinu samræmi við verðmætin, sem í húfi voru. Það sama liggur einnig fyrir sem staðreynd í sambandi við 50 mílurnar og 200 mílurnar, þeir munu einnig helga sér 200 milurnar. Þvi verður nú að gera þá kröfu til þessara þjóða, að þeir láti nú þegar af kröfum sínum til veiða á islenzka landgrunninu og segi skilið við þann valdsrétt og valds- réttarhugsunarhátt, er þeir hafa ætið beitt gegn Islendingum. Þá þess heldur, er fyrir liggur að Eskifjörður þurrkaður út Esklfirði 1. júir LlTIÐ hefur borið á ferðafólki hér í sumar enn sem komið er, og er það kannski ekkert undarlegt, þar sem þeir menn hjá vegamála- stjórn, sem vegamerkingar annast, hafa þurrkað nafn bæjar- ins út af öllum vegamerkingum við vegi á Austurlandi. Víða eru stör skilti með nöfnum kauptúna og kaupstaða, en hvergi sést nafn Eskifjarðar, Væri fróðlegt að vita hjá viðkomandi aðilum, hverjum tilgangi það þjónar að strika ann- an stærsta bæ út af öllum vega- merkingum. Vænta Eskfirðingar leiðréttingar á þessu, því hér eru þjónustufyrirtæki sem og annars staðar og finnst mönnum að vonum hart að opinber stofnun skuli draga úr ferðamanna- straumi til bæjarins. Ævar. ASIMINN ER: 22480 kjáJ JR*r0imbIfibib Þjóðverjar beittu grófustu blekk- ingum i tilraunum sínum til þess að fá Haagdómstólinn til þess að lögfesta sér valdsréttinn á Is- landsmiðum. Staðreynd er, að ein- göngu er hægt að benda á tima- slitrur til ávinnings hefðarinnar, sem fiskveiðiréttindi þeirra nú eiga að byggjast á, þar sem er- lendu fiskiskipaflotarnir hurfu af Islandsmiðum öll ár beggja heimsstyrjaldanna. Vegna þessar- ar sögulegu staðreyndar hafa hin- ir erlendu fiskiskipaflotar aldrei fiskað nægjanlega lengi, „stöðugt, ótruflað og ómótmælt", eins og segir í þýzka alþjóðaréttinum sem algert skilyrði til ávinnings hefð- ar. Því eiga engar erlendar þjóðir sögulega hefð til veiða á Islands- miðum. Það er kominn tími til þess að þessar þjóðir láti nú af frjálsum og fúsum vilja af valds- réttarkröfum sinum, sem eiga sér ekki stoð i alþjóðalögum og taki upp eðlileg vinasamskipti við Is- lendinga. Þetta er þeirra síðasta tækifæri. Islendingar eiga nú sjálfir nægjanlegan skipastól til þess að taka árlega þann afla af Islandsmiðum, sem taka má, vegna hörmulegrar stffðu fiski- stofnanna. Veiðiheimildir til út- lendinga nú eru því framsal á hluta af þjóðarauði Islendinga þeim til handa. Sizt af öllu kemur til mála að gjalda Efnahagsbanda- laginu eðlilega viðskiptaaðstöðu okkar hjá þvi með veiðiheimild- um til rikja þess, þar sem við erum miklu stærri viðskiptaaðili hjá þeim en þeir hjá okkur. Ef gengið væri að slíkum viðskipta- aðstöðugjöldum væru opnaðar dyr fyrir aðra og mikilvægari við- skiptaaðila fyrir. Islendinga að krefjast samskonar gjalda. Félag áhugamanna um sjávar- útvegsmál skorar á alla lands- menn að taka þátt í baráttunni fyrir 200 mílunum tslendingum einum til handa. SERVIS Þvottavél kr. 89.300.- Tauþurrkari kr. 39.600.- Samstæðan kr. 128.900.- ATHUGIÐ Sérstaklega hagstætt verð á tauþurrkara. Opið til kl. 10 Til sölu lítið notaðir hjólbarðar 560 X 1 5 Bílaleigan Geysir. •o ■o 5k c- r* o ta (Q (D < 3 5* SIMANUMER 74100 KJÖT NÝLENDUVÖRUR MJÓLK FISKUR SENDUM HEIM HÓLAGARÐUR KJÖRBÚÐ V BREIÐHOLT 3 Héraðsmót Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi: Á Olafsfirði, Húsavík og Þórshöfn Ólafsfirði föstudaginn 4. júlí kl. 21. Ávörp flytja Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, Lárus Jónsson, alþm. og Sigurður Björnsson, húsasm.m. Húsavík laugardaginn 5. júli kl. 21. Ávörp flytjé Geir Hallgrímsson, forsætisráðh., Halldói Blöndal, kennari og Þorvaldur Vestmann bæjartæknifr. Þórshöfn sunnudaginn 6. júlí kl. 21. Ávörp flytja Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra, og Jón G. Sólnes, alþm. Skemmtiatriði á héraðsmótunum annast hljómsveit Ólafs Gauks ásamt Magnúsi Jónssyni, öperusöngvara, Svanhildi, Jörundi og Hrafni Pálssyni. Hljómsveitina skipa Ólafur Gaukur, Svanhildur, Ágúst Atlason, Benedikt Pálsson og Carl Möller. Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn dansleikur, þar sem hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir dansi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.